Fleiri fréttir

Auglýsingatekjur fjölmiðla námu tæpum 10 milljörðum í fyrra

Samanlagðar tekjur fjölmiðla af birtingu og flutningi auglýsinga, ásamt tekjum af kostun, námu ríflega 9,8 milljörðum króna á síðasta ári. Auglýsingatekjur miðlanna drógust saman um fimm af hundraði frá fyrra ári. Reiknað á meðalverðlagi ársins 2008 rýrnuðu auglýsingatekjurnar um 15 af hundraði.

Launahækkanir opinberra meiri en annara síðustu 15 mánuði

Síðustu fimm ársfjórðunga hafa launahækkanir opinberra starfsmanna verið meiri en starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans þar sem fjallað er um þróun launavísitölunnar en þær upplýsingar birti Hagstofan í gær.

Gjaldeyrissvik veikja gengi krónu verulega

Heildarfjárhæð viðskipta sem Seðlabankinn hefur til athugunar vegna brota á gjaldeyrisreglum er litlu lægri en verðmæti alls þorskútflutnings frá landinu fyrstu níu mánuði þessa árs.

Kaupþing tók 1998 yfir á leynifundi

Kaupþing tók yfir 1998, móðurfélag Haga, á leynilegum fundi í höfuðstöðvum bankans þann 20. október. Enginn af þáverandi stjórnarmönnum sat fundinn en þeim var öllum skipt út fyrir starfsmenn bankans síðar þann dag. Jóhannes í Bónus kom aftur inn í stjórnina sex dögum síðar eftir að hafa fengið frest til að koma með áætlun um endurfjármögnun félagsins.

Hætta á óeðlilegum ákvörðunum

Fjárfestingar Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga og síðar Fjárfestingafélaginu Giftar, voru áhættusamari en nauðsynlegt var og hætta á óeðlilegum ákvörðunum vegna innbyrðis tengsla manna sem þar véluðu um.

Sextán lífeyrissjóðir stofna fjárfestingarfélag

Fulltrúar sextán lífeyrissjóða innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða stofnuðu formlega í dag Framtakssjóð Íslands, nýtt fjárfestingarfélag sem ætlað er að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins.

Lítil viðskipti á markaði

Century Aluminum Company hækkaði um 0,98% á markaði í dag, en viðskiptin námu um 2,7 milljónum króna. Marel hækkaði um 0,49. Bréf í Bakkavör lækkuðu um 8,82% í viðskiptum sem námu 388 þúsund krónum. Gengisvísitalan hækkaði um 0,17%.

Glitnir þarf að láta Vilhjálm Bjarnason hafa gögn

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að Glitni banka sé skylt að afhenda Vilhjálmi Bjarnasyni, formanns Félags fjárfesta, gögn sem fylgdu kröfulýsingu skilanefndar Glitnis í þrotabú Fons hf.

Sjávarútvegsráðherra setur 5% kvótaálag á gámafisk

Til að jafna stöðu þeirra sem ljúka vigtun sjávarafla hér á landi og þeirra sem vigta afla sinn erlendis hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason nú ákveðið að frá og með næstu áramótum skuli botnfiskafli sem fluttur er óunninn á markað erlendis án þess að hafa verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu reiknaður með 5% álagi til aflamarks.

Hefur lagt fram 14 frumvörp um breytingar á fjármálamarkaði

Efnahags- og viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, hefur að undanförnu lagt fram á Alþingi 14 frumvörp til laga og breytinga á gildandi lögum. Meðal annars er um að ræða breytingar á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög sem ætlað er að auka jafnræði hluthafa, gagnsæi í eignarhaldi og jafnrétti í stjórnum og framkvæmdastjórn fyrirtækja.

Samkeppniseftirlitið fjallar um banka og endurskipulagningu

Samkeppniseftirlitið telur að það sé neytendum og atvinnulífinu til hagsbóta að bankar afskrifi eða minnki skuldir rekstrarhæfra fyrirtækja sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Bankar verða hins vegar að gera skýra arðsemiskröfu til endurskipulagðra fyrirtækja og gæta að samkeppnissjónarmiðum.

Kröfur í þrotabú Atorku hátt í 56 milljarðar

Kröfur í bú Atorku nema hátt í 56 milljörðum króna. Eftir tvo daga munu kröfuhafar greiða atkvæði um nauðasamninga sem fela í sér að 35 milljarðar verða afskrifaðir en afgangnum umbreytt í hlutafé og lán.

Gengi krónu á aflandsmarkaði að ná lægsta gildi ársins

Gengi krónunnar á aflandsmarkaðinum heldur áfram að lækka og í dag er sölugengið 291 kr. fyrir evruna samkvæmt vefsíðunni keldan.is. Er krónugengið þar með að ná lægst gildi ársins en í mars s.l. voru viðskipti upp á 300 kr. fyrir evruna á þessum markaði.

Skaðabótaskylda stjórnenda Samvinnutrygginga ehf. er fyrnd

Skaðabótaskylda stjórnenda Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga er fyrnd, hafi hún verið fyrir hendi, að mati Lagastofnunar Háskólans. Þetta kemur fram í skýrslu um starfsemi Samvinnutrygginga, eignarhaldsfélags samvinnutrygginga og dótturfélaga, sem fréttastofa hefur undir höndum.

Kröfuhafar Straums stofna nýjan banka

Fari allt að óskum munu kröfuhafar Straums stofna fjárfestingabanka undir nýju nafni snemma næsta vor. Ætlunin er að skipta Straumi upp í tvennt, annarsvegar eignarhaldsfélag sem færi með eignir og skuldir Straums fyrir kröfuhafanna og hinsvegar fyrrgreindan banka.

Fjárfesting í íbúðarhúsnæði minnkaði um 57% milli ára

Fjárfesting í íbúðarhúsnæði dróst saman um 57% á milli þriðja ársfjórðungs í ár og sama tíma í fyrra. Er þetta mesti samdráttur í íbúðarfjárfestingu yfir eitt ár sem mælst hefur frá því að ársfjórðungslegir þjóðhagsreikningar hófust árið 1998.

Heildarútlán ÍLS jukust um 34% milli mánaða

Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) rúmlega 2,4 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 900 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 34% frá fyrra mánuði, sem aðallega skýrist vegna aukningar á lánum til leiguíbúðafélaga þar sem almenn útlán drógust saman um tæplega 5%.

Lífeyrissjóðirnir: Framtakssjóður Íslands stofnaður í dag

Fjárfestingarsjóður lífeyrissjóðanna verður stofnaður í dag og mun bera heitið Framtalssjóður Íslands. Stofnfundurinn verður haldinn í Reykjavík og eftir hann verður efnt til blaðamannafundar þar sem sjóðurinn verður kynntur sem og fyrsta stjórn hans.

Laun hækka um 0,7% milli ársfjórðunga

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 0,7% hærri á þriðja ársfjórðungi 2009 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,8% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,4%. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 2,1%, þar af um 0,8% á almennum vinnumarkaði og um 4,9% hjá opinberum starfsmönnum.

Greining: Um 7,5% samdráttur í landsframleiðslu á árinu

Greining Arion banka telur að samdráttur í landsframleiðslu landsins í heild á þessu ári muni nema um 7,5%. Eins og fram kom í fréttum í gærdag dróst landsframleiðsla á fyrstu þremur fjórðungum ársins saman um 6% frá sama tímabili í fyrra.

Straumur: Kröfuhafar hittast á Hilton í dag

Breska blaðið The Guardian segir frá því í dag að kröfuhafar í Straumi ætli að hittast á Hilton hótelinu í Reykjavík til þess að ræða meðal annars um framtíð West Ham United, breska fótboltaliðsins sem komst í eigu Straums í kjölfar þess að aðaleigandinn Björgólfur Guðmundsson missti það.

Bolli í Sautján með í kaupum á Árvakri

Athafnamaðurinn Ásgeir Bolli Kristinsson, oft kenndur við verslunina Sautján, hefur bæst í eigendahóp Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Að sögn Óskars Magnússonar, útgáfustjóra Árvakurs og stjórnarformanns, má segja að Bolli komi inn í eigendahópinn í stað Gísla Baldurs Garðarssonar lögmanns.

Gjaldskrá Landsvirkjunar - 4,4% hækkun um áramótin

Orkumál Heildsöluverð raforku frá Landsvirkjun mun hækka um 4,4 prósent um áramótin. Hækkunin byggir á ákvæðum í langtímasamningum um breytingar í samræmi við hækkandi verðlag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun. Á grundvelli sömu ákvæða hækkaði Landsvirkjun raforku­verð um 7,5 prósent í júlí síðastliðnum. Þá hafði vísitala neysluverðs hækkað um 11,9 prósent, og er því Landsvirkjun nú að hækka um það sem upp á vantaði í 11,9 prósenta hækkunina, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.- bj

Endurskipulagning sparisjóðanna á áætlun

Fjármálaráðuneytið vinnur nú að því í samráði við efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið að leiða fjárhagslega endurskipulagningu sparisjóðanna til lykta og nýtur sérfræðiaðstoðar ráðgjafarfyrirtækisins Oliver Wyman við úrlausn þess verkefnis. Gengur sú vinna samkvæmt áætlun, að fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Að mati Sambands íslenskra sparisjóða eru sparisjóðirnir þjóðhagslega mikilvægir.

Íslandsbanki birtir uppgjör fyrstu mánaða eftir hrun

Íslandsbanki birti í dag uppgjör tímabilsins 15. október 2008 til 31. desember 2008, þegar bankinn hét raunar enn Glitnir. Í uppgjörinu kemur fram að hagnaður eftir skatta nam 2,356 milljörðum á tímabilinu og tekjuskattur er áætlaður 364 milljónir. Hreinar vaxtatekjur námu 13,8 milljörðum og hreinar þóknanatekjur 1,6 milljörðum. Stór hluti vaxtatekna á tímabilinu er tilkominn vegna verðtryggðra eigna umfram verðtryggðar skuldir en verðbólga á tímabilinu var 4,83%.

Marel lækkaði um 1,12% í dag

Marel lækkaði um 1,12% í viðskiptum dagsins, en viðskipti með bréf í félaginu námu tæpum 53 milljónum króna. Viðskipti með bréf í Össuri námu rétt rúmum 500 þúsund krónum.

Heildarvelta nemur 2,63 milljörðum

Heildarvelta skuldabréfa á markaðnum í dag nam 2,63 milljörðum króna. Þar af 0,43 milljarðar með verðtryggð íbúðabréf en 2,19 milljarðar með óverðtryggð ríkisbréf.

OR: Skuldirnar hafa fjórfaldast á kjörtímabilinu

Meirihlutinn í Orkuveitu Reykjavíkur framlengdi í dag samning við Norðurál vegna álvers í Helguvík á fundi stjórnar í dag. Af því tilefni endurflutti Sigurún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar bókun sem hún lagði fram í stjórninni árið 2006.

Dagatal Eimskips komið út

Dagatal Eimskips kom fyrst út árið 1928 og hefur verið prentað á hverju ári síðan, ef undanskilin eru tvö ár. Hið fyrra var í lok seinni heimsstyrjaldarinnar þegar skortur á aðföngum hamlaði útgáfu, en seinna skiptið var á sjöunda áratug síðustu aldar, án þess að vitað sé um ástæðu.

Gengið frá samkomulagi við stórnotendur raforku

Fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra, annars vegar, og Samtök atvinnulífsins og stórnotendur raforku, hins vegar, undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um ráðstafanir til að mæta erfiðri stöðu ríkisstjóðs og til að stuðla að auknum fjárfestingum í atvinnulífinu.

Erlendum skuldum OR breytt eða samningar gerðir í evrum

Lagt hefur verið til í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að erlendum lánum orkuveitunnar verði breytt eða að orkusölusamningar verði gerðir í evrum. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, lagði þetta til á síðasta stjórnarfundi, en afgreiðslu málsins var frestað.

Reiknar með óbreyttum stýrivöxtum á fimmtudag

Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni. Næsta vaxtaákvörðun nefndarinnar er á fimmtudaginn kemur.

Áhrif kreppunnar vægari hér en flestir bjuggust við

Í heild virðast áhrif kreppunnar hér á landi enn sem komið er öllu vægari en flestir höfðu búist við. Samdráttur landsframleiðslunnar (VLF) á fyrstu 9 mánuðum ársins frá sama tímabili í fyrra var 6%, og virðist líklegast að samdráttur á árinu í heild verði nokkru minni en þau 8,5% sem Seðlabankinn spáði í síðasta mánuði.

Stjórn HS Orku vill auka hlutafé um milljarð

Stjórn HS Orku vill fá heimild til að auka hlutafé félagsins um einn milljarð kr. að nafnverði. Hefur stjórnin ákveðið að boða til hluthafafundar mánudaginn 14. desember 2009 kl. 10:00 í Eldborg í Svartsengi.

Íslendingar að baki stærsta fraktflugsverkefni Noregs

Íslenska fraktflugfélagið Sundt Atlanta Skybridge hefur hafið umfangsmikla fraktflutninga frá Noregi en gert er ráð fyrir að flugvélar félagsins fljúgi tvisvar í viku á milli Gardermoen flugvallar við Osló til New York og Miami með stoppi í Amsterdam á heimleiðinni.

Eigið fé OR gæti þurrkast út vegna stöðutöku með krónunni

Skuldastaða Orkuveitu Reykjavíkur (OR) vægast sagt illa út. Fyrirtækið hefur tekið mjög stóra stöðu með krónunni gegnum erlendar lántökur og hefur goldið þess. OR mun vitaskuld hagnast ef krónan styrkist á nýjan leik en að sama skapi myndi u.þ.b. 20% gengisveiking fara langt með að þurrka út eigið fé Orkuveitunnar ef gengisvarnir eru engar.

Hagstofan: Skuldir ríkisins 94,6% af landsframleiðslu

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.419 milljörðum króna í lok þriðja ársfjórðungs eða sem nam 94,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 722 milljörðum króna á 3. ársfjórðungi 2008 eða sem svarar 48,9% af landsframleiðslu.

Sjá næstu 50 fréttir