Segir ekki tilefni til að hafa áhyggjur af þróun rafmynta

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að ekki sé tilefni til að hafa miklar áhyggjur af þróun rafmynta eða sýndarfjár eins og Facebook Libra því undirliggjandi sýndarfénu séu alltaf viðurkenndir alþjóðlegir gjaldmiðlar. Fólk verði að geta skipt Libra á einhverjum tímapunkti í aðra gjaldmiðla. Það haldi umgjörð peningamála í reynd enn hjá seðlabönkum heimsins þótt tækniþróun sýndarfjár sé afar hröð.

11
02:50

Vinsælt í flokknum Fréttir