Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvenleiðtogar sameinast í baráttunni gegn COVID-19 Sameinuðu þjóðirnar með kvenleiðtoga í fylkingarbrjósti hafa hleypt af stokkunum átakinu „Rise for All“ um félagslega og efnahagslega endurreisn vegna kórónafaraldursins. 29.4.2020 13:12
COVID-19: Stuðningur Íslands við flóttamannabyggðir í Úganda Stofnanir Sameinuðu þjóðanna í Úganda hafa í samstarfi við tuttugu samstarfsstofnanir birt ákall um 47 milljarða króna stuðning til að draga úr áhrifum COVID-19 farsóttarinnar. 27.4.2020 12:35
Annað neyðarástand má ekki gleymast á tímum faraldursins Heimsfaraldurinn sem nú geisar af völdum kórónaveirunnar er viðbót við annað neyðarástand víðs vegar um heiminn sem má ekki gleymast né draga úr stuðningi við. 24.4.2020 12:26
Konur verði þungamiðja viðbragðsáætlana vegna faraldursins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat fjarfund kvenleiðtoga í vikunni þar sem ítrekað var mikilvægi þess að konur og stúlkur verði þungamiðja viðbragðsáætlana og aðgerðaáætlana í bataferli heimsbyggðarinnar vegna kórónuveirufaraldursins. 22.4.2020 16:13
Óttast að tvöfalt fleiri verði við hungurmörk í árslok Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) varaði í dag við gífurlegri fjölgun hungraðra í heiminum vegna COVID-19 farsóttarinnar. 21.4.2020 11:35
Heimsfaraldur drepsóttar var það síðasta sem börnin þurftu Staðfest smit kórónuveirunnar í Miðausturlöndum og Norður-Afríku eru rúmlega 105 þúsund og dauðsföllin 5.700. Hvergi í heiminum eru fleiri börn í neyð vegna stríðsátaka. 20.4.2020 12:50
Áhrif COVID faraldursins á fátæk ríki helsta umræðuefnið Áskoranir í tengslum við COVID-19 faraldurinn og áhrif hans á fátækari ríki heims voru efst á baugi á fundi þróunarnefndar Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr í dag. 17.4.2020 19:30
Verndum börnin okkar, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Efnahagslegar afleiðingar vegna kórónaveirunnar gætu leitt til dauðsfalla hundruð þúsunda barna. Sá árangur sem náðst hefur við að draga úr barnadauða gæti horfið samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna. 17.4.2020 16:42
Börn berskjölduð gagnvart skuggahliðum netsins í heimsfaraldri COVID-19 UNICEF varar við aukinni hættu á netofbeldi gagnvart börnum nú þegar stór hluti daglegs lífs hefur færst yfir í netheima vegna COVID-19. 15.4.2020 09:29
Mannúðaraðstoð af hálfu stjórnvalda nýtur stuðnings 90% þjóðarinnar Samkvæmt nýrri könnun fyrir utanríkisráðuneytið telja rúmlega níu af hverjum tíu Íslendingum (90,3%) mjög eða fremur mikilvægt að íslensk stjórnvöld veiti mannúðaraðstoð. 14.4.2020 11:16
COVID-19: Óttast að þrjár milljónir láti lífið í þróunarríkjunum Barnaheill – Save the Children hefur hrundið af stað umfangsmesta fjáröflunarátaki í hundrað ára sögu samtakanna til þess að styðja við börn og fjölskyldur þeirra í COVID-19 heimsfaraldrinum. 7.4.2020 16:05
Heimilisofbeldi: Hættan mest þar sem öryggið ætti að vera mest António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kallar eftir leiðum til að bregðast við gífurlegri fjölgun tilvika heimilisofbeldis gegn konum og stúlkum, í ljósi takmarkana á ferðum fólks og útgöngubanni. 6.4.2020 10:06
Ellefu ríki hafa þegar fallist á vopnahlé Ellefu ríki sem eiga aðild að stríðsátökum hafa fallist á að leggja niður vopn samkvæmt tilmælum Sameinuðu þjóðanna. Sjötíu ríki hafa lýst yfir stuðningi við vopnahlé á heimsvísu. 3.4.2020 15:53
UNICEF óttast hrun heilbrigðiskerfisins í Kongó Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna óttast að COVID-19 verði til þess að heilbrigðiskerfi Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó hrynji. Laskað heilbrigðiskerfi þurfi verulegan stuðning til að halda uppi vörnum gegn yfirstandandi faraldri mislinga og kóleru sem hafi þegar orðið þúsundum barna að aldurtila. 2.4.2020 09:43
Ísland styður ákall um vopnahlé á heimsvísu Ísland tekur undir yfirlýsingu 53 ríkja sem lýsa stuðningi við ákall António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á heimsvísu. 1.4.2020 11:01
Stafræn fjáröflunarherferð Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) hefur hrundið af stað stafrænni fjáröflunarherferð til stuðnings þeim sem þjást af ósýnilegum afleiðingum COVID-19 faraldursins 31.3.2020 11:23
Óttast hræðilegar afleiðingar faraldursins í Afríku Fulltrúar SOS Barnaþorpanna óttast hræðilegar afleiðingar faraldursins þegar hann leggst að fullum þunga á Áfríku. Heilbrigðiskerfi margra afrískra landa eru nú þegar sprungin af völdum annarra sjúkdóma. 30.3.2020 09:30
Smitum fjölgar með ógnarhraða í Afríku Alls hafa 2.412 tilfelli verið staðfest í 43 löndum í Afríku – en það er 500% aukning frá 17. mars. Gríðarlegt álag er á heilbrigðisstofnanir í álfunni 26.3.2020 15:44
Sameinuðu þjóðirnar: Alþjóðleg aðgerðaráætlun vegna kórónaveirunnar António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fór í gær fram á 268 milljarða króna fjárhagsaðstoð til að standa straum af mannúðaraðstoð við þau ríki sem höllustum fæti standa gagnvart kórónafaraldrinum. 26.3.2020 10:52
Kórónaveiran veikir stöðu kvenna Fulltrúar UN Women í Asíu segja það staðreynd að í neyðaraðstæðum séu konur berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi. 24.3.2020 12:00
Tímabundið dregið úr starfsemi sendiráða Íslands í Afríku Sendiráð Íslands í Úganda og Malaví munu draga úr starfsemi sinni næstu vikur vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Útsendir starfsmenn munu snúa heim tímabundið. 23.3.2020 12:30
COVID 19: Aukin hætta á að börn sæti ofbeldi UNICEF hvetur stjórnvöld um allan heim til að tryggja öryggi og velferð barna í því félags- og efnahagslega ástandi sem skapast hefur vegna Covid-19 heimsfaraldursins. 23.3.2020 10:15
Við eigum í stríði við veiru António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti í gær þjóðir heims til að sameinast í baráttunni gegn kórónaveirunni og COVID-19. „Heimur okkar stendur andspænis sameiginlegum óvini." 20.3.2020 12:42
Brýnt að halda áfram lífsbjargandi aðgerðum Kórónaveiran hefur nú breiðst út til rúmlega 140 landa. Sumar þjóðanna sem glíma við veiruna áttu fyrir í harðri lífsbaráttu vegna vopnaðra átaka, náttúruhamfara og afleiðinga loftslagsbreytinga. 18.3.2020 14:45
Áhersla lögð á að bæta aðstöðu og öryggi stúlkna Aðgangur stúlkna að framhaldsskólum og háskólanámi kemur ekki einungis þeim til góða heldur líka fjölskyldum þeirra og samfélaginu. Utanríkisráðuneytið styrkir verkefni SÍK í Kenya. 17.3.2020 11:20
Úganda: Stækkaður fiskmarkaður og endurbætt vatnsveita Stækkaður fiskmarkaður og endurbætt vatnsveita voru tekin í notkun við Albertsvatn í Úganda í vikunni. Utanríkisráðuneytið, í gegnum sendiráðið í Kampala, fjármagnaði framkvæmdir. 16.3.2020 11:00
Falsfréttum um kórónaveiruna dreift í nafni alþjóðastofnana Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) fordæmir dreifingu á falsfréttum og röngum upplýsingum um viðbrögð og varnir við Covid-19 veirunni. 13.3.2020 09:09
Ári eftir Idai fellibylinn eiga margir enn um sárt að binda Án fjármögnunar og aðgerða í loftslagsmálum verður ómögulegt að takmarka slæm áhrif loftslagsbreytinga á þau ríki sem eru viðkvæm fyrir að mati alþjóðlegu hjálparstofnananna, Save the Children, CARE international og Oxfam. 12.3.2020 10:20
COVID-19: Tæplega 28 milljónir til að draga úr útbreiðslu í Afríku og Miðausturlöndum Rauði krossinn á Íslandi ákvað í dag, með rausnarlegum stuðningi utanríkisráðuneytisins, að veita tæpum 28 milljónum til aðgerða Alþjóða Rauða krossins í baráttunni við COVID-19 vírusinn í Afríku og Miðausturlöndum. 11.3.2020 16:00
Síðasti áratugur sá hlýjasti í sögunni Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um stöðu loftslagsmálai eru staðfestar bráðabirgðaniðurstöður sem lagðar voru fram á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember síðastliðnum sem sýndu að árið 2019 var næst heitasta ár frá upphafi mælinga. 11.3.2020 13:15
Sérfræðingar frá Perú og Kólumbíu væntanlegir í Jarðhitaskólann Perú hefur töluverðan fjölda af jarðhitasvæðum og góða möguleika á nýtingu jarðhita til húshitunar og orkuframleiðslu. Þörfin er einnig mikil og þá sérstaklega í háfjallaþorpum í Andesfjöllunum þar sem um 200 manns deyja árlega úr kulda,“ segir Málfríður Ómarsdóttir umhverfisfræðingur Jarðhitaskóla GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. 11.3.2020 10:00
Pekingsáttmálinn ítrekaður og staðfestur á ný Árlegur fundur kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York er fámennur að þessu sinni vegna kórónaveirunnar. Aðeins fastanefndir ríkjanna ásamt kvennasamtökum í New York taka þátt í fundinum í ár. 10.3.2020 10:00
Nýtt heimsátak í jafnréttisbaráttunni: Jafnréttiskynslóðin UN Women hefur hleypt af stokkunum nýju heimsátaki með yfirskriftinni: Jafnréttiskynslóðin (Generation Equality). 9.3.2020 10:15
Tæplega ein milljón flúið í Sýrlandi á síðustu þremur mánuðum Tæplega ein milljón manna hefur neyðst til að flýja heimili sín í Sýrlandi frá byrjun desember á síðasta ári, á síðustu þremur mánuðum. Ástandið í norðvesturhluta landsins hefur aldrei verið verra en einmitt nú samkvæmt skýrslu Save the Children. Börn eru 60 prósent flóttafólks, þau eru helstu fórnarlömb átakanna og á fyrstu tveimur mánuðum ársins féllu 77 börn á átakasvæðum. 6.3.2020 13:15
Þörf á að breyta viðhorfi og hegðun gagnvart stúlkum Framfarir í menntun, og sú staðreynd að fleiri stelpur en nokkru sinni fyrr ljúka grunnskóla og halda áfram námi, hefur ekki marktækt breytt því að stelpur búa enn við ójöfnuð og ofbeldi. 5.3.2020 14:15
Vill hefja kartöflurækt en á ekki fyrir útsæði Utanríkisráðuneytið veitti á dögunum Creditinfo Group hf. tæplega 23 milljóna króna styrk til verkefnis í Vestur-Afríku sem snýst um að vinna lánshæfisgreiningar fyrir smáfyrirtæki og einyrkja í því skyni að bæta aðgengi eigenda þeirra að lánsfé. 4.3.2020 13:15
Neyðarfjármagn frá Alþjóðabankanum vegna COVID-19 Í ljósi þess að kórónaveiran breiðist hratt út um heiminn og hefur þegar greinst í rúmlega sextíu löndum hefur Alþjóðabankinn ákveðið að verja nú þegar tólf milljörðum bandarískra dala – tæpum 1600 milljörðum íslenskra króna – í stuðning við þróunarríki. 4.3.2020 11:00
Tímabært að tryggja börnum öruggt aðgengi að hæli og alþjóðlegri vernd Afshan Khan, yfirmaður UNICEF í Evrópu og Mið-Asíu og flóttamannahjálparinnar í Evrópu segir ekkert eitt ríki geti annað flóttamannastraumnum frá Sýrlandi. Öll Evrópa verði að standa við bakið á Grikkjum og Tyrkjum sem undanfarin ár hafa tekið móti gríðarmiklum fjölda fjölskyldna á flótta. Ekkert barn ætti að þurfa að stefna lífi sínu í voða í leit að öryggi. 3.3.2020 16:00
Fylgjumst náið með innleiðingu stefnunnar Að óbreyttu verða íbúar stríðshrjáðra ríkja tveir af hverjum þremur sárafátækum eftir tíu ár, segir í nýrri stefnu Alþjóðabankans um óstöðugleika, átök og ofbeldi. 3.3.2020 10:00
Konur eru ekki frávik frá reglu karlmanna António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur heitið því að beita persónulegum áhrifum sínum í þágu jafnréttis kynjanna, þar á meðal til höfuðs lögbundinni kynferðislegri mismunun, fyrir þátttöku kvenna í friðarviðleitni og að tekið verði tillit til ólaunaðra starfa á heimilum í reikningi þjóðarframleiðslu. 2.3.2020 16:00