Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 9 milljörðum Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 9 milljörðum króna í dag. Þar af voru 7328 milljarðar í íbúðabréfum og 7,28 milljarðar í óverðtryggðum ríkisbréfum. 20.11.2009 16:50
Titan Global sækir um lóð undir gagnaver á Grundartanga Titan Global hefur sótt um lóð undir gagnaver á Grundartanga. Erindi Titan Global var rætt á fundi stjórnar Faxaflóahafna í morgun en Titan Global hefur formlega óskað eftir viðræðum um gerð og undirritun viljayfirlýsingar um úthlutun lóðarinnar. 20.11.2009 15:18
EIB skrifar undir 31 milljarða lán til Orkuveitunnar Fjárfestingabanki Evrópu (EIB) hefur skrifað undir lán til Orkuveitu Reykjavíkur upp á 170 milljónir evra eða rúmlega 31 milljarð kr. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. 20.11.2009 14:38
Gunnlaugur gáttaður á RUV, krefst viðtals við útvarpsstjóra Gunnlaugur Sigmundsson segir að hann sé gáttaður á fréttaflutningi Spegilsins á RUV af félagi hans GSSG Holding. Af þessum sökum hefur hann krafist þess að fá viðtal við Pál Magnússon útvarpsstjóra. 20.11.2009 14:11
Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um 27% frá árinu 2000 Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um 27% frá árinu 2000. Samtals voru stöðugildin 28.700 árið 2000 en voru orðin 37.400 talsins í apríl s.l. Hlutfallsleg aukning á tímabilinu er því 27%, 29% hjá ríkinu og 32% hjá sveitarfélögum. 20.11.2009 13:25
Enn frost á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 13. nóvember til og með 19. nóvember 2009 var 47. Þar af voru 33 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.197 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,5 milljónir króna. 20.11.2009 13:05
Havilland þjónustar Tortólufélag Gunnlaugs Sigmundssonar „Eitt af félögunum sem Havilland sér nú um er GSSG Holding, stofnað í desember 2000 á heimilisfangi Kaupþings. Í félagið voru þá lagðar 260 milljónir króna. Eins og oft voru það tvö Tortólufélög í eigu Kaupþings sem stofnuðu félagið. Stjórnarmaður í félaginu var þá Gunnlaugur Sigmundsson sem var þingmaður Framsóknar 1995-1999 og hefur víða komið við í íslensku viðskiptalífi." 20.11.2009 12:48
Nýtt nafn Kaupþings kynnt í dag Tilkynnt verður um nýtt nafn Nýja Kaupþings banka í dag á starfsmannafundi sem boðað hefur verið til í Hafnarhúsinu klukkan fimm að því er heimildir fréttastofu herma. Bankinn fór í mikla stefnumótunarvinnu eftir bankahrunið með það fyrir augum að bæta laskaða ímynd sína. 20.11.2009 12:20
Ástarbréf Landsbankans kosta ríkið 80 milljarða Tap ríkisins vegna veð- og daglána Seðlabankans til gamla Landsbankans nemur hátt í 80 milljörðum króna. 20.11.2009 12:02
Forstjóri Atlantic Petroleum hættir strax Wilhelm Petersen forstjóri Atlantic Petroleum lætur af starfi sínu strax í dag samkvæmt tilkynningu frá félaginu til kauphallarinnar. Wilhelm mun verða félaginu innanhandar sem ráðgjafi næsta árið. 20.11.2009 11:02
Vilhjálmur: Ekki verður fallist á neinar skattahækkanir 2011 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA bendir á að ríkisstjórnin hafi tæmt skattahækkunarpokann og ekki verði hægt að fallast á neinar frekari skattahækkanir vegna fjárlaga fyrir árið 2011. Þá þurfi að mæta allri aðlögunarþörfinni með lækkun útgjalda. 20.11.2009 10:47
FME rannsakar 13 alþjóðleg fjársvikamál Fjármálaeftirlitið (FME) rannsakar nú 13 alþjóðleg fjársvikamál, það er mál sem hafa tengingu utan Íslands. Gunnar Andersen forstjóri FME segir í samtali við Bloomberg að þessi mál verði rekin fyrir dómstólum í nokkrum löndum auk Íslands. 20.11.2009 10:41
Tæplega 48% afþökkuðu greiðslujöfnun hjá ÍLS Alls afþökkuðu tæp 48% einstaklinga greiðslujöfnun hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) en á miðnætti í gær rann út frestur til að afþakka greiðslujöfnun fasteignaveðlána vegna gjalddaga í desember. Öll slík lán voru nýlega með lögum sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun. 20.11.2009 10:07
Skuldabyrði kúabænda eykst um 700% milli ára Skuldabyrði kúabænda hefur aukist um 700% milli áranna 2007 og 2008. Skuldabyrði sauðfjárbænda jókst um 319% á sama tíma. 20.11.2009 10:01
Sexföldun á búferlaflutningi Íslendinga til Noregs Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Noregs hafa búferlaflutningar Íslendinga til Noregs sexfaldast í ár. Í umfjöllun vefsíðunnar e24.no segir að kreppan á Íslandi hefur valdið því að Íslendingar flytja til annarra landa í miklum mæli. 20.11.2009 09:50
Byggingarkostnaður jókst um 0,7% milli mánaða Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan nóvember 2009 er 500,7 stig sem er hækkun um 0,7% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í desember 2009. 20.11.2009 09:17
Seðlabankinn: Kúlulán fela vanskilavanda fyrirtækja „Áætlað er að fjórðungur fyrirtækja sé í vanskilum. Það er þó sennilega vanmat, því að þriðjungur lána fyrirtækja eru kúlulán og vanskil kúlulána koma sjaldan í ljós fyrr en þau falla í gjalddaga vegna þess að venjulega þarf ekki að greiða vexti af þeim fyrr en þá." 20.11.2009 08:27
OECD: Lífsnauðsyn að koma ríkisfjármálum á réttan kjöl Aðgerðir til að koma ríkisfjármálunum á réttan kjöl eru sagðar lífsnauðsynlegar í Íslandskafla nýrrar hagspár Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Lögð er áhersla á að þær verði að fullu komnar til framkvæmda hið fyrsta til þess að rekstur ríkissjóðs verði sjálfbær á ný. 20.11.2009 08:09
Fjármálafurstar flykkjast úr landi í öruggt skjól Bankastjórar og aðrir kaupsýslumenn sem voru í fararbroddi útrásarinnar hafa nú flutt lögheimili erlendis þar sem þeir dveljast í öruggu skjóli frá riftunarkröfum skilanefnda föllnu bankanna. Skilanefndirnar vilja að ráðherra beiti sér fyrir lagabreytingum. 19.11.2009 18:43
Einn í peningastefnunefnd vildi óbreytta vexti Á síðasta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Ísland lagði Már Guðmundsson, seðlabankastjóri til að innlánsvextir yrðu lækkaðir um 0,5 prósentur í 9,0% og að hámarksfjárhæð í vikulegum útboðum innstæðubréfa til 28 daga yrði aukin úr 25 milljarða krónum í 30 milljarða króna með 9,5% lágmarksvöxtum og 10,25% hámarksvöxtum, sem felur í sér 0,25 prósentna hækkun hámarksvaxta. 19.11.2009 17:44
Atlantic Airways hækkaði mest Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hækkaði mest í Kauphöllinni í dag eða um 1,43%. Viðskipti með bréf í félaginu voru þó sáralítil. Össur hækkaði um 0,37% og Marel um 0,15%. 19.11.2009 17:22
Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 8,37 milljörðum Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 8,37 milljörðum króna. Þar af voru 1,34 milljarðar með íbúðabréf og 7,04 með ríkisbréf. 19.11.2009 17:09
Hafnir landsins innheimta ekki farþegaskatt fyrir ríkissjóð „Stjórn Hafnasambands Íslands mótmælir harðlega öllum hugmyndum um upptöku nýs skatts á ferðamenn á Íslandi og hækkun vitagjalds, en hvort tveggja mun leiða til aukinnar gjaldtöku af farþegum og útgerðum skemmtiferðaskipa sem leggja leið sína til landsins." 19.11.2009 15:31
Viðskiptaráð sér jákvæð tíðindi í skattabreytingum „Jákvæðu tíðindin við útfærsluna sem kynnt var í gær felast í þeirri staðreynd að heildaraukning skattheimtu er minni en upphaflega var gert ráð fyrir. Samanlagðar tekjur af almennum tekjuskatti einstaklinga og fjármagnstekjur eru þannig áætlaðar 117 milljarðar kr. í stað upphaflegra áætlunar um 143 milljarða kr. skattheimtu. Einnig hafa áætlanir um auðlinda- og orkuskatt verið endurskoðaðar til lækkunar." 19.11.2009 14:49
Greiðslustöðvun Kaupþings framlengd til 13. ágúst 2010 Að beiðni skilanefndar Kaupþings hefur Héraðsdómur Reykjavíkur framlengt greiðslustöðvun bankans til 13. ágúst 2010. 19.11.2009 13:51
Baldur þarf sjálfur að bera kyrrsetninguna undir dómstóla Rannsókn á máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, er langt komin. Baldur þarf sjálfur að bera ákvörðun um kyrrsetningu eigna sinna undir dómstóla vilji hann hnekkja henni. Baldur er hæst setti embættismaður Íslendinga sem hefur verið til rannsóknar af ákæruvaldi vegna gruns um brot. 19.11.2009 13:04
Engin bankaafgreiðsla á Hofsósi Engin bankaafgreiðsla er á Hofsósi eftir að útibú Nýja Kaupþings lokar þar. Þetta kemur fram í ályktun byggðarráðs Skagafjarðar sem mótmælir áformum um lokun bankaútibúsins. 19.11.2009 12:48
FÍS: Alvarlegar athugasemdir við skattahugmyndir Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) gerir alvarlegar athugasemdir við skattahugmyndir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í gær og þá sérstaklega það sem snýr að tryggingagjaldi og fjölgun skattþrepa virðisaukaskatts. 19.11.2009 12:19
Nýir skattar hækka höfuðstól íbúðalána um 15-16 milljarða Skattabreytingarnar sem kynntar hafa verið munu leiða til 15-16 milljarða kr. hækkunar á höfuðstól íbúðalána landsmanna á komandi mánuðum. Þegar frá líður mun hækkun á beinum og óbeinum sköttum þó verða til þess að minnka verðbólguþrýsting vegna neikvæðra áhrifa á innlenda eftirspurn. 19.11.2009 12:11
OECD: Kreppan dýpri og langvarandi hérlendis Kreppan hér á landi verður bæði dýpri og meira langvarandi en að meðaltali í aðildarríkjum OECD samkvæmt spá stofnunarinnar. Verður samdrátturinn að meðaltali 3,5% í ár í aðildarríkjum OECD á þessu ári. 19.11.2009 12:03
Verði krafan samþykkt rennur hún til velferðamála Fyrrum framkvæmdarstjóri Landsbankans, Yngvi Örn Kristinsson, hefur gefið út yfirlýsingu vegna launakröfu sem hann og fleiri fyrrum starfsmenn Landsbankans hafa gert í þrotabú Landsbankans. Hann gerir 229 milljón króna kröfu í þrotabúið. 19.11.2009 11:26
Rúmlega 38% lántakenda ÍLS afþakka greiðslujöfnun Um kl. 9:30 í morgun höfðu 18.657 einstaklingar afþakkað greiðslujöfnun á 30.514 lánum hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS). Þetta eru 38,5% allra lántakenda hjá Íbúðalánasjóði og 37,4% af fjölda lána. 19.11.2009 11:16
OECD: Reiknar með 7% atvinnuleysi næsta ár Í nýrri skýrslu OECD um horfurnar í efnahagsmálum heimsins (Economic Outlook) reiknar stofnunin með að atvinnuleysi á Íslandi verði um 7% á næsta ári en minnki svo í 6,4% árið 2011. OECD telur að niðursveiflan á Íslandi haldi áfram þar til snemma á næsta ári. 19.11.2009 10:35
Týndu Glitnisbréfin hækka um 7,5 milljarða eftir könnun Skuldabréf þau sem týndust í bókhaldi Glitnis hafa hækkað í verði um 41 milljón evra eða um 7,5 milljarða kr. við könnun endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte á málinu. 19.11.2009 08:55
Grundartangi á sléttu með álverðið í 1.275 dollurum á tonnið Mike Bless fjármálastjóri Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, segir að félaginu hafi tekist að reka álver sitt á Grundartanga á sléttu þegar álverðið fór niður í 1.275 dollara á tonnið í mars s.l. Þetta hafi verið hægt vegna þess hve raforkuverðið á Íslandi er hagstætt félaginu. 19.11.2009 08:47
FME sektar SP-Fjármögnun og Sparisjóð Mýrarsýslu Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sektað SP-Fjármögnun og Sparisjóð Mýrarsýslu fyrir brot á lögum um verðbréfaviðskipti. SP-Fjármögnun var sektuð um 400.000 kr. og Sparisjóður Mýrarsýslu um 700.000 kr. 19.11.2009 08:15
Helguvík hefji starfsemi snemma árs 2012 Century Aluminum gerir ráð fyrir að álbræðsla hefjist í álveri fyrirtækisins í Helguvík snemma árs 2012. Þetta kom fram í ræðu fjármálastjóra fyrirtækisins Mike Bless á ráðstefnu fjárfesta í ál- og námavinnslu sem fram fór í gær. 19.11.2009 07:44
Lífsýnasafnið ekki til sölu Saga Investments býður 1,7 milljarða króna fyrir Íslenska erfðagreiningu. Erlendir fjölmiðlar segja DeCode hafa runnið út á tíma. Þeir hafa áhyggjur af lífsýnabanka Íslenskrar erfðagreiningar. 19.11.2009 04:15
Fasteignafélag N1 skuldum hlaðið Umtak, félag sem heldur utan um fasteignir olíufélagsins N1, skuldaði 13,5 milljarða króna í lok árs 2007. Í lok ársins átti félagið eignir á móti skuldum, eða fyrir tæpa 14,4 milljarða króna. 19.11.2009 04:00
Skuldabréfið ófundið Skilanefnd Glitnis hefur enn ekki fundið hvar skuldabréfakrafa upp á 140 milljarða króna liggur í bókhaldi þrotabús gamla bankans. 19.11.2009 04:00
FME sektar Bakkabræður Fjármálaeftirlitið hefur sektað Bakkabræður um fimm milljónir króna vegna brots á lögum um verðbréfaviðskipti. 18.11.2009 18:11
Steypustöðin í opið söluferli Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falið að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á Steypustöðinni ehf., sem er í dag að fullu í eigu dótturfélags Íslandsbanka hf. 18.11.2009 18:22
Samtök ferðaþjónustunnar ósátt með skattahækkanir Ferðaþjónustufyrirtækin hafa fyrir löngu gert samninga um verð fyrir árið 2010. Þess vegna er ótækt að hækka skatta á þau fyrirvaralaust, að mati Samtaka ferðaþjónustunnar. Samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar í dag verða alsverðar hækkanir á sköttum og gjöldum í ferðaþjónustu. 18.11.2009 17:38
Móðurfélag Norðuráls hækkaði um 4,36% Century Aluminum Company, móðurfélag Norðuráls, hækkaði um 4,36% í Kauphöllinni í dag. Össur hækkaði um 0,37% og Marel hækkaði um 0,15%. Ekkert félag lækkaði. Viðskipti með Century Aluminum Company námu reyndar einungis um 332 þúsund krónum. Krónan stóð í stað. 18.11.2009 17:21
Velta á skuldabréfamarkaði nam 11,06 milljörðum Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 11,06 milljörðum króna. Þar af voru 9,43 milljarða viðskipti með óverðtryggð ríkisbréf og 1,63 milljarða viðskipti með íbúðabréf. 18.11.2009 16:59