Fleiri fréttir

Svíþjóð - Trinidad að hefjast

Nú er að hefjast leikur Svía og Trínídad og Tobago í B-riðli HM. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.

Eiður við það að ganga í raðir Barcelona?

Breska Sky-sjónvarpsstöðin greinir frá því nú fyrir skömmu að Barcelona sé nú aðeins hársbreidd frá því að landa Eiði Smára Guðjohnsen frá Chelsea. Því er haldið fram að Eiður sé búinn að samþykkja þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu. Kaupverðið er þó enn óljóst en sagt hlaupa á 7-10 milljónum punda.

Justin Henin-Hardenne sigraði

Belgíska tenniskonan Justin Henin-Hardenne sigraði Svetlönu Kuznetsovu 6-4 og 6-4 í úrslitaleik opna franska meistaramótsins í tennis í dag og vann þar með sinn þriðja sigur á mótinu á síðustu fjórum árum. Leikurinn stóð yfir í eina klukkustund og 36 mínútur. Þetta var fimmti stóri titill Hardenne á ferlinum.

Eriksson rólegur

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, viðurkenndi að spilamennska liðsins hefði ekki verið sérlega glæsileg í dag, en sagði aðalatriðið hafa verið að sækja öll stigin.

Englendingar lögðu Paragvæ í bragðdaufum leik

Englendingar hirtu öll stigin í opnunarleik sínum í B-riðli HM í dag þegar þeir lögðu Paragvæ 1-0. Markið kom strax á þriðju mínútu leiksins og var sjálfsmark. Enska liðið var ekki sérlega sannfærandi í leiknum, en náði takmarki sínu og hafði sigur.

Landsliðsþjálfarinn hættur

Þjóðverjinn Otto Pfister er hættur sem landsliðsþjálfari Afríkuliðs Tógó og við starfi hans tekur fyrrum aðstoðarþjálfarinn Kodjovi Mawuena. Pfister, sem var elsti þjálfarinn á HM, 68 ára, lenti í miklum deilum við knattspyrnusambandið í Tógó út af bónusgreiðslum til leikmanna og sagði af sér í kjölfarið. Fyrsti leikur Tógó á HM fer fram 13. júní og er gegn Suður-Kóreu.

Fleiri spænsk lið inni í myndinni

Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að babb sé komið í bátinn í samningaviðræðum Chelsea og Barcelona varðandi hugsanleg kaup á fyrirliða íslenska landsliðsins og fullyrðir að Valencia og annað ónefnt lið sé komið inn í myndina.

Englendingar yfir í hálfleik

Englendingar hafa enn yfir 1-0 gegn Paragvæ þegar flautað hefur verið til leikhlés. Mark enska liðsins var sjálfsmark frá Carlos Gamarra, sem skallaði knöttinn í eigið net strax á þriðju mínútu leiksins eftir aukaspyrnu frá David Beckham. Englendingar hafa verið með undirtökin í leiknum, en lið Paragvæ var eilítið að vakna til lífsins undir lok hálfleiksins.

Þvílíkur opnunarleikur á HM

Það var mikið um dýrðir á opnunar degi HM í Þýskalandi. Okkar maður Þorsteinn J var á staðnum og hafði hann meðal annars þetta að segja um stemmninguna á opnunarleiknum: "fánar í regnbogans litum, innfluttur amerískur bjór sem allir Þjóðverjar bölvuðu, en frábær fótbolti."

Öskrandi fjör útá götu

Gott kvöld, góðir gestir, þvílíkur opnunarleikur á HM, 4-2, og að sitja í þessum helgidómi, á nýja Munchenarvellinum, fánar í regnbogans litum, innfluttur amerískur bjór sem allir Þjóðverjar bölvuðu, en frábær fótbolti.

Englendingar komnir yfir

Það tók Englendinga aðeins tæpar þrjár mínútur að opna markareikning sinn á HM. Enskir hafa náð 1-0 forystu gegn Paragvæ og var markið sjálfsmark. Varnarmaður Paragvæ varð fyrir því óláni að skalla aukaspyrnu David Beckham í eigið net og liðið varð fyrir öðru áfalli skömmu síðar þegar markvörður liðsins þurfti að fara meiddur af velli.

Alonso á ráspól á Silverstone

Heimsmeistarinn Fernando Alonso á Renault verður á ráspól í breska kappakstrinum á Silverstone-brautinni á morgun. Alonso skaust naumlega fram úr Michael Schumacher og Kimi Raikkönen á lokasprettinum, en félagi Schumacher, Felipe Massa, náði fjórða besta tímanum.

England - Paragvæ að hefjast

Nú er leikur Englendinga og Paragvæ að hefjast í beinni útsendingu á S'yn. Byrjunarliðin eru klár og fjölmargir stuðningsmenn enska liðsins á Íslandi eflaust búnir að koma sér vel fyrir við sjónvarpstækin.

Sanngjarn sigur Ekvador á Pólverjum

Ekvador vann í kvöld sanngjarnan 2-0 sigur á Pólverjum í A-riðli HM. Carlos Tenorio skoraði fyrra mark Suður-Ameríkuliðsins á 24. mínútu og Agustin Delgado innsiglaði sigurinn á 80. mínútu. Tapið er pólska liðinu eflaust mikil vonbrigði, en liðið átti þó lítið meira skilið en það uppskar í leiknum í kvöld.

Tottenham hafnar 10 milljón punda tilboði í Carrick

Heimildamaður BBC greindi frá því rétt í þessu að úrvalsdeildarliðið Tottenham hefði í dag hafnað 10 milljón punda kauptilboði Manchester United í enska landsliðsmanninn Michael Carrick. Svar Tottenham á að hafa verið á þá leið að United þyrfti að tvöfalda tilboð sitt svo mark væri takandi á því.

Ósáttur við varnarmistök sinna manna

Alexandre Guimaraes var ekki sáttur við varnarvinnu sinna manna í dag eftir ósigur gegn heimamönnum Þjóðverjum. "Við náðum að jafna leikinn, en svo gerum við klaufamistök og það er alltaf erfitt að fara inn í hálfleikinn marki undir. Við vissum að Þjóðverjarnir yrðu erfiðir, en svo þegar þeir skora þriðja markið eftir skyndisókn, var vitað mál að róðurinn yrði þungur," sagði Guimaraes.

Ekvador yfir í hálfleik

Ekvador hefur yfir 1-0 gegn Pólverjum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leiknum í A-riðli HM. Það var Carlos Tenorio sem skoraði mark Ekvador á 24. mínútu með skalla.

Mjög ánægður með baráttuna

Jurgen Klinsmann hrósaði leikmönnum sínum fyrir góðan baráttuanda í dag eftir að lið hans lagði Kosta Ríka 4-2 í opnunarleiknum. Hann hrósaði ekki síst markaskorurunum Philip Lahm og Miroslav Klose.

Ekvador komið yfir

Ekvador er nokkuð óvænt komið í 1-0 gegn Pólverjum í leik liðanna í A-riðlinum á HM. Það var Carlos Tenorio sem skoraði markið með laglegum skalla á 24. mínútu.

Drogba hugsar málið eftir HM

Nokkur orðrómur hefur verið á kreiki á Englandi undanfarna daga um að framherjinn Didier Drogba gæti verið á förum frá meisturum Chelsea. Drogba segist ekki vera að hugsa um að fara frá félaginu, en ætlar þó að nota tímann á HM til að hugsa málið.

Byrjunarlið Póllands og Ekvador klár

Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin fyrir leik Pólverja og Ekvadora í A-riðli sem hefst klukkan 19:00 og er í beinni á Sýn. Leikurinn fer fram á hinum glæsilega Schalke Arena velli í Gelsenkirchen

Klose sá fimmti sem skorar á afmælisdaginn sinn

Þjóðverjinn Miroslav Klose fagnaði 28 ára afmælisdegi sínum með því að skora tvö mörk í opnunarleik heimsmeistarakeppninnar gegn Kosta Ríka. Klose varð þar með fimmti leikmaðurinn í sögu HM til þess að skora á afmælisdaginn sinn og sá annar í röðinni sem skorar tvö mörk á fæðingardegi sínum.

Stórskotahríð Þjóðverja

Þjóðverjar lögðu Kosta Ríka 4-2 í frábærum opnunarleik á HM í dag. Afmælisbarnið Miroslav Klose skoraði tvö mörk fyrir þýska liðið og þeir Philip Lahm og Torsten Frings skoruðu stórkostleg mörk með langskotum. Gamla brýnið Paulo Wanchope skoraði bæði mörk Kosta Ríka og ekki er hægt að segja annað en að mótið fari frábærlega af stað.

Wanchope minnkar muninn

Paulo Wanchope er búinn að minnka muninn í 3-2 fyrir Kosta Ríka gegn Þjóðverjum í opnunarleiknum á HM, sem er búinn að vera hin besta skemmtun. Markið kom á 73. mínútu og greinilegt að Kosta Ríka-menn eru ekki búnir að segja sitt síðasta í leiknum.

Klose búinn að skora aftur

Miroslav Klose var rétt í þessu að skora sitt annað mark fyrir Þjóðverja gegn Kosta Ríka og því er staðan orðin 3-1 fyrir heimamenn Þjóðverja. Markið kom á 61. mínútu og þess má til gamans geta að Klose á einmitt afmæli í dag.

Nadal og Federer mætast í úrslitum

Spænski táningurinn Rafael Nadal vann í dag nokkuð auðveldan sigur á Ivan Ljubicic í undanúrslitum opna franska meistaramótsin, 6-4, 6-2 og 7-6 (9-7) og mætir því Roger Federer í úrslitaleik mótsins á sunnudag. Federer lagði David Nalbandian fyrr í dag og þeir félagar mætast því í úrslitaleik í annað sinn á stuttum tíma.

Þjóðverjar yfir í hálfleik

Þjóðverjar hafa yfir 2-1 yfir í hálfleik gegn Kosta Ríka í opnunarleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, sem hefur verið frábær skemmtun til þessa. Philip Lahm kom heimamönnum yfir með stórkostlegu marki eftir 6 mínútur, Paulo Wanchope jafnaði skömmu síðar og það var svo Miroslav Klose sem kom þýska liðinu yfir aftur eftir 18 mínútur. Leikurinn er sýndur í opinni dagskrá á Sýn.

Klose kemur Þjóðverjum yfir á ný

Það er allt að verða vitlaust á Allianz Arena í Munchen, en eftir aðeins 18 mínútur er staðan orðin 2-1 fyrir Þjóðverja. Það var framherjinn Miroslav Klose sem kom Þjóðverjum yfir á ný eftir laglega sókn.

Stórkostlegt opnunarmark hjá Lahm

Bakvörðurinn Philip Lahm hjá Þýskalandi skoraði opnunarmark HM með stórkostlegum hætti stax á 6. mínútu leiksins gegn Kosta Ríka nú áðan. Hann fékk boltan fyrir utan vítateig og þrumaði honum í stöng og inn. Það tók Paulo Wanchope hinsvegar aðeins 6 mínútur að jafna leikinn og því má segja að keppnin byrji með látum.

Heimsmeistarakeppnin er hafin

Opnunarleikurinn á HM er nú hafinn. Það eru Þjóðverjar og Kosta Ríka sem leiða saman hesta sína og leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn, en þess ber að geta að opnunarleikurinn er sýndur í opinni dagskrá.

Eriksson er að gera mistök

Framherjinn Jermain Defoe er nú kominn aftur heim til Lundúna eftir að hann ákvað að vera ekki áfram með enska landsliðinu í Þýskalandi þrátt fyrir boð þess efnis. Defoe þurfti að sætta sig við að vera settur út úr hópnum í stað Wayne Rooney og Martin Jol, sjóri Tottenham, segir Sven-Göran Eriksson sé að gera mistök með vali sínu á landsliðinu.

Ballack ekki í liði Þjóðverja

Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin fyrir opnunarleikinn á HM milli gestgjafanna Þjóðverja og Kosta Ríka. Michael Ballack er ekki í liði Þjóðverja vegna meiðsla.

Tottenham samþykkir tilboð í Kelly

Úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur samþykkt kauptilboð Birmingham í írska bakvörðinn Stephen Kelly, en hann hefur alla tíð spilað með Lundúnaliðinu. Hann spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild árið 2003 og 22 ára gamall. Kelly á þó enn eftir að semja um kaup og kjör við forráðamenn Birmingham.

Mikið um dýrðir á opnunarhátíðinni

Það er sannarlega mikið um dýrðir í Munchen þessa stundina þar sem opnunarhátíð HM stendur nú sem hæst. Gamlar hetjur úr heimsmeistaraliðum fyrri ára eru nú að ganga inn á leikvanginn undir lófataki áhorfenda. Herlegheitin eru öll í beinni útsendingu á Sýn og ekki laust við að spenna sé í loftinu, nú þegar styttist óðum í opnunarleikinn.

Gæti notað Rooney í riðlakeppninni

Breska sjónvarpið hefur í dag eftir heimildamönnum sínum hjá enska landsliðinu að svo gæti farið að Sven-Göran Eriksson tæki áhættu og notaði Wayne Rooney jafnvel strax í riðlakeppninni. Ef af þessu verður er nokkuð víst að það muni vekja reiði forráðamanna Manchester United, sem óttast mjög að Rooney verði látinn spila of snemma eftir fótbrot.

Gerrard klár á morgun

Miðjumaðurinn Steven Gerrard verður líklega í byrjunarliði Englendinga á morgun þegar liðið spilar opnunarleik sinn á HM gegn Paragvæ. Gerrard sagði í gær að aðeins helmingslíkur væru á því að hann yrði klár vegna meiðsla, en breska sjónvarpið hefur eftir heimildarmanni sínum að Gerrard ætli að spila á morgun.

Kóngur um stund

Hestaþátturinn Kóngur um stund, sem var á Stöð 2 í fyrra, heldur áfram á RÚV í sumar. Áfram er tilgangurinn að skemmta áhorfendum og vekja áhuga á íslenska hestinum og hestamennsku um leið, líka meðal þeirra sem lítið sem ekkert hafa kynnst þessu ótrúlegu og einstöku skepnu.

Spámaðurinn

Þorsteinn J. Vilhjálmsson spáir um úrslitin í leikjum dagsins á HM í Þýskalandi. Leikir dagsins eru Þýskaland - Kosta Ríka kl 16 og Póland - Ekvadór kl 19.

Styttist í opnunarleikinn

Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst í dag. Flestir sparksérfræðingar eru sammála um að Þjóðverjar vinni Kosta Ríka auðveldlega í opnunarleik HM sem fer fram í kvöld, þrátt fyrir að vera án Michael Ballack.

Hann spilar, spilar ekki, spilar...

Morgun, 1.dagur: 2DF sjónvarpstöðin er að telja niður, 8 klukkustundir, og tæplega 40 mínútur í fyrsta leik. Þulurinn, kona á þrítugsaldrei, er í skærustu dragt sem ég hef nokkurn tíma séð, skærgræn, litur vonarinnar, hún er hress og kynnir efni í morgunþáttinn

Hélt heim í jarðaför

Oswaldo Sanchez, markvörður Mexíkó, yfirgaf í gær æfingabúðir Mexíkómanna og hélt heim til Mexíkó til þess að vera viðstaddur jarðarför föður síns.

Úrslit hjá Hornfirðingi

Félagsmót hestamannafélagsins Hornfirðings fór fram í blíðskaparveðri nú um helgina. Mótið sem jafnframt var úrtaka fyrir landsmót var vel sótt og gekk mjög vel að sögn mótshaldara. Um 60 knapar og hross mættu til leiks.

Skráningarfrestur vegna ræktunarbússýninga á LM

Hrossaræktendur eru minntir á að frestur til að skrá ræktunarbú á Landsmót 2006 rennur út sunnudaginn 11. júní nk. Hægt er að sækja um þátttöku með því að senda tölvupóst á landsmot@landsmot.is merkt "Ræktunarbú." Þar þurfa að koma fram upplýsingar um þau hross er ætlunin er að sýna, aldur, ættir og árangur, ásamt stuttri kynningu á búinu.

Jason Terry fór á kostum í sigri Dallas

Dallas Mavericks hefur náð 1-0 gegn Miami Heat í lokaúrslitum NBA eftir 90-80 sigur á heimavelli sínum í nótt. Hinn frábæri Jason Terry varpaði skugga á stórstjörnurnar í gær þegar hann skoraði 32 stig og var maðurinn á bak við sigur Dallas.

Sjá næstu 50 fréttir