Forsætisráðherra segir þjóðina geta tekist á við stinningskalda þó blási á móti í efnahagslífinu

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir á 75 ára afmæli íslenska lýðveldisins að sjaldan hafi verið mikilvægara að standa með fullveldinu og lýðræðinu. Í hátíðarræðu sinni í tilefni þjóðhátíðardagsins sagði Katrín að það blási nokkuð á móti í efnahagslífinu en þjóðin sé vel í stakk búin til að takast á við smá stinningskalda. Þá ræddi forsætisráðherra um aðgerðir stjórnvalda gegn loftslagshamförum.

130
02:35

Vinsælt í flokknum Fréttir