Síðasti upplýsingafundur þríeykisins í bili
Ekkert kórónuveirusmit greindist í dag þegar frekari tilslakanir á samkomubanni tóku formlega gildi og síðasti upplýsingafundur þríeykisins var haldinn, að minnsta kosti í bili. Margir komu á ný til vinnu, hreyfiglaðir Íslendingar hópuðust í ræktina, og barflugur geta tekið gleði sína á ný.