Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Réttarhöld hefjast yfir Ghislaine Maxwell Réttarhöld hefjast í dag á Manhattan í New York yfir Ghislaine Maxwell, sem sökuð er um að hafa aðstoðað milljarðamæringinn Jeffrey Epstein við glæpi sína. 29.11.2021 07:02
Handtóku par sem flúði af sóttkvíarhóteli Ómíkrón greindra Lögreglan í Hollandi handtók í gær par sem hafði flúið af sóttkvíarhóteli í Amsterdam. Fólkið var handtekið um borð í flugvél á Schiphol-flugvelli, sem var við það að taka á loft þegar lögreglu bar að garði. 29.11.2021 06:49
Japanir loka landamærum sínum og heilbrigðisráðherrar G7 funda Heilbrigðisráðherrar G7-ríkjanna munu funda í dag um Ómíkrón-afbrigði kórónuveirunnar, sem hefur nú fundist í nokkrum löndum. Japanir hafa bæst í hóp þeirra þjóða sem hafa ákveðið að loka landamærum sínum vegna afbrigðisins. 29.11.2021 06:39
Veitti stjórnarmyndunarumboð innan úr glerkassa Milos Zeman, forseti Tékklands, veitti Petr Fiala umboð til ríkisstjórnarmyndunar í dag. Það þurfti hann að gera innan úr glerkassa þar sem hann er smitaður af kórónuveirunni. 28.11.2021 20:11
Frumrannsóknir bendi til aukinnar hættu á endursýkingu vegna Ómíkron Fyrstu vísbendingar benda til þess að auknar líkur séu á að fólk, sem þegar hefur smitast af kórónuveirunni, smitist aftur af Ómíkron-afbrigði hennar, að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. 28.11.2021 18:51
Ómíkron greinist í Ástralíu og WHO gagnrýnir auðugri þjóðir heims Yfirvöld í Ástralíu hafa staðfest að tveir íbúar eru smitaðir af ómíkron-afbrigði Covid-19. Báðir voru að koma til landsins erlendis frá og eru fullbólusettir. Fólkið er nýkomið frá Suður-Afríku og greindist smitað í sóttkví í Sydney, höfuðborg Ástralíu. 28.11.2021 12:00
Hjólaði á spítalann til að eignast barn Nýsjálenska þingkonan Julie Anne Genter hefur vakið nokkra athygli síðasta sólarhringinn eða svo. Hún eignaðist sitt annað barn aðeins klukkutíma eftir að hún hjólaði á spítalann. 28.11.2021 08:28
Engum nema Ísraelum hleypt til Ísrael vegna Ómíkrons-afbrigðisins Yfirvöld í Ísrael munu banna öllum útlendingum að koma til landsins næstu tvær vikurnar vegna Ómíkrons-afbrigðis kórónuveirunnar, að því er miðlar þar í landi halda fram. 28.11.2021 07:38
Bretar herða tökin vegna tveggja tilfella Ómíkron Boris Johnson tilkynnti hertar sóttvarnaraðgerðir í Bretlandi á fjölmiðlafundi í dag. Ástæðan er sú að tveir greindust smitaðir af Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar þar í landi í gær. 27.11.2021 18:00
Ómíkron-afbrigðið komið til Bretlands Tveir einstaklingar hafa greinst með Ómikron-afbrigði kórónuveirunnar í Bretland að því er heilbrigðisyfirvöld þar í landi greina frá. 27.11.2021 14:42
„Afganska stúlkan“ með grænu augun flytur til Ítalíu Mynd af Sharbat Gulla í flóttamannabúðum í Pakistan fór eins og eldur í sinu um heiminn. Gulla var líklega tólf ára gömul þegar ljósmyndarinnar Steve McCurry tók myndina árið 1984 og hún rataði á forsíðu National Geographic í júní 1985. 27.11.2021 12:37
Vísindamenn í Suður-Afríku áhyggjufullir Vísindamenn í Suður-Afríku óttast hraða útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis Covid-19 meðal ungs fólks þar í landi. Í gær höfðu 2.828 greinst smitaðir af afbrigðinu en það hve ungt fólk virðist smitast hratt hefur valdið áhyggjum. 27.11.2021 10:26
Stephen Sondheim látinn Tónskáldið og lagahöfundurinn Stephen Sondheim er látinn, 91 árs að aldri. Sondheim lést í gær á heimili sínu í Bandaríkjunum. 27.11.2021 07:34
Nýja kórónuveiruafbrigðið fær nafnið Ómíkron Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið nýjasta afbrigði kórónuveirunnar heiti gríska bókstafsins Ómíkron. Stofnunin gefur einungis afbrigðum sem hún hefur teljandi áhyggjur af nafn. 26.11.2021 20:11
Sagði rússneska menn hafa ætlað að fremja valdarán í Úkraínu Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu. 26.11.2021 17:00
Telja Kína græða á deilum Bandaríkjanna og Marshall-eyja Marshall-eyjar hafa um árabil verið ötulir bandamenn Bandaríkjanna. Nú hafa hins vegar komið upp miklar deilur milli ríkjanna og bandarískir þingmenn óttast að Kínverjar stígi inn í tómarúmið og nái fótfestu á eyjunum sem eru staðsettar í miðju Kyrrahafinu. 26.11.2021 14:10
Fjórir táningar handteknir fyrir að berja tólf ára stúlku til dauða Lögreglan í Liverpool hefur handtekið fjóra táningsdrengi vegna gruns um að þeir hafi myrt tólf ára stúlku. Ráðist var á stúlkuna í kjölfar rifrildis í gærkvöldi og dó hún i kjölfarið vegna mikilla meiðsla sem hún hlaut. 26.11.2021 10:40
ESB boðar flugbann og WHO fundar um nýja afbrigðið Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, greindi frá því á Twitter í morgun að framkvæmdastjórnin myndi leggja til, í samráði við aðildarríki sambandsins, að banna flug frá suðurhluta Afríku. 26.11.2021 10:31
Öryggisfulltrúar handteknir eftir námuslysið í Síberíu Lögreglumenn í Síberíu handtóku tvo öryggisfulltrúa sem eru grunaðir um glæpsamlega vanrækslu eftir að fleiri en fimmtíu manns fórust í kolanámu í Kemerovo-héraði í gær. Slysið er eitt það versta sinnar tegundar frá því á tímum Sovétríkjanna. 26.11.2021 09:19
Ástralskir lögreglumenn skerast í leikinn á Salómonseyjum Útgöngubanni hefur verið komið á yfir nótt á Salómonseyjum í Kyrrahafi þar sem óeirðir hafa geisað undanfarna þrjá daga. Ástralskir lögreglumenn sem voru sendir til að aðstoða stjórnvöld á eyjunum hafa tekið sér stöðu á lykilstöðum í höfuðborginni Honiara. 26.11.2021 08:40
Flugmaður sakaður um morð á tveimur Áströlum í gæsluvarðhald Flugmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna morða á eldri manni og eldri konu sem voru á tjaldferðalagi í Ástralíu og hurfu sporlaust fyrir tæpum tveimur árum. 26.11.2021 08:07
Frakkar aflýsa flóttamannafundi með Bretum vegna bréfs Johnsons Innanríkisráðherra Frakka hefur aflýst fyrirhuguðum fundi með kollega sínum frá Bretlandi þar sem ræða átti flóttamannamálin á Ermarsundi. Ástæðan mun vera bréf sem Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sendi Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem þess er krafist að Frakkar taki aftur við því fólki sem kemst yfir Ermarsundið til Bretlands. 26.11.2021 07:57
Bretar bregðast við nýju afbrigði kórónuveirunnar Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að setja takmarkanir á ferðamenn frá ákveðnum löndum í Suður-Afríku vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar. Flug frá tilgreindum löndum til Bretlands verður lagt niður. 25.11.2021 23:15
Rúmlega fimmtíu námuverkamenn í Síberíu taldir af Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tugir eru taldir af eftir eldsvoða í námu í Síberíu. Yfirvöld í Rússlandi hafa hætt leit vegna hættu á sprengingu í námunni. 25.11.2021 20:30
Fleiri fóru yfir Ermarsundið í dag og tala látinna hækkar Fleiri Farand- og flóttamenn hafa lagt leið sína yfir Ermarsundið við erfiðar aðstæður í dag. Það er degi eftir að minnst 27 drukknuðu eftir að loftið fór úr slöngubát þeirra á Ermarsundinu. Meðal þeirra sem dóu voru ólétt kona og minnst þrjú börn. 25.11.2021 16:38
Telja ekki ástæðu til að fagna þakkargjörðarhátíðinni Bandarískir frumbyggjar ætla að minnast þakkargjörðarhátíðarinnar í dag með því að koma saman í bænum Plymouth í Massachusetts þar sem enskir landtökumenn tóku fyrst land. Þar ætla þeir að syrgja aldalanga kynþáttahyggju og ofbeldi sem þeir hafa mátt þola. 25.11.2021 15:39
Ætla að banna helstu mannréttindasamtök Rússlands Rússneskir saksóknarar kröfðust þess í dag að hæstiréttur leysti upp ein helstu mannréttindasamtök landsins. Þau afhjúpuðu meðal annars voðaverk hersins í Téténíustríðunum og rannsaka kúgun andófsfólks í Sovétríkjunum. 25.11.2021 14:55
Tilnefnir Andersson á nýjan leik Forseti sænska þingsins hefur aftur tilnefnt Magdalenu Andersson, formann sænskra Jafnaðarmanna, sem nýjan forsætisráðherra landsins. Atkvæðagreiðslan mun fara fram í sænska þinginu næsta mánudag. 25.11.2021 14:41
Losun í Kína dróst saman í fyrsta skipti eftir efnahagsbatann Koltvísýringslosun í Kína dróst lítillega saman á þriðja ársfjórðungi en það er í fyrsta skipti sem það gerist eftir að efnahagslífið tók við sér eftir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Samdrátturinn er rakinn að hluta til minni byggingaframkvæmda og kolaskorts. 25.11.2021 14:21
Morðingjarnir hefðu líklega aldrei verið handteknir án myndbandsins Feðgarnir Greg og Travis McMichael og nágranni þeirra William Bryan voru í gær dæmdir sekir um morð. Það er fyrir að hafa elt og setið fyrir hinum 25 ára gamla Ahmaud Arbery í febrúar í fyrra. 25.11.2021 13:00
Meintur mannréttindabrjótur kjörinn forseti Interpol Undirhershöfðingi við innanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem er sakaður um pyntingar og gerræðislegar handtökur í heimalandinu var kjörinn forseti alþjóðalögreglunnar Interpol. Hann hefur verið kærður í fimm löndum. 25.11.2021 12:50
Lyfjastofnun Evrópu mælir með bólusetningu fimm til ellefu ára Lyfjastofnun Evrópu hefur gefið grænt ljós á að börn á aldrinum fimm til ellefu ára verði bólusett gegn Covid-19. Á leyfið þó einungis við um bóluefni Pfizer en þegar hefur notkun þess verið heimiluð öllum tólf ára og eldri. 25.11.2021 12:02
Ætla ekki að verða við kröfu Kína og fjarlægja strandað skip í Suður-Kínahafi Ríkisstjórn Filippseyja ætla ekki að fjarlægja gamalt herskip sem er strand á rifi í Suður-Kínahafi, eins og Kínverjar krefjast. Her Filippseyja hefur notað skipið sem varðstöð á yfirráðasvæði landsins í Suður-Kínahafi sem Kínverjar hafa gert ólöglegt tilkall til. 25.11.2021 10:48
Squid Game smyglari dæmdur til dauða Karlmaður, sem smyglaði afritum af vinsælu Netflix-þáttunum Squid Game til Norður-Kóreu, hefur verið dæmdur til dauða. Upp komst um manninn eftir að stjórnvöld gómuðu gagnfræðiskólanema við að horfa á þættina. 25.11.2021 10:13
James Webb fær heilbrigðisvottorð eftir uppákomu sem seinkaði geimskoti Verkfræðingar hafa nú lokið prófunum á James Webb-geimsjónaukanum og staðfest að allt sé til reiðu að skjóta honum út í geim í næsta mánuði. Ákveðið var að fresta geimskotinu um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning á dögunum. 25.11.2021 09:44
Kelfing og bráðnun vegna sjávar aldrei meiri á Grænlandi Grænlandsjökull tapaði um 166 milljörðum tonna af ís frá september í fyrra til ágúst á þessu ári, tuttugasta og fimmta árið í röð sem jökullinn tapaði meiri ís en hann bætti við sig. Aldrei hefur verið meira massatap vegna kelfingar og bráðnun af völdum hlýsjávar en í ár. 25.11.2021 09:14
Mildaður dómur í barnaníðsmáli vekur reiði Áfrýjunardómstóll á Indlandi hefur mildað dóm yfir manni sem var dæmdur í fangelsi fyrir að hafa neytt tíu ára dreng til að hafa við sig munnmök. Dómurinn féll degi áður en hæstiréttur landsins felldi úr gildi dóm þar sem maður hafði verið sýknaður af kynferðisbrotum gegn tólf ára stúlku þar sem „húð mætti ekki húð“. 25.11.2021 08:42
Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands. 25.11.2021 07:25
Hafa áhyggjur af nýju og mikið stökkbreyttu afbrigði SARS-CoV-2 Vísindamenn fylgjast nú vel með nýju afbrigði SARS-CoV-2, sem hefur 32 stökkbreytingar á bindiprótíni (e. spike protein) og er mögulega betur í stakk búið en önnur afbrigði veirunnar til að komast framhjá ónæmisvörnum líkamans. 25.11.2021 06:59
MeToo mætt af hörku í Kína Yfirvöld í Kína hafa mætt MeToo hreyfingunni af hörku. Þegar tennisstjarnan Peng Shuai sakaði einn af valdamestu mönnum Kommúnistaflokks Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, og hvarf í kjölfarið, vakti það gífurlega athygli á heimsvísu. 24.11.2021 22:00
Tugir flóttamanna fórust á Ermarsundi í morgun Að minnsta kosti þrjátíu flóttamenn létu lífið á Ermarsundi eftir að bátur þeirra sökk nærri Calais í Frakklandi. Um fimmtíu voru um borð í bátnum og einhverra er enn leitað. Aldrei hafa fleiri flóttamenn látið lífið á Ermarsundi. 24.11.2021 21:47
Engar ákærur vegna smita í skíðabænum Ischgl Saksóknari hefur tekið ákvörðun um að ákæra ekki vegna fjölda Covid-smita í skíðabænum Ischgl í Austurríki. Níu einstaklingar, þar af fjórir embættismenn, höfðu verið til rannsóknar eftir þúsundir ferðamanna smituðust af kórónuveirunni í bænum. 24.11.2021 20:44
Þremenningarnir sakfelldir fyrir morðið á Ahmaud Arbery Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæpi og morð, fyrir að hafa skotið hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery til bana vegna litarháttar hans. 24.11.2021 19:02
Tólf ákærðir vegna Kardashian ránsins í París Tólf hafa verið ákærðir vegna ráns sem framið var í íbúð raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian í París árið 2016. Rannsókn málsins hefur tekið rúmlega fimm ár en yfirvöld í Frakklandi gefa ekki upp hvenær til standi að taka málið til meðferðar. 24.11.2021 18:34
Andersson segir af sér eftir sjö tíma í embætti Magdalena Andersson hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar eftir sjö tíma í embætti. Þetta gerir hún í kjölfar þess að Græningjar tilkynntu að þeir segi skilið við ríkisstjórn landsins eftir að fjárlagafrumvarp borgaralegu flokkanna á þingi, stjórnarandstöðuflokkanna, náði fram að ganga á þinginu í dag. 24.11.2021 16:31