Formaður VR segir viðræðurnar vera leysanlegar

Formaður VR segir það vera eina markmið félagsins að ná samningum áður en næstu verkföll hefjast á fimmtudaginn. Hann segir viðræðurnar vera leysanlegar og hrósar stjórnvöldum fyrir jákvæðari nálgun en áður. Formaður Eflingar segir verkfallsbrot hafa verið framin víðar en hún bjóst við og þau hafi verið grófari. Næsti sáttafundur í deilunni er á mánudaginn.

155
02:46

Vinsælt í flokknum Fréttir