Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Arion banki innheimti lán sem var búið að greiða upp Einhverja viðskiptavini Arion banka rak í rogastans á dögunum þegar þeir fengu röð greiðsluítrekana í bréfpósti sem voru ýmist vegna greiddra reikninga eða lána sem voru í skilum. 2.3.2021 15:27
Ráðinn nýr forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst Dr. Stefan Wendt hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. 2.3.2021 14:58
Tilkynnt um tvær hópuppsagnir í febrúar Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í febrúar þar sem 287 starfsmönnum var sagt upp störfum í verslun og flutningum. Þar af var 259 sagt upp á höfuðborgarsvæðinu og 28 á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar en uppsagnirnar taka flestar gildi í júní. 2.3.2021 12:44
Fyrsta Boeing 737 MAX flug Icelandair til Kaupmannahafnar Icelandair tekur tvær Boeing 737 MAX vélar í rekstur á ný í þessum mánuði. Gert er ráð fyrir að TF-ICN sem ber nafnið Mývatn verði nýtt í áætlunarflugi til Kaupmannahafnar mánudaginn 8. mars. 2.3.2021 12:36
Landsvirkjun og Norðurál birta orkusamninga Norðurál og Landsvirkjun hafa aflétt trúnaði af raforkusamningum fyrirtækjanna. Báðir aðilar segjast vonast til að birtingin styðji við og auki upplýsta umræðu um orkumál á Íslandi. 2.3.2021 11:54
Afgangur á viðskiptajöfnuði stórjókst milli fjórðunga Á fjórða ársfjórðungi 2020 var 22,1 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd samanborið við 2,9 milljarða króna ársfjórðunginn á undan. Halli á vöruskiptajöfnuði var 15,5 milljarðar króna en afgangur á þjónustujöfnuði var 26,4 milljarðar króna. 2.3.2021 10:00
Nærri 90 prósent sölu tónlistar í gegnum Spotify Söluandvirði hljóðrita frá útgefendum og dreifendum jókst um 18 prósent á milli áranna 2018 og 2019. Er það fjórða árið í röð sem söluandvirðið hækkar að raunvirði eftir nær samfelldan samdrátt frá því um aldamót. Nærri níutíu prósent allrar tónlistarsölu á árinu 2019 fór í gegnum tónlistarveituna Spotify. 2.3.2021 09:44
Wise og Netheimur í eina sæng Hugbúnaðarfyrirtækið Wise og upplýsingatæknifyrirtækið Netheimur hafa sameinast um að klára samruna fyrirtækjanna undir merkjum Wise. 2.3.2021 08:47
Undirbýr framleiðslu á íslenskri haframjólk Eitt stærsta nautgripabú landsins er að byggjast upp í Meðallandi, á jörð sem áður var í eyði. Þar eru bændur jafnframt óhræddir við að þróa nýjar og framandi afurðir, eins og bygg fyrir viskí og íslenska haframjólk. 1.3.2021 23:49
Hefur áhyggjur af Bitcoin-kaupum Íslendinga og líkir rafmyntinni við píramídasvindl Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varar við kaupum á rafmyntum á borð við Bitcoin og líkir kapphlaupinu við þátttöku í píramídasvindli. Íslendingar versluðu með Bitcoin fyrir um 600 milljónir króna í janúar samkvæmt úttekt Rafmyntaráðs. Virði Bitcoin fór yfir 50 þúsund Bandaríkjadali um miðjan febrúar og kostar nú hver mynt rúmlega 6,2 milljónir króna. 1.3.2021 17:21
Valgeir frá VÍS yfir til Terra Valgeir M. Baldursson hefur verið ráðinn forstjóri Terra. Valgeir hefur undanfarin ár starfað sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri hjá VÍS. Þar áður var Valgeir forstjóri Skeljungs en hann hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa hjá ýmsum fyrirtækjum og félögum. 1.3.2021 15:18
Bálkakeðjan spili lykilhlutverk í bólusetningarvottorðum sem Íslendingar þróa í samstarfi við WHO Íslenskir sérfræðingar aðstoða nú Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) við þróun alþjóðlegs bólusetningarvottorðs. Guðjón Vilhjálmsson, forstöðumaður heilbrigðislausna hjá Origo, vonar að lausnin verði til á næstu tveimur til þremur mánuðum. Það velti þó á því hvenær ríki komi sér saman um útfærsluna. 1.3.2021 14:00
Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Kviku, TM og Lykils Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á samruna Kviku banka, tryggingafélagsins TM og Lykils fjármögnunar. Er það mat eftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni, leiði til myndunar á markaðsráðandi stöðu eða raski samkeppni með umtalsverðum hætti. 1.3.2021 12:49
Telma og Unnur til Sendiráðsins Tveir sérfræðingar hafa bæst í hópinn hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Sendiráðinu, á sviði notendaupplifunar annars vegar en verkefnastýringar hins vegar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sendiráðinu. 1.3.2021 11:51
Hrefna Sigurjónsdóttir nýr verkefnastjóri forvarna Hrefna Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá. Hrefna hefur starfað sem framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – landsamtaka foreldra síðustu tíu árin, þar til hún hóf störf hjá Sjóvá nú um miðjan febrúar. Áður var hún verkefnastjóri hjá samtökunum og SAFT-verkefninu. 1.3.2021 10:20
Guðbjörg Sæunn ný forstöðukona framtíðarsýnar Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin forstöðukona framtíðarsýnar og reksturs hjá Veitum. Guðbjörg Sæunn var ráðin forstöðumaður fráveitu Veitna árið 2019 en tekur nú við nýju sviði í breyttu skipulagi fyrirtækisins. 1.3.2021 09:35
Flugferð til Suðurskautsins gekk vonum framar Flugvél Icelandair sem flaug til Suðurskautslandsins fyrir helgi til að sækja norskt vísindafólk á vegum Norsku heimskautsstofnunarinnar. Ferðin tók fimm daga og gekk hún vonum framar. 28.2.2021 21:38
Ella og Guðmundur til Controlant Ella Björnsdóttir og Guðmundur Óskarsson hafa verið ráðin til starfa hjá Controlant. Ella tekur við starfi forstöðumanns mannauðssviðs og Guðmundur sem leiðtogi á alþjóðaviðskiptasviði fyrirtækisins. 26.2.2021 14:55
Flugrútan hefur akstur á nýjan leik Flugrútan, sem hefur ekki verið í rekstri frá miðjum janúarmánuði, mun hefja akstur á ný á morgun. Akstrinum var hætt í janúar vegna lítillar notkunar komufarþega en flugferðum til og frá landinu hefur fækkað mikið síðasta tæpa árið vegna faraldurs kórónuveirunnar. 26.2.2021 13:36
Mesti samdráttur í landsframleiðslu á mann frá upphafi mælinga Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi dregist saman um 5,1% að raungildi á fjórða ársfjórðungi 2020 samanborið við sama tímabil 2019. Yfir árið í heild er áætlað að landsframleiðsla hafi dregist saman um 6,6% að raungildi. Má það að miklu leyti rekja til áhrifa kórónuveirufaraldursins, einkum í útfluttri ferðaþjónustu sem dróst saman um 74,4% á árinu. 26.2.2021 12:26
Fjölnet og PREMIS í eina sæng Upplýsingatæknifélögin Fjölnet og PREMIS hafa sameinast og munu starfa undir nafni PREMIS og vera með starfsstöðvar á Sauðárkróki og í Reykjavík. 26.2.2021 11:29
Níu sagt upp hjá Coripharma Lyfjafyrirtækið Coripharma hefur sagt upp níu manns og eru uppsagnirnar sagðar tengjast samdrætti í lyfjasölu vegna kórónuveirunnar. 26.2.2021 10:16
Skeljungur segir upp fólki í skipulagsbreytingum Fækkað verður um tuttugu stöðugildi hjá Skeljungi samhliða skipulagsbreytingum sem taka gildi þann 1. mars. Áætlaður kostnaður við breytingarnar er um 100 milljónir króna. 26.2.2021 10:00
Aldrei verið auðveldara að kaupa húsnæði Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Hagfræðideild Landsbankans, segir að það hafi aldrei verið auðveldara að kaupa íbúðarhúsnæði á Íslandi. Hann hefur lengi fylgst með þróun fasteigna- og leigumarkaðsins hér á landi og segir að á síðustu tuttugu árum hafi alla jafna verið hagstæðara að kaupa en að leigja. 26.2.2021 07:31
Úrskurður um upplýsingar KPMG um Samherja aftur í hérað Landsréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 4. desember á síðasta ári um að endurskoðunarfyrirtækinu KPMG bæri að afhenda héraðssaksóknara gögn í sinni vörslu um þjónustu við útgerðarfyrirtækið Samherja. KPMG átti aðild að málinu en Samherji hafði áður reynt að fá úrskurðinn felldan úr gildi. 25.2.2021 18:00
Heimila samrunann en setja spurningarmerki við yfirráð í Síldarvinnslunni Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna dótturfélags Síldarvinnslunnar hf. og Bergs ehf. en greint var frá því í október að Bergur-Huginn ehf. hafi fest kaup á útgerðarfélaginu Bergi í Vestmannaeyjum. 25.2.2021 17:13
Prentmet Oddi kaupir Ásprent Stíl Prentmet Oddi hefur keypt rekstur Ásprents Stíls á Akureyri og hyggst endurvekja rekstur þess í samstarfi við KEA. Prentmet Oddi hyggst efla límmiðaprentun sem og stafræna prentun Ásprents Stíls og verður tækjakostur starfseminnar efldur í því samhengi að því er segir í fréttatilkynningu. 25.2.2021 16:20
Bein útsending: Bestu íslensku vörumerkin 2020 Vörumerkjastofan brandr mun í dag útnefna bestu íslensku vörumerkin árið 2020 í beinu streymi sem hefst klukkan 16. Kynnir verðlaunanna er Þorsteinn Bachmann og mun Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flytja stutt ávarp áður en sigurvegarar verða kynntir. 25.2.2021 15:30
Velta Krónunnar aldrei meiri og hagnaður jókst um 22 prósent Festi hagnaðist um tæplega 2,3 milljarða króna á síðasta ári og dróst hagnaður saman frá 2019 þegar hann nam um 2,8 milljörðum króna. Heildartekjurtekjur félagsins af sölu vöru- og þjónustu námu 86,3 milljörðum króna, samanborðið við 85,0 milljarða árið áður. 25.2.2021 12:56
Dregur úr verðbólgu sem mælist nú 4,1 prósent Ársverðbólga mælist 4,1 prósent nú í febrúar og er 0,2 prósentustigum lægri en í janúar þegar hún mældist 4,3 prósent. Verðbólga hafði verið á uppleið frá því í byrjun síðasta árs en í janúar í fyrra var tólf mánaða verðbólga 1,7 prósent. 25.2.2021 09:56
Hætta rekstri Quiznos á Íslandi Olís mun á næstu dögum hætta rekstri Quiznos sem hefur verið að finna á tólf þjónustustöðvum Olís víðs vegar um land. Olís hyggst þess í stað bjóða upp skyndibita undir merkjum eigin vörumerkis, ReDi Deli. 25.2.2021 08:04
Efling styður rúmenska félagsmenn í áfrýjun til Landsréttar Efling - stéttarfélag ætlar að styðja fjóra rúmenska félagsmenn sína til að skjóta til Landsréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í gær í máli þeirra gegn starfsmannaleigunni Menn í vinnu, forsvarsmönnum starfsmannaleigunnar og matsölufyrirtækinu Eldum rétt. Fyrirtækin voru þar sýknuð eða málunum vísað frá dómi. 25.2.2021 07:49
Verulega dró úr tapi Sýnar milli ára Tap fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins Sýnar nam 405 milljónum króna árið 2020 samanborið við 1.748 milljóna króna tap árið áður. Tap milli ára dróst því saman um 76 prósent. Tekjur ársins 2020 hækkuðu jafnframt um 975 milljónir milli ára, eða um 4,9 prósent. 24.2.2021 18:21
Maria Bech nýr framkvæmdastjóri íslenska lyfjafyrirtækisins EpiEndo Maria Bech hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóra íslenska lyfjaþróunarfyrirtækisins EpiEndo Pharmaceuticals. Sprotafyrirtækið vinnur að því að þróa næstu kynslóð meðferðarúrræða til meðhöndlunar á viðvarandi bólgusjúkdómum og er fyrsta íslenska fyrirtækið sem fer í klínískar rannsóknir með frumlyf. 24.2.2021 13:01
Kaupmáttur launa aldrei verið hærri þrátt fyrir aukna verðbólgu Laun hækkuðu að jafnaði um 3,7% á milli desember og janúar samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands og hefur vísitalan hækkað um 10,3% síðustu 12 mánuði. Er þetta mesta hækkun launavísitölunnar í einum mánuði síðan í júní 2011 og mesta árshækkun frá því í október 2016. Kaupmáttaraukningin á milli ára var 5,8% og hefur kaupmáttur launa aldrei verið hærri en nú í janúar. 24.2.2021 11:58
Framtíð ferðaþjónustunnar: Logi fer yfir stöðu og horfur Á næstu vikum munu Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til sín leiðtogum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna til að ræða um stöðu og horfur í ferðaþjónustu. Í öðrum þættinum, sem hefst klukkan 9:15, verður rætt við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar. 24.2.2021 08:46
Kaupa leigufélagið Ölmu á ellefu milljarða Eignarhaldsfélagið Langisjór, sem er í eigu systkinanna Guðnýjar Eddu, Eggerts Árna, Halldórs Páls og Gunnars Þórs Gíslabarna, hefur fest kaup á öllu hlutafé í leigufélaginu Ölmu. 24.2.2021 07:55
Loðnutorfur í Faxaflóa og við Grímsey ekki tilefni til að auka loðnukvótann Tilkynningar skipa um miklar loðnutorfur síðasta sólarhring, bæði í norðanverðum Faxaflóa og við Grímsey, urðu til þess að Hafrannsóknastofnun lét gera sérstaka mælingu í dag til að fá úr því skorið hvort hér væru á ferðinni nýjar loðnugöngur eða meira magn en áður var búið að mæla. Fyrstu niðurstöður gefa ekki tilefni til ráðgjafar um að auka loðnukvótann, að sögn Sigurðar Guðjónssonar, forstjóra Hafrannsóknastofnunar. 23.2.2021 17:23
Um þrjú hundruð fjarfundir á stafrænum Háskóladegi Um þrjú hundrið fjarfundir verða haldnir á hinum árlega Háskóladegi um næstu helgi þar sem fólki gefst færi á að kynna sér grunnnám allra háskóla í landinu. 23.2.2021 13:58
Teatime í þrot og öllum sagt upp Sextán starfsmönnum íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Teatime hefur verið sagt upp störfum og verður starfsemi þess hætt. Langar viðræður um viðbótarfjármögnun eða hugsanlega sölu fyrirtækisins sigldu nýlega í strand. 23.2.2021 12:53
Einar Geir Jónsson tekur við sprotafyrirtækinu Unimaze Einar Geir Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Unimaze og tekur við starfinu af Markúsi Guðmundssyni, stofnanda fyrirtækisins. Markús mun áfram leiða hugbúnaðarþróun sem tæknistjóri Unimaze. 23.2.2021 12:26
Sjálfstæðisfólk hlynntast sölu Íslandsbanka en sósíalistar andvígastir Ríflega fjórir af hverjum tíu eru andvígir sölu á Íslandsbanka samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2. Rúmlega fjórðungur er hlynntur henni. 22.2.2021 23:03
Þarf að greiða 35 milljóna sekt fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í sjö mánaða fangelsi og greiðslu 35 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti. 22.2.2021 13:33
Selja húsnæðið sem hýsti Hlemm Square Húsnæðið á Laugavegi 105, sem áður hýsti Hlemm Square, hefur verið auglýst til sölu. Þar mátti lengi finna gistiheimili, hótelherbergi, veitingahús og bar en Hlemmur Square hætti rekstri í nóvember síðastliðnum. 22.2.2021 12:26
Seðlabankastjóri sannfærður um að Ísland komist bratt upp úr Covid-kreppunni Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri Íslands fagnar auknu trausti í mælingum sem farið hefur úr 31 prósenti 2019 í 62 prósent nú. 22.2.2021 12:12