Arnór Smárason skrifaði í dag undir tveggja ára samning
Arnór Smárason skrifaði í dag undir tveggja ára samning við íslandsmeistara Vals í Pepsí Max deild karla í knattspyrnu fyrir komandi tímabil en verður það fyrsta tímabil Arnórs í efstu deild á Íslandi, þar sem Skagamaðurinn hóf sinn atvinnumannaferil 15 ára gamall. Arnór er 32 ára og á að baki 26 landsleiki fyrir A landsliðið en kemur til Vals frá Lilleström í Noregi