Svifryksmengun mældist þrefalt yfir heilsuverndarmörkum
Lungnalæknir segir ekki réttlætanlegt að flugeldum sé skotið upp í miklu magni með tilheyrandi svifryksmengun. Mikinn reykjarmökk lagði yfir höfuðborgarsvæðið vegna flugelda í gær og mældist hæsta gildið þrefalt yfir heilsuverndarmörkum.