Fleiri fréttir

Sörensen ákveðinn í að standa sig

Markvörðurinn Thomas Sörensen segist enn hafa erindi í ensku úrvalsdeildina. Hann var leystur undan samningi við Aston Villa í sumar þar sem hann var ekki í áætlunum liðsins.

ÍA úr leik þrátt fyrir sigur í kvöld

ÍA vann FC Honka 2-1 á Akranesvelli í kvöld en þetta var síðari viðureign liðanna í UEFA-bikarnum. FC Honka vann fyrri leikinn í Finnlandi 3-0 og kemst því áfram á samtals 4-2 sigri.

FH rúllaði yfir Grevenmacher

FH átti ekki í teljandi vandræðum með Grevenmacher í síðari leik liðanna í fyrstu umferð UEFA bikarsins. FH vann 5-1 í Lúxemborg í kvöld og kemst því áfram á 8-3 samanlögðum sigri.

McBride kominn heim

Bandaríski sóknarmaðurinn Brian McBride er kominn heim og hefur samið við Chicago Fire sem leikur í MLS-deildinni. McBride er 36 ára en hann samdi við Fire út tímabilið.

Strákarnir munu leika um 5. sætið

U17 landslið karla vann í dag góðan 3-0 sigur á Finnum í lokaumferð riðlakeppninnar á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Svíþjóð. Mörkin þrjú komu öll seint í leiknum.

Wenger: Nokkur lið sem við viljum sleppa við

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, viðurkennir að nokkrir af mögulegum mótherjum Arsenal í forkeppni Meistaradeildarinnar séu lið sem hann væri alveg til í að sleppa við að mæta.

Knattspyrnusambandið kærir Barton

Raunasaga miðjumannsins Joey Barton er enn ekki öll, því nú hefur enska knattspyrnusambandið kært hann vegna árásarinnar á fyrrum liðsfélaga sinn Ousmane Dabo þegar hann var hjá Manchester City.

Guðni Rúnar samdi við Stjörnuna

Guðni Rúnar Helgason hefur gengið til liðs við Stjörnuna í Garðabæ, en hann fékk sig lausan frá samningi við Fylki í Landsbankadeildinni á dögunum. Þetta kom fram í hádegisfréttum Stöðvar 2. Guðni er 32 ára gamall og hafði verið hjá Fylki síðan árið 2004.

Tottenham í viðræðum við tvo rússa

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er í viðræðum við tvo rússneska landsliðsmenn ef marka má breska fréttamiðla í dag. Þetta eru þeir Andrei Arshavin og Roman Pavlyuchenko.

Arteta útilokar að fara til Spánar

Spænski miðjumaðurinn Mikel Arteta hjá Everton segist vera fullkomlega ánægður í herbúðum Everton og segist alls ekki hafa í huga að snúa til heimalandsins á næstunni. Hann hefur verið orðaður við félög á borð við Atletico Madrid í heimalandinu.

Þýskir miðlar lítt hrifnir af kaupum Arsenal

Arsenal gekk í gær frá kaupum á miðjumanninum unga Amaury Bischoff frá Werder Bremen í Þýskalandi. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er þekktur fyrir að gera góð kaup í ungum leikmönnum, en ef marka má þýska miðla hefur honum mistekist í þetta sinn.

Barry ævintýrinu ekki lokið?

Breska blaðið Daily Mail fullyrðir í morgun að sápuóperunni í kring um miðjumanninn Gareth Barry sé hreint ekki lokið. Blaðið segir að Liverpool hafi náð að keyra 17,5 milljóna punda tilboð í gegn og að hann muni skrifa undir hjá Liverpool í dag.

Ronaldo á leið til Madrid í næstu viku?

Spænska blaðið AS hefur eftir Cristiano Ronaldo í dag að hann ætli sér að krefjast þess að fá að fara til Real Madrid þegar hann kemur til fundar við forráðamenn Manchester United eftir sumarfrí.

Ronaldo púlar í sex tíma á dag

Enskir fjölmiðlar hafa gert sér nokkurn mat úr því undanfarið að Cristiano Ronaldo hafi gert meira af því að liggja í sólbaði og skoða stelpur þar sem hann var í fríi og endurhæfingu í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Arsenal græðir vel á Bentley

Stuðningsmenn Tottenham munu væntanlega fagna kaupum félagsins á David Bentley með nokkrum semingi, því erkifjendurnir í Arsenal munu fá væna summu af kaupverðinu beint í vasann frá Blackburn.

Dawson og Jenas framlengja við Tottenham

Varnarmaðurinn Michael Dawson og miðjumaðurinn Jermaine Jenas hafa báðir skrifað undir eins árs framlengingu á samningum sínum við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

Curbishley er ekki hræddur um að missa vinnuna

Alan Curbishley, stjóri West Ham í ensku úrvalsdeildinni, segist sofa rólegur þó hann sé að mati enskra veðbanka talinn líklegastur til að verða fyrsti stjórinn sem látinn verður taka pokann sinn í deildinni á komandi tímabili.

Bentley gerði sex ára samning við Tottenham

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur gengið frá kaupum á vængmanninum David Bentley frá Blackburn fyrir 15 milljónir punda. Kaupverðið gæti farið upp í 17 milljónir punda þegar allt er talið, en hann hefur undirritað sex ára samning.

Margrét Lára skoraði fimm gegn Fjölni

Einn leikur var í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði öll fimm mörkin þegar Íslandsmeistarar Vals unnu Fjölni 5-0.

Corradi aftur til Ítalíu

Sóknarmaðurinn Bernando Corradi er genginn til liðs við ítalska liðið Reggina frá Manchester City. Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson er í herbúðum Reggina.

Schuster fær lítið að vita

Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, er ekki sáttur við upplýsingaflæðið til hans varðandi leikmannakaup. Hann sagði á blaðamannafundi í dag að svo virtist vera að hann fengi að vita allt síðastur.

Barry fer ekki til Liverpool

Aston Villa hefur tilkynnt að Gareth Barry verði áfram hjá félaginu og muni ekki ganga til liðs við Liverpool. Villa segir að Liverpool hafi ekki náð að klára kaupin fyrir ákveðinn frest sem það hafi fengið.

Hörður á leið í Breiðablik

Hörður Sigurjón Bjarnason er á leið í Breiðablik en þetta kemur fram á vefsíðunni Fótbolti.net. Hörður er uppalinn hjá Blikum en hann gekk í raðir Víkings R. árið 2005.

Magnús Gylfason í launadeilu við KR

Knattspyrnuþjálfarinn Magnús Gylfason stendur í launadeilu við KR. Magnús, sem er álitsgjafi Stöðvar 2 Sport í Landsbankadeildinni, var leystur undan störfum hjá KR um mitt ár 2005 og telur að KR hafi ekki staðið við gefin loforð varðandi starfslok.

Chelsea er betra en United og Arsenal

Avram Grant, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, telur að liðið verði sterkara en Manchester United og Arsenal á komandi leiktíð og spáir því sigri í ensku úrvalsdeildinni.

Kaboul neitaði Sunderland

Franski varnarmaðurinn Younes Kaboul hjá Tottenham verður ekki fjórði leikmaðurinn frá félaginu sem gengur í raðir Sunderland í sumar, en hann neitaði samningstilboði félagsins. Talið er víst að hann gangi þess í stað í raðir Portsmouth, sem einnig mun hafa áhuga á honum.

Arsenal kaupir ungan miðjumann

Arsenal gekk í dag frá kaupum á 21 árs gömlum miðjumanni frá Werder Bremen í Þýskalandi. Sá heitir Amaury Bischoff og er fæddur í Frakklandi en á að baki leiki fyrir U-21 árs lið Portúgala.

Ben Haim til City

Ísraelski landsliðsmaðurinn Tel Ben Haim gekk í dag í raðir Manchester City frá Chelsea. Ben Haim hefur skrifað undir fjögurra ára samning við City en kaupverðið var ekki gefið upp.

Ingimundur Óskarsson til Fylkis

Fylkir fékk í dag til liðs við sig hinn 22 ára gamla Ingimund Óskarsson sem leikið hefur með KR. Ingimundur á að baki leiki með 2. flokki Fylkis, en hann lék með Fjölni árin 2005-06.

Veldu mark 13. umferðar

Eins og ávallt stendur nú yfir könnun á Vísi þar sem kosið er á milli fimm marka um besta mark nýliðannar umferðar í Landsbankadeild karla.

Stoor keyptur til Fulham

Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur gengið frá kaupum á sænska landsliðsmanninum Fredrik Stoor frá Rosenborg í Noregi. Stoor er 24 ára gamall varnarmaður og kom við sögu í öllum leikjum Svía á EM.

Malbranque í læknisskoðun hjá Sunderland

Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque er nú að gangast undir læknisskoðun hjá Sunderland og gæti því fljótlega orðið þriðji Tottenham leikmaðurinn til að ganga í raðir Sunderland. Þá hefur David Bentley hjá Blackburn staðist læknisskoðun hjá Tottenham og verður væntanlega keyptur til Lundúna fyrir helgi.

Messi fer á Ólympíuleikana

Alþjóða Knattspyrnusambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að allir leikmenn undir 23 ára aldri skuli fara með landsliðum sínum á Ólympíuleika.

Tottenham í viðræðum við Arshavin

Umboðsmaður rússneska landsliðsmannsins Andrei Arshavin segist vera í viðræðum við forráðamenn Tottenham sem hafi áhuga á að kaupa leikmanninn frá Zenit í Pétursborg.

Andri Júlíusson lánaður til KA

Framherjinn Andri Júlíusson sem leikið hefur með Skagamönnum í Landsbankadeildinni hefur verið lánaður til KA í fyrstu deildinni. Andri er 23 ára gamall en hefur ekki átt fast sæti í liði Skagamanna í sumar.

Nike slítur samstarfi við Barton

Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur slitið samstarfi við miðjumanninn Joey Barton hjá Newcastle í kjölfar þess að hann var dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás. Breska blaðið Daily Telegraph fullyrðir að Barton verði fyrir vikið af rúmlega sex milljónum króna árlega frá Nike.

Deco fyllir skarð Eiðs Smára

Mikil ánægja ríkir yfir komu Portúgalans Deco inn í herbúðir Chelsea. Þeir Joe Cole og Luiz Felipe Scolari eru sérstaklega kátir yfir því að fá þennan skapandi miðjumann inn í liðið.

Moyes við það að framlengja við Everton

Skoski knattspyrnustjórinn David Moyes hjá Everton segist reikna með að framlengja samning sinn við félagið á næstu tveimur vikum. Hann hefur þegar samþykkt munnlega að framlengja samning sinn, sem bíður undirritunar.

Sara Björk lánuð til Breiðabliks

Landsliðskonan unga Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Haukum hefur gengið í raðir Breiðabliks í Landsbankadeildinni á lánssamningi út leiktíðina.

Sænskur dómari í Víkinni

Síðastliðin ár hafa knattspyrnusambönd á Norðurlöndunum haft samstarf um dómaraskipti og hafa þá dómarar ferðast á milli þessara landa og dæmt nokkra leiki.

Töpuðu fyrir Englandi

Önnur umferð Opna Norðurlandamóts U17 landsliða karla fór fram í dag, þriðjudag. Ísland mætti Englandi og gerðu þeir ensku eina mark leiksins.

KR-ingar unnu Fjölni

KR vann góðan 2-0 sigur í síðasta leik þrettándu umferðar Landsbankadeildarinnar sem leikinn var í kvöld. Sigur KR var verðskuldaður en Vesturbæjarliðið var mun sterkara.

Sjá næstu 50 fréttir