Isavia hafði ekki heimild til að leyfa WOW air að safna skuldum mánuðum saman

Lögmaður eiganda flugvélar WOW air sem kyrrsett er í Keflavík segir að Isavia hafi skort heimildir til að leyfa flugvélaginu að safna tæplega tveggja milljarða króna skuldum við Keflavíkurflugvöll í níu mánuði. Hann telur að Isavia hafi með þessu bakað sér bótaábyrgð. Aðfararbeiðni hefur verið lögð fram í Héraðsdómi Reykjaness þar sem þess er krafist að Isavia láti af hendi farþegaþotuna.

41
02:58

Vinsælt í flokknum Fréttir