Fleiri fréttir

Neytendastofa slær á fingur Aventuraholidays vegna „besta verðsins til Tenerife“
Neytendastofa hefur slegið á fingur Aventuraholidays ehf. fyrir að hafa birt auglýsingar þar sem því var haldið fram að ferðaskrifstofan biði upp á „Besta verðið til Tenerife í vetur“ og „Aventura tryggir bestu hótelin á Tenerife á miklu betra verði“.

Leggur blessun sína yfir auglýsingar Nettós um „fría heimsendingu“
Neytendastofa hefur lagt blessun sína yfir auglýsingar matvörukeðjunnar Nettós þar sem segir frá „fríum heimsendingum“ ef verslað væri fyrir meira en fimm þúsund krónur.

Innkalla leikfangið „Mushroom teether“
Amazon hefur innkallað leikfangið „Mushroom Teether toys for Newborn Babies, Toddlers, infants, Relieve Sore Gum – BPA-Free Chew Toy “sem selt hefur verið á heimasíðu fyrirtækisins.

Pylsan kostar nú 600 krónur hjá Bæjarins beztu
Pylsuvagninn Bæjarins beztu hefur hækkað verðið á pylsum og nú kostar ein pylsa með öllu 600 krónur. Verðið hækkaði fyrir tæpri viku síðan og hefur á einu og hálfu ári hækkað um 130 krónur.

Neitar að láta Costco hafa sig enn og áfram að fífli
Þórður Már Jónsson lögmaður segir að undanfarið hafi runnið á sig tvær grímur hvað varðar að versla í Costco. Hann segir að nú sé svo komið að honum líði sem verið sé að hafa sig að fífli.

Oft um þúsund króna munur á hæsta og lægsta kílóaverðinu af fiski
Oft var töluverður munur á kílóverði af fiskmeti í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var miðvikudaginn 4. maí. Algengast var að 20 til 40 prósenta munur væri á kílóverði af fiski í könnuninni.

Munu krefjast þess að vaxtahækkanir verði bættar launafólki í kjaraviðræðum
Formaður stéttarfélagsins VR segir glórulaust að Seðlabanki Íslands hafi ákveðið að bregðast við hækkandi húsnæðisverði og innfluttri verðbólgu með hækkun stýrivaxta. Hann segir verkalýðshreyfinguna munu gera kröfu um að hækkun stýrivaxta verði bætt upp í gerð komandi kjarasamninga.

Banna bílasölum að auglýsa tilboð á notuðum bílum án fyrra verðs
Neytendastofa hefur bannað bílasölunum Bílakaupum ehf. og Netbílum ehf. að auglýsa tilboð á notuðum bílum án þess að tilgreina fyrra verð. Þetta er gert eftir að bílasölurnar brugðust ekki við erindum stofnunarinnar og gerðu ekki úrbætur á vefsíðum sínum.

Segir sorglegt að lífeyrissjóðir standi með stórfyrirtækjum en ekki launafólki
Formaður Starfsgreinasambandsins segir skökku skjóta við að lífeyrissjóðirnir, sem eigi stærstan hlut í öllum helstu matvöruverslunum landsins, skuli ekki mótmæla hækkandi matvöruverði. Hækkandi vöruverð komi helst niður á neytendum, launafólki sem eigi sjóðina.

Segir hækkanir hjá matvöruverslunum furðulegar þegar þær skili milljarða hagnaði
Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir það skjóta skökku við að matvöruverslanir séu að hækka verð á vörum á sama tíma og tilkynnt hafi verið um margra milljarða króna hagnað hjá þessum sömu fyrirtækjum.

Innkalla súkkulaðiegg korter í páska vegna salmonellu
Ákveðið hefur verið að innkalla öll tuttugu gramma Kinder súkkulaðiegg vegna gruns um sýkingar af völdum salmonellu hjá fólki. Einungis sex dagar eru síðan sams konar egg í afmarkaðri framleiðslulotu voru innkölluð.

Um helmingur landsmanna vill léttvín og bjór í búðir
Um helmingur landsmanna vill að heimilt sé að selja léttvín og bjór í matvöruverslunum á Íslandi. Aðeins um 22 prósent vilja að sterkt áfengi verði til sölu í matvöruverslunum.

Ekki allir sáttir með að geta ekki lengur keypt ávexti eftir vigt
Ekki er lengur hægt að versla grænmeti eða ávexti í Krónunni eftir vigt og eru slíkar vörur nú einungis afgreiddar í stykkjatali. Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir að verslunarkeðjan sé með þessu að aðlagast tækniþróun og feta í fótspor verslana á Norðurlöndunum.

Íslendingar eyddu tveimur milljörðum í skipulögð ferðalög í mars
Íslendingar eyddu að minnsta kosti tveimur milljörðum króna í skipulagðar utanlandsferðir í marsmánuði. Það er sexfallt meiri upphæð en í sama mánuði í fyrra.

Kalla inn Kinder egg vegna gruns um salmonellu
Ferreri Scandinavia AB í Svíþjóð og Aðföng hafa ákveðið að taka úr sölu og innkalla Kinder Surprise í tveimur pakkningastærðum. Annars vegar 20 gramma stök egg og þriggja stykkja pakkningu með 20 gramma eggjum.

Borgarstjóri lofar einni til tveimur Vínbúðum í miðbænum
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fullyrðir að áfram verði verslun á vegum ÁTVR í miðborg Reykjavíkur. Vínbúðinni í Austurstræti verði ekki lokað nema ein til tvær aðrar minni verslanir hafi verið opnaðar í miðbænum.

Sláturfélag Suðurlands innkallar Twix og Bounty ís
Sláturfélag Suðurlands, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Twix og Bounty ís.

Mjólkurvörur hækka aftur í verði
Verðlagsnefnd búvara hefur hækkað lágmarksverð mjólkur til bænda auk heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Lágmarksverð fyrsta flokks mjólkur til bænda hækkaði um 6,60 prósent úr 104,96 krónur á lítrann í 111,89 krónur á lítrann þann 1. apríl.