Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákærður fyrir hryðjuverk vegna árásarinnar í Ontario Ríkissaksóknari Kanada hefur gefið út ákæru vegna hryðjuverka á hendur tvítugum karlmanni sem drap fernt þegar hann ók vísvitandi á fólkið í Ontario í síðustu viku. Lögregla telur að maðurinn hafi ráðist á fólkið sem tilheyrði allt sömu fjölskyldu vegna þess að það var múslimar. 14.6.2021 15:41
Segir Bandaríkin hafa „helga skyldu“ til að verja Evrópu Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti þátttöku Bandaríkjanna í sameiginlegum vörnum Evrópu, Kanada og Tyrklands sem „helgri skyldu“ þeirra við upphaf leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í morgun. Lagði hann áherslu á mikilvægi bandalagsins. 14.6.2021 13:40
G7-ríkin héldu að sér höndum um kolabruna Engin ákvörðun var tekin um hvenær bruna á kolum verður alfarið hætt á fundi sjö helstu iðnríkja heims sem lauk í gær. Ríkið sammæltust aðeins um að hætta fjármögnun nýrra kolaorkuvera sem búa ekki yfir tækni til að binda kolefni. 14.6.2021 12:57
NATO kvartar undan Kínverjum sem skjóta til baka á „lítil bandalög“ sem vilja ráða öllu Jens Stoltenberg, aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerði aukin umsvif Kínverja að umtalsefni við upphaf leiðtogafundar NATO í Brussel í dag. 14.6.2021 12:52
Maðurinn á bak við „stærstu fjölskyldu heims“ látinn Ziona Chana, maðurinn á bakvið eina stærstu fjölskyldu heims, er látinn. Chana, sem er sagður hafa átt 38 konur, 89 börn og 36 barnabörn, var 76 ára. 14.6.2021 12:27
Suu Kyi dregin fyrir dóm Réttarhöld yfir Aung San Suu Kyi, sem herinn í Búrma steypti af stóli í febrúar, hófust í dag. Mannréttindasamtök telja ákærurnar uppspuna og að herforingjastjórnin vilji ryðja henni úr vegi. 14.6.2021 11:58
Herferð Ortega gegn stjórnarandstöðunni heldur áfram Yfirvöld í Níkaragva handtóku fimm þekkta stjórnarandstæðinga á sunnudaginn í því sem gagnrýnendur Daniels Ortega forseta kalla herferð gegn andstæðingum hans. Fyrrverandi bandamenn Ortega eru á meðal þeirra handteknu. 14.6.2021 10:52
Wasabi krýndur verðugastur voffa á Westminster-hundasýningunni Smáhundurinn Wasabi var krýndur verðugastur allra hunda á Westminster-hundasýningunni í Bandaríkjunum í gær. Um er að ræða virtustu hundasýningu heims og titillinn afar eftirsóttur. 14.6.2021 10:41
Vitorðsmenn í flótta Ghosn játa sig seka Tveir Bandaríkjamenn játuðu sig seka um að hafa hjálpað Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Nissan, að flýja Japan árið 2019. Mennirnir, sem eru feðgar, voru framseldir frá Bandaríkjunum í vor og gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. 14.6.2021 10:00
Vilja geta bannað ráðherrum að sinna hagsmunagæslu í allt að fimm ár Ein af siðanefndum breska þingsins hefur lagt til að hægt verði að banna ráðherrum að sinna hagsmunagæslu fyrir einkaaðila í allt að fimm ár eftir að þeir hafa hætt í stjórnmálum. 14.6.2021 09:19
Pottaplanta selst á 2,3 milljónir króna Níu blaða pottaplanta seldist í gær á jafnvirði 2,3 milljóna íslenskra króna á nýsjálenskri uppboðssíðu. Um er að ræða dýrustu inniplöntu sem selst hefur á síðunni. 14.6.2021 08:23
Faraldurinn virðist í rénun... í bili Kórónuveirufaraldurinn virðist nú í rénun víðast hvar í Bandaríkjunum en sérfræðingar eru engu að síður uggandi vegna þess hversu margir hyggjast ekki ætla að þiggja bólusetningu. 14.6.2021 07:51
Nýr forsætisráðherra heitir því að sameina þjóðina Nýr forsætisráðherra Ísraels, Naftali Bennett, hét því í sinni fyrstu ræðu að sameina þjóðina eftir fernar kosningar á tveggja ára tímabili. 14.6.2021 07:04
Fresta afléttingu allra aðgerða vegna Delta afbrigðisins Bresk yfirvöld hafa ákveðið að fresta boðuðum tilslökunum vegna kórónufaraldursins um fjórar vikur á Englandi. 14.6.2021 06:35
Samþykktu myndun nýrrar ríkisstjórnar án Netanjahús Ísraelska þingið samþykkti fyrir skemmstu myndun nýrrar ríkisstjórnar undi forystu Naftali Bennett og Jaír Lapíd. Benjamín Netanjahú, sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra Ísraels síðustu tólf ár, er því á leið úr embætti. 13.6.2021 18:25
Attenborough fundar með leiðtogum G7 í dag Náttúruvísinda- og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough mun tala á fundi G7 ríkjanna í dag. Hann hefur þegar biðlað til leiðtoga ríkjanna að grípa til drastískra aðgerða ef forðast á náttúruhamfarir. Ríkin munu ræða umhverfismál á fundi sínum í dag. 13.6.2021 08:56
Örlög Netanjahús ráðast í dag Ísraelska þingið mun greiða atkvæði um nýja ríkisstjórn í dag. Verði ríkisstjórnin samþykkt af meirihluta þingsins markar það endalok 12 ára stjórnartíð Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels. 13.6.2021 08:13
Vonar að Biden verði ekki jafn hvatvís og Trump Vladímír Pútín Rússlandsforseti segist vona að kollegi hans, Joe Biden Bandaríkjaforseti, verði ekki jafn hvatvís og forveri þess síðarnefnda í starfi, Donald Trump. 12.6.2021 20:30
Konur á Spáni mótmæla kynbundnu ofbeldi Konur á Spáni hafa mótmælt á götum úti eftir að lík hinnar sex ára Oliviu fannst á sjávarbotni undan ströndum Tenerife í fyrradag. 12.6.2021 14:42
Minnst 13 særðir eftir skotárás í Texas Minnst 13 særðust í skotárás í miðbæ Austin í Texas í nótt. Skotárásin var gerð í skemmtanahverfi í borginni þar sem mikill mannfjöldi var saman kominn. Enginn dó í árásinni en tveir eru alvarlega særðir. 12.6.2021 13:43
Loftlagsmótmæli við G7 leiðtogafundinn Umhverfisverndarsamtökin Extinction rebellion blésu í gær til fjölmennra mótmæla í Cornwall þar sem leiðtogafundur G7 ríkjanna fer fram um helgina. 12.6.2021 13:06
G7 ríkin mynda bandalag gegn Kína Leiðtogar G7 ríkjanna hafa samþykkt áætlun um að fara í aukna uppbyggingu innviða í þróunarríkjum til þess að stemma stigu við vaxandi áhrif Kína í þróunarríkjum. Joe Biden, Bandaríkjaforseti, lagði þetta til og ber verkefnið yfirskriftina „Byggjum aftur betri heim“ eða Build Back Better World upp á ensku. 12.6.2021 13:03
Johns Snorra minnst á toppi Everest Fjallagöngugarpurinn Colin O'Brady hélt í gær tilfinningaþrungna minningarathöfn til heiðurs fallinna félaga sinna. 12.6.2021 10:08
„Guð minn góður, ég er í gini hvals“ Bandarískur humarsjómaður lenti í því magnaða atviki að vera gleyptur af Hnúfubaki, sem virðist ekki hafa líkað bragðið og spýtti honum aftur út. Hann slapp vel þrátt fyrir martraðakennda sögu og virðist aðeins hafa farið úr öðrum hnjálið. 12.6.2021 08:39
Lýðræðisbaráttukona leyst úr fangelsi Lýðræðisbaráttukonan Agnes Chow losnaði úr fangelsi í Hong Kong í dag, laugardag, eftir sjö mánuði á bak við lás og slá. Chow var handtekin eftir að hún tók þátt í skipulagningu ósamþykktra mótmæla í borginni árið 2019. 12.6.2021 08:08
Unglingsstúlkan sem tók upp morðið á Floyd fær Pulitzer-verðlaun Unglingsstúlkan sem tók morðið á George Floyd upp á myndband hefur hlotið sérstök blaðamannaverðlaun frá stjórn hinna virtu Pulitzer verðlauna. Darnella Frazier, sem nú er átján ára gömul, hlaut verðlaunin vegna hugrekkisins sem hún sýndi að sögn Pulitzer-nefndarinnar. 12.6.2021 07:38
Fyrirskipa förgun tuga milljóna skammta af bóluefni Janssen Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur fyrirskipað að fyrirtækið sem framleiðir bóluefni fyrir Janssen í Bandaríkjunum skuli farga fleiri milljónum skammta. 11.6.2021 22:54
Svíar óttast að fjórða bylgjan kunni að vera í uppsiglingu Hópsýkingar svonefnda deltaafbrigðis kórónuveirunnar vekja nú áhyggjur sænskra heilbrigðisyfirvalda af því að fjórða bylgja faraldursins gæti verið í uppsiglingu þar. Hvetja þau landsmenn til að láta bólusetja sig sem fyrst. 11.6.2021 16:57
Vilja banna að börnum sé kennt um hinsegin fólk Stjórnarflokkur Ungverjalands hefur lagt fram frumvarp sem myndi leggja bann við að börn séu frædd um hinsegin og transfólk. Mannréttindasamtök fordæma frumvarpið og segja það í ætt við sambærileg lög sem voru samþykkt í Rússlandi fyrir nokkrum árum. 11.6.2021 16:21
Boðar uppbyggingu múrs á landamærum Texas Ríkisstjóri Texas hefur heitið því að reisa múr við landamæri Texas að Mexíkó. Hann hefur sett milljarð Bandaríkjadala, eða um 122 milljörðum íslenskra króna, í verkefnið. 11.6.2021 15:50
Leita að eins árs stúlku eftir að lík systur hennar fannst í sjónum undan ströndum Tenerife Spænsk yfirvöld leita nú að eins árs gamalli stúlku eftir að lík sem er talið af sex ára gamalli systur hennar fannst í sjónum nærri bát föður þeirra undan ströndum Tenerife. Föðurins er einnig saknað en hann er grunaður um að hafa myrt dætur sínar. 11.6.2021 14:26
Náinn bandamaður Navalní eftirlýstur Rússnesk yfirvöld lýsa nú eftir Ivan Zhdanov, nánum bandamanni Alexeis Navalní, í kjölfar þess að dómstóll úrskurðaði samtök Navalní gegn spillingu ólögleg öfgasamtök í vikunni. Zhdanov veitti sjóði Navalní foyrstu. 11.6.2021 13:05
Telja fleiri en 350.000 manns líða hungur í Tigray Sameinuðu þjóðirnar og hjálparsamtök áætla nú að fleiri en 350.000 líði hungur í stríðshrjáðu Tigray-héraði í Eþíópíu. Milljónir til viðbótar séu í hættu á hungursneyð sem er þegar sú versta í heiminum í áratug. 11.6.2021 12:03
Trump-stjórnin fékk aðgang að símagögnum demókrata Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna í tíð Donalds Trump sem forseta fékk aðgang að upplýsingum úr fjarskiptatækjum að minnsta kosti tveggja þingmanna Demókrataflokksins þegar það rannsakaði leka á trúnaðarupplýsingum. Fáheyrt er sagt að saksóknarar sækist eftir slíkum upplýsingum um þingmenn. 11.6.2021 11:04
Stóru iðnríkin ætla að gefa milljarð bóluefnaskammta Sjö helstu iðnríki heims ætla að tilkynna að þau muni gefa þróunarríkjum um allan heim að minnsta kosti milljarð skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni. Bandaríkin og Bretland ætla að leggja til meira en helming skammtanna. 11.6.2021 09:56
Gríðarstór vatnspyttur stækkar og stækkar og ógnar bóndabæ Stór vatnspyttur sem myndaðist skyndilega á jörð í ríkinu Puebla í Mexíkó í maí síðastliðnum hefur stækkað og stækkað og er nú á stærð við knattspyrnuvöll. Nú er svo komið að jarðvegur undir býlinu á jörðinni er farinn að láta undan. 11.6.2021 09:10
Tölvuþrjótar segjast hafa komist yfir grunnkóða Electronic Arts Tölvuþrjótar brutust inn í kerfi Electronic Arts, eins stærsta tölvuleikjaframleiðanda í heimi, og tókst að stela grunnkóða nokkurra leikja fyrirtækisins. 11.6.2021 08:15
Boris segist hafa átt frábæran fund með Biden Boris Johnson forsætisráðherra Breta segist hafa átt frábæran fund með Joe Biden Bandaríkjaforseta sem staddur er á Englandi þessa dagana. 11.6.2021 06:54
Bretland gefi 100 milljónir skammta bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretland, tilkynnti í dag að Bretland myndi gefa rúmlega 100 milljónir skammta bóluefnis til fátækari landa. 11.6.2021 00:02
Segja Kínverja hafa skapað „dystópískt helvíti“ í Xinjiang Mannréttindasamtökin Amnesty International saka kínversk stjórnvöld um glæpi gegn mannkyninu með meðferð sinni á úígúrum í Xinjiang-héraði. Framkvæmdastjóri samtakanna segir kommúnistastjórnina hafa skapað „dystópískt helvíti af gífurlegri stærðargráðu“. 10.6.2021 15:54
Langflest Afríkuríki ná ekki bólusetningarmarkmiði Níu af hverjum tíu Afríkuríkjum ná ekki markmiði um að bólusetja 10% íbúa sinna fyrir september, að sögn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins er nú í uppsiglingu víða í álfunni. 10.6.2021 14:52
Ísland fær félagsskap í græna liðinu Rúmenía flokkast nú sem grænt land á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu um stöðu faraldursins í álfunn. Ísland hefur verið flokkað grænt í nokkrar vikur og hefur verið nær eitt hingað til, auk Möltu sem var grænmerkt fyrir viku síðan. 10.6.2021 14:05
Dæmd í 21 árs fangelsi í Noregi fyrir að myrða börnin sín Dómstóll í Osló hefur dæmt 35 ára konu í 21 árs fangelsi fyrir að hafa drepið tvo syni sína, sjö og eins árs, í Lørenskog, austur af Osló, á síðasta ári. 10.6.2021 13:49
Viðurkenna Suður-Íshafið sem heimshaf Suður-Íshafið í kringum Suðurskautslandið verður nú skráð sem fimmta heimshafið á kortum Landafræðifélags Bandaríkjanna í fyrsta skipti í meira en hundrað ára sögu þess. Fram að þessu hefur óeining ríkt um fjölda heimshafanna og félagið hefur aðeins viðurkennt fjögur. 10.6.2021 13:01
Saka Suu Kyi um spillingu í embætti Herforingjastjórnin í Búrma sakar Aung San Suu Kyi sem hún steypti af stóli forseta um stórfellda spillingu í embætti. Suu Kyi gæti átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi verði hún fundin sek. 10.6.2021 11:37