Fleiri fréttir

Finnur Ingólfsson: Kannast ekki við falsað skjal

Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri, segir að Þorsteinn Ingason hafi á umliðnum árum sent honum fjöldann af bréfum skýrslum og sms skilaboðum þar sem Þorsteinn hafi beðið hann um aðstoð í yfir 20 ára baráttu sinni við Kaupþing um að fá bætur frá bankanum.

Óttast svipuhögg ríkisstjórnarinnar

Stjórnarandstaðan óttast að fjárlaganefnd Alþingis þurfi að sitja undir svipuhöggum ríkisstjórnarinnar til að flýta fyrir afgreiðslu Icesave málsins. Nefndinni er ætlað að fara yfir fjölmörg álitamál á stuttum tíma.

Segir skuldaúrræði bankanna sjónhverfingar

Skuldaúrræði bankanna eru talnaleikfimi, sem eiga að fá fólk til að trúa því að greiðslubyrðin sé að lækka. En hún er ekki að lækka eins mikið og gefið er í skyn, segir Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna og telur að líkja megi úrræðunum við sjónhverfingar.

Finnur Sveinbjörnsson: Bönkum mun fækka í tvo

Bankastjóri Arion Banka telur óhjákvæmilegt að bönkum á Íslandi fækki niður í tvo. "Það er klárlega offramboð á bankaþjónustu hér á landi, svona ef maður lítur á alþjóðlega mælikvarða á borð við fjölda íbúa á hvert útibú, fjölda bankastarfsmanna á hverja þúsund íbúa og þar fram eftir götunum. Allir mælikvarðar sýna sama offramboðið," sagði Finnur í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Ísland fær alls enga sérmeðferð hjá NIB

Tilkynning Norræna fjárfestingarbankans á hærri vaxtakjörum á nokkrum íslenskum lánum er í fullu samræmi við reglur bankans, segir Johnny Åkerholm, forstjóri bankans. Hann segir Íslendinga fá sömu meðferð hjá bankanum og aðra.

Móðurfélag Norðuráls hækkaði um 7,19%

Century Aluminum Company, móðurfélag Norðuráls, hækkaði um 7,19% í viðskiptum í Kauphöllinni í dag, en viðskipti með hluti í félaginu námu tæpum fjórum milljónum króna. Össur hækkaði um 1,49%. Marel lækkaði hins vegar um 1,42% en viðskipti með hlut í félaginu námu um 66 milljónum króna.

Velta á skuldabréfamarkaði áfram góð

Velta á skuldabréfamarkaði var áfram góð í dag og mikil eftirspurn eftir verðtryggðum bréfum – sérstaklega HFF 14 sem er yfirleitt frekar veltulítill flokkur. Mjög mikil velta einnig með RB 25 eða 5 milljarðar í dag.

Höfuðstóll erlendra íbúðalána lækkar allt að 30% hjá Arion

Höfuðstóll erlendra íbúðalána getur lækkað um allt að 30 prósent samkvæmt nýju skuldaúrræðum Arion bankans. Ekki verður krafist uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka árins 2010, óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán.

MP Banki flytur í nýjar höfuðstöðvar í Ármúla

MP Banki mun flytja höfuðstöðvar sínar úr Skipholti 50d í Ármúla 13a á nýju ári en í Ármúla 13a voru áður höfuðstöðvar SPRON. Aukin starfsemi og vöxtur bankans kalla á stækkun húsnæðis. Starfsemi MP Banka hefur vaxið og dafnað á árinu 2009 ekki síst með tilkomu alhliða viðskiptabankaþjónustu og rekstri útibúsins í Borgartúni 26.

Innflutningur á nautakjöti minnkar um 68% í ár

Það sem af er ári, janúar-október, hefur nautakjötsinnflutningur dregist mjög mikið saman m.v. sama tímabil í fyrra. Alls nemur innflutningurinn 101,9 tonnum, á móti 316,3 tonnum á sama tímabili í fyrra. Samdrátturinn er 68%.

Greiðsluskjól Frjálsa fyrir einstaklinga með erlend lán

„Frjálsi fjárfestingarbankinn er stoltur af að kynna viðskiptavinum sínum skuldbreytingarlausn sem tekur bæði á vanda vegna höfuðstóls erlendra lána og aukins greiðsluþunga eftir fall íslensku krónunnar," segir í tilkynningu frá bankanum um málið.

Bjarni Hrafn tekur við starfi framkvæmdastjóra Terra Nova

Bjarni Hrafn Ingólfsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra ferðaskrifstofunnar Terra Nova. Terra Nova er eitt allra stærsta fyrirtækið í móttöku erlendra ferðamanna til Íslands og hefur verið leiðandi á því sviði í yfir þrjá áratugi.

Erlendir ferðamenn eyða helmingi fleiri krónum en í fyrra

Þegar litið er á þjónustutekjur af erlendum ferðamönnum, og þær bornar saman við fjölda erlendra gesta, kemur í ljós að á fjórða ársfjórðungi síðasta árs og á fyrstu þremur fjórðungum þessa árs hefur hver erlendur ferðamaður eytt á þessum tíma að jafnaði helmingi meira hér á landi í krónum talið en á sama tíma í fyrra.

Garðabær reiknar með afgangi af rekstrinum á næsta ári

Bæjarstjórn Garðabæjar gerir ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að fjárhæð 67 milljónir kr. í fjárhagsáætlun sinni fyrir næsta ár. Veltufé frá rekstri er 13,6% og er það til marks um trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar, að því er segir í tilkynningu um málið.

Landsbankinn setur Festar í sölu

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið falið af skiptastjóra þrotabús útgerðarfyrirtækisins Festar ehf. að sjá um sölu á rekstri og eignum þess. Starfsemi félagsins felst í rekstri útgerðar og fiskvinnslu í Hafnarfirði sem samanstendur af sex bátum, fiskvinnslu og aflaheimildum.

Gistinóttum í október fjölgaði um rúm 2% milli ára

Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 106.300 en voru 104.000 í sama mánuði árið 2008. Fjölgunin nemur rúmum 2%. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu en í öðrum landshlutum varð fækkun á milli ára.

Fimm skuldbindandi tilboð bárust í Steypustöðina

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist fimm skuldbindandi tilboð með fyrirvörum í nýtt hlutafé Steypustöðvarinnar ehf. Tilboðin voru opnuð í gær, miðvikudaginn 2. desember kl. 16.00 í viðurvist Sigurðar Páls Haukssonar, löggilts endurskoðanda, sem var tilnefndur sem óháður matsaðili og samþykktur af öllum bjóðendum.

Frumvarp um innistæðutryggingar sveiflaði skuldabréfamarkaðinum

Hagfræðideild Landsbankans telur að miklar sveiflur á skuldabréfamarkaðinum í gærdag megi líkast til rekja til frumvarps efnahags- og viðskiptaráðherra til laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta sem gert er ráð fyrir að taki gildi um áramótin.

Skilanefnd Glitnis gæti eignast 10% í Actavis

Skilanefnd Glitnis gæti eignast 10 prósenta hlut Salt Investments, félags í eigu Róberts Wessman, í lyfjafyrirtækinu Actavis. Viðræður standa yfir við skilanefndina um uppgreiðslu á tæplega 20 milljarða króna skuld félagsins.

Gagnrýna ummæli um Ölgerðina

Samtök iðnaðarins segja með ólíkindum hvernig yfirmaður eftirlitssviðs ríkisskattstjóra dylgjar um rekstur og ákvarðanir Ölgerðarinnar og stjórnenda þess. Samtök iðnaðarins ætlast til þess að ríkisskattstjóri sjái til þess að slíkt endurtaki sig ekki.

Færeyingar taka sæti í stjórn tryggingarfélagsins Varðar

Samhliða því að endanlega hefur verið gengið frá kaupum Föroya Banki á tryggingarfélaginu Verði hefur ný stjórn Varðar verið kosin. Janus Petersen, bankastjóri Føroya Banka, og Jean Djurhuus, framkvæmdastjóri Trygd, koma nýir inn í stjórnina en Trygd er færeyskt tryggingafélag í eigu Føroya Banka.

Skuldatryggingarálag ríkisins lækkar að nýju

Eftir töluverða hækkun skuldatryggingarálags íslenska ríkisins í nóvember hefur það lækkað á undanförnum dögum. Hækkunin var mikil í síðustu viku og stóð áhættuálagið til fimm ára í 427 punktum síðastliðinn föstudag en hefur síðan lækkað um 35 punkta og stendur nú í 391 punktum.

Fyrsta aukning í bílasölu á síðustu 12 mánuðum

Í nóvember voru nýskráðir 152 bílar hér á landi og er það aukning frá sama tímabili í fyrra þegar nýskráðir voru 123 bílar. Aukningin er sú fyrsta sem mælist yfir tólf mánaða tímabil í nýskráningu bifreiða síðan í febrúar 2008, þ.e. við upphaf efnahagskreppunnar.

Sérhannaður vefur um fjármál heimila

Meniga.is er nýr heimilisfjármálavefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálun­um og nýta peningana sína sem best. Vefurinn hjálpar fólki að öðlast heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins, halda bókhald og bendir á raunhæfar leiðir til sparnaðar sem eru sérsniðnar að neyslumynstri hvers og eins.

Vöruskiptin hagstæð um 6 milljarða í nóvember

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember 2009 var útflutningur 44,3 milljarðar króna og innflutningur 38,3 milljarðar króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Latabæ stefnt fyrir dómstóla vegna vangoldinna skulda

Skuldabréfaeigendur ætla að stefna Latabæ fyrir dómi til að fá vangoldnar skuldir greiddar. Verður aðfararbeiðni tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í janúar. Latibær hefur ekki staðið skil á greiðslum af skuldabréfum upp á rúma 3 milljarða kr.

NIB hækkar vexti umtalsvert til íslenskra lánshafa

Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) sendi nokkrum sveitarfélögum og Lánasjóði sveitarfélaga erindi um að vextir á þeim lánum sem komin væru til endurskoðunar yrðu hækkaðir umtalsvert. Ástæðan væri verra lánshæfismat.

Skattayfirvöld geti rukkað fyrirtæki um milljarða króna

Skattyfirvöld geta í ljósi nýs skattafrumvarps rukkað fyrirtæki sem hafa farið í gegnum skuldsettar yfirtökur um marga milljarða króna. Heimild er til að taka upp framtöl fyrirtækjanna allt að sex ár aftur í tímann. Aðalsteinn Hákonarson, forstöðumaður eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra segir mýmörg dæmi um að fyrirtæki hafi farið í slíkar skuldsettar yfirtökur.

Össur hækkaði um 2,27%

Össur hækkaði um 2,27% í viðskiptum í Kauphöllinni í dag, en viðskiptin námu rúmum 28 milljónum króna. Icelandair hækkaði um 1,30% og Marel hækkaði um 0, 63%. Gengisvísitalan hækkaði um 0,5%.

Rúmlega 1.600 sagt upp í hópuppsögnum í ár

Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í nóvembermánuði þar sem sagt var upp 118 manns. Þar með er fjöldi þeirra sem sagt hefur verið upp í hópuppsögnum það sem af er ári orðinn 1.606.

Metaðsókn á ráðstefnu um viðskipti á netinu

Hátt í 500 manns sóttu ráðstefnu Útflutningsráðs Íslands 1. desember þar sem fjallað var um viðskipti á netinu og er það metaðsókn á viðburð af þessu tagi á vegum ráðsins. Ráðstefnan, sem bar yfirskriftina Vefurinn skapar verðmæti - Aukin tækifæri til útflutnings, laðaði að sér fólk úr ýmsum greinum atvinnulífsins og ljóst að margir eru áhugasamir um nýjar leiðir í viðskiptum.

Festu kaup á stærsta hvalaskoðunarskipi landsins

Hvalaskoðunarfyrirtækið Life of Whales (Hvalalíf ehf), sem starfað hefur í rúm 3 ár í Reykjavík, hefur nú fest kaup á farþegaskipi sem verður fyrst og fremst notað í hvalaskoðunarferðir. Skipið er það stærsta sem tekið hefur verið í slíka notkun hérlendis og markar tímamót fyrir ferðamenn sem leggja leið sína í hvalaskoðun.

Gjaldeyrishöftin virka betur, aflandsgengið hrapar

Sú herðing sem varð á gjaldeyrishöftunum fyrir mánuði síðan virkar vel ef mið er tekið af gengi krónunnar að undanförnu. Samkvæmt skráningu þess á vefsíðunni keldan.is er sölugengið á aflandsmarkaðinum komið í 245 kr. fyrir evruna en í síðustu viku var það 232 kr.

Viðskipti með hlutabréf jukust töluvert í nóvember

Heildarviðskipti með hlutabréf í nóvembermánuði námu tæpum 1.905 milljónum kr. eða 91 milljónum kr. á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í októbermánuði rúmer 1.667 milljónir, eða 76 milljónir á dag.

Skuldabréf Nýja Landsbankans verður baggi á krónunni

Skuldabréf það sem Nýi Landsbankinn hefur gefið út til gamla Landsbankans mun verða töluverður baggi á krónunni á komandi árum þar sem það þarf að greiða í gjaldeyri. Upphæðin er 260 milljarðar kr. og þegar afborganir hefjast árið 2014 munu þær nema 60-70 milljörðum kr. á ári að mati greiningar Arion banka.

Kaupþing selur í Storebrand, gengi hluta fellur um 1,6%

Sala skilanefndar Kaupþings á öllum hlutum sínum í tryggingarisanum Storebrand er toppfréttin á forsíðum norskra viðskiptavefmiðla í morgun. Söluverðið á 5,5% hlutnum er sagt um einn milljarður norskra kr. eða 21 milljarður kr. Það gæti þó lækkað nokkuð þegar líður á morguninn því gengi hlutanna féll um 1,6% í fyrstu viðskiptum.

Sjá næstu 50 fréttir