Telja að leiðtogi páskaárásanna hafi sprengt sig í loft upp í einni árásinni

Yfirvöld í Srí Lanka telja að leiðtogi páskaárásanna hafi sprengt sig í loft upp í einni árásinni. Zahran Hashim, sem leiðir samtökin National Thowheeth Jama'ath (NTJ), er sagður hafa framkvæmt árásina á Shangri-La hótelinu ásamt öðrum árásarmanni. Hótelið var eitt af sex hótelum og kirkjum þar sem vígamenn sprengdu sig í loft upp svo minnst 250 manns létu lífið. Næstráðandi Hashim hefur verið handtekinn. Maithripala Sirisena, forseti Srí Lanka, sagði í morgun að talið væri að um 130 manns sem tengist Íslamska ríkinu haldi til á eyjunni og enn eigi eftir að handtaka 70 af þeim. Zahran Hashim var öfgafullur en lítt þekktur klerkur sem var meðlimur í hópi sem skemmdi búddastyttur í Srí Lanka fyrir nokkrum árum. Síðan þá hafði hann birt fjölda af myndböndum á Youtube þar sem hann kallaði eftir árásum gegn öllum þeim sem ekki væru íslamstrúar. Í kjölfar árásanna birtist hann á myndbandi frá Íslamska ríkinu, þar sem hann leiddi hluta árásarmannanna í að lýsa yfir hollustu við Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga ISIS. Hann var sá eini sem sýndi andlit sitt. Það er þó ekki ljóst hvort að hann og NTJ nutu aðstoðar hryðjuverkasamtakanna eða voru einungis í samskiptum við þau. Samkvæmt AP fréttaveitunni segir lögreglan að árásarmennirnir hafi fengið einhverja þjálfun og hún hafi bæði farið fram erlendis og í Srí Lanka.

22
01:32

Vinsælt í flokknum Fréttir