Lögmál leiksins: „Pínu fáránlegt hversu skringilega þeir byrjuðu tímabilið“

Golden State Warriors, ríkjandi meistarar NBA deildarinnar í körfubolta, hafa nú tapað tveimur leikjum í röð gegn heldur slökum mótherjum. Þegar 40 af 82 leikjum deildarkeppninnar eru búnir hafa Warriors unnið 20 og tapað 20. Meistararnir sitja þar af leiðandi í 6. sæti Vesturdeildar. Farið verður yfir stöðu mála hjá meistaraliðinu í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Hann hefst klukkan 22.00.

156
01:21

Vinsælt í flokknum Körfubolti