Vilhelm Þorsteinsson sigldi inn Eyjafjörðinn í fyrsta skipti

Vilhelm Þorsteinsson EA 11 nýtt skip Samherja sigldi inn Eyjafjörðinn í fyrsta skipti í gær. Skipið er búið nýjustu tækni við meðferð afla og bestu gerð af veiðafærum, segir í tilkynningu. Það er einstaklega rúmgott með klefa fyrir fimmtán manns auk sjúkraklefa. Um borð er líkamsræktaraðstaða og gufubað. Burðargeta skipsins er vel yfir þrjú þúsund tonn í þrettán lestartönkum þar sem aflinn verður kældur niður til að hráefnið verði sem best þegar komið er að landi.

27
00:37

Vinsælt í flokknum Fréttir