Sorpið flæðir um götur Rómar
Læknar í Róm vara við neyðarástandi í borginni vegna sorps sem flæðir þar um göturnar. Síðustu ár hefur verið háð mikil barátta við sorpið í borginni sem er um eitt komma sjö milljón tonn á hverju ári en ástandið hefur versnað til muna í hitabylgjunni sem nú gengur yfir