Fleiri fréttir

Telur að Seðlabankinn viti meira en hann gefur upp

Formaður Félags fasteignasala, segist sleginn yfir spá um enn meiri lækkun íbúðaverðs. Formaðurinn hefur áhyggjur af því að Seðlabankinn viti meira en hann gefur upp. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Hljóta viðurkenningu fyrir árangur í markaðssetningu

American Express International veitti Kreditkorti hf. nýlega sérstaka innanhúsviðurkenningu fyrir árangur fyrirtækisins í markaðsmálum. Eitt ár er um þessar mundir liðið frá því að American Express hóf starfsemi hér á landi í samvinnu við Kreditkort, að fram kemur í tilkynningu. Þar segir að kortin hafi strax náði góðri fótfestu hérlendis og nú megi finna en American Express kort veskjum tuga þúsunda Íslendinga.

Skilanefnd Landsbankans eignast hlut í skartgripakeðju

Skilanefnd Landsbankans er að eignast stóran hlut í bresku skartgripakeðjunni Aurum Holdings, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Mappin & Webb, Watches of Switzerland og Goldsmiths, en bankinn hefur breytt 42 milljónum punda af skuldum eigenda félagsins í hlutafé. Það samsvarar 8,6 milljörðum króna.

Segir Morgunblaðið blygðunarlaust misnotað

„Morgunblaðið hefur misst allan trúverðugleika sem áreiðanlegur fjölmiðill. Meðferðin á blaðinu er að sjálfsögðu óvirðing við gott starf fagmanna, sem byggðu upp frábæran fjölmiðill af eljusemi á löngum tíma,“ Ólafur Arnarson, rithöfundar bókarinnar Sofandi að feigðarósi, í pistli á heimasíðu sinni. Hann fullyrðir að Morgunblaðið sé blygðunarlaust misnotað en hann gefur lítið fyrir forsíðufrétt blaðsins í dag.

Lögðu fram 100 þúsund en fengu 400 milljónir að láni

Sex fyrrverandi stjórnendur Kaupþings lögðu fram 100 þúsund krónur og fengu á móti 400 hundruð milljónir að láni til jarðakaupa á árunum 2002 til 2005. Lánin voru í japönskum jenum og standa í rúmum milljarði í dag.

Gjaldeyrisforða má nota í gróðaskyni

Seðlabankastjóri segir inngrip á gjaldeyrismarkað miða að því að koma í veg fyrir lækkunarspíral. Aðalhagfræðingur bankans segir breytingu bankans á stýrivöxtum hafa mátt vera skýrari.

Björgólfur Guðmundsson gaf út skuldabréfið

Það var Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, sem gaf út skuldabréfið sem Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti fyrir 400 milljónir árið 2005. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag var um að ræða brot á fjárfestingastefnu sjóðsins og hefur málinu verið vísað til Fjármálaeftirlitsins og Rannsóknarnefndar Alþingis.

400 milljónirnar fóru í einkaverkefni Björgólfs

Skuldabréfið sem Fyrirtækjabréf Landsbankans keyptu af Björgólfi Guðmundssyni, fyrrum formanni bankaráðs Landsbankans á 400 milljónir, voru nýttar í einkaverkefni á hans vegum en ekki er ljóst hvaða verkefni um ræðir.

Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti skuldabréf á einstakling

Fjárfestingasjóðurinn Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti skuldabréf á einstakling árið 2005 upp á 400 milljónir kr. Slíkt er brot á fjárfestingastefnu sjóðsins og hefur málinu verið vísað til Fjármálaeftirlitsins og Rannsóknarnefndar Alþingis.

Gengisvísitalan lækkaði um 0,11%

Atlantic Petrolium hækkaði um 2,51% í dag, Century Aluminum company, móðurfélag Norðuráls, hækkaði um 1,83%, Össur hækkaði um 1,47% og Føroya Banki hækkaði um 1,11%.

Endurskipulaginu Landic Property lokið, nauðasaminga leitað

Landic Property hf. hefur samið við NBI (Landsbankann), Nýja Kaupþing, Íslandsbanka, Glitni, Haf Funding og Byr um fjárhagslega endurskipulagningu íslenska fasteignafélagsins Landic Property Ísland og dótturfélaga. Kröfuhafar sem fara með yfir 76% af upphæð krafna hafa lýst yfir stuðningi við umsókn um heimild til nauðasamningsumleitana sem lögð var fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag.

Fréttaskýring: Minni gjaldeyrir ferðamanna fellir krónuna

Mikið útflæði og nær ekkert innflæði á gjaldeyrismarkaðin hefur valdið því að krónan hefur fallið töluvert eftir hádegið í dag eða um 1,1% þegar þetta er skrifað hálftíma fyrir lokun markaðarins. Helsta ástæðan er að Seðlabankinn hefur ekki verið með nein inngrip á markaðinn í dag eins og áður í ár þegar þetta hefur gerst.

Atlantic Petroleum skilaði tapi upp á 835 milljónir

Atlantic Petroleum skilaði tapi eftir skatt upp á 33,4 milljónir danskra kr. eða um 835 milljónir kr. á þriðja ársfjórðungi ársins. Þar með er tap ársins komið í 65,8 milljónir danskra kr.

Lárus Ásgeirsson ráðinn forstjóri Sjóvá

Stjórn Sjóvá-Almennra Trygginga hf. hefur ráðið Lárus Ásgeirsson sem forstjóra félagsins frá 9. nóvember næstkomandi. Lárus tekur við af Herði Arnarsyni sem ráðinn hefur verið forstjóri Landsvirkjunar.

Gengisvístalan tæpu stigi frá hæsta gildi ársins

Gengi krónunnar heldur áfram að veikjast í dag og er gengisvísitalan nú aðeins tæpu stigi frá hæsta gildi ársins. Vísitalan stendur í rúmlega 238,5 stigum en hún fór hæst í 239,5 stig í ágúst s.l.

JP Lögmenn fyrstir í skrifstofur turnsins við Höfðatorg

JP Lögmenn urðu um síðastliðin mánaðamót fyrstir til að flytja inn í skrifstofuhúsnæði í turninum við Höfðatorg í Reykjavík. JP Lögmenn eru á 16. hæð turnsins sem er 19 hæða hár, en lögfræðistofan er einnig með aðsetur á Selfossi.

Hafna því að hafa greitt laxveiðiferðir

Bæði Landsbankinn og Nýja Kaupþing hafna því að hafa kostað laxveiðiferðir á vegum starfsmanna síðastliðið sumar. Bankarnir hafna því jafnframt að stunda bókhaldsbrellur og rangfærslur á kostnaði.

Yfir helmingur fyrirtækja skilaði ekki ársreikningi

Yfir helmingur fyrirtækja landsins, eða 52%, skiluðu ekki ársreikningi sínum til ársreikningaskrár fyrir eindaga sem var fyrir tveimur mánuðum síðan. Viðskiptaráð Íslands hvetur fyrirtæki til að standa sig betur en þetta því reikningarnir eru lykilatriði í að fá fyrirgreiðslu hjá alþjóðlegum greiðslutryggingarfélögum.

Skráningu á nýjum hlutum í Össuri er lokið

Skráningu á hlutafjáraukningu vegna útboðs Össurar hf. á nýjum hlutum að nafnvirði 29.500.000 kr. er lokið. Hlutafjáraukningin hefur verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá.

Greining: Merkilega líkar hagspár miðað við óvissu

Greining Íslandsbanka fjallar um það í Morgunkorni sínu hve hagspár þær sem birtar hafa verið að undanförnu séu merkilega líkar hvor annarri miðað við þá óvissu sem framundan er í efnahagsmálum þjóðarinnar.

Kaupmáttur launa dregst áfram saman

Efnahagshorfur hafa heldur batnað að mati Seðlabankans. Krónan verður veik áfram, nálægt 180 krónum á móti evru. Spáð er 16 prósenta samdrætti kaupmáttar á næsta ári. Núverandi tilhögun peningamála gengur ekki til lengdar.

Gamli Landsbankinn vill milljarða frá Imon

Sex skuldamál gamla Landsbankans á hendur eignarhaldsfélaginu Imon ehf. verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudaginn kemur. Eitt málanna er langstærst, en þar krefur bankinn Imon um fimm milljarða króna vegna láns til Imons fyrir kaupum félagsins í bankanum sjálfum, nokkrum dögum fyrir hrun í fyrrahaust.

Yfirvöld skoða skúffufyrirtækið Magma

Yfirvöld hafa kallað eftir upplýsingum um samband kanadíska félagsins Magma Energy og dótturfélags þess í Svíþjóð. Hið síðarnefnda er skúffufélag sem hefur keypt stóra hluti í HS Orku á Reykjanesi.

Landsbankinn og Glitnir grunaðir um allsherjar markaðsmisnotkun

Fjármálaeftirlitið rannsakar grun um að stjórnendur Landsbankans og Glitnis hafi staðið fyrir allsherjar markaðsmisnotkun. Bankarnir hafi blekkt markaðinn með því að lána fyrir hlutabréfakaupum með veði í bréfunum sjálfum og þannig haldið verði á þeim uppi.

Krónan lækkaði um 0,71% í dag

Hlutabréf í Össuri hækkuðu um 1,12% í Kauphöllinni í dag. Bréf í Century Aluminum Company lækkuðu um 5,21% og bréf í Marel lækkuðu um 1,72%.

Mikil velta á skuldabréfamarkaði

Dagurinn í dag var einn af veltumestu dögum ársins á skuldabréfamarkaði. Hér að neðan má sjá helstu vísitölur Gamma.

Síminn með undir 50% markaðshlutdeild í fyrsta sinn

Síminn er nú með undir 50% markaðshlutdeild á farsímamarkaði á Íslandi í fyrsta skipti. Þetta kemur fram í nýrri tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar um íslenska fjarskiptamarkaðinn á fyrri helmingi ársins 2009.

Raungengi krónunnar hækkar áfram

Raungengi íslensku krónunnar nú í október hækkaði annan mánuðinn í röð frá fyrri mánuði, eða um 0,2% á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Á sama tíma lækkaði nafngengi krónunnar um 0,8%, m.v. vísitölu meðalgengis, en vísitala neysluverðs hér á landi hækkaði um ríflega 1%.

Seðlabankinn: Kaupmáttur rýrnar um 15% á næsta ári

Seðlabankinn hefur endurskoðað spá sína hvað þróun kaupmáttar varðar og reiknar nú með að hún nemi 15% á næsta ári. Þetta er tvöfalt meiri rýrnun en bankinn hafði áður spáð en í ágúst hljóðaði spáin upp á 7,4% rýrnun á næsta ári.

Seðlabankinn: Betri horfur í efnahagsmálum

Aðeins betri horfur í efnahagsmálum og lægra atvinnuleysi en í fyrri spám leiða til þess að bati einkaneyslu verður nokkru hraðari en spáð var í ágúst. Þetta kemur fram í ritinu Peningamál sem gefið var út af Seðlabankanum í morgun.

Sendifulltrúi AGS vill ekki tjá sig um vaxtalækkunina

Sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hér á land, Franek Rozwadowski, vill ekki tjá sig um vaxtalækkun peningastefnu Seðlabankans í morgun. Aðspurður svarar hann einfaldlega „no comment".

Engin viðskipti með krónur á aflandsmarkaðinum

Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum hafa engin viðskipti verið með krónur á aflandsmarkaðinum í þessari viku, eða frá því að slakað var á gjaldeyrishöftunum um síðustu helgi.

Stýrivextir lækka um eitt prósentustig

Stýrvextir lækka í dag um eitt prósentustig, fara úr 12% og í 11%. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana um 0,5 prósentur í 9%.

Øygard blæs á gagnrýni AGS um of örar vaxtalækkanir

Svein Harald Øygard, fyrrverandi seðlabankastjóri Íslands blæs á gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um að bankinn hafi farið of hratt í vaxtalækkunarferlið undir hans stjórn fyrr í ár. Norskir fjölmiðlar fjalla um málið í dag.

Vörður fyrsta skrefið í alþjóðavæðingu Föroya Banki

Kaupin á íslenska tryggingarfélaginu Verði voru fyrsta skref Föroya Banki í átt að alþjóðavæðingu bankans. Þetta kemur fram í uppgjöri bankans fyrir þriðja ársfjórðung. Hagnaður bankans jókst um 165% miðað við þriðja ársfjórðung í fyrra.

Sjá næstu 50 fréttir