Fleiri fréttir

Fjölbreytt stemning á nýrri plötu

Hljómsveitin Í svörtum fötum hefur gefið út sína fjórðu plötu, Orð. Á plötunni eru tólf ný lög sem eru öll samin af meðlimum sveitarinnar, þar á meðal „Þessa nótt“ sem hefur fengið góðar viðtökur að undanförnu.

Portrett af Skarði

Einar Falur Ingólfsson og Helgi Þorgils Friðjónsson opna óvenjulega sýningu í Anima galleríi kl. 17 í dag. Sýningin ber heitið „Portrett af stað“ og geymir verk þeirra félaga í ljósmyndum, textum og málverkum er öll tengjast bænum Skarði á Skarðsströnd í Dalasýslu.

Fáklæddar fyrirsætur á Mýrdalsjökli

Kvikmyndafyrirtækið Labrador hefur staðið í ströngu undafarið en hér á landi hefur tökulið frá breska raunveruleikaþættinum Make Me a Supermodel.

Opið hús í Listaháskólanum

Listaháskólinn verður með opin hús um helgina en þá gefst forvitnum kostur á að kynna sér fjölbreytta starfsemi skólans. Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningarstjóri skólans, útskýrir að svona opinn dagur hafi verið haldinn um árabil en þá jafnan á virkum degi.

Frumflytur nýjan texta við Sjúddiraírei á sextugsafmælinu

„Nei, nei, ég kvíði ekkert fyrir þessu, heilsan er aðalatriðið og ég er nokkuð brattur,“ segir Gylfi Ægisson sem fagnar í dag sextugsafmæli sínu en söngvarinn, málarinn og lagasmiðurinn var á hárgreiðslustofu þegar Fréttablaðið náði tali af honum.

Neitað af Lohan

Söngvarinn og sjarmatröllið Robbie Williams lendir ekki oft í því að konur neiti honum en það gerði hin unga leikkona Lindsay Lohan á dögunum. Atvikið átti sér stað á næturklúbbi í Lundúnum þar sem Lohan og Williams voru bæði stödd ásamt fylgdarliði.

Egill telur að sér vegið á Stöð 2

"Þetta er rétt, ég er mjög ósáttur," segir Egill Helgason, stjórnandi Silfurs Egils. Á bloggsíðu Steingríms Sævarrs Ólafssonar er því haldið fram að Egill sé afskaplega ósáttur við það hversu lítils stuðnings Silfrið nýtur meðan allt er lagt í nýjan þátt, Pólitík, sem fjallar um hliðstætt efni og Egill hefur haft til umfjöllunar.

Styktartónleikar Ljóssins

Úrval tónlistarmanna efnir til tónleika til styktar starfsemi Ljóssins, sem eru endurhæfingar– og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Tónleikarnir verða laugardaginn 11. nóvember í Neskirkju. Miðasala er hafin í Ljósinu í Neskirkju og í síma 5613770.

Styttist í Skrekk

Undanúrslit Skrekks, sem er hæfileikakeppni ÍTR fyrir nemendur grunnskóla Reykjavíkur, hefst þann 13. nóvember í Borgarleikhúsinu. Um er að ræða þrjú undaúrslitakvöld og fara þau farm 13., 14., og 15. nóvember. Allir grunnskólar í Reykjavík taka þátt í keppninni en þátttakendur eru í 8. - 10. bekk.

Litirnir dansa

Guðrún Bergsdóttir opnar sýningu á útsaumsverkum og tússteikningum í Boganum í Gerðubergi í dag. Litirnir dansa og iða fullir af kátínu og frelsiskennd og vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi Guðrúnar Bergsdóttur.

Nylon í Smáralind

Nylon flokkurinn í boði KBbanka hefur ákveðið að boða til tónleika í Vetrargarðinum í Smáralind Laugardag 18. nóvember nk. klukkan 15:00. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni þess að þriðja platan þeirra, sem ber nafnið Nylon, kemur út í næstu viku.

Tveimur sýningum að ljúka

Nú um helgina lýkur tveimur athyglisverðum sýningum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þetta eru, Reykjavík - Úr launsátri: Ljósmyndasýning Ara Sigvaldasonar og Flóðhestar og framakonur: Afrískir minjagripir á Íslandi.

Kallar fram gæsahúð

Nýjasta plata tónlistarmannsins Jóhanns Jóhannssonar, IBM 1401 - A User's Manual, fær ágæta dóma á hinni virtu bandarísku tónlistarsíðu Pitchfork, eða 6,9 af 10 mögulegum.

Heather klippt út

Myndskeið með Heather Mills hafa verið klippt út af tónlistarmynddiski sem Paul McCartney gefur út á næstunni og ber heitið The Space Within Us.

Gjaldmælir dauðans telur

Áhugaverð og skemmtilega spunnin glæpasaga líður fyrir einfalda afgreiðslu lausra enda. Höfundarnir hafa áður sýnt að þeir geta betur en Farþeginn stendur þó vel fyrir sínu sem þokkalegur reyfari og manni leiðist aldrei við lesturinn.

Framtakssömu stelpurnar frá Svíþjóð vekja athygli

Svíþjóð hefur lengi verið í fararbroddi á Norðurlöndunum í tónlist. Undanfarin misseri hafa verið sérstaklega glæst hjá sænsku tónlistarfólki, þar sem stúlkur hafa ekki síður verið áberandi en piltarnir eins og Steinþór Helgi Arnsteinsson greinir frá.

Forsala á netinu

Miðasala á almennar sýningar í Smárabíói og Regnboganum er hafin í fyrsta sinn á netinu á slóðinni midi.is/bio. Hingað til hefur midi.is verið leiðandi í sölu aðgöngumiða á tónleika, leiksýningar, íþróttaviðburði eða annað en nú hafa kvikmyndahúsin loksins bæst við.

Flýtir vegna Sykurmola

Tónlistarmaðurinn Sufjan Stevens, sem leikur á tvennum tónleikum í Fríkirkjunni dagana 17. og 18. nóvember, hefur ákveðið að flýta fyrri tónleikunum um einn og hálfan tíma.

Fjölskyldusýningar dansflokksins

Íslenski dansflokkurinn opnar dyr sínar í nóvember og býður til þriggja fjölskyldusýninga sem henta jafnt ungum sem öldnum. Mat flokksins er að mikilvægt sé að auðvelda fólki að kynnast dansi og sjá hversu skemmtilegt það getur verið að koma á danssýningu.

Fed krefst forræðis

Kevin Federline ætlar einnig að krefjast forræðis yfir sonum sínum tveimur sem hann átti með söngkonunni Britney Spears. Britney sótti um skilnað við hann í gær og krafðist forræðis yfir sonunum, sem eru eins árs og tveggja mánaða.

Ekki öll kurl komin til grafar

Rannsóknir hafa nú staðið yfir í fimm ár á hinum forna stað klaustursins á Skriðu sem síðar tók nafn sitt eftir klaustrinu og þekktur er undir heitinu Skriðuklaustur. Á morgun verður efnt til málþings í sal Þjóðminjasafnsins um rannsókir á klaustrinu

Sufjan Stevens missir ekki af Sykurmolunum

Sufjan Stevens, sem leikur á tvennum tónleikum í Fríkirkjunni þann 17. og 18. nóvember, vill alls ekki missa af afmælistónleikum Sykurmolanna í Laugardalshöll 17. nóvember - enda bandið að koma saman í þetta eina skipti í tilefni af 20 ára afmæli sínu.

Ævisaga Laxness gefin út á ensku

Ævisagan um Nóbelskáldið Halldórs Kiljan Laxness eftir Halldór Guðmundsson verður gefin út á ensku. Samningar þar að lútandi hafa tekist á milli JPV útgáfu og MacLehose Press í London sem gefur bókina út í samvinnu við Quercus-forlagið.

Heimsglaumur á Barnum

Í tilefni af útgáfu bókanna Fljótandi heimur, eftir Sölva Björn Sigurðsson, og Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins, eftir Steinar Braga, bjóða útgáfurnar Edda og Bjartur öllum velunnurum íslenskra bókmennta í útgáfupartý á efri hæðinni á Barnum, Laugavegi 22, fimmtudaginn 9. nóvember kl. 20:00.

DP One til landsins

Daniel A. Pinero eða DP One er einn af efnilegustu Hip-Hop plötusnúðum Bandaríkjanna um þessar mundir. DP One er þrjú elementin uppmáluð þarsem hann er plötusnúður, rappari og breakdansari. Hann er einn af fjórum í hóp sem kallar sig Turntable Anihilists og meðlimur í Rock City Rockers, TCK og Zulu Kingz

Kemur út á DVD

Nirvana - Live! Tonight! Sold Out!! er loksins fáanlegur á DVD, en upprunalega kom þessi titill út á VHS formatinu árið 1994. Kurt Cobain kom með hugmyndina af þessari útgáfu ári eftir að tímamótaplatan Nevermind kom út 1991.

Britney Spears skilur

Sönkonan Britney Spears hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn Kevin Federline. CNN fréttavefurinn greinir frá þessu en Britney giftist Federline fyrir rúmum tveimur árum síðan eða 6. október 2004 og eiga þau tvö börn saman.

Unglist fer vel af stað

Eins víst og Lóan kemur á vorin þá hefur Unglist Listahátíð ungs fólks, verið árviss viðburður á haustdögum í Reykjavík frá árinu 1992. Hátíðin stendur yfir í rúma viku í hvert sinn með fjölda þátttakenda og njótenda.

Ljósmyndasamkeppni frá Hróarskeldu

Í tilefni þess að miðasala er að hefjast hefur verið efnt til ljósmyndasamkeppni en sigurvegarinn verður tilkynntur sama dag og miðasalan hefst. Hátíðin verður haldin dagana 5.-8. júlí á næsta ári en aðstandendur hátíðarinnar hafa ákveðið að færa hátíðina um eina viku en venjan hefur verið hingað til

Hin sanna jólastemning

Skógræktarfélag Reykjavíkur opnar jólatrjáaskóg sinn í Heiðmörk 3 helgar í desember. Opið verður helgarnar 2.-3. desember, 9.-10. desember og 16.-17. desember. Opið er meðan dagsbirtu gætir eða milli kl. 11-15.30.

Múm hitar upp fyrir Sykurmolana

Eins og landi og lýð ætti að vera ljóst munu Sykurmolanir fagna 20 ára AMMÆLI sínu með því að koma saman að nýju og leika á einum einstökum afmælistónleikum í Laugardalshöll, föstudaginn 17. nóvember.

Ísland í sviðljósinu hjá MTV

Hryllingsmyndaleikstjórinn Eli Roth er staddur hér á landi til að taka upp nokkur atriði fyrir mynd sína Hostel II. Eli lýsti því yfir í Fréttablaðinu að ferðalag hans hingað væri bara léleg afsökun fyrir að komast á hestbak á Ingólfshvoli þar sem leikstjórinn á hest.

Rokkað í Höllinni

Miklir rokkstjörnutónleikar verða haldnir í Laugardalshöll þann 30. nóvember. Allar hetjurnar úr Rock Star: Supernova hittast þar í fyrsta sinn síðan raunveruleikaþættinum lauk, eða þau Magni, Dilana, Toby og Storm ásamt húshljómsveitinni.

Beðmálin í bíó

Samkvæmt US OK! bendir allt til þess að búin verði til kvikmyndaútgáfa af hinum vinsæla þætti Sex and The City sem var svo hagalega þýddur Beðmál í borginni og sýndur á RÚV.

Einlægi Írinn gefur út 9

Írski trúbadorinn Damien Rice gefur í dag út sína aðra hljóðversplötu, 9. Fylgir hún á eftir miklum vinsældum O, sem kom út fyrir fjórum árum. Freyr Bjarnason leit yfir feril þessa hugljúfa tónlistarmanns.

Gefur út ævisögu

Kevin Federline, eiginmaður poppprinsessunnar Britney Spears, ætlar að skrifa sjálfsævisögu sína. Fyrrum dansarinn Federline, sem nú er orðinn rappari, vill leyfa almenningi að kynnast lífi sínu áður en hann hitti Britney. Mun hann ekki segja frá hjónabandi þeirra.

Glíman er erótísk íþrótt

Stuttmyndin Bræðrabylta á vafalítið eftir að vekja mikla athygli þegar hún verður frumsýnd en myndin fjallar um tvo samkynhneigða glímukappa.

Hlynur Íslandsmeistari í málmsuðu

"Þetta var jöfn keppni en ég hafði þetta að lokum," segir Hlynur Guðjónsson, nýbakaður Íslandsmeistari í málmsuðu. Mótið fór fram í Borgarholtsskóla á miðvikudag.

Mel Gibson heiðraður

Leikarinn og leikstjórinn Mel Gibson fékk nýverið Latino-heiðursverðlaun fyrir væntanlega kvikmynd sína Apocolypto. Voru verðlaunin afhent í Los Angeles, þar sem fólk af suður-amerískum uppruna er afar fjölmennt.

Mustanginn sigraði montbílakeppnina

„Ég brosi í gegnum tárin eins og fegurðardrottning,“ segir bíladellukallinn Sigfús B. Sverrisson sem sigraði montbílakeppnina Show Off of the Year 2006 með Ford Mustang Fastback kagganum sínum í síðustu viku.

Nýr maður mættur til leiks

Bresku blöðin halda áfram umfjöllun sinni um skilnað Pauls McCartney og Heather Mills en málið tekur á sig ýmsar myndir. Nú þykist Daily Mail hafa heimildir fyrir því að Mills sé komin með nýjan mann.

Ófétin komin til Hveragerðis

Eftir endilöngu gólfi bókasafnsins í Hveragerði liggur djúp og mikil sprunga sem er eitt af undrum bæjarins. Sprungan kom í ljós meðan verið var að byggja húsið og geta gestir nú dáðst að þessu náttúrufyrirbæri gegnum gler í gólfinu.

Plata Bubba uppseld

Salan á nýjustu plötu Bubba, 06.06.06, hefur gengið framar vonum og er hún núna uppseld hjá útgefanda eftir aðeins tvær vikur í sölu.

Sökuð um dópneyslu á meðgöngu

Fjölmiðlastormurinn í kringum Önnu Nicole Smith hefur geisað linnulaust í tvo mánuði, eða frá því að sonur hennar, Daniel Smith lést á grunsamlegan hátt aðeins þremur dögum eftir að Önnu fæddist dóttirin Dannie Lynn. Þeir Howard K. Stern, núverandi kærasti Önnu, og Larry Birkhead, fyrrverandi kærasti hennar, segjast báðir vera feður stúlkunnar.

Sjá næstu 50 fréttir