Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kia EV6 Bíll ársins í Þýskalandi Hinn nýi rafbíll Kia EV6 hefur verið valinn Bíll ársins 2022 í Premium flokki í Þýskalandi. Verðlaunin þykja ein þau eftirsóknarverðustu í bílaheiminum. Kia EV6 hafði betur í baráttu við Volkswagen ID4, Audi Q4 e-tron, Skoda Enyaq og Hyundai Ioniq 5 í Úrvalsflokknum. 30.10.2021 07:02
Rafjepplingurinn BMW iX frumsýndur BMW á Íslandi frumsýnir á morgun laugardag, milli kl. 12 og 16, nýtt flaggskip rafbíla þýska framleiðandans BMW Group þegar hulunni verður svipt af hinum fjórhjóladrifna og rúmgóða BMW iX, sem óhætt er að fullyrða að setji ný viðmið í flokki rafknúinna í jepplingaflokki (SUV). 29.10.2021 07:01
Ofurhleðslustöðvar Tesla ná allan hringinn Tesla hefur nú tryggt að hringvegurinn er fær þeim sem vilja notast við ofurhleðslustöðvar Tesla. Tesla opnaði nýlega stöðvar á Höfn og á Akureyri sem þýðir að Hringvegurinn er orðinn greiðfær, aldrei meira en 300 km. á milli ofurhleðslustöðva. 27.10.2021 07:00
Jamie Chadwick meistari í W Series í annað sinn Hin breska Jamie Chadwick vann W Series mótaröðina í annað sinn á COTA brautinni í Texas um helgina. Chadwick er þá orðin tvöfaldur meistari í mótaröð sem hefur bara farið fram tvisvar. Stóru liðin í Formúlu 1 hljóta að fara að veita henni meiri athygli. 25.10.2021 07:01
Úrslitin í W Series ráðast í Texas um helgina Ríkjandi meistari, Jamie Chadwick og Alice Powell eru líklegastar til að tryggja sér titilinn í W Series í Austin, Texas í Bandaríkjunum um helgina. Síðasta keppni tímabilsins er á dagskrá í kvöld. 24.10.2021 07:00
Rafael Nadal hvetur fólk til að eiga rafbíla Tennisleikarinn heimsþekkti Rafael Nadal hvetur fólk til að eignast rafbíla og keyra um á umhverfismildari hátt. Nadal fékk afhentan nýjan Kia EV6 rafbíl við hátíðlega athöfn í heimabæ tenniskappans í Manacor á Mallorca. Nadal mun nota bílinn á ferðalögum sínum og tenniskeppnum víða í Evrópu. 22.10.2021 07:00
Skortur á magnesíum mun líklegast hafa mikil áhrif á framleiðslu bíla Þegar þú sest upp í bílinn þinn að morgni til þá hugsar þú sennilega ekki um öll hráefnin sem notuð eru við framleiðslu bílsins. Þá sérstaklega málminn sem notuð er í undirvagn og byggingu bílsins. Mikill magnesíum skortur mun hugsanlega þvinga allar bílaverksmiðjur til að hætta framleiðslu fyrir lok árs, samkvæmt sérfræðingum. 20.10.2021 07:01
Rivian R1T er kominn í hendur kaupenda Framleiðsla á Rivian R1T, rafpallbílnum hófst í september, fyrstu bíalrnir rúlluðu út af færbandinu þann 14. september. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá tvo bíla sem líklega eru á leið til viðskiptavina í Oklahoma. 18.10.2021 07:00
Formúlu 1 ökumaðurinn Daniel Ricciardo prófar NASCAR Daniel Ricciardo er frægur fyrir afrek sín á kappakstursbrautum í Formúlu 1 bíl og að gleyma aldrei góða skapinu heima. Hann gerir alla jafna veðmál við stjórnendur þeirra liða sem hann ekur fyrir. Nú er veðmálið um að fá að prófa NASCAR bíl sem Dale Earnhardt ók á sínum tíma. Hann er mikil hetja Ricciardo og ástæða þess að hann valdi sér keppnisnúmerið þrír. 17.10.2021 07:00
Mercedes-AMG One er loksins staðfestur á næsta ári Loksins hefur Mercedes-AMG staðfest að One, bíllinn er væntanlegur á næsta ári. Komu bílsins hefur ítrekað verið frestað en nú er hann stað. One er innblásinn af Formúlu 1 bíl Mercedes AMG liðsins, sem er eitt það sigursælasta í sögu Formúlu 1. 15.10.2021 07:00
Myndband: Model Y og ID.6 árekstrarprófaðir í Kína Áhugaverð árekstrarprófun tveggja nýrra rafbíla, Tesla Model Y og Volkswagen ID.6. Bílarnir voru á 64 km/klst. hvor, hálf miðjusettir gegn hvor öðrum. Nálgunarhraði er því 128 km/klst. Báðir bílar standa sig vel eins og sjá má á myndbandinu frá Car Crash Test. 13.10.2021 07:02
Úkraínskt sprotafyrirtæki kynnir rafmótorhjól Hugmyndin er að smíða rafdrifið mótorhjól í Scrambler stíl. Gróf dekk og góðfjöðrun með fremur uppréttri setustöðu. Fyrirtækið heitir EMGo Technology. 11.10.2021 07:00
Tesla Model Y - Rafjepplingur sem virkar fyrir vísitölufjölskyldu og fleiri Tesla Model Y hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Bíllinn er fimm manna raf(sport)jepplingur. Sjö sæta útgáfan er væntanleg. Bíllinn er eins og aðrar Tesla bifreiðar, vel úthugsaðar. Þemað við fyrstu kynni af Tesla bifreiðum er „af hverju var ekki einhver löngu búinn að þessu?“ Svarið er vanalega að slíkar breytingar séu tímafrekar og flóknar fyrir rótgróna bílaframleiðendur. 10.10.2021 07:01
BL frumsýnir sportlega jepplinginn Renault Arkana hybrid Renault Arkana verður frumsýndur hjá BL við Sævarhöfða á morgun, laugardag, 9. október milli 12 og 16. Hönnun Arkana er í senn sportleg og kraftmikil þar sem koma saman aflíðandi línur og afturhallandi baksvipurinn. Arkana ber sterkan svip sportjeppa, bæði vegna hressandi útlitsins en einnig vegna þess hve veghæð undirvagnsins er mikil. Renault undirstrikar svo sportlegt yfirbragðið með mögulegum aukahlutum á borð við stigbretti, vindskeið að aftan og aðkomuljós á undirvagni svo nokkuð sé nefnt. 8.10.2021 07:00
400 Tesla bifreiðar nýskráðar í september Tesla var með langflestar nýskráningar í september, 400 talsins og skiptust þannig að Model Y var með 284 nýskráningar og Model 3 með 116. Næsti framleiðandi var Kia með 146 nýskráningar. Þar á eftir kemur Hyundai með 142 nýskráningar samkvæmt tölum á vef Samgöngustofu. 6.10.2021 07:01
Rafbílavæðing sparaði 66°Norður 19 tonn CO2 í útblæstri 66°Norður hefur fengið afhenta níu Kia e-Niro rafbíla frá Bílaumboðinu Öskju sem eru þegar komnir í notkun hjá fyrirtækinu. 4.10.2021 07:00
Kia EV6 - Getur rótgróinn bílaframleiðandi framleitt góðan rafbíl? Kia kynnti í upphafi árs nýtt lógó og nýja rafbílalínu, EV línuna sem á að ná frá 1 og upp í 9, samkvæmt vörumerkjaskráningum Kia. Blaðamanni Vísis var nýlega boðið til Frankfurt með Öskju til að prófa fyrsta meðlim EV fjölskyldu Kia, EV6. 2.10.2021 07:01
Hyundai frumsýnir rafbílinn Ioniq 5 Hyundai á Íslandi kynnir á morgun, laugardag 2. október milli kl. 12 og 16 rafbílinn Ioniq 5 sem er alveg nýr bíll, hannaður frá grunni; búinn miklum þægindum og tækni sem ekki hafa sést áður í bílum framleiðandans. 1.10.2021 07:00
Rafmögnuð jeppasýning Ísband, umboðsaðili Jeep og RAM á Íslandi blæs til glæsilegrar og rafmagnaðrar jeppasýningar laugardaginn 2. október. Þar verður 4xe Plug-In-Hybrid línan frá Jeep sýnd, Jeep Wrangler Rubicon 4xe, Jeep Compass 4xe og Jeep Reneagde 4xe, jeppar með alvöru fjórhjóladrifi í Plug-In-Hybrid útfærslu. 29.9.2021 07:01
Rivian R1T lendir í sínum fyrsta árekstri Allir bílar þurfa að lenda í sínum fyrsta árekstri og almennt er smávægilegt samstuð ekki fréttnæm en þetta var frekar furðulegt, auk þess sem R1T er búinn hinum ýmsa búnaði sem ætti að koma í veg fyrir árekstra. 27.9.2021 07:01
Viaplay sýnir allar Indycar keppnir Nordic Entertainment Group (NENT Group) hefur útvíkkað réttindi sín til sýninga á NTT INDYCAR SERIES til ársins 2024. Streymisveitan Viaplay, sem er í eigu NENT Group, heldur sýningum frá helstu kappaksturskeppnum Norður-Ameríku áfram á Íslandi sem og á hinum Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Sænsku stjörnubílstjórarnir Marcus Ericsson – sem hyggst taka feril sinn í INDYCAR SERIES upp á næsta stig eftir titilbaráttuna 2021 – og Felix Rosenqvist hafa nú þegar verið tilkynntir sem þátttakendur við ráslínuna á nýju tímabili sem hefst í febrúar 2022. 26.9.2021 07:01
Óstöðugar rafhlöður í Opel Ampera-e og Chevrolet Bolt Rafbílarnir Opel Ampera-e og Chevrolet Bolt hafa verið að valda vandræðum. Þær eru að sögn „óstöðugar“. Það þýðir að gæta þarf að hvernig gengið er um rafhlöðurnar annars getur kviknað í þeim. 24.9.2021 07:01
Ford Bronco Raptor væntanlegur á næsta ári Ford hefur nú staðfest hið illa varðveitta leyndarmál að Ford Bronco Raptor er væntanlegur á næsta ári. Hann mun líklega nota 450 hestafla vélina sem F-150 Raptor notar og vera á sérstakri fjöðrun, stærri dekkjum og hærri en upprunalega útgáfan. 22.9.2021 07:00
Rannsókn á Procar-málinu að ljúka Rannsókn á Procar-málinu svokallaða er á lokastigi og verður málið sent til Ríkissaksóknara í kjölfarið samkvæmt upplýsingum frá Héraðssaksóknara. 21.9.2021 07:01
Mercedes-Benz EQA - Rafjepplingur en klassískur Benz EQA er fimm manna rafjepplingur sem hentar fólki sem hefur fágaðan en einfaldan smekk. Bíllinn er augljóslega Mercedes-Benz, þegar setið er í honum og honum ekið. 19.9.2021 07:01
Lucid Air dregur opinberlega 836 kílómetra Rafbíllinn Lucid Air Dream Edition hefur fengið formlega drægni mælingu upp á 836 km. Það er rúmlega 180 km meira en sú Tesla sem lengst dregur á einni hleðslu. Afhendingar á Lucid Air eiga að hefjast í lok árs. 17.9.2021 07:00
Askja og bílaframleiðandinn smart hefja samstarf Á IAA Mobility 2021 bílasýningunni í Munich, frumsýndi smart Concept #1 rafbílinn en um er að ræða rafmagnsbíl í flokki borgarjepplinga. Bíllinn sem er fjórhjóladrifinn er hannaður af Mercedes-Benz og framleiddur í nýrri verksmiðju smart í Kína. 15.9.2021 07:01
9 sæta Peugeot e-Traveller kominn í forsölu Brimborg kynnir, langdrægan Peugeot e-Traveller 9 sæta 100% rafbíl með 75 kWh drifrafhlöðu með allt að 330 km drægni á 100% hreinu rafmagni. Peugeot e-Traveller er fáanlegur 9 sæta í Business eða Allure útfærslu í tveimur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. 13.9.2021 07:01
Mercedes-Benz EQE frumsýndur í München Mercedes-Benz EQE verður frumsýndur á bílasýningunni í München sem nú er hafin. EQE verður fyrsti stóri alrafdrifni fólksbílinn frá þýskum bílaframleiðanda og er hans beðið með mikilli eftirvæntingu eins og gefur að skilja enda hefur forverinn Mercedes-Benz E-Class verið mjög vinsæll sem lúxusbíll í gegnum árin. Nýr EQE mun koma á markað á næsta ári. 12.9.2021 07:01
BL frumsýnir nýjan Nissan Qashqai Þriðja kynslóð vinsælas jepplingsins, Nissan Qashqai, er komin í sýningarsal BL við Sævarhöfða og verður hann kynntur formlega á morgun, laugardaginn 11. september milli kl. 12 og 16. Eins og áður er Qashqai í boði með vali um annað hvort framjóladrif eða fjórhjóladrif, en þar líkur má segja samanburðinum við fráfarandi kynslóð enda hefur bíllinn tekið talsverðum breytingum frá fyrri kynslóð. Það á við hvort heldur sem er við útlit bílsins, farþegarými eða tæknibúnað. 10.9.2021 07:01
Volkswagen staðfestir hraðskreiðan rafhlaðbak Ralf Brandstätter, yfirmaður Volkswagen hefur staðfest að fyrirtækið hyggist framleiða ID.X sem er hraðskreiður rafhlaðbakur, væntanlegur á markað á næsta ári. Hann verður um 329 hestöfl. 8.9.2021 07:01
Þrefalt toppsæti hjá Volvo vörubílum frá Velti Volvo vörubílar eru þeir vinsælustu á Íslandi árið 2021 og hefur salan aukist meira en 240% það sem af er ári og trónir Volvo í þremur toppsætum á árinu. Volvo vörubílar eru mest seldir á heildarmarkaði vörubíla, mest seldir í flokki vörubíla yfir 16 tonn og Volvo FH16 er mest selda einstaka gerðin. 6.9.2021 07:00
Skoda Enyaq iV - rafjepplingur fyrir fjölskyldur Skoda Enyaq iV er fimm manna rafjepplingur sem er ætlað að virka fyrir fjölskyldufólk og vera umhverfisvænn á meðan. Bíllinn er smekklega hannaður og vel samsettur, auk þess sem hann er rúmgóður. 5.9.2021 07:00
Kia mest nýskráði framleiðandinn í ágúst Flestar nýskráningar í ágúst voru á bílar framleiddir af Kia eða 143, Toyota var í örðu sæti með 134 nýjar bifreiðar nýskráðar. Hyundai í þriðja sæti með 77 nýskráningar. 3.9.2021 07:01
Fimmta kynslóð Kia Sportage hönnuð fyrir Evrópumarkað Kia frumsýndi í gær fimmtu kynslóð hins vinsæla Sportage sem verið hefur einn söluhæsti bíll bílaframleiðandans undanfarin ár. Nýr Kia Sportage er sérstaklega hannaður fyrir Evrópumarkað því í fyrsta skipti í 28 ára sögu Sportage kemur sérstök Evrópu útfærsla af bílnum. 2.9.2021 07:01