Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Arsenal hefur brugðist Thierry Henry Ian Wright, fyrrum leikmaður Arsenal, segir félagið hafa brugðist Thierry Henry eftir að hann skrifaði undir nýjan samning við félagið. Henry hefur ekki leikið með Arsenal í undanförnum leikjum og hefur fjarvera hans verið skrifuð á meiðsli, en heyrst hefur að fjarvera hans sé vegna ósættis hans við Arsene Wenger og forráðamenn félagsins. 10.12.2006 22:30
KR lagði Tindastól Nokkrir leikir fóru fram í bikarkeppninni í körfubolta í dag og í kvöld og þá var einn leikur á dagskrá í IE deild kvenna. KR-ingar notuðu góðan endasprett til að leggja Tindastól að velli fyrir norðan 94-86 þar sem Jeremiah Sola skoraði 33 stig og þá vann Hamar/Selfoss góðan sigur á grönnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn 78-64. 10.12.2006 22:08
Schalke upp að hlið Bremen Schalke komst í dag upp að hlið Werder Bremen á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Dortmund 3-1. Kevin Kuranyi, Peter Lovenkrands og Christian Pander skoruðu mörk Schalke sem hefur 33 stig á toppnum líkt og Bremen. Ein umferð er nú eftir af þýsku úrvalsdeildinni fyrir vetrarhlé. 10.12.2006 20:30
Arsenal hafði engan áhuga á að vinna leikinn Jose Mourinho hrósaði sínum mönnum í Chelsea fyrir að ná að jafna metin gegn Arsenal eftir að hans menn höfðu lent undir á heimavelli í dag, en sagðist mjög hissa á því að Arsenal hefði mætt í leikinn án nokkurs áhuga á að reyna að vinna hann. 10.12.2006 19:23
Wenger stoltur af sínum mönnum Arsene Wenger sagðist vera stoltur af sínum mönnum í dag eftir að Arsenal slapp með 1-1 jafntefli frá viðureign sinni við Chelsea á Stamford Bridge. Hann segir að mark Chelsea hefði aldrei átt að standa vegna þess að Ashley Cole hafi brotið af sér skömmu áður en Michael Essien jafnaði leikinn með frábæru skoti. 10.12.2006 19:03
Auðvelt hjá Inter Inter Milan náði í dag 7 stiga forystu á toppi ítölsku deildarinnar með auðveldum 3-0 sigri á Empoli, en Roma getur minnkað forskot liðsins með sigri á grönnum sínum í Lazio í kvöld. Hernan Crespo, Zlatan Ibrahimovic og Walter Samuel skoruðu mörk Inter í dag, en vandræði granna þeirra í AC Milan halda áfram eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við Torino á San Siro. 10.12.2006 18:47
Örn fékk brons í flugsundi Örn Arnarson úr SH vann í dag til bronsverðlauna á EM í sundi sem fram fer í Helsinki. Örn synti 50 metra flugsund á 23,55 sekúndum og var þetta í þriðja sinn í dag sem kappinn bætir eigið Íslandsmet í greininni. 10.12.2006 18:31
Arsenal slapp með skrekkinn Ekki verður annað sagt en að Arsenal hafi verið með heilladísirnar á sínu bandi í dag þegar liðið náði 1-1 jafntefli við Chelsea á Stamford Bridge. Chelsea hafði mikla yfirburði í leiknum en þurfti engu að síður á einu af mörkum ársins að halda frá Michael Essien til að jafna leikinn eftir að Matthieu Flamini hafði komið Arsenal yfir. 10.12.2006 17:56
HK skellti Íslandsmeisturunum HK gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Fram 32-29 í DHL deild karla í handbolta í Safamýri í dag. Valdimar Þórsson og Tomas Eitutis skoruðu 10 mörk hvor fyrir HK og Egidijus Petkevicius varði 22 skot í markinu en Andri Berg Haraldsson skoraði 7 mörk fyrir Fram. 10.12.2006 17:36
Örn náði sjöunda sæti Sundkappinn Örn Arnarsson varð í dag í sjöunda sæti í 100 metra fjórsundi á HM í Helsinki og synti vegalengdina á 55,04 sekúndum, tæpum tveimur sekúndum á eftir sigurvegaranum Peter Mankoc. Örn Keppir til úrslita í 50 metra flugsundi í dag. 10.12.2006 17:28
Markalaust á Stamford Bridge í hálfleik Nú hefur verið flautað til leikhlés í leik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og er staðan jöfn 0-0. Chelsea hefur verið mun sterkara það sem af er og einu sinni hafa varnarmenn Arsenal bjargað á marklínu og svo átti Frank Lampard skot í stöng. Didier Drogba hefur einnig sett svip sinn á leikinn með óþolandi leikaraskap sínum. 10.12.2006 16:43
AZ og Ajax skildu jöfn AZ Alkmaar og Ajax skildu jöfn 2-2 í toppslag í hollenska boltanum í dag. Grétar Rafn Steinsson spilaði allan leikinn með Alkmaar í dag en Jóhannes Karl Guðjónsson var á bekknum og kom ekki við sögu í leiknum. Alkmaar er í öðru sæti deildarinnar á eftir PSV Eindhoven en Ajax er í því þriðja. 10.12.2006 16:22
Stórleikur helgarinnar að hefjast Leikur Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hefst nú klukkan 16 og eru byrjunarliðin klár. Thierry Henry er ekki í liði Arsenal vegna meiðsla og Robin Van Persie byrjar í stað Freddy Ljungberg. Þá kemur fyrirliðinn John Terry aftur inn í lið Chelsea eftir að hafa tekið út leikbann. 10.12.2006 15:47
Taylor varði titla sína Bandaríkjamaðurinn Jermain Taylor varði í nótt WBC og WBO titla sína í millivigt hnefaleika þegar hann vann sigur á Úgandamanninum Kassim Ouma í heimabæ sínum Little Rock í Arkansas. Taylor reyndi hvað hann gat til að rota andstæðing sinn en það tókst honum ekki og varð hann að láta sér nægja að sigra á stigum. Bardaginn var sýndur beint á Sýn. 10.12.2006 15:26
Örn og Ragnheiður í undanúrslit Örn Arnarson tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum í 50 metra flugsundi á HM í Helsinki og Ragnheiður Ragnarsdóttir tryggði sér sæti í undanúrslitum í 50 metra skriðsundi. Örn varð fimmti í undanrásum og bætti Íslandsmet sitt í greininni um 2/100 úr sekúndu þegar hann synti á tímanum 23,77 sekúndum. 10.12.2006 15:15
Nelson náði 1200. sigrinum Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors í NBA deildinni, varð í nótt annar þjálfarinn í sögu NBA deildarinnar til að vinna 1200 leiki á ferlinum þegar lið hans lagði New Orleans 101-80. Aðeins Lenny Wilkens hefur unnið fleiri leiki á þjálfunarferlinum en hann á að baki 1332 sigra og er fyrir nokkru hættur að þjálfa. 10.12.2006 15:15
Quiros sigraði á Dunhill mótinu Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros sigraði nokkuð óvænt á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Quiros lauk keppni á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan heimamanninum Schwartzel sem hafði forystu allt fram á lokahringinn. 10.12.2006 14:59
Telur sig betri en Eric Cantona Vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hefur góða trú á sjálfum sér sem knattspyrnumanni og í dag sagði hann í samtali við News of the World að hann væri betri en sjálfur Eric Cantona sem á sínum tíma spilaði í treyju númer 7 hjá Manchester United. 10.12.2006 14:46
Cisse kátur Franski framherjinn Djibril Cisse segist vera kátur eins og lítill drengur yfir því að vera loksins farinn að spila á ný eftir enn eitt fótbrotið. Cisse lagði upp mark fyrir Marseille í gær þegar liðið lagði Monaco í frönsku deildinni en hann hafði þá ekki spilað leik síðan í júní. Cisse er á lánssamningi hjá franska liðinu frá Liverpool. 10.12.2006 14:38
Yao Ming kláraði Washington Kínverski risinn Yao Ming fór á kostum og skoraði 23 af 38 stigum sínum í fjórða leikhluta þegar Houston lagði Washington 114-109 á útivelli í NBA deildinni í nótt. Hann hirti auk þess 11 fráköst og varði 6 skot. Gilbert Arenas skoraði 41 stig fyrir Washington í þessum fjöruga leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. 10.12.2006 14:04
Tveir slasast eftir að hestur missir stjórn á sér Í vikunni vann brokkhesturinn Loopylou stórsigur í kerrukappreiðum sem haldnar voru í Noregi en nokkrum mínútum eftir sigurinn varð hann fyrir bíl á þjóðvegi eitt í Þrándheim. Þetta vildi til eftir að knapinn var búinn að ríða heiðurshringinn þá fældist hesturinn af einhverjum orsökum og missti knapinn stjórn á honum og féll úr vagninum sem hesturinn dró á eftir sér. 10.12.2006 10:21
Sevilla lagði Real Madrid Sevilla vann í kvöld mikilvægan 2-1 sigur á Real Madrid í uppgjöri liðanna í spænska boltanum. David Beckham kom Real yfir snemma leiks með glæsilegu marki úr aukaspyrnu, en Freddy Kanoute jafnaði fyrir Sevilla og það var svo varamaðurinn Chevanton sem skoraði sigurmark heimamanna með glæsilegri hjólhestaspyrnu 13 mínútum fyrir leikslok. Sevilla fór því upp fyrir Real í annað sæti deildarinnar. 9.12.2006 23:31
Gott kvöld hjá Íslendingum Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöl og segja má að þar voru íslensku leikmennirnir áberandi eins og svo oft áður. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 8 mörk og Einar Örn Jónsson 3 þegar hans menn í Minden unnu sjaldgæfan útisigur á Melsungen 27-28. 9.12.2006 22:15
Pardew hefur enn trú á sínum mönnum Alan Pardew, stjóri West Ham, viðurkenndi að lið hans hefði verið yfirspilað löngum stundum í dag þegar það steinlá 4-0 gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni. Pardew sagði vandræðaganginn í vörninni skrifast mikið til á þá staðreynd að miðverðir hans í dag hafi aldrei áður spilað leik saman. 9.12.2006 22:00
Naldo með þrennu í stórsigri Bremen Leikmenn Werder Bremen voru ekki lengi að hrista af sér vonbrigðin í Meistaradeildinni í vikunni þegar liðið malaði Frankfurt 6-2 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Brasilíski varnarmaðurinn Naldo skoraði þrennu fyrir Bremen. Stuttgart lagði Bochum 1-0 og Bayern lagði Cottbus 2-1 með mörkum frá Schweinsteiger og Van Buyten. 9.12.2006 21:30
Mikið fjör í bikarnum á morgun Á morgun hefjast 16-liða úrslitin í Lýsingarbikar karla í körfubolta með fjórum leikjum. Grannliðin Hamar/Selfoss og Þór Þorlákshöfn eigast þá við í Hveragerði klukkan 16 og klukkan 19:15 mætast Keflavík B og Grindavík í Keflavík, Valur og Skallagrímur í Kennaraháskólanum og Tindastóll tekur á móti KR á Króknum. 9.12.2006 21:25
Gummersbach og Ciudad áfram Íslendingaliðið Gummersbach vann í dag sigur á rússneska liðinu Medvedi 32-29 í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta, en leikið var í Þýskalandi. Segja má að leikurinn hafi verið formsatriði fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar eftir sex marka sigur í útileiknum. Róbert Gunnarsson skoraði 7 mörk fyrir Gummersbach, Guðjón Valur Sigurðsson 7 og varnarjaxlinn Guðlaugur Arnarsson 1. 9.12.2006 21:15
Ronaldinho tryggði Barcelona sigur Brasilíski snillingurinn Ronaldinho skoraði eina mark leiksins í kvöld þegar Barcelona sigraði Real Sociedad 1-0 í spænsku deildinni. Barcelona er því enn á toppnum en mátti þakka fyrir að sleppa með öll þrjú stigin í kvöld enda var liðið nokkuð frá sínu besta. Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona en fór af velli um miðjan síðari hálfleik. Nú er að hefjast bein útsending frá leik Real Madrid og Sevilla á Sýn. 9.12.2006 20:59
Birmingham á toppnum í 1. deild Birmingham smellti sér í dag á toppinn í ensku 1. deildinni með sannfærandi 3-1 sigri á Preston North End. Gary McSheffrey skoraði þrennu fyrir Birmingham en Derby lyfti sér í annað sætið með 1-0 sigri á lánlausu liði Leeds United á útivelli. 9.12.2006 20:25
Juventus á toppinn Juventus smellti sér á toppinn í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Verona 1-0 í dag með marki frá Mauro Camoranesi. Juventus er á toppnum ásamt Bologna með 28 stig, en Napoli getur komist á toppinn á ný með sigri á Cesena á mánudaginn. 9.12.2006 20:18
Elvis farinn úr húsi Steven Pressley, sem kallaður er Elvis á meðal stuðningsmanna skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, var í dag látinn fara frá félaginu eftir deilur við eiganda félagsins. Mikil ólga hefur ríkt í herbúðum félagsins undanfarnar vikur og ljóst að eigandi félagsins verður ekki vinsælli í kjölfar þess að fyrirliðinn var látinn fara. 9.12.2006 20:11
Jermain Taylor mætir Kassim Ouma í kvöld Það má búast við hörkubardaga í Little Rock í kvöld þegar Bandaríkjamaðurinn Jermain Taylor tekur á móti Úgandamanninum Kassim Ouma. Taylor hefur helst unnið sér það til frægðar að sigra Bernard Hopkins, en Ouma er sannarlega sýnd veiði en ekki gefin. Báðir hafa þeir unnið 25 sigra og tapað aðeins einu sinni. 9.12.2006 19:23
Barcelona - Sociedad í beinni á Sýn Nú er hafin leikur Barcelona og Real Sociedad í spænska boltanum og er hann sýndur beint í lýsingu Harðar Magnússonar á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er á sínum stað í byrjunarliði Barcelona en síðar í kvöld verður svo á dagskrá Sýnar leikur Sevilla og Real Madrid. 9.12.2006 19:16
Bolton burstaði West Ham Bolton burstaði West Ham 4-0 í lokaleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem þeir Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon sátu þungir á brún meðal áhorfenda og horfðu upp á lið sitt tapa enn eina ferðina. 9.12.2006 19:06
Tottenham burstaði Charlton Tottenham burstaði Charlton 5-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag og því eru Hermann Hreiðarsson og félagar sem fyrr í vondum málum í botnbaráttunni. Liverpool burstaði Fulham 4-0 og Newcastle vann góðan 3-1 útisigur á Blackburn. 9.12.2006 17:05
Höldum með Arsenal á morgun Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í grannaslagnum í Manchester í dag. United hafði sigur 3-1 og segir Ferguson liðið eiga að hafa reynslu til að verja forskot sitt á Chelsea áfram, en það er orðið 9 stig. Chelsea mætir Arsenal á morgun. 9.12.2006 16:42
Pearce samur við sig Stuart Pearce, stjóri Manchester City, er ekki vanur að skafa af hlutunum og það gerði hann heldur ekki í dag þegar hann var spurður út í brottrekstur framherjans Bernardo Corradi fyrir leikaraskap á lokamínútum leiksins gegn Manchester United. 9.12.2006 16:33
Kiel upp að hlið Flensburg á toppnum Kiel komst í dag upp að hlið Flensburg á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta þegar liðið skellti Lemgo 37-30 á heimavelli sínum. Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo í leiknum en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Þrír leikir eru á dagskrá í deildinni síðar í kvöld. 9.12.2006 16:16
Níu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt sinn níunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Boston á útivelli 116-111. Shawn Marion skoraði 29 stig og hirti 12 fráköst fyrir Phoenix en Paul Pierce skoraði 36 stig fyrir Boston. 9.12.2006 15:54
Tottenham yfir gegn Charlton Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tottenham hefur 2-1 forystu gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton. Dimitar Berbatov og Teemu Tainio komu heimamönnum í 2-0 en Michael Dawson jafnaði fyrir gestina með sjálfsmarki skömmu fyrir leikhlé. 9.12.2006 15:49
Góður árangur hjá Erni Sundkappinn Örn Arnarson komst í morgun í undanúrslit í 100 metra fjórsundi á EM í Helsinki þegar hann kom þriðji í mark á tímanum 54,32 sek og bætt eigið Íslandsmet í greininni um rúma sekúndu. 9.12.2006 15:32
United vann grannaslaginn Manchester United lagði granna sína í Manchester City 3-1 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney, Louis Saha og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk United en Hatem Trabelsi minnkaði muninn fyrir City - sem missti Bernardo Corradi af velli með rautt spjald á síðustu mínútunni. United hefur því náð 9 stiga forskoti á Chelsea á toppi deildarinnar. 9.12.2006 14:48
Dramatískur sigur Flensburg Lærisveinar Viggós Sigurðssonar í Flensburg tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta þegar liðið vann 10 marka sigur á Celje Lasko á heimavelli sínum 36-26. Celje vann fyrri leik liðanna einnig með 10 marka mun á heimavelli, en þýska liðið fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. 8.12.2006 22:23
Coppell stjóri nóvembermánaðar Steve Coppell, stjóri Íslendingaliðs Reading í ensku úrvalsdeildinni, var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í annað sinn á leiktíðinni. Reading hefur komið mjög á óvart í vetur og vann sigur á Tottenham, Charlton og Fulham, en tapaði fyrir Liverpool. Coppell var einnig kjörinn stjóri septembermánaðar. 8.12.2006 21:45
Sacramento - Miami á Sýn í kvöld Leikur Sacramento Kings og Miami Heat frá því liðna nótt verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:25 eftir miðnætti. Þá verður leikur Milwaukee og Memphis sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt svo það er nóg um að vera á skjánum fyrir körfuboltaáhugamenn í kvöld. 8.12.2006 21:18