Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lífeyrissjóðir landsmanna dregist saman um tæplega 400 milljarða króna Á fyrri helmingi árs hafa eignir íslenskra lífeyrissjóða dregist saman um 361 milljarð króna. 8.8.2022 14:04
Play flutti fleiri í júlí en allt árið 2021 Flugfélagið Play flutti 109.937 í júlí sem er fjórðungsaukning frá farþegafjölda í júní. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem Play flutti á árinu 2021. 8.8.2022 10:26
Farþegar Icelandair yfir hálfa milljón í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs Icelandair flutti yfir hálfa milljón farþega í millilandaflugi í nýliðnum júlí. Fjöldi farþega hefur ekki farið yfir hálfa milljón síðan á háannatíma árið 2019 áður en áhrifa heimsfararaldurs kórónuveiru fór að gæta í flugrekstri. 8.8.2022 09:58
Archer kaupir helming í Jarðborunum Alþjóðlega bor- og þjónustufyrirtækið Archer Ltd. hefur keypt 50% hlutafjár í Jarðborunum hf. fyrir 8,25 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 1,13 milljarða íslenskra króna. 8.8.2022 09:02
Vörur Örnu í Bolungarvík til Bandaríkjanna Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík gerir það nú gott því útflutningur á vörum fyrirtækisins til Bandaríkjanna er hafinn á fullum krafti. Um er að ræða skyr og gríska jógúrt til að byrja með. 7.8.2022 13:32
Segir síðasta ár hafa verið gott fyrir álverin en þetta ár verði enn betra Rekstur áliðnaðarins hérlendis hefur aldrei gengið eins vel og nú. Þrátt fyrir að verð á áli hafi á síðustu vikum sigið niður spáir forstjóri stærsta álversins, Alcoa Fjarðaáls, því að þetta ár verði ennþá betra en það síðasta. 6.8.2022 22:10
Áskorun að mæta aukinni eftirspurn vegna eldgossins Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir gífurlega landkynningu felast í þeim myndbirtingum og þeirri fjölmiðlaumfjöllun sem gosið hafi fengið í stórum fréttamiðlum um allan heim. Það hafi sýnt sig vel í síðasta gosi að slík kynning sé gríðarlega verðmæt fyrir Ísland sem áfangastað. 5.8.2022 08:00
„Klikkað að gera“ eftir að gosið hófst Ferðaþjónustufyrirtæki eru þegar farin að finna fyrir auknum þunga í bókunartölum vegna eldgossins í Meradölum. Framkvæmdastjóri þyrlufyrirtækis segir erlenda ferðamenn treysta á að gosið endist inn í haustið. Bókanir teygi sig inn í nóvember. 4.8.2022 23:00
Stjórn Sýnar boðar til hluthafafundar Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar að kröfu Gavia Invest ehf, sem nýlega keypti stóran hlut í fyrirtækinu. 4.8.2022 15:36
Frostaskjól selur félagi Rannveigar og Hilmars allt sitt í Sýn Frostaskjól ehf. hefur selt Fasta ehf. 3,35 prósent hlut sinn í Sýn auk 4,35 prósent hluta sem félagið átti í framvirkum samningum. Fasti er í eigu helmingseigenda Frostaskjóls en Róbert Wessmann á hinn helminginn. 4.8.2022 11:33
Félag Reynis á rúmlega helmingshlut í Gavia Infocapital ehf., fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar á ríflega helmingshlut í nýstofnaða fjárfestingarfélaginu Gavia Invest, sem keypti á dögunum stóran hlut í Sýn. 4.8.2022 10:15
Hafa ekki áhyggjur af því að fasteignamarkaðurinn taki dýfu Svo virðist sem aðgerðir til að kæla fasteignamarkaðinn séu byrjaðar að hafa áhrif en vonir eru bundnar við að jafnvægi náist á markaðinum um mitt næsta ár, þó verðbólga verði líklega áfram mikil út 2024. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir ólíklegt að verðlækkanir séu í kortunum, þó að dæmi séu um slíkt erlendis, og hafa greiningaraðilar ekki áhyggjur af því að bóla sé að myndast á markaðinum. 4.8.2022 07:01
Ekki megi falla í freistni og lofa meiru en Ísland geti staðið undir Verðbólga einkennir nú öll hagkerfi heimsins og er Ísland þar engin undantekning að sögn prófessors í hagfræði. Seðlabankastjóri hefur boðað aðgerðir en verkalýðshreyfingin stendur föst á sínu fyrir komandi kjaraviðræður. Vernda þurfi viðkvæmasta hópinn en þó sé ekki mikið svigrúm fyrir launahækkanir í óvissunni sem fram undan er. 3.8.2022 21:35
Ragnheiður til Keahótela Ragnheiður Hauksdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs hjá Keahótelum ehf. 3.8.2022 16:12
Egill til Arctic Green Energy Egill Júlíusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Arctic Green Energy á Íslandi. Hann kemur til félagsins frá Landsvirkjun. 3.8.2022 16:07
Jón Mikael ráðinn framkvæmdastjóri notendalausna Origo Jón Mikael Jónasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri notendalausna hjá Origo og mun hefja störf í byrjun næsta mánaðar. Hann kemur frá Ölgerðinni þar sem hann hefur starfað síðustu tuttugu ár. 3.8.2022 10:26
Sjö prósent hækkun á íslenska markaðnum í júlí Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hækkaði um sjö prósent í júlí eftir kröftugar lækkanir í júní. Af þeim 22 félögum sem skráð eru á aðallista kauphallarinnar voru nítján sem hækkuðu í verði en þrjú félög lækkuðu. 3.8.2022 10:07
Kröfur upp á tæpa 22 milljarða í þrotabú þriggja félaga tengdum Primera Skiptum á þremur félögum tengdum flugfélaginu Primera Air lauk þann 22. júlí síðastliðinn. Samtals voru kröfur upp á rúma 22 milljarða í félögin Primera Air ehf., PTG hf. og PI ehf. 2.8.2022 14:50
Deila Íslands og Iceland Foods brýtur blað Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur fyrirskipað að haldinn verði munnlegur málflutningur í deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland. Deilan brýtur blað í sögu hinnar fjölskipuðu áfrýjunarnefndar þar sem þetta verður í fyrsta sinn sem nefndin hlýðir á munnlegan málflutning í áfrýjunarmáli. 2.8.2022 14:05
Pálmi Guðmundsson hættur hjá Símanum Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Símans, er hættur hjá fyrirtækinu eftir sjö ára starf. Hann sagði upp að eigin ósk á fimmtudag og hefur ekki gefið frekari skýringar á uppsögninni. 2.8.2022 13:29
Stækka Glerártorg og bæta við mathöll Áform eru uppi um stækkun Glerártorgs sem mun þá innihalda 500 fermetra mathöll. Stefnt er að endurskipulagningu verslunarmiðstöðvarinnar og fjölgun bílastæða. 31.7.2022 15:27
Samdráttur vegna erlendra færsluhirða Mælanleg erlend kortavelta hefur dregist saman ef litið er til annarra ferðaþjónustufyrirtækja en bílaleiga, hótela og veitingastaða. Þetta sýna tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar en kortavelta hefur verið ein helsta leiðin til þess að leggja mat á gengi ferðaþjónustunnar. 29.7.2022 20:23
Kalla inn Red Super Spicy núðlur Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Shin Red Super Spicy Noodles frá vörumerkinu NONGSHIM. Varnarefnið Ipprodione greindist yfir leyfilegum mörkum í vörunni. 29.7.2022 15:31
Súrir Selfyssingar slúttuðu sólbaðsstofu Húseiganda á Selfossi var óheimilt að reka sólbaðsstofu í fjölbýlishúsi. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði beðni eigandans um að fella úr gildi ákvörðun byggingafulltrúa Árborgar sem veitti ekki leyfi fyrir starfseminni. 29.7.2022 10:51
Íslandsbanki hagnaðist um 5,9 milljarða króna Íslandsbanki hefur birt uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2022. Í því kemur fram að bankinn hafi hagnast um 5,9 milljarða króna á fjórðungnum. Arðsemi eigin fjár bankans var yfir fjárhagslegum markmiðum bankans og spám greinenda. Hagnaður á fyrri helmingi ársins er 11,1 milljarður króna. 28.7.2022 16:16
Innkalla Albani Mosaic IPA vegna sprengjuhættu ÁTVR og Disa ehf. hafa sent út innköllunarboð fyrir bjórinn Albani Mosaic IPA, með 5,7% vínanda, í 330 ml áldós. Hætta er á að dósin geti bólgnað út og sprungið. Innköllunin miðast einungis við birgðir vörunnar sem merktar eru best fyrir dagsetningunni 11/05/2023 sem sjá má á botni dósarinnar. 28.7.2022 14:42
Simmi selur Bryggjuna og einbeitir sér að Minigarðinum Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur selt veitingastaðinn Bryggjuna. Hann segist hafa ákveðið að minnka við sig og einbeita sér að rekstri skemmti- og veitingastaðarins Minigarðsins. 28.7.2022 13:23
Framlegð Marels óviðunandi að mati forstjóra Tekjur Marels á öðrum ársfjórðungi námu 397.3 milljónum króna en hagnaður var aðeins 25 milljónir evra eða 6,3 prósent af tekjum. Forstjórinn segir framlegðina óviðunandi. 28.7.2022 10:56
Domus Medica-húsið selt Domus Medica-húsið hefur verið selt til fyrirtækisins Medicus ehf.. Fyrirtækið á Heilsugæsluna á Höfða og vonast stjórnarmaður eftir því að hægt verði að byggja upp heilbrigðisþjónustu í húsinu. 28.7.2022 06:41
Hagnaður Arion banka jókst í 9,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 9.712 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2022 samanborið við 7.816 milljónir á sama tímabili í fyrra. Heildareignir námu 1.383 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 1.314 milljarða í árslok 2021. Sala á greiðslumiðlunarfyrirtækinu Valitor til Rapyd skilaði bankanum 5,6 milljarða króna söluhagnaði. 27.7.2022 17:15
Krefjast stjórnarkjörs í Sýn Gavia Invest ehf. hefur farið fram á að boðað verði hluthafafundar í Sýn hf., en félagið fer nú með atkvæðisrétt fyrir hlutafé í Sýn sem nemur 16,06 prósent. Þess er krafist að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin. 26.7.2022 13:01
Örn Arnar nýr sparisjóðsstjóri Suður-Þingeyinga Örn Arnar Óskarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Örn þekkir vel til á starfssvæðinu en hann ólst upp á Kópaskeri. 25.7.2022 15:03
Fiskur fluttur út fyrir 29 milljarða í júní Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam rúmum 29 milljörðum króna í júnímánuði. Það er um 8 prósenta aukning í krónum talið frá sama mánuði í fyrra en tæp 12 prósent í erlendri mynt vegna hækkunar á gengi krónunnar. 25.7.2022 10:53
Heiðar hættir sem forstjóri Sýnar Heiðar Guðjónsson hefur sagt upp sem forstjóri Sýnar og mun uppsögnin taka gildi fyrir lok þessa mánaðar. Heiðar gekk um helgina frá sölu á öllum 12,72 prósenta hlut sínum í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningum til Kauphallar. 25.7.2022 09:34
Tap Spaðans nam 51 milljón króna Spaðinn tapaði alls 51 milljón króna árið 2021, samanborið við tveggja milljóna króna tap árið áður. 23.7.2022 13:49
Samherji fjárfestir í landeldi fyrir 60 milljarða Samherji ætlar sér að fjárfesta fyrir allt að 60 milljarða króna í fiskeldi á komandi árum og í bígerð er um 40 þúsund tonna landeldi í nágrenni Reykjanesvirkjunar. Forstjórinn segir fjárfestinguna mestu áhættu í sögu félagsins. 23.7.2022 10:07
Ardian borgar fimm milljörðum minna fyrir Mílu Síminn og Ardian náðu í dag samkomulagi um breytingar á kaupsamningi Ardian á Mílu ehf.. Meðal breytinanna sem samþykktar voru er að Ardian borgi 73 milljarða króna í staðinn fyrir 78 milljarða líkt og var fyrst samið um. 22.7.2022 21:14
Spá því að verðbólga aukist áfram og stýrivextir verði hækkaðir Verðbólgan mældist tæplega tíu prósent í júlí og var langt umfram spár viðskiptabankanna. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir að gera megi ráð fyrir frekari stýrivaxtahækkunum frá Seðlabankanum í ljósi stöðunnar. Hagfræðiprófessor segir að það taki tíma fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bíta, með tilheyrandi aðhaldi og óvissu. 22.7.2022 15:39
Samherji hf. hagnaðist um 17,8 milljarða Hagnaður Samherja hf. nam 17,8 milljörðum króna árið 2021 samanborið við 7,8 milljarða árið áður. Eigið fé félagsins var 94,3 milljarðar króna í árslok 2021 og námu heildareignir 128 milljörðum króna. 22.7.2022 12:27
Ardian ósammála Samkeppniseftirlitinu í öllum efnisþáttum Fjárfestingarsjóðurinn Ardian lýsir sig ósammála öllum efnisþáttum í frummati Samkeppniseftirlitsins á kaupum sjóðsins á Mílu frá Símanum. Í frummatinu segir að það sé hætta á að keppinautum í innviðastarfsemi fækki og að viðskiptavinir Símans geti orðið af verðlækkunum. 22.7.2022 12:27
Hlutabréf fara á flug eftir jákvætt uppgjör Icelandair Gengi hlutabréfa í Icelandair hafa hækkað um 5,59 prósent það sem af er degi. Flugfélagið skilaði rúmlega hálfum milljarði króna í hagnað á öðrum ársfjórðungi. 22.7.2022 10:49
Verðbólgan nálgast tveggja stafa tölu Verðbólga mældist 9,9 prósent í júlí og hækkaði um 1,17 prósentustig milli mánaða. Verðbólga hefur ekki verið hærri frá því í september árið 2009. 22.7.2022 09:45
Magnús Kr. Ingason tekur við sem forstjóri Festi Stjórn Festi hefur ráðið Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Festi, sem forstjóra félagsins frá næstu mánaðarmótum, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 22.7.2022 09:12
Eik kaupir Lambhaga á 4,2 milljarða króna Fasteignafélagið Eik er í þann mund að ganga frá kaupum á garðyrkjustöðvunum Lambhaga í Úlfarsárdal og Lundi í Mosfellsdal. Kaupverðið er áætlað 4,2 milljarðar króna. 22.7.2022 07:46
„Alveg hræðilegur“ leiðréttingarbúnaður Apple Sjálfvirkur leiðréttingarbúnaður Apple fyrir íslensku er hörmulegur og með ólíkindum að einhver hafi fengið borgað fyrir að hanna hann, að mati hugbúnaðarhönnuðar. Fyrirtækið virðist ekki nota neinar tölfræðiupplýsingar sem til eru um íslenskan texta, þrátt fyrir vitneskju um þær. 21.7.2022 21:00