Ekki dæmi um devil's breath-eitranir hér á landi
Grunur leikur á að rúmenska mafían hafi byrlað íslenskum feðgum ólyfjan á Tenerife fyrir nokkrum vikum og rænt þá um hábjartan dag. Atvikið vekur óhug en eitrið veldur meðal annars ofskynjunum og minnisleysi. Eiturefnasérfræðingur á Landspítalanum segist ekki vita til þess að eitrið hafi verið notað hér á landi.