Verslun víða blómleg þrátt fyrir draugalegan miðbæ
Hátt í 60 rými standa auð í miðbænum samkvæmt nýrri könnun. Það er margfalt meira en í Kringlunni og Smáralind. Almennt virðist verslun hins vegar ganga vel nema í lundabúðum. Ullarteppi, giftingahringar og vörur í súrdeigsbakstur seljast eins og heitar lummur.