Þögn á útvarpsstöðvunum í morgun
Þögn ríkti á stærstu útvarpsstöðum landsins í skamma stund á níunda tímanum í morgun. Tilgangur þagnarinnar var að vekja athygli á framlagi sjálfstætt starfandi tónlistarmanna til íslensks samfélags. Þeir hafa búið við mikið atvinnuleysi og fá úrræði síðustu mánuði vegna faraldurs kórónuveiru.