Styður hugmynd Haraldar Benediktssonar um þriðja orkupakkann
Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist styðja hugmynd flokksbróður síns, Haraldar Benediktssonar, um þriðja orkupakkann. Tillagan felur í sér að samþykki meirihluti Alþingis lagningu sæstrengs taki sú samþykkt ekki gildi nema meirihluti þjóðarinnar samþykki þá ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu.