Undirbúningur fyrir undankeppni EM 2020 hafinn
Íslenska landsliðið í knattspyrnu kom í dag saman á Spáni þar sem að liðið mun hefja undirbúning sinn fyrir undankeppni EM 2020. Þrátt fyrir að gengi Íslands í Þjóðadeildinni hafi ekki verið samkvæmt óskum segja leikmenn landsliðsins að það hafi ekki dregið úr þeim tennurnar.