Fleiri fréttir Nýr þáttur í bígerð Fólk með Sirrý hefur undanfarin fimm ár verið einhver allra vinsælasti spjallþáttur í íslensku sjónvarpi. Núna finnst þáttastjórnandanum, Sigríði Arnardóttur, vera orðið tímabært að breyta til en síðasti Fólk-þátturinn fer í loftið 21. desember. 9.12.2005 07:00 Níu báta fækkun á tveimur árum Sú var tíðin að útgerð og fiskverkun var blómleg á Stöðvarfirði. Nú er aðeins ein lítil fiskverkun eftir; Skútuklöpp í eigu þeirra Guðna Brynjars Ársælssonar, Páls Óskarssonar, Grétars Arnþórssonar og útgerðarinnar Lukku ehf. Skútuklöpp er fimm ára gamalt fyrirtæki, saltaði lengst af fisk og stundar tilraunaeldi á þorski. Nú er saltfiskverkunin að mestu fyrir bí, vegna gengismála. 9.12.2005 06:00 Úlpan hafin til flugs Hafnfirska rokksveitin Úlpa heldur útgáfutónleika á fimmtudag vegna annarrar plötu sinnar, Attempted Flight by Winged Men, sem kom nýverið út á vegum 12 Tóna. Fyrsta plata Úlpu, Mea Culpa, kom út fyrir fjórum árum og því hafa margir beðið nýju plötunnar með mikilli eftirvæntingu. 8.12.2005 18:15 Clint heiðraður í bak og fyrir Clint Eastwood ætti ekki að fara varhluta af heiðursverðlaunum á næstunni. Samtök kvikmyndaleikstjóra (DGA) ætla að afhenda honum viðurkenningu fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar og samtök framleiðanda (PGA) ætla að heiðra hann með sams konar hætti. Athafnirnar fara fram með sex daga millibili í byrjun næsta árs. 8.12.2005 17:30 Goðsögnin lifir áfram Aldarfjórðungur er í dag liðinn frá því Bítillinn fyrrverandi John Lennon var myrtur fyrir utan Dakóta-bygginguna í New York. Lennon var aðeins fertugur þegar ódæðið var framið. Sökudólgurinn var Mark Chapman, sem fyrr um daginn hafði fengið eiginhandaráritun hjá goðinu. 8.12.2005 16:45 Leiðarvísir að Stuart Price 8.12.2005 16:15 Egeland tekur sér frí Velgegni skáldsögunnar Við enda hringsins eftir norska rithöfundinn Tom Egeland hefur orðið til þess að hann getur tekið sér árs frí frá starfi sínu sem fréttastjóri sjónvarpsstöðvarinnar TV2 í Noregi og mun því einbeita sér að ritstörfum á næstunni. Við enda hringsins kom út í íslenskri þýðingu fyrir skömmu. Hún þykir minna um margt á Da Vinci lykilinn eftir Dan Brown en Egeland skrifaði hana tveimur árum áður en Da Vinci lykillinn kom út. 8.12.2005 16:00 Gibson hefur nóg á sinni könnu Mel Gibson hefur í fyrsta skipti tjáð sig um sitt næsta verkefni sem ber heitið Apocalypto. Mikil leynd hefur hvílt yfir henni en eftir velgengni The Passion of Christ getur Mel Gibson gert hvað sem er... og þá þýðir það hvað sem er. Það hefur til að mynda enginn kippt sér upp við það að Apocalypto á að gerast fyrir sex hundruð árum hjá Mayum og mun víst varpa ljósi á hið undarlega hrun menningarþjóðarinnar áður en Spánverjar námu land í Mið-Ameríku. 8.12.2005 15:15 Félagsmiðstöðvar fá gefins eintök Rokksveitin Pan hefur í tilefni jólanna ákveðið að gefa plötu sína Virgins, sem kom út fyrr á árinu, öllum félagsmiðstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru um fjörutíu talsins. 8.12.2005 14:30 Breytt Sienna Leikkonan Sienna Miller hefur tekið til í fataskápnum sínum því hún segist skammast sín fyrir fötin sem hún gekk eitt sinn í. Hún segir það einnig koma sér mjög á óvart hversu margar konur herma eftir fatastíl hennar þar sem hún telur sig hafa litið hræðilega út. 8.12.2005 14:30 Þriðja táknið til Bandaríkjanna Bókaforlagið Veröld hefur gengið frá samningum um útgáfu á Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur og næstu bók hennar, sem enn er óskrifuð, í Bandaríkjunum og Kanada. David Highfill, útgáfustjóri hjá HarperCollins, tryggði sér útgáfuréttinn eftir uppboð milli bandarískra bókaforlaga sem stóð í nær tvær vikur. 8.12.2005 14:15 Vaughn slapp með skrekkinn 8.12.2005 13:30 Rómantík og ribbaldar Það styttist enn frekar í stórmyndina King Kong sem frumsýnd verður miðvikudaginn 14. desember. Fram að því ætlar Reese Witherspoon að stytta okkur stundirnar með því að ganga aftur og þeir John Cusack og Billy Bob Thornton komast í hann krappan þegar þeir reyna svíkja fé út úr glæpaforingja í Wichita. 8.12.2005 12:45 Ósátt við Alþingi Sjálfstæðir leikhópar eru afar ósáttir við afgreiðslu alþingis á úthlutun aukafjárveitingar upp á tíu milljónir sem fer til Borgarleikhússins í staðinn fyrir að renna til starfsemi sjálfstæðu leikhópanna. 8.12.2005 12:15 Spilar jólalög í kántrísveiflu Kántrísveit Baggalúts efnir til útgáfutónleika á Nasa í kvöld vegna plötunnar Pabbi þarf að vinna. Á tónleikunum mun sveitin spila kraumandi sveitatónlist með þjóðlegu aðventuívafi. Tónleikarnir hefjast klukkan rúmlega 22.00. Sérstakur leynigestur verður Rúnar Júlíusson. 8.12.2005 10:00 Tónleikar til heiðurs Rabba Vinir, vandamenn og velunnarar Rafns Jónssonar heitins, eða Rabba, halda tónleika á Grand Rokki í kvöld til að heiðra minningu hans. Rabbi, sem lést síðasta sumar, hefði orðið 51 árs í dag. 8.12.2005 09:15 Treflunum steypt af stóli í nýjum þætti á Sirkus Sjónvarpsstöðin Sirkus auglýsti á dögunum eftir hugmyndum að íslenskum sjónvarpsþáttum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en stöðinni bárust 140 hugmyndir frá fólki á öllum aldri í allskonar formi. Einn þáttur á þó eflaust eftir að vekja mikla athygli þegar hann birtist á skjánum en í upphafi næsta árs mun Egill Gilzenegger ásamt félögum sínum af heimasíðunni kallarnir.is, þeim Hjöbba Ká og Partý Hanza, vera með þátt sem á sér engan líkan að sögn kraftajötunsins. 8.12.2005 08:00 Dagskrárgerðarmenn breyttu Einari Áskeli í melludólg 7.12.2005 18:00 Geimsteinn lendir í Borgarleikahúsinu 7.12.2005 18:00 Ómetanlegur stuðningur 7.12.2005 17:00 Auglýsa allt of mikið Bandaríska söngkonan Whitney Houston hefur gagnrýnt ungar söngkonur á borð við Christinu Aguilera, Beyoncé Knowles og Britney Spears fyrir að vera of ginkeyptar fyrir því að leika í auglýsingum. 7.12.2005 16:30 Tónlistin endurheimt fyrir útgáfutónleika 7.12.2005 15:30 Tregablandin fegurð Helga Um næstu helgi lýkur sýningu Helga Þorgils Friðjónssonar í Listasafninu á Akureyri. Sýningunni, sem ber heitið Tregablandin fegurð, er ætlað að veita yfirlit yfir feril Helga á undanförnum árum og hefur að geyma mörg af hans áhrifamestu málverkum, auk vatnslitamynda og skúlptúra. Helgi Þorgils hefur skipað sér í hóp okkar merkustu listmálara með afar sérstöku myndmáli og tækni sem orðið hefur æ fágaðri og hnitmiðaðri eftir því sem árin hafa liðið. 7.12.2005 14:45 Nornatími á Norðurlöndum JPV Útgáfa hefur gengið frá sölu á útgáfurétti sakamálasögunnar Tíma nornarinnar, eftir Árna Þórarinsson, til Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi bókarinnar, segir útgefendur víða um heim hafa haft bókina til skoðunar undanfarið en þegar það fréttist að hún hefði hlotið tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna brugðust norrænir útgefendur skjótt við. 7.12.2005 14:15 Veiðimaðurinn Uma Bandaríska leikkonan Uma Thurman er í veiðihug. Hún hefur þó ekki í hyggju að fá sér skotleyfi heldur hyggst Kill Bill-leikkonan ná sér í kærasta. Hún hefur verið að hitta hóteleigandann Andre Balazs en tekur skýrt fram í viðtölum að hún sé ekki bundin í báða skó. 7.12.2005 13:45 Miðasala að hefjast Miðasala á tónleika Katie Melua sem verða í Laugardalshöll 31. mars hefst á fimmtudag. Melua er ein vinsælasta söngkona heims um þessar mundir. Hún þykir einn helsti vonarneisti popp- og djasstónlistar og hefur þegar skipað sér í röð söluhæstu kvenna heims, aðeins 21 árs að aldri. 7.12.2005 13:30 Íslenskir Stónsarar á Gauknum Hinir íslensku Stónsarar koma fram á Gauki á Stöng á morgun fimmtudag. Tilefnið er útkoma nýrrar bókar um Rolling Stones í þýðingu Birgis Baldurssonar. Er sveitin skipuð einvalaliði en þýðandinn sjálfur mun lemja húðirnar. 7.12.2005 13:15 Stúfur aftur til byggða Jólasafnplötunni Stúfur sem út kom fyrir síðustu jól hefur nú verið dreift á ný. Allur ágóði af sölu plötunnar rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndar, en í fyrra söfnuðust um hundrað þúsund krónur. Hærra hlutfall af sölunni gengur til Mæðrastyrksnefndar því unnið hefur verið upp í alla kostnaðarliðina. KB Banki og Tónastöðin styrktu útgáfu plötunnar. 7.12.2005 13:00 Eminem á toppinn Ný safnplata frá rapparanum Eminem, Curtain Call - The Hits, fór beint á topp breska metsölulistans eftir aðeins tvo daga á lista. Skákaði hún þar plötu Madonnu, Confessions on a Dance Floor, sem hefur notið mikilla vinsælda upp á síðkastið. Þetta er fjórða platan í röð frá Eminem sem fer beint á topp breska listans. 7.12.2005 12:45 Vill skoða nýja víddir Ásgeir Kolbeinsson hefur sagt stöðu sinni lausri sem dagskrárstjóri FM 957 en þetta staðfesti hann í samtali við Fréttablaðið. Uppsögnin kom starfsfólki og stjórnendum stöðvarinnar nokkuð í opna skjöldu þar sem hún hefur verið að auka við vinsældir sínar jafnt og þétt á undanförnum mánuðum. 7.12.2005 12:00 Frostrósir 2005 - Örfáir miðar lausir Útlit er fyrir að uppselt verði á tvenna jólatónleika Frostrósanna sem haldnir verða í Laugardalshöll næstkomandi laugardag, 10. desember. Þegar er búið að selja tæplega 5.000 miða og eru um 500 miðar lausir. Þetta er einhver mesta ef ekki mesta aðsókn á tónleika íslenskra listamanna sem menn muna eftir. 7.12.2005 12:00 Elton John giftir sig Brúðkaup ársins í Bretlandi verður án nokkurs vafa þegar Elton John og David Furnish ganga að eiga hvorn annan þann 21. desember næstkomandi í Berkshire. Berkshire hefur áður komist í heimsfréttirnar fyrir hjónavígslu því þar gengu Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles í hjónaband. 7.12.2005 11:00 Áttu meistaraverk? Listasafn Íslands leitar að verkum eftir Snorra Arinbjarnar og Gunnlaug Blöndal. Listasafn Íslands ætlar að halda sýningar snemma á næsta ári á verkum málaranna Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugs Blöndal. Þetta verða tvær aðskildar sýningar en nú hefur staðið yfir heimildaöflun hjá safninu á verkum þessara málara. 7.12.2005 10:15 Það besta við jólin "Það besta við jólin er að éta," segir Þórunn Guðmundsdóttir í samnefndu lagi, sem komið er út á geisladiski með fimmtán nýjum jólalögum sem hún hefur samið á síðustu árum. Þórunn er söngkennari og hefur auk þess starfað mikið með áhugaleikfélaginu Hugleik, meðal annars samdi hún söngleikinn Kolrössu sem sýndur var við miklar vinsældir fyrir nokkrum árum. 7.12.2005 10:00 "Gef mér!" syngur Andrea Andrea Gylfadóttir hefur verið ráðin í hlutverk plöntunnar í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Litlu Hryllingsbúðinni sem frumsýndur verður í febrúar. "Þetta leggst vel í mig og ég geri þetta á minn hátt," segir Andrea. 7.12.2005 09:00 Allt í rugli hjá Britney Þeir eru sennilega fáir almannatengslafulltrúarnir núna sem ráðleggja ungu frægu pari að taka upp raunveruleikaþátt um hveitibrauðsdagana sína. Nick Lachey og Jessica Simpson eru skilin og bendir allt til þess að Britney Spears verði brátt einstæð móðir. 7.12.2005 08:30 Biblía Gilzenegger frestast fram í janúar Fyrsta bók Gilzenegger, Biblía fallega fólksins, mun að öllum líkindum frestast fram í janúar en hún átti upphaflega að koma út fyrir jólin hjá bókaútgáfunni Eddu. "Ég er búinn að skrifa bókina. En það var vitað allan tímann þegar við fórum í þetta að tíminn væri tæpur. Ég náði samt að kýla á þetta og klára bókina á þremur vikum," segir Gilzenegger, sem er nokkuð sama þótt bókin komi ekki út fyrir jólin. 6.12.2005 22:00 Frosnu tærnar tilnefndar Skáldsagan Frosnu tærnar eftir Sigrúnu Eldjárn hefur verið tilnefnd af hálfu Íslands til Barna- og unglingabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins árið 2006. 6.12.2005 19:30 Hljóðsprengja á Grand Rokk Geimkúrekinn og goðsögnin bandaríska Bob Log III mætti á Grand Rokk á laugardagskvöld og spilaði fyrir stútfullu húsi. Pönksveitin Rass hitaði upp áhorfendur með góðum skammti af stjórnarandstöðu og svo mætti Bob á svið í svörtum þröngum galla með flugmannahjálm sem huldi andlit hans. 6.12.2005 17:45 Jólasprell stórsveitar Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árlegu jólatónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld undir yfirskriftinni Majones jól. Stjórnandi verður Jagúarkappinn Samúel S. Samúelsson og einsöngvari hinn dularfulli, kynþokkafulli og ástsæli raulari Bogomil Font. 6.12.2005 15:00 Selma og Chanel Leikkonan Selma Blair hefur krækt sér í samning við Chanel og verður nú andlit Chanel Vision þar sem hún kynnir hátísku hins gríðarstóra tískuhúss. Selma er einmitt sjálf mikill aðdáandi Chanel og klæðist oftar en ekki fötum þaðan, auk þess sem hún þekkir aðalhönnuðinn Karl Lagerfeld persónulega. 6.12.2005 14:30 Pitt vill ættleiða börn Jolie Hjartaknúsarinn Brad Pitt ætlar að ættleiða tvö börn kærustu sinnar Angelina Jolie, þau Maddox sem er fjögurra ára og Zahara Marley sem er níu mánaða. Gangi ættleiðingin eftir fá börnin eftirnafnið Jolie-Pitt. Pitt og Jolie kynntust við tökur á myndinni Mr. and Mrs. Smith og hófu ástarsamband. Pitt skildi fyrr á árinu við Jennifer Aniston eftir fjögurra ára hjónaband. 6.12.2005 13:45 Finnar á Íslandi fagna sjálfstæði 6.12.2005 12:30 Vetrarborgin seldist best í nóvember Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason seldist best af öllum bókum í nóvember samkvæmt lista Pennans-Eymundssonar yfir metsölubækur. Í tilkynningu frá Eddu-útgáfu segir að allt frá því að bókin kom út 1. nóvember hafi hún verið í stöðugri sölu og í þeim efnum ekkert gefið eftir Kleifarvatni frá því í fyrra, en hún sló þegar upp var staðið öll met og seldist í yfir 20.000 eintökum. 6.12.2005 11:33 Uppselt á útgáfutónleika Uppselt er á útgáfutónleika systkinanna KK og Ellenar í Fríkirkjunni í Reykjavík næstkomandi fimmtudag. Þau gáfu nýlega út plötuna Jólin eru að koma sem hefur að geyma falleg jólalög í berstrípuðum kassagítarbúningi. 6.12.2005 10:00 Sjá næstu 50 fréttir
Nýr þáttur í bígerð Fólk með Sirrý hefur undanfarin fimm ár verið einhver allra vinsælasti spjallþáttur í íslensku sjónvarpi. Núna finnst þáttastjórnandanum, Sigríði Arnardóttur, vera orðið tímabært að breyta til en síðasti Fólk-þátturinn fer í loftið 21. desember. 9.12.2005 07:00
Níu báta fækkun á tveimur árum Sú var tíðin að útgerð og fiskverkun var blómleg á Stöðvarfirði. Nú er aðeins ein lítil fiskverkun eftir; Skútuklöpp í eigu þeirra Guðna Brynjars Ársælssonar, Páls Óskarssonar, Grétars Arnþórssonar og útgerðarinnar Lukku ehf. Skútuklöpp er fimm ára gamalt fyrirtæki, saltaði lengst af fisk og stundar tilraunaeldi á þorski. Nú er saltfiskverkunin að mestu fyrir bí, vegna gengismála. 9.12.2005 06:00
Úlpan hafin til flugs Hafnfirska rokksveitin Úlpa heldur útgáfutónleika á fimmtudag vegna annarrar plötu sinnar, Attempted Flight by Winged Men, sem kom nýverið út á vegum 12 Tóna. Fyrsta plata Úlpu, Mea Culpa, kom út fyrir fjórum árum og því hafa margir beðið nýju plötunnar með mikilli eftirvæntingu. 8.12.2005 18:15
Clint heiðraður í bak og fyrir Clint Eastwood ætti ekki að fara varhluta af heiðursverðlaunum á næstunni. Samtök kvikmyndaleikstjóra (DGA) ætla að afhenda honum viðurkenningu fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar og samtök framleiðanda (PGA) ætla að heiðra hann með sams konar hætti. Athafnirnar fara fram með sex daga millibili í byrjun næsta árs. 8.12.2005 17:30
Goðsögnin lifir áfram Aldarfjórðungur er í dag liðinn frá því Bítillinn fyrrverandi John Lennon var myrtur fyrir utan Dakóta-bygginguna í New York. Lennon var aðeins fertugur þegar ódæðið var framið. Sökudólgurinn var Mark Chapman, sem fyrr um daginn hafði fengið eiginhandaráritun hjá goðinu. 8.12.2005 16:45
Egeland tekur sér frí Velgegni skáldsögunnar Við enda hringsins eftir norska rithöfundinn Tom Egeland hefur orðið til þess að hann getur tekið sér árs frí frá starfi sínu sem fréttastjóri sjónvarpsstöðvarinnar TV2 í Noregi og mun því einbeita sér að ritstörfum á næstunni. Við enda hringsins kom út í íslenskri þýðingu fyrir skömmu. Hún þykir minna um margt á Da Vinci lykilinn eftir Dan Brown en Egeland skrifaði hana tveimur árum áður en Da Vinci lykillinn kom út. 8.12.2005 16:00
Gibson hefur nóg á sinni könnu Mel Gibson hefur í fyrsta skipti tjáð sig um sitt næsta verkefni sem ber heitið Apocalypto. Mikil leynd hefur hvílt yfir henni en eftir velgengni The Passion of Christ getur Mel Gibson gert hvað sem er... og þá þýðir það hvað sem er. Það hefur til að mynda enginn kippt sér upp við það að Apocalypto á að gerast fyrir sex hundruð árum hjá Mayum og mun víst varpa ljósi á hið undarlega hrun menningarþjóðarinnar áður en Spánverjar námu land í Mið-Ameríku. 8.12.2005 15:15
Félagsmiðstöðvar fá gefins eintök Rokksveitin Pan hefur í tilefni jólanna ákveðið að gefa plötu sína Virgins, sem kom út fyrr á árinu, öllum félagsmiðstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru um fjörutíu talsins. 8.12.2005 14:30
Breytt Sienna Leikkonan Sienna Miller hefur tekið til í fataskápnum sínum því hún segist skammast sín fyrir fötin sem hún gekk eitt sinn í. Hún segir það einnig koma sér mjög á óvart hversu margar konur herma eftir fatastíl hennar þar sem hún telur sig hafa litið hræðilega út. 8.12.2005 14:30
Þriðja táknið til Bandaríkjanna Bókaforlagið Veröld hefur gengið frá samningum um útgáfu á Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur og næstu bók hennar, sem enn er óskrifuð, í Bandaríkjunum og Kanada. David Highfill, útgáfustjóri hjá HarperCollins, tryggði sér útgáfuréttinn eftir uppboð milli bandarískra bókaforlaga sem stóð í nær tvær vikur. 8.12.2005 14:15
Rómantík og ribbaldar Það styttist enn frekar í stórmyndina King Kong sem frumsýnd verður miðvikudaginn 14. desember. Fram að því ætlar Reese Witherspoon að stytta okkur stundirnar með því að ganga aftur og þeir John Cusack og Billy Bob Thornton komast í hann krappan þegar þeir reyna svíkja fé út úr glæpaforingja í Wichita. 8.12.2005 12:45
Ósátt við Alþingi Sjálfstæðir leikhópar eru afar ósáttir við afgreiðslu alþingis á úthlutun aukafjárveitingar upp á tíu milljónir sem fer til Borgarleikhússins í staðinn fyrir að renna til starfsemi sjálfstæðu leikhópanna. 8.12.2005 12:15
Spilar jólalög í kántrísveiflu Kántrísveit Baggalúts efnir til útgáfutónleika á Nasa í kvöld vegna plötunnar Pabbi þarf að vinna. Á tónleikunum mun sveitin spila kraumandi sveitatónlist með þjóðlegu aðventuívafi. Tónleikarnir hefjast klukkan rúmlega 22.00. Sérstakur leynigestur verður Rúnar Júlíusson. 8.12.2005 10:00
Tónleikar til heiðurs Rabba Vinir, vandamenn og velunnarar Rafns Jónssonar heitins, eða Rabba, halda tónleika á Grand Rokki í kvöld til að heiðra minningu hans. Rabbi, sem lést síðasta sumar, hefði orðið 51 árs í dag. 8.12.2005 09:15
Treflunum steypt af stóli í nýjum þætti á Sirkus Sjónvarpsstöðin Sirkus auglýsti á dögunum eftir hugmyndum að íslenskum sjónvarpsþáttum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en stöðinni bárust 140 hugmyndir frá fólki á öllum aldri í allskonar formi. Einn þáttur á þó eflaust eftir að vekja mikla athygli þegar hann birtist á skjánum en í upphafi næsta árs mun Egill Gilzenegger ásamt félögum sínum af heimasíðunni kallarnir.is, þeim Hjöbba Ká og Partý Hanza, vera með þátt sem á sér engan líkan að sögn kraftajötunsins. 8.12.2005 08:00
Auglýsa allt of mikið Bandaríska söngkonan Whitney Houston hefur gagnrýnt ungar söngkonur á borð við Christinu Aguilera, Beyoncé Knowles og Britney Spears fyrir að vera of ginkeyptar fyrir því að leika í auglýsingum. 7.12.2005 16:30
Tregablandin fegurð Helga Um næstu helgi lýkur sýningu Helga Þorgils Friðjónssonar í Listasafninu á Akureyri. Sýningunni, sem ber heitið Tregablandin fegurð, er ætlað að veita yfirlit yfir feril Helga á undanförnum árum og hefur að geyma mörg af hans áhrifamestu málverkum, auk vatnslitamynda og skúlptúra. Helgi Þorgils hefur skipað sér í hóp okkar merkustu listmálara með afar sérstöku myndmáli og tækni sem orðið hefur æ fágaðri og hnitmiðaðri eftir því sem árin hafa liðið. 7.12.2005 14:45
Nornatími á Norðurlöndum JPV Útgáfa hefur gengið frá sölu á útgáfurétti sakamálasögunnar Tíma nornarinnar, eftir Árna Þórarinsson, til Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi bókarinnar, segir útgefendur víða um heim hafa haft bókina til skoðunar undanfarið en þegar það fréttist að hún hefði hlotið tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna brugðust norrænir útgefendur skjótt við. 7.12.2005 14:15
Veiðimaðurinn Uma Bandaríska leikkonan Uma Thurman er í veiðihug. Hún hefur þó ekki í hyggju að fá sér skotleyfi heldur hyggst Kill Bill-leikkonan ná sér í kærasta. Hún hefur verið að hitta hóteleigandann Andre Balazs en tekur skýrt fram í viðtölum að hún sé ekki bundin í báða skó. 7.12.2005 13:45
Miðasala að hefjast Miðasala á tónleika Katie Melua sem verða í Laugardalshöll 31. mars hefst á fimmtudag. Melua er ein vinsælasta söngkona heims um þessar mundir. Hún þykir einn helsti vonarneisti popp- og djasstónlistar og hefur þegar skipað sér í röð söluhæstu kvenna heims, aðeins 21 árs að aldri. 7.12.2005 13:30
Íslenskir Stónsarar á Gauknum Hinir íslensku Stónsarar koma fram á Gauki á Stöng á morgun fimmtudag. Tilefnið er útkoma nýrrar bókar um Rolling Stones í þýðingu Birgis Baldurssonar. Er sveitin skipuð einvalaliði en þýðandinn sjálfur mun lemja húðirnar. 7.12.2005 13:15
Stúfur aftur til byggða Jólasafnplötunni Stúfur sem út kom fyrir síðustu jól hefur nú verið dreift á ný. Allur ágóði af sölu plötunnar rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndar, en í fyrra söfnuðust um hundrað þúsund krónur. Hærra hlutfall af sölunni gengur til Mæðrastyrksnefndar því unnið hefur verið upp í alla kostnaðarliðina. KB Banki og Tónastöðin styrktu útgáfu plötunnar. 7.12.2005 13:00
Eminem á toppinn Ný safnplata frá rapparanum Eminem, Curtain Call - The Hits, fór beint á topp breska metsölulistans eftir aðeins tvo daga á lista. Skákaði hún þar plötu Madonnu, Confessions on a Dance Floor, sem hefur notið mikilla vinsælda upp á síðkastið. Þetta er fjórða platan í röð frá Eminem sem fer beint á topp breska listans. 7.12.2005 12:45
Vill skoða nýja víddir Ásgeir Kolbeinsson hefur sagt stöðu sinni lausri sem dagskrárstjóri FM 957 en þetta staðfesti hann í samtali við Fréttablaðið. Uppsögnin kom starfsfólki og stjórnendum stöðvarinnar nokkuð í opna skjöldu þar sem hún hefur verið að auka við vinsældir sínar jafnt og þétt á undanförnum mánuðum. 7.12.2005 12:00
Frostrósir 2005 - Örfáir miðar lausir Útlit er fyrir að uppselt verði á tvenna jólatónleika Frostrósanna sem haldnir verða í Laugardalshöll næstkomandi laugardag, 10. desember. Þegar er búið að selja tæplega 5.000 miða og eru um 500 miðar lausir. Þetta er einhver mesta ef ekki mesta aðsókn á tónleika íslenskra listamanna sem menn muna eftir. 7.12.2005 12:00
Elton John giftir sig Brúðkaup ársins í Bretlandi verður án nokkurs vafa þegar Elton John og David Furnish ganga að eiga hvorn annan þann 21. desember næstkomandi í Berkshire. Berkshire hefur áður komist í heimsfréttirnar fyrir hjónavígslu því þar gengu Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles í hjónaband. 7.12.2005 11:00
Áttu meistaraverk? Listasafn Íslands leitar að verkum eftir Snorra Arinbjarnar og Gunnlaug Blöndal. Listasafn Íslands ætlar að halda sýningar snemma á næsta ári á verkum málaranna Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugs Blöndal. Þetta verða tvær aðskildar sýningar en nú hefur staðið yfir heimildaöflun hjá safninu á verkum þessara málara. 7.12.2005 10:15
Það besta við jólin "Það besta við jólin er að éta," segir Þórunn Guðmundsdóttir í samnefndu lagi, sem komið er út á geisladiski með fimmtán nýjum jólalögum sem hún hefur samið á síðustu árum. Þórunn er söngkennari og hefur auk þess starfað mikið með áhugaleikfélaginu Hugleik, meðal annars samdi hún söngleikinn Kolrössu sem sýndur var við miklar vinsældir fyrir nokkrum árum. 7.12.2005 10:00
"Gef mér!" syngur Andrea Andrea Gylfadóttir hefur verið ráðin í hlutverk plöntunnar í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Litlu Hryllingsbúðinni sem frumsýndur verður í febrúar. "Þetta leggst vel í mig og ég geri þetta á minn hátt," segir Andrea. 7.12.2005 09:00
Allt í rugli hjá Britney Þeir eru sennilega fáir almannatengslafulltrúarnir núna sem ráðleggja ungu frægu pari að taka upp raunveruleikaþátt um hveitibrauðsdagana sína. Nick Lachey og Jessica Simpson eru skilin og bendir allt til þess að Britney Spears verði brátt einstæð móðir. 7.12.2005 08:30
Biblía Gilzenegger frestast fram í janúar Fyrsta bók Gilzenegger, Biblía fallega fólksins, mun að öllum líkindum frestast fram í janúar en hún átti upphaflega að koma út fyrir jólin hjá bókaútgáfunni Eddu. "Ég er búinn að skrifa bókina. En það var vitað allan tímann þegar við fórum í þetta að tíminn væri tæpur. Ég náði samt að kýla á þetta og klára bókina á þremur vikum," segir Gilzenegger, sem er nokkuð sama þótt bókin komi ekki út fyrir jólin. 6.12.2005 22:00
Frosnu tærnar tilnefndar Skáldsagan Frosnu tærnar eftir Sigrúnu Eldjárn hefur verið tilnefnd af hálfu Íslands til Barna- og unglingabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins árið 2006. 6.12.2005 19:30
Hljóðsprengja á Grand Rokk Geimkúrekinn og goðsögnin bandaríska Bob Log III mætti á Grand Rokk á laugardagskvöld og spilaði fyrir stútfullu húsi. Pönksveitin Rass hitaði upp áhorfendur með góðum skammti af stjórnarandstöðu og svo mætti Bob á svið í svörtum þröngum galla með flugmannahjálm sem huldi andlit hans. 6.12.2005 17:45
Jólasprell stórsveitar Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árlegu jólatónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld undir yfirskriftinni Majones jól. Stjórnandi verður Jagúarkappinn Samúel S. Samúelsson og einsöngvari hinn dularfulli, kynþokkafulli og ástsæli raulari Bogomil Font. 6.12.2005 15:00
Selma og Chanel Leikkonan Selma Blair hefur krækt sér í samning við Chanel og verður nú andlit Chanel Vision þar sem hún kynnir hátísku hins gríðarstóra tískuhúss. Selma er einmitt sjálf mikill aðdáandi Chanel og klæðist oftar en ekki fötum þaðan, auk þess sem hún þekkir aðalhönnuðinn Karl Lagerfeld persónulega. 6.12.2005 14:30
Pitt vill ættleiða börn Jolie Hjartaknúsarinn Brad Pitt ætlar að ættleiða tvö börn kærustu sinnar Angelina Jolie, þau Maddox sem er fjögurra ára og Zahara Marley sem er níu mánaða. Gangi ættleiðingin eftir fá börnin eftirnafnið Jolie-Pitt. Pitt og Jolie kynntust við tökur á myndinni Mr. and Mrs. Smith og hófu ástarsamband. Pitt skildi fyrr á árinu við Jennifer Aniston eftir fjögurra ára hjónaband. 6.12.2005 13:45
Vetrarborgin seldist best í nóvember Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason seldist best af öllum bókum í nóvember samkvæmt lista Pennans-Eymundssonar yfir metsölubækur. Í tilkynningu frá Eddu-útgáfu segir að allt frá því að bókin kom út 1. nóvember hafi hún verið í stöðugri sölu og í þeim efnum ekkert gefið eftir Kleifarvatni frá því í fyrra, en hún sló þegar upp var staðið öll met og seldist í yfir 20.000 eintökum. 6.12.2005 11:33
Uppselt á útgáfutónleika Uppselt er á útgáfutónleika systkinanna KK og Ellenar í Fríkirkjunni í Reykjavík næstkomandi fimmtudag. Þau gáfu nýlega út plötuna Jólin eru að koma sem hefur að geyma falleg jólalög í berstrípuðum kassagítarbúningi. 6.12.2005 10:00