Fleiri fréttir

Gengi krónunnar styrkist

Gengi krónunnar hefur styrkst í fyrstu viðskiptum dagsins í morgun eða um tæpt hálft prósent. Gengisvísitalan stendur í 235 stigum. Til samanburðar fór hún hæst í þessum mánuði í 240,5 stig þann 6. nóvember en það var jafnframt hæsta gildi ársins.

Moody´s: Reiknar með frekari afskriftum hjá ÍLS

Matsfyrirtækið Moody´s reiknar með frekari afskriftum hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) vegna niðursveiflunnar í efnahagslífi Íslands í yfirstandandi kreppu. Þetta kemur m.a. fram í áliti Moody´s sem fylgdi með lækkun þess á lánshæfiseinkunn ÍLS í Baa3 í síðustu viku.

Komnir með nægt fjármagn til þess að kaupa Haga

Guðmundur Franklín Jónsson kaupsýslumaður segir hann og hóp fjárfesta nú þegar komna með nægt fé til að standa undir tilboði í hlutafé Kaupþings í Högum. Hann vill ekki upplýsa hverjir það eru sem standa að því með honum að reyna að eignast hlutinn.

Spá 9% samdrætti samanlagt árin 2009 og 2010

„Hagkerfið mun dragast verulega saman á árunum 2009-2010. Það bætir hinsvegar nokkuð úr skák að vöru- og þjónustuhalli hefur snúist í afgang sem mun taka mesta höggið af hagkerfinu hvað framleiðslu varðar. Greiningardeild spáir því „einungis" 9% samdrætti í landsframleiðslu samanlagt á árunum 2009-2010. Í framhaldi af því mun hinsvegar taka við fjárfestingadrifinn hagvöxtur á árunum 2011-2012."

Neytendastofa bannar bensínauglýsingar

Olíuverslun Íslands og N1 hafa undanfarið auglýst tilboð til viðskiptakorthafa sinna þar sem boðinn er fimm króna afsláttur af dæluverði eldsneytis til handa korthöfunum en auglýsingarnar hafa verið bannaðar af Neytendastofu.

Íslendingar nota kreditkortin meira en fyrr í ár

Heildarvelta kreditkorta í októbermánuði var 23,6 milljarða kr. samanborið við 24,4 miljarða kr. á sama tíma í fyrra og er þetta 3,0% samdráttur milli ára að því er segir í hagtölum Seðlabankans. Samkvæmt þessu dregur ört úr minnkun veltunnar frá því s.l. sumar.

Orkuveitan segist geta staðið við skuldbindingar

Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Hjörleifur Kvaran, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Morgunblaðsins þar sem fullyrt var að fyrirtækið gæti lent í greiðslufalli. Í tilkynningunni segir Hjörleifur þetta rangt.

Keypti Baugssnekkju og hélt nafninu óbreyttu vegna hjátrúar

Viðskiptajöfurinn Ron Leyland sem er búsettur í Flórída, í Bandaríkjunum, keypti snekkjuna “thee Viking” af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og hélt upprunalega nafninu vegna hjátrúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá auðjöfrinum.

Evran betri en krónan fyrir atvinnulífið

„Fjármálamarkaðir eru flóknir og stýrast af pólitískum og efnahagslegum þáttum. Með evrunni fækkar óvissuþáttunum og stöðugleiki eykst. Til lengri tíma litið er evran því góð fyrir vinnumarkaðinn,“ segir Vladimír

Krafðir um samtals 3 milljarða króna vegna söluréttarsamninga

Hreiðar Már, Sigurður Einarsson, Bjarni Ármannsson og Lárus Welding eru meðal tuttugu og átta stjórnenda Kaupþings og Glitnis sem skattayfirvöld krefja um þrjá milljarða króna í tengslum við endurálagningu Ríkisskattstjóra vegna söluréttarsamninga.

Atlantic Petroleum hækkaði um 3,92%

Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum hækkaði mest í Kauphöll Íslands í dag eða um 3,92%. Marel hækkaði um 2.38% og Icelandair hækkaði um 1,41%. Össur lækkaði mest eða um 0,37%.

Hagar: Hagsmunir allra best tryggðir með lausn sem unnið er að

Í yfirlýsingu sem borist hefur fá Finni Árnasyni forstjóra Haga segir að hagsmunir félagsins, hagsmunir viðskiptavina, hagsmunir 2.500 starfsmanna og hagsmunir lánveitenda eru sameiginlegir og best tryggðir með þeirri lausn, sem nú er unnið að.

Gengi krónunnar að styrkjast

Gengi krónunnar hafði styrkst um 1,2% skömmu eftir hádegið í dag og fór gengisvísitalan niður í 236 stig.

WTM: Aukin bjartsýni og meiri áhugi á ferðum til Íslands

Viðmælendur fulltrúa Ferðamálastofu voru sammála um að það gætti heldur meiri bjartsýni um næsta ár samanborið við raunniðurstöðu þessa árs á hinni árlegu ferðasýningu World Travel Market (WTM)í London sem lauk í gær. Hún er ein stærsta ferðasýning í heimi.

Vilja kaupa Haga

Rúmlega eitthundrað og fimmtíu manns hafa skráð sig fyrir hlut í tilboði sem hópur fjárfesta hyggst gera í Haga. Hópurinn vill að fyrirtækið verði að almenningshlutafélagi og standi vörð um sanngjarna samkeppni í smávöruverslun.

Lífleg fasteignasala í Kópavogi miðað við markaðinn

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 6. nóvember til og með 12. nóvember 2009 var 51. Athygli vekur að af þessum fjölda voru 20 samningar í Kópavogi og hafa 10 fasteignir verið seldar í Kópavogi að meðaltali á viku síðustu þrjá mánuði.

Afli íslenskra skipa minnkaði um 3,2% í október

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 3,2% minni en í október 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 5,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.

Atlantic Airways tapar 110 milljónum á 3. ársfjórðung

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways tapaði 4,4 milljónum danskra kr. eða 110 milljónum kr., fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi. Hinsvegar er hagnaður upp á 7,8 milljónir danskra kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.

Hagsjá: Spáir því að ársverðbólgan lækki í 8,4%

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga milli október og nóvember mælist 0,5%. Gangi spáin eftir, lækkar 12 mánaða verðbólga úr 9,7% niður í 8,4% en í nóvember í fyrra hækkaði VNV um 1,7% milli mánaða.

Össur með viðskiptavakt hjá Nýja Kaupþingi og Saga Capital

Össur hf. hefur gert nýjan samning við Nýja Kaupþing Banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins. Í tilkynningu segir að um sé að ræða endurnýjun á fyrri samningi frá febrúar 2005. Þessi samningur er einungis vegna skráningar félagsins á Íslandi. Össur hefur einnig samið við Saga Capital um viðskiptavakt.

6,56 milljarða velta á skuldabréfamarkaði

Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 6,56 milljörðum króna. Þar af námu viðskipti með óverðtryggð 6,15 milljörðum króna og íbúðabréf 0,41 milljörðum.

Vilhjálmur: Við munum aldrei una skattahækkunum

„Samtök atvinnulífsins munu aldrei una skattahækkunum sem eru til þess fallnar að dýpka og lengja kreppuna og geta heldur ekki unað því að gengið sé þvert á það sem búið er að semja um. Verði það niðurstaða ríkisstjórnarinnar skilja leiðir,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í pistli sem birtist á heimasíðu samtakanna.

Grímur Sæmundsen varaformaður SA

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins (SA) nýverið var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., kjörinn varaformaður samtakanna.

Telja að skattahækkanir muni fækka ferðamönnum

Í fréttum að undanförnu hefur verið greint frá alls kyns hugmyndum og tillögum um miklar skattahækkanir á m.a. flestallar greinar ferðaþjónustu og ef hugmyndir þessar ná fram þá stefnir augljóslega í fækkun erlendra ferðamanna hingað til lands.

Áform sjávarútvegsráðherra eru nánast óframkvæmanleg

„Hafnarvog Vestmannaeyjahafnar hefur hvorki tæki né þau tól sem til þarf við að brúttóvigta öll ílát sem berast að landi í viku hverri ... Við núverandi aðstæður telja hafnaryfirvöld það nánast óframkvæmanlegt miðað við það magn af afla sem berst að landi á þeim skamma tíma sem um ræðir," segir í bréfi sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur sent til sjávarútvegsráðherra.

Marel að selja Stork Food and Dairy Systems

Marel hefur undirritað viljayfirlýsingu við hollenska fjárfestingasjóðinn Nimbus varðandi sölu á Stork Food and Dairy Systems, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Stefnt er að því að ljúka viðskiptunum fyrir árslok.

Mikill áhugi í útboði ríkisvíxla í morgun

Alls bárust 68 gild tilboð í flokkinn RIKV 10 0315 að fjárhæð 64.7 milljarða kr. að nafnverði í útboði í morgun. Tilboðum var tekið fyrir 20 milljarða kr. að nafnverði á verðinu 97,425 (flatir vextir 8,00%).

Leigumarkaðurinn heldur áfram að vaxa

Alls voru þinglýstir 861 leigusamningar nú í októbermánuði sem eru 20% fleiri samningar en gerðir voru á sama mánuði í fyrra. Þessi aukning er í takt við þá þróun sem hefur verið á árinu og lýsir hún aukinni sókn í leiguhúsnæði.

Íslenskir fjárfestar í samstarf við rafbílaframleiðendann REVA

Íslenska fjárfestingarfélagið Northern Lights Energy og rafbílaframleiðandinn REVA undirrita samkomulag um sölu og markaðssetningu REVA á Íslandi. Fyrstu eitthundrað rafbílarnir verða afhendir á næsta ári og hagkvæmisathugun er í gangi um uppsetningu samsetningaverksmiðju rafbíla hér á landi.

Moody´s segir óvissu um getu stjórnvalda til að styðja OR

Lánsmatsfyrirtækið Moody´s segir í áliti sínu um nýtt lánshæfismat sitt á Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að lækkunin á matinu niður í rusl-flokk sé meðal annars vegna óvissu um hvort stjórnvöld geti staðið við bakið á fyrirtækinu.

Hollenska ING bankasamstæðan velur íslenskt hugvit

Hollenska ING banka- og tryggingasamstæðan hefur valið íslenska hugbúnaðarfélagið Applicon til þess að vinna að innleiðingu á SAP bankahugbúnaði fyrir útlán bankans. ING er í hópi 25 stærstu banka Evrópu þegar miðað er við markaðsvirði.

Orkuveitan í ruslflokk

Lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið lækkuð hjá matsfyrirtækinu Moody's og er nú í svokölluðum ruslflokki. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Seðlabankastjóri: Bankakerfinu ekki hleypt í áhættusama starfsemi

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að núverandi bankakerfi landsins verði ekki leyft að fara í mjög áhættusama starfsemi út fyrir landamærin eins og gömlu bankarnir gerðu. „Við höfum enga burði til að verja slíkt og við eigum ekki að verja okkar fjármunum í það," segir Már.

Innistæðubréf Seðlabankans tvöfölduðust í útboði

Seðlabankinn tók tilboðum í innstæðubréf fyrir 30 milljarða kr. í gær sem er það hámark sem peningastefnunefnd ákvað á síðasta vaxtaákvörðunarfundi. Innstæðubréfaflokkurinn nærri tvöfaldaðist í útboðinu og er nú orðinn 64,8 milljarða kr. þar sem endurkaupadagur var á bréfum fyrir 10,6 milljarða kr. sem voru seld 14. október s.l.

Ræða tímabundinn skatt á lífeyrissjóði

Tímabundinn skattur á fjármagnstekjur lífeyrissjóða hefur verið ræddur í efnahags- og skattanefnd Alþingis. Lífeyrissjóðirnir hafa ekki verið skattlagðir með þeim hætti áður.

Sjá næstu 50 fréttir