Þúsundir ábendinga um óleyfilega heimagistingu

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað tugum mála til lögreglu vegna brota á lögum um heimagistingu. Þúsundir ábendinga hafa borist um óleyfilega skammtímaleigu og hefur mörgum þeirra verið vísað til skattrannsóknarstjóra. Ráðherra segir þetta mun meiri árangur en búist hafi verið við og hefur ákveðið að eftirlit með heimagistingu verði til frambúðar.

867
02:08

Vinsælt í flokknum Fréttir