Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dó líknardauða sextán árum eftir að hafa myrt fimm börn sín Belgísk kona, sem myrti fimm börn sín árið 2007, hefur dáið líknardauða, sextán árum eftir að hún banaði fimm börnum sínum. 3.3.2023 11:52
Sprengdu brýr við Bakhmut og virðast ætla hörfa Útlit er fyrir að úkraínskir hermenn ætli sér að hörfa eða séu þegar byrjaðir að hörfa frá Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á bæinn um mánaða skeið og hafa nú nærri því umkringt hann. 3.3.2023 11:06
Afhjúpa nýuppgötvað hólf í Pýramídanum mikla Egypsk fornleifayfirvöld sviptu hulunni af nýuppgötvuðu og lokuðu hólfi í Pýramídanum mikla í Giza í gær. Óljóst er hver tilgangur hólfsins var en það er ekki aðgengilegt utan frá. 3.3.2023 09:35
Geta stefnt Trump vegna árásarinnar á þinghúsið Lögreglumönnum og þingmönnum er heimilt að stefna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, vegna árásar stuðningsmanna hans á þinghúsið, að mati bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Trump heldur því fram að hann njóti friðhelgi fyrir slíkum kröfum. 3.3.2023 08:50
Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í nótt fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son í þeim tilgangi að draga athyglina frá margmilljóna dala efnahagsbrotum sínum. 3.3.2023 06:37
Skilaboð Blinkens til Lavrovs voru einföld og skýr Skuggi innrásar Rússa í Úkraínu skyggði á öll önnur málefni á fundi utanríkisráðherra 20 helstu iðnríkja heims á Indlandi í dag. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Rússa að láta af hernaði sínum og utanríkisráðherra Rússlands sagði aldrei hafa staðið á Rússum að semja við Bandaríkin um örlög Úkraínu. 2.3.2023 18:57
Rússneskir öfgamenn réðust á þorp í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi segja hóp skemmdarverkamanna frá Úkraínu hafa gert árásir á þorp í Bryanskhéraði í Rússlandi. Hópur fjar-hægri Rússa sem er andvígur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hefur lýst yfir ábyrgð á atvikinu, sem Pútín hefur lýst sem hryðjuverki. 2.3.2023 14:47
Óvæntur hliðarfundur á hitafundi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands hittust stuttlega á óvæntum hliðarfundi á samkomu G20-ríkjanna á Indlandi í dag. 2.3.2023 14:05
Vöxtur endurnýjanlegrar orku kom í veg fyrir enn meiri aukningu í losun Heimsbyggðin hélt áfram að auka losun á gróðurhúsalofttegundum vegna orkuframleiðslu í fyrra og hefur hún aldrei verið meiri. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar segir að losunin hefði aukist þrefalt meira ef ekki væri fyrir vöxt í endurnýjanlegum orkugjöfum. 2.3.2023 10:12
Rússneski fáninn málaður á Litlu hafmeyjuna Enn og aftur hafa skemmdarverk verið unnin á einu helsta kennileiti dönsku höfuðborgarinnar. Rússneski fáninn var í nótt málaður á steininn þar sem Litla hafmeyjan situr við Löngulínu. 2.3.2023 08:42
Fundu nýja Moai-styttu á Páskaeyju Vísindamenn á Páskaeyju í Kyrrahafi fundu undir lok febrúar nýja Moai-styttu. Styttan fannst ofan í eldfjallagíg en lítið stöðuvatn var ofan í gígnum áður. 2.3.2023 08:39
Vo Van Thuong nýr forseti Víetnam Vo Van Thoung var í gær valinn nýr forseti Víetnam. Hann tekur við af Nguyen Xuan Phuc sem gegndi embættinu í einungis tæp tvö ár og sagði af sér eftir að hafa verið sakaður um spillingu. 2.3.2023 08:05
G20 ríkin funda á Indlandi Utanríkisráðherrar G20 ríkjanna koma saman í Nýju Delí á Indlandi í dag. 2.3.2023 07:36
Kom til átaka í mótmælum í kjölfar lestarslyssins í Grikklandi Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu fyrir utan höfuðstöðvar grísku lestarstofnunarinnar í Aþenu í gærkvöldi í kjölfar lestarslyssins þar sem staðfest er að 43 hið minnsta týndu lífi. Margir hafa sagt að einungis hafi verið tímaspursmál hvenær slys sem þetta myndi eiga sér stað. 2.3.2023 06:22
Í basli með að senda hlébarða til Úkraínu Úkraínumönnum hefur verið lofað tugum vestrænna skriðdreka á næstu vikum og mánuðum. Minnst fjórir hafa þegar verið sendir til landsins og er verið að þjálfa hermenn á skriðdrekana í nokkrum löndum. Ríki Evrópu eiga þó í basli með að standa við stóru orðin og gengur erfiðlega að finna skriðdreka. 1.3.2023 15:00
Segir fjölmiðlafólk öfundsjúkt út í Tucker Carlson Kevin McCarthy, forseti Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, varði í gær þá ákvörðun sína að veita Tucker Carlson, hinum umdeilda þáttastjórnenda hjá Fox, einum aðgang að myndefni úr öryggismyndavélum þinghússins frá árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Annað fjölmiðlafólk hefur einnig krafist aðgangs að myndefninu en McCarthy segir þau vera „öfundsjúk“. 1.3.2023 13:01
Umtöluð réttarhöld að enda komin: „Ég myndi aldrei skaða þau“ Réttarhöld gegn bandarískum lögmanni sem grunaður er um að hafa myrt eiginkonu sína og son eru að enda komin. Mál Alex Murdaughs og morðin hafa vakið mikla athygli og hefur meðal annars verið fjallað um málið í heimildarþáttum á Netflix. 1.3.2023 11:10
Finnar byrja að girða sig af frá Rússlandi Framkvæmdir við girðingu á hluta landamæra Finnlands og Rússlands eru hafnar. Finnska landamærastofnunin segir að girðingin verði þriggja metra há með gaddavír ofan á henni. Tilgangurinn sé að tryggja landamærin frekar. 1.3.2023 10:14
Finnski fjöldamorðinginn Juha Valjakkala látinn Finnski fjöldamorðinginn Nikita Bergenström, sem áður gekk undir nafninu Juha Valjakkala, er látinn. Hann varð 57 ára gamall. Valjakkala var á sínum tíma dæmdur fyrir að hafa banað heilli fjölskyldu í kirkjugarði í Svíþjóð árið 1988. 1.3.2023 09:25
Hristi sig og hornin hrundu af Þjóðgarðsvörðurinn Derek Burgoyne náði myndbandi af því þegar elgur hristi sig og missti í leiðinni horn sín. Afar sjaldgæft er að sjá þegar hornin falla af elgum. 1.3.2023 07:41
Linda Kasabian úr Manson fjölskyldunni er látin Linda Kasabian, ein af fylgjendum Charles Manson er látin, 73 ára að aldri. 1.3.2023 07:41
Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í. 1.3.2023 07:01
Tinubu verður forseti Nígeríu Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC í Nígeríu, verður næsti forseti Nígeríu. Niðurstöður kosninganna voru staðfestar í nótt en alls voru átján manns í framboði. 1.3.2023 06:50
Þrjátíu og tveir látnir hið minnsta í lestarslysi á Grikklandi Að minnsta kosti þrjátíu og tveir eru látnir og 85 slasaðir eftir lestarslys á Grikklandi í nótt. 1.3.2023 06:21
Líkamsleifar týnds manns fundust í hákarli Diego Barria, 32 ára gamall þriggja barna faðir, týndist fyrir rúmri viku í suðurhluta Argentínu. Líkamsleifar sem fundust í maga hákarls um helgina eru taldar tilheyra honum. 28.2.2023 23:27
Tinubu leiðir en deilt um talningu í nígerísku forsetakosningunum Nígeríumenn bíða enn eftir að fá skýra mynd af því hvernig atkvæði féllu í forsetakosningunum sem fram fóru um helgina. Búið er að birta niðurstöður í fjórtán af 36 ríkjum og er Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC og fyrrverandi ríkisstjóri Lagos, með um 44 prósent atkvæða þar sem niðurstöður liggja fyrir. Þar er þó um að ræða lágt hlutfall af heildarfjölda atkvæða. 28.2.2023 10:54
Allir sammála um að veiran sé náttúruleg Það vakti mikla athygli á dögunum þegar forsvarsmenn Orkustofnunar Bandaríkjanna breyttu skýrslu stofnunarinnar um uppruna Covid-19. Í breyttri skýrslu Orkustofnunarinnar kemur fram að starfsmenn stofnunarinnar telji líklegt að kórónuveiran sem veldur Covid-19 hafi lekið af rannsóknarstofu í Wuhan í Kína. 28.2.2023 10:41
Danskir þingmenn beðnir um að hætta á TikTok Danska þingið, Folketinget, hefur beðið þingmenn og starfsmenn þingsins um að hætta að nota samfélagsmiðilinn TikTok. Talið er að hætta sé á að gögnum um starfsmennina verði lekið noti þeir forritið. 28.2.2023 08:55
Í mál við Lady Gaga eftir að hafa skilað hundunum hennar Kona sem skilaði hundum söng- og leikkonunnar Lady Gaga eftir að þeim var stolið hefur farið í mál við hana. Gaga lofaði að „spyrja engra spurninga“ yrði hundunum skilað en síðan kom í ljós að konan tengdist þjófnaðnum og var dæmd fyrir aðild sína. 28.2.2023 07:36
Landtökumenn skutu mann og brenndu bíla og hús Minnst einn Palestínumaður er látinn eftir að múgur ísraelskra landtökumanna brenndu fjölda húsa og bíla í þorpinu Huwara á Vesturbakkanum í gærkvöldi. Minnst hundrað eru sagðir særðir en múgurinn myndaðist eftir að byssumaður skaut tvo landtökumenn til bana við nærliggjandi þjóðveg. 27.2.2023 15:06
Xi sagður efast um getu Kínverja til að taka Taívan Xi Jinping, forseti Kína, efast um getu kínverska hersins til að hertaka Taívan en þær efasemdir eiga rætur í slæmu gengi Rússa í Úkraínu. Þetta sagði William Burns, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), í viðtali í gær. 27.2.2023 12:17
Ver höfund Dilberts og segir fjölmiðla rasíska gegn hvítum Auðjöfurinn Elon Musk, kom Scott Adams, höfundi teiknimyndaseríunnar Dilberts, til varnar í gær. Gagnrýndi hann fjölmiðla fyrir að slíta tengslin við Adams eftir að höfundurinn hélt rasískan reiðilestur um svart fólk. 27.2.2023 10:31
Covid hafi líklega sloppið út af rannsóknarstofu Bandaríska orkustofnunin telur líklegt að Covid hafi sloppið út af rannsóknarstofu í Kína. Lekinn hafi ekki verið með vilja gerður. 26.2.2023 22:08
Börn á meðal þeirra 58 sem létu lífið Minnst fimmtíu og átta manns, þar á meðal börn, létu lífið þegar þegar bátur fórst undan suð-austurstönd Ítalíu. Slæmt var í sjóinn og skipið sagt hafa steytt á klettum. 26.2.2023 16:47
Bannað að leigja ferðamönnum Fasteignaverð í Portúgal er í hæstu hæðum og láglaunafólk hefur ekki lengur ráð á þaki yfir höfuðið. Meirihlutastjórn sósíalista hefur kynnt róttækar aðgerðir til að snúa þessari þróun við. Auðar íbúðir verða teknar traustataki, leiguþak verður sett á og bannað verður að leigja húsnæði út til ferðamanna. 26.2.2023 16:30
Höfundur Dilberts segir orðspor sitt í rúst Scott Adams, höfundur teiknimyndaseríunnar Dilberts, segir orðspor sitt í rúst og að hann sjái fram á að missa meirihluta tekna sinna í þessari viku eftir að útgefendur hundraða dagblaða ákváðu að hætta að birta seríuna. Ástæðan er rasískur reiðilestur Adams um svart fólk. 26.2.2023 11:16
Á fjórða tug fórst í skipsskaða við Ítalíu Að minnsta kosti þrjátíu og þrír fórust þegar skip með föru- og flóttafólki fórst undan suðausturströnd Ítalíu. Nær öruggt er talið að tala látinna eigi eftir að hækka. 26.2.2023 09:28
Stórbruni í timburhúsahverfi í Suðaustur-Noregi Tugir slökkviliðsmanna börðust við mikinn eld í þremur timburhúsum í bænum Kragerø í suðaustanverðum Noregi í alla nótt. Þeir náðu loks tökum á eldinum nú í morgun og hættan á enn stærri bruna sögð liðin hjá. 26.2.2023 08:33
Andófsfólk sent úr landi og svipt ríkisborgararétti Á þriðja hundrað fangelsaðra stjórnarandstæðinga voru send til Bandaríkjanna frá Níkaragva fyrr í þessum mánuði. Daniel Ortega, forseti, lét jafnframt svipta andófsfólkið ríkisborgararétti. Sérfræðingar telja það brot á alþjóðalögum. 26.2.2023 08:01
Sundföt leyfð í nektarnýlendu Hæstiréttur Spánar hefur bannað húsfélagi nektarnýlendu á Suður-Spáni að meina fólki í sundfötum aðgang að sundlaugum hverfisins. Dómararnir telja bannið brot á jafnræðisreglunni. Húsfélagið hafði ráðið öryggisverði til að halda fólki í fötum frá sundlaugargörðunum. 25.2.2023 16:15
Ekkert samkomulag um Úkraínu á fundi G20-ríkja Fulltrúar Rússlands og Kína komu í veg fyrir að fjármálaráðherrar tuttugu stærstu iðnríkja heims kæmust að sameiginlegri niðurstöðu um átökin í Úkraínu. Fundi þeirra á Indlandi lauk í dag. 25.2.2023 14:56
Þúsundir meintra glæpamanna flutt í risafangelsi Yfirvöld í Mið-Ameríkuríkinu El Salvador byrjuðu að flytja þúsundir grunaðra glæpamanna í risavaxið fangelsi sem á að hýsa allt að fjörutíu þúsund fanga. Aðgerðin er liður í harðlínustefnu Nayibs Bukele forseta gegn glæpagengjum. 25.2.2023 14:09
Vill ræða friðartillögur Kínverja við Xi Volodýrmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, segist ætla að funda með Xi Jinping, forseta Kína, til þess að ræða tillögur Kínverja um að binda enda á stríðið í Úkraínu. Hann vill meðal annars fullvissa sig um að Kínverjar ætli ekki að selja Rússum vopn. 25.2.2023 08:18
Hætta við að breyta bókunum Bókaútgáfa hefur ákveðið að halda áfram að prenta upprunalegar bækur Roalds Dahl samhliða breyttum útgáfum. Til stóð að gera víðtækar og varanlegar breytingar á texta sem kynni að reynast meiðandi fyrir einn eða annan minnihlutahóp. 25.2.2023 07:00
Senda björgunarskip til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar Rússar sendu björgunargeimferju til móts við Alþjóðlegu geimstöðina eftir að hættulegur leki kom á geimferju tveggja rússneskra geimfara og eins bandarísk sem átti að flytja þá heim. Tvær rússneskar geimferjur hafa nú bilað við geimstöðina á örfáum mánuðum. 24.2.2023 15:05