Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðin nýr vörustjóri Motus Erna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin vörustjóri hjá Motus. 5.10.2022 09:31
Hlynur nýr framkvæmdastjóri KPMG á Íslandi Hlynur Sigurðsson hefur tekið við starfi Framkvæmdastjóra KPMG á Íslandi. Hlynur hefur starfað hjá KPMG í 26 ár og á þeim tíma sinnt ýmsum störfum innan félagsins. 5.10.2022 09:10
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 25 punkta hækkun Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig. 5.10.2022 09:01
Níunda hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,25 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 5,5 prósent í 5,75 prósent. Þetta er níunda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. 5.10.2022 08:31
Sama hleðslutengi á alla síma fyrir 2024 Evrópuþingið samþykkti í dag að skylda raftækjaframleiðendur til að hafa einu og sömu tegundina af hleðslutengi fyrir árið 2024. Tengið sem varð fyrir valinu er fyrir svokallaðar USB-C snúrur. Ákvörðun þingsins er sögð vera högg fyrir raftækjaframleiðandann Apple. 4.10.2022 19:32
Segja skráningu lyfja skilvirkustu lausnina við lyfjaskorti Parlogis, stór dreifingaraðili lyfja á Íslandi, segir rangt að birgðastaða heildsala lyfja sé almennt innan við mánuður. Það sé ekki í samræmi við upplýsingar sem Parlogis hafi gefið til Lyfjastofnunar vegna skýrslunnar. 4.10.2022 16:30
Tinna orðin sérfræðingur í sjálfbærni hjá Klöppum Klappir grænar lausnir hafa ráðið Tinnu Hallgrímsdóttur til starfa. Hún mun gegna stöðu sérfræðings í sjálfbærni hjá fyrirtækinu. Grænar lausnir Klappa miða meðal annars að því að hjálpa fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum að byggja upp innviði á sviði upplýsingatækni til að takast á við miklar áskoranir sem framundan eru í umhverfismálum, ekki síst vegna alþjóðlegra skuldbindinga um að draga úr mengun. 4.10.2022 13:07
Anna Katrín nýr framkvæmdastjóri Alfreðs Anna Katrín Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Alfreðs og hefur þegar tekið til starfa. 4.10.2022 12:45
Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar Haustfundur Landsvirkjunar hefst klukkan níu í dag og er yfirskrift fundarins að þessu sinni Breytt heimsmynd – breytt forgangsröðun. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan. 4.10.2022 08:31
Ætla að „fela“ 120 herbergja hótel við Skógarböðin Eigendur Skógarbaðanna í Eyjafjarðarsveit stefna á að byggja 120 herbergja hótel við böðin. Hönnun hótelsins verður eins og baðanna þannig að það mun falla inn í umhverfið. 3.10.2022 21:52
Hildur Margrét ráðin til Landsbankans Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur hefur verið ráðin til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. 3.10.2022 13:28
Ráðin nýr ritstjóri Vikunnar Guðrún Óla Jónsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Vikunnar. Hún tekur við af Steingerði Steinarsdóttur sem var sagt upp störfum í sumar. 3.10.2022 13:20
Lokar Brynju á næstu vikum Brynjólfur H. Björnsson, kaupmaður í versluninni Brynju, mun loka versluninni í síðasta skiptið eftir einn til tvo mánuði. Verslunin verður þó áfram rekin sem netverslun. Brynjólfur segir tilfinninguna vera skrítna. 3.10.2022 06:31
Einn milljarður í strætó en níu í vistvæna bíla Alþýðusamband Íslands hefur birt samantekt þar sem borinn er saman opinber stuðningur ríkisins við almenningssamgöngur og stuðningur þess við niðurgreiðslu vistvænna bíla. 30.9.2022 13:24
Tix fær nýtt nafn og nýjan framkvæmdastjóra Hrefna Sif Jónsdóttir hefur verið ráðin sem nýr framkvæmdastjóri miðasölufyrirtækisins Tix en samhliða því fær fyrirtækið nýjan stjórnarformann sem kemur úr röðum Ticketmaster og nýtt nafn, Tixly. Hér á landi verður upprunalega nafnið þó áfram notað. 30.9.2022 08:40
Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Ársfundur atvinnulífsins verður haldinn klukkan 15:00 í Borgarleikhúsinu. Þar er ætlunin að stilla saman strengi meðlima Samtaka atvinnulífsins í aðdraganda kjaraviðræðna. Fundurinn er í beinni útsendingu á Vísi. 29.9.2022 14:30
Villisveppaostur og Rjómasveppasósa innkölluð vegna aðskotahlutar Mjólkursamsalan og Aðföng hafa ákveðið að kalla inn Villisveppaost ásamt Rjómasveppasósu undir vörumerkinu Íslandssósur. Aðskotahlutur fannst í kryddi sem notað var við framleiðslu. 29.9.2022 12:35
Spá níundu stýrivaxtahækkuninni í röð Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti enn frekar í næstu viku. 29.9.2022 12:01
Ljósbrá Baldursdóttir fyrsti kvenkyns forstjóri PwC Ljósbrá Baldursdóttir hefur verið ráðin sem nýr forstjóri PwC en hún tekur við af Friðgeir Sigurðssyni. Ljósbrá verður fyrsta konan til þess að gegna þessari stöðu í 98 ára sögu félagsins á Íslandi. 29.9.2022 10:48
Bein útsending: Stöðugt, hagkvæmt og skilvirkt starfsumhverfi Ný skýrsla Samtaka iðnaðarins með 26 umbótatillögum sem efla samkeppnishæfni í grænni iðnbyltingu verður kynnt á fréttamannafundi klukkan níu í dag. 29.9.2022 08:31
Pétur ráðinn sölustjóri á veitingamarkaði hjá Banönum Pétur Smári Sigurgeirsson hefur verið ráðinn sölustjóri á veitingamarkaði hjá Banönum. Sem sölustjóri mun Pétur bera ábyrgð á sölu og vöruþróun á veitingamarkaði og sitja í framkvæmdaráði Banana. 28.9.2022 20:26
Rannsóknin sé ítarleg og muni taka af allan vafa Seðlabankastjóri segir að rannsókn Fjármálaeftirlits bankans á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka muni taka af allan vafa hvort innherjaupplýsingar hafi verið nýttar í tengslum við yfirvofandi útboð bankans. Allir þættir málsins verði skoðaðir. 28.9.2022 13:09
Aldís nýr sviðsstjóri forvarnasviðs SHS Aldís Rún Lárusdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri forvarnasviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og hóf hún störf í byrjun mánaðar. 28.9.2022 11:45
Verðbólgan komin niður í 9,3 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða heldur áfram að minnka og mældist 9,3 prósent í september. Verð á fötum og skóm og raftækjum til heimilisnota kom helst til hækkunar en verð á flugfargjöldum til lækkunar. 28.9.2022 09:23
Bein útsending: Fjármálastöðugleikanefnd kynnir yfirlýsingu sína Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. 28.9.2022 09:04
Líkur á að vaxandi áhætta tengdri fjármálastöðugleika haldi áfram Líkur eru á að áhætta tengd fjármálastöðugleika hér á landi muni halda áfram að vaxa vegna versnandi ytri aðstæðna. 28.9.2022 08:35
Neytendasamtökin misskilji dóma um Google Analytics Þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá Datera segir það ekki rétt að Google Analytics hafi verið bannað í nokkrum Evrópuríkjum. Persónuvernd eigi að gefa út leiðbeiningar en ekki banna tólið. 28.9.2022 06:02
Þrotabú Wow air fær ekki krónu frá Skúla og félögum Skaðabótakröfu þrotabús Wow air gegn Títan Fjárfestingafélagi, félagi Skúla Mogensen, Skúla sjálfum og fjórum stjórnarmönnum Wow air hefur verið vísað frá héraðsdómi. Þrotabúið fór fram á tæplega hálfan milljarð króna í skaðabætur en þarf að greiða 14,1 milljón króna í málskostnað. 27.9.2022 19:09
Yngvi ráðinn forstjóri Sýnar Yngvi Halldórsson er nýr forstjóri Sýnar. Hann tekur við starfinu af Heiðari Guðjónssyni sem tilkynnti um starfslok á dögunum. Yngvi hefur undanfarin þrjú ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Sýnar. 27.9.2022 16:00
Guðrún tekur við af Ástu sem framkvæmdastjóri Krónunnar Guðrún Aðalsteinsdóttir rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Krónunnar og hefur hún störf í dag. Hún tekur við af Ástu Sigríði Fjeldsted sem var ráðin forstjóri Festi, móðurfélags Krónunnar, fyrr í mánuðinum. 27.9.2022 12:36
Þau sóttu um stöðu hafnarstjóra Faxaflóahafna Alls sóttu sjö um stöðu hafnarstjóra Faxaflóahafna sem auglýst var laus til umsóknar í sumar. 27.9.2022 12:22
Ráðin framkæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Dohop Oana Savu hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar (e. Chief Strategy Officer) hjá Dohop og mun sem slíkur bera ábyrgð á stefnumótun og þróun félagsins ásamt samningum við samstarfsaðila. 27.9.2022 09:05
Hörður hættir í Macland Hörður Ágústsson, einn stofnenda fyrirtækisins Macland, hefur ákveðið að hætta hjá fyrirtækinu. Hann segir viðskilnaðinn ljúfsáran en tímabært hafi verið að breyta til. Næstu mánuði mun hann vinna að verkefni með rafskútu- og deilibílaleigunni Hopp. 26.9.2022 22:59
Forstjóri OR hyggst láta af störfum Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hyggst láta af störfum frá og með 1. mars á næsta ári. Ný stjórn tekur senn við taumunum hjá Orkuveitunni. 26.9.2022 21:01
Þórunn Oddný nýr skrifstofustjóri hjá forstjóra Landspítala Þórunn Oddný Steinsdóttir tekur við af Önnu Sigrúnu Baldursdóttur sem skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra hjá Landspítalanum. Þórunn er lögfræðingur og hefur starfað sem staðgengill skrifstofustjóra og settur skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu. 26.9.2022 16:12
Hjörtur frá Amazon til Lucinity Hjörtur Líndal Stefánsson hefur verið ráðinn yfirmaður tækni- og hugbúnaðarþróunar (CTO) hjá sprotafyrirtækinu Lucinity. Hann snýr nú aftur til Íslands eftir að hafa starfað í Bandaríkjunum hjá tæknirisanum Amazon síðustu átta ár. 26.9.2022 13:27
Árni Pétur til 50skills Árni Pétur Gunnsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu 50skills. 26.9.2022 08:11
Nýr stigabíll gjörbreyti öllu fyrir slökkviliðið Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar fékk afhentan nýjan stigabíl í dag. Bíllinn kemst í 42 metra hæð. Þjálfunarstjóri slökkviliðsins segir aðra stigabíla á landinu töluvert lægri. 24.9.2022 08:01
Boða til nýs hluthafafundar í október Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn varður fimmtudaginn 20. október næstkomandi. 23.9.2022 11:14
Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Daníel Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum ehf. 23.9.2022 08:38
Bruggstofa og bjórbúð í húsi bindindismanna Hús bindindissamtakanna I.O.G.T. sem hýsti vinabæ í Skipholtinu var selt snemma á þessu ári. Í húsnæðinu mun nú opna bruggstofa og bjórbúð RVK bruggfélags. 22.9.2022 18:23
Brim kaupir aukinn kvóta og nýtt skip Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi við Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. um kaup á félaginu RE 27 ehf. en eignir þess eru frystitogarinn Sólborg RE og veiðiheimildir. Markmið viðskiptanna er sagt vera að efla uppsjávarsvið Brims og styrkja uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði. 22.9.2022 14:31
Bein útsending: Tengjum ríkið – stafræn framtíð hins opinbera Ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera fer fram í Hörpu í dag. Ráðstefnan hefst klukkan 12:30 og stendur til klukkan 17 í og verður hægt að fylgjast með henni í beinu streymi hér á Vísi. 22.9.2022 12:00
Reiknar með höggi verði Google Analytics bannað Bann á notkun vefvöktunarforritsins Google Analytics yrði högg fyrir atvinnulífið, að sögn birtingaráðgjafa hjá Aton/JL. Komi til banns væri það sérstakt áhyggjuefni fyrir fyrirtæki sem reiða sig á vefsölu. 22.9.2022 11:35
Ragnhildur áfram rektor HR Ný stjórn Háskólans í Reykjavík hefur framlengt ráðningarsamning Ragnhildar Helgadóttur rektors til ársins 2026. Ragnhildur tók við stöðunni af Ara Kristni Jónssyni árið 2021, en hann hafði þá verið rektor í ellefu ár. Ragnhildur gerði upphaflega samning til eins árs, sem hefur nú verið framlengdur. 22.9.2022 11:02