Fleiri fréttir

Fermingarleikur Vísis: Orðlaus yfir vinningunum

Karólína Rós er annar sigurvegara í fermingarleik Vísis. Covid setti smá strik í reikninginn við fermingarundirbúninginn hjá Karólínu Rós en hún fermdist loks í Lindakirkju þann 26. mars. Vinningarnir komu skemmtilega á óvart.

Þitt eigið kaffihús með LatteGo frá Philips

Er það ekki alltaf þannig að því fleiri skref sem þarf að taka til að græja kaffið, því verra verður það? Og jafnvel þegar þú ert komin með sjálfvirka kaffivél þá þarf að muna að taka púðann úr eftir uppáhellinguna, losa hylkjaskúffuna, kalkhreinsa kerfið reglulega, flóa mjólk í aðskildum mjólkurflóara – og þetta allt fyrir venjulegan kaffibolla.

Stílhreinar ítalskar vörur úr umhverfisvænu efni

Uashmama er ítalskt vörumerki sem danska lífsstílsfyrirtækið Lübech Living hefur söluumboð fyrir á Norðurlöndunum en Lübech Living hannar umhverfisvænar vörur fyrir heimilið sem framleiddar eru á sjálfbæran hátt.

Færri salernisferðir og betri svefn

Bætiefnið SagaPro er unnið úr íslenskri ætihvönn. Það slakar á vöðvum blöðrunnar og kemur að miklu gagni gegn ofvirkri blöðru. Nú er hægt að gerast áskrifandi að SagaPro og fá áfyllingu inn um lúguna í hverjum mánuði. Það er bæði ódýrara, vistvænna og þægilegra.

Fékk nóg af sálarlausri fjöldaframleiðslu og sneri sér að sjálfbærri hönnun

Danska lífsstílsfyrirtækið Lübech Living hannar umhverfisvænar vörur fyrir heimilið sem framleiddar eru á sjálfbæran hátt, meðal annars af handverksfólki í Taívan, Víetnam og Sri lanka. Hjónin Søren og Susanne Lübech stofnuðu fyrirtækið árið 2009 en Søren hafði þá unnið í innanhússhönnunarbransanum í mörg ár og var orðinn hundleiður á að versla með „sálarlaus” vörumerki.

Nýtt hjá Boozt - Occasion Shop

Boozt kom inn á íslenskan markað með hvelli síðasta sumar og heillaði íslenska viðskiptavini upp úr skónum með stuttum afhendingartíma, frábæru vöruúrvali og hagstæðu verði. 

Skemmtileg og öðruvísi páskaegg ásamt páskaratleik

Páskarnir eru hjá mörgum tími samveru og skemmtilegra stunda með vinum og fjölskyldu. Páskaegg spila stóran þátt hjá mörgum en nýsjálenska fyrirtækið Zuru er með allskonar sniðug leikfangaegg sem gleðja litla páskaunga. Páskaegg geta nefnilega verið allskonar og súkkulaði þarf ekki að vera allsráðandi.

Lagerhreinsun hjá heitirpottar.is

„Það er dúndurlagersala í gangi hjá okkur á heitum pottum. Við erum að rýma fyrir nýjum vörum og viljum hefja vorið með hvelli! Ekki veitir af, það eru allir orðnir partýþyrstir og vilja græja pallinn og garðinn fyrir sumarið,“ segir Kristján Berg, eigandi Heitir pottar.is og lofar því að hægt sé að gera frábær kaup á lagersölunni.

Tímalaus fegurð dönsku kertanna frá Ester & Erik

„Við kveikjum á kertum á gleði- og sorgarstundum og þegar við viljum skapa ákveðna stemmningu. Kertaljós tengist tilfinningum og því er kertaframleiðsla svo persónuleg. Það er eitthvað einstakt við þennan bransa,“ segir Søren Møller, framkvæmdastjóri dönsku kertaverskmiðjunnar Ester & Erik.

Deila með tíu í sannleikann, annars trúir þessu enginn

„Viðtökurnar eru frábærar. Fólk þyrstir í vor og náttúru, gleði og vitleysu enda veitir ekki af núna,“ segir Örn Marínó, annar handritshöfunda og leikstjóra kvikmyndarinnar Allra síðasta veiðiferðin sem frumsýnd var um helgina.

Meðferðir Even Labs bættu lífsgæðin

Even Labs í Faxafeni 14. býður upp á fjölbreyttar meðferðir sem bæta lífsgæði og líðan. Rauðljósameðferð, Sweat Spa, kuldameðferð, hljóðbylgjunudd og þrýstinudd. Meðferðirnar vinna á bólgum og verkjum og hafa meðal annars gagnast þeim sem glíma við gigt.

Þúsundir skráðu sig í Leitina að stjörnunni

Yfir þrjú þúsund manns hafa skráð sig í „Leitina að stjörnunni“. Talsverð leynd hefur hvílt yfir verkefninu en skráningarfrestur rann út á miðnætti. Þeir Valþór Örn Sverrisson og Alexander Aron Valtýsson eru mennirnir á bak við leitina og segja að undirtektirnar hafa farið fram úr björtustu vonum, áhuginn sé greinilega mikill á að tefla fram stjörnum á öllum aldri og fyrirspurnum hafi rignt inn á netfang leitarinnar. Þeir hafa hins vegar ekkert gefið upp um verkefnið en svipta nú hulunni af því hvað Leitin að stjörnunni snýst raunverulega um.

Fermingargjöfin sem veitir yl og hlýju

„Góð dúnsæng og koddi eru falleg fermingargjöf sem lifir áfram með fermingarbarninu. Þegar barnið leggst á koddann vekur það hlýjar minningar um þann sem gaf gjöfina. Mjög oft eru það amma og afi sem gefa dúnsæng og kodda í fermingargjöf. Sængurnar okkar eru allar vistvænar og RDS vottaðar andanússængur,“ segir Ágústa Gísladóttir, eigandi Lín Design en undirbúningur fermingartímabilsins er hafinn í versluninni.

Taktu þátt í fermingarleik Vísis

Við ætlum að gleðja fermingarbörn á þessum stóru tímamótum í lífi þeirra með skemmtilegum gjafaleik. Hægt er að skrá fermingarbörn til leiks hér fyrir neðan. Þann 23. mars verður dregið úr pottinum og tvö ljónheppin fermingarbörn hljóta glæsilegar gjafir frá samstarfsaðilum okkar.

Náttúruleg leið að betri húð, heilsu og vellíðan

Cbd vörur njóta mikilla vinsælda en þær hafa reynst vel við ýmiskonar kvillum. Þau Arnþór Haukdal og Karlotta Bridde kynntust því af eigin raun og stofnuðu í kjölfarið CBD Reykjavík. Vörurnar frá CBD Reykjavík eru heilsuvara vikunnar á Vísi.

Flottar fermingargjafir í unglingaherbergið

Rúmfatalagerinn býður úrval fallegra og nytsamra fermingargjafa og eru rúm og eins húsgögn í herbergið, sængur og fallegir skrautmunir ofarlega á vinsældarlistanum. Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Selfossi segir lítið mál að finna réttu gjöfina í Rúmfatalagernum.

Þeir bestu hámarka árangurinn með UNBROKEN - hraðri endurheimt

Landsliðsmennirnir í handknattleik, Ómar Ingi Magnússon, Elliði Snær Viðarsson og Bjarki Már Elísson eru allir lykilmenn í sínum liðum og hafa náð framúrskarandi árangri í íþróttinni. Þeir nota Unbroken Real Time Recovery til að hámarka árangur.

Þjóðleikhúsið frumsýnir stórsýninguna Framúrskarandi vinkona á Stóra sviðinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir Framúrskarandi vinkonu á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 5. mars. Sýningin er byggð á Napólífjórleik Elenu Ferrante en bækurnar hafa notið gríðarlegra vinsælda og verið gefnar út um allan heim. Leikstjóri er Yaël Farber frá Suður-Afríku en hún er ein af eftirsóttari leikstjórum heimsins í dag. Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir fara með hlutverk þeirra Lenù og Lilu, vinkvennanna tveggja sem vaxa úr grasi í harkalegu umhverfi í Napólí á 6. áratugnum.

Loksins mátti kaupa bjór

Bjórdagurinn er í dag og Íslendingar fagna því að hafa getað keypt bjór síðustu þrjátíu og þrjú árin. Áður var það nefnilega bannað! Hér eru tíu staðreyndir um bjórsögu Íslendinga:

Heilsusamlegir smoothies fyrir okkur og jörðina

Heilsuvara vikunnar á Vísi er innocent Smoothies. innocent smoothies eru stútfullir af vítamínum og trefjum. Þá hefur innocent aldrei sett viðbættan sykur út í drykki og mun aldrei gera. Drykkirnir fást í átta mismunandi bragðtegundum og hægt er að velja sér sinn smoothie eftir því hvað hentar hverjum degi, til dæmis með góðgerlum, blátt spirulina eða engifer.

Sjá næstu 50 fréttir