Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frænka Trump segir lygar vera lífsstíl hans Bróðurdóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta fullyrðir að fyrir honum séu lygar lífsstíll og að andlegir sjúkleikar séu ógn við heiminn á tíma faraldurs og efnahagsþrenginga. 7.7.2020 23:28
Serbneskir mótmælendur brjótast inn í þinghúsið vegna fyrirhugaðs útgöngubanns Hópur stuðningsmanna stjórnarandstöðunnar braust inn í serbneska þinghúsið í Belgrad í kvöld. Hópurinn var að mótmæla útgöngubanni í höfuðborginni sem tekur í gildi um næstu helgi til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. 7.7.2020 22:39
Fyrrverandi blaðamaður sakaður um landráð Rússneskar öryggissveitir handtóku í dag fyrrverandi blaðamann sem starfar nú sem aðstoðarmaður yfirmanns rússnesku geimvísindastofnunarinnar. Hann er sakaður um landráð og er sagður hafa deilt hernaðarleyndarmálum með Tékklandi. 7.7.2020 21:50
Stríðandi fylkingar í Sýrlandi sagðar sekar um stríðsglæpi Stjórnarher Sýrlands og íslamistar sem háðu harða hildi um Idlib-hérað í fyrra eru sagðir hafa framið „svívirðilega“ stríðsglæpi í nýrri skýrslu eftirlitsmanna Sameinuðu þjóðanna. Óbreyttir borgarar voru fórnarlömb loftsárása, sprengukúluregns, pyntinga og gripdeilda. 7.7.2020 21:39
Bandaríkin tilkynna WHO um úrsögn sína Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur tilkynnt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) formlega um úrsögn sína. 7.7.2020 20:31
Hitamet í Síberíu kyndir undir miklum gróðureldum Meira en fimm gráðum hlýrra var í Síberíu norðan heimskautsbaugs í júní en í venjulegu árferði. Hitabylgjan hefur skapað aðstæður fyrir eina verstu gróðurelda sem geisað hafa á svæðinu samkvæmt gögnum evrópskra gervitungla. 7.7.2020 18:55
WHO viðurkennir möguleika á að smit berist með lofti Opið bréf hóps vísindamanna hefur orðið Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) tilefni til að viðurkenna að frekari vísbendingar komi nú fram um að nýtt afbrigði kórónuveiru gæti smitast með lofti. 7.7.2020 18:11
Forseti Brasilíu með kórónuveiruna Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur greinst með kórónuveiruna. 7.7.2020 15:33
Esau kannast ekki við spillingu í ráðherratíð sinni Bernhardt Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, þvertekur fyrir að hafa nýtt sér ráðherrastöðu sína til þess að hagnast persónulega. 7.7.2020 13:51
Söngvari Kasabian játar að hafa ráðist á fyrrverandi unnustu sína Greint var frá því í gær að Tom Meighan hafi sagt skilið við sveitina. 7.7.2020 10:34
Útgöngubann í Melbourne Útgöngubanni hefur verið komið á í áströlsku borginni Melbourne og í nágrenni hennar eftir að 191 einstaklingur greindist með kórónuveiruna á einum degi í Viktoríu, einu fjölmennasta fylki Ástralíu. 7.7.2020 08:49
Fleiri saka Epstein um misnotkun í kjölfar handtöku Maxwell Fleiri hafa nú stigið fram og ásakað barnaníðinginn Jeffrey Epstein um að hafa brotið á sér. Ásakanirnar líta dagsins ljós í kjölfar þess að Ghislaine Maxwell, sem var nátengd Epstein áður en hann fyrirfór sér í fangaklefa sínum í ágúst í fyrra, var handtekin. 7.7.2020 07:01
Ákærð fyrir að reyna að siga lögreglunni á svartan mann Hvít kona sem reyndi að siga lögreglunni á svartan mann sem bað hana um að setja hundinn sinn í ól í New York í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir athæfi sitt. Í myndbandi af atvikinu hótar hún manninum því að hringja á lögregluna og segja að svartur maður sé að ógna lífi hennar. 7.7.2020 06:32
Mögulegt varaforsetaefni Demókrata smituð af veirunni Tilfelli kórónuveiru halda áfram að aukast í Bandaríkjunum og nú hefur borgarstjóri Atlanta borgar, sem nefnd hefur verið sem mögulegt varaforsetaefni Demókrata, smitast af veirunni. 6.7.2020 23:55
Kántrí-goðsögnin Charlie Daniels látinn Kántrí-tónlistarmaðurinn Charlie Daniels, sem þekktastur er fyrir lag sitt The Devil Went Down to Georgia, er látinn 83 ára að aldri. 6.7.2020 22:56
Ný ríkisstjórn Frakklands kynnt Nýr forsætisráðherra Frakklands tilkynnti í dag skipan ríkisstjórnar sinnar. Einhverjar mannabreytingar hafa orðið en að sama skapi halda nokkrir ráðherrar stöðum sínum. 6.7.2020 22:35
Faraldurinn í sókn í Ástralíu og Indlandi Stjórnvöld í Ástralíu lokuðu í dag fylkjamörkum Nýja Suður-Wales og Viktoríu vegna kórónuveirufaraldursins. 6.7.2020 20:00
Simbi var fótbrotinn og dauðvona en er nú við hestaheilsu Tíu mánaða gamli ljónsunginn Simbi er nú á batavegi eftir að dýraverndarfólk bjargaði honum á dögunum. 6.7.2020 19:00
Louvre lifnar við á nýjan leik Listasafnið í París hefur verið lokað í um fjóra mánuði vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. 6.7.2020 13:03
Umsjónarmaður barnaníðsvefs ekki framseldur til Bandaríkjanna Son Jong-woo, maðurinn á bakvið barnaníðsvefinn Welcome to Video, verður ekki framseldur til Bandaríkjanna. 6.7.2020 12:35
44 látnir eftir óveður í Japan Að minnsta kosti 44 eru látnir eftir að mikið óveður skall á suðurhluta Japan. Yfirvöld í landinu hafa fyrirskipað rúmlega milljón manns að yfirgefa heimili sín vegna flóða og tíðra aurskriða. 6.7.2020 12:28
Hafa engar áhyggjur af frekari útbreiðslu í Færeyjum Fyrsta smitið í rúmlega tvo mánuði greindist í Færeyjum um helgina. 6.7.2020 10:43
Broadway-stjarna lést eftir baráttu við Covid-19 Broadway-leikarinn Nick Cordero lést í gær af völdum Covid-19. Hann var 41 árs. 6.7.2020 08:44
Loka fylkjamörkum milli Viktoríu og Nýju Suður-Wales Yfirvöld í Ástralíu hafa lokað fylkjamörkum milli Viktoríu og Nýju- Suður-Wales, tveggja fjölmennustu fylkja landsins, eftir að mikil fjölgun hefur orðið í tilfellum nýrra kórónuveirusmita í Melbourne. 6.7.2020 08:35
Íhaldsflokkurinn HDZ vann sigur í Króatíu Andrej Plenkovic, forsætisráðherra Króatíu, og íhaldsflokkur hans, HDZ, hafa fengið umboð til að mynda nýja ríkisstjórn eftir að flokkurinn vann sigur í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. 6.7.2020 07:48
Ennio Morricone er látinn Ennio Morricone sem samdi tónlistina við fjölda stórmynda er látinn, 91 árs að aldri. 6.7.2020 07:16
Greindist með svartadauða í Innri-Mongólíu í Kína Stjórnvöld í Kína hafa aukið varúðarráðstafanir eftir að íbúi í borginni Bayannur í sjálfstjórnarhéraðinu Innri-Mongólíu greindist með bakteríu sem leiðir til sjúkdóms er nefndur hefur verið svartidauði. 6.7.2020 06:53
Kórónuveirutilfellum á heimsvísu aldrei fjölgað meira Tilfellum kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 sjúkdómnum hefur aldrei fjölgað meira á heimsvísu en síðasta sólarhringinn, samkvæmt upplýsingum frá WHO. 6.7.2020 06:35
Öfgahægrimenn létu glepjast af gabbi á þjóðhátíðardaginn Hópar vopnaðra öfgahægrimanna söfnuðust saman á söguslóðum við Gettysburg í Bandaríkjunum á þjóðhátíðardaginn í gær vegna orðróma um að svonefndir andfasistar ætluðu sér að brenna bandaríska fána þar. Þar gripu þeir þó í tómt því fánabrennan virðist hafa verið samfélagsmiðlagabb. 5.7.2020 23:53
Mögulegt framboð Kanye ætti strax undir högg að sækja Ólíklegt er að tónlistarmanninum Kanye West tækist að komast á kjörseðilinn í Bandaríkjunum í haust jafnvel þó að honum sé alvara með því að bjóða sig fram til forseta. Framboðsfrestur fyrir óháða frambjóðendur er þegar liðinn í nokkrum ríkjum. 5.7.2020 22:45
Töluverðar skemmdir urðu í kjarnorkustöð Írana Írönsk yfirvöld viðurkenna að verulegar skemmdir hafi orðið á kjarnorkustöð þeirra í Natanz þegar eldur braust út þar á fimmtudag. Eldurinn er meðal annars sagður hafa valdið skemmdum á nýrri skilvindu sem var í smíðum þar. 5.7.2020 22:41
Vara við því að kórónuveiran geti borist með lofti Hundruð vísindamanna vara við því að vísbendingar séu um að nýtt afbrigði kórónuveiru geti borist með lofti og smitað fólk í opnu bréfi sem þeir hafa skrifað Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. 5.7.2020 20:45
Mótmælandi sem ekið var á í Seattle látinn Kona á þrítugsaldri sem stóð í hópi mótmælenda þegar ökumaður ók bíl sínum á fólkið í Seattle í Bandaríkjunum er látin af sárum sínum. Annar mótmælandi liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahúss. Ökumaðurinn er í haldi lögreglunnar. 5.7.2020 19:43
Bækur lýðræðissinna fjarlægðar í Hong Kong Kínversk yfirvöld hafa fjarlægt bækur eftir þekkta lýðræðissinna í Hong Kong til að fara yfir hvort að efni þeirra samræmist nýjum og umdeildum öryggislögum sem tóku gildi í síðustu viku. Bækurnar eru ekki lengur aðgengilegar á bókasöfnum borgríkisins. 5.7.2020 18:26
Frekari lokanir á norðanverðum Spáni vegna faraldursins Yfirvöld í Galisíu á Norðvestur-Spáni hafi komið aftur á takmörkunum til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á svæði þar sem um 70.000 manns búa vegna þess að smitum hefur farið fjölgandi þar. Útgöngubann tók aftur gildi í hluta Katalóníu af sömu ástæðu í gær. 5.7.2020 17:39
„Ölvaðir fylgja ekki fjarlægðarreglum“ „Ölvaðir einstaklingar geta ekki haldið fjarlægðarreglum,“ segir formaður stéttarfélags bresku lögreglunnar eftir að knæpur landsins voru opnaðar að nýju eftir langa lokun vegna heimsfaraldursins. 5.7.2020 16:01
Dýragarðsvörður lést eftir árás tígrisdýrs Dýragarðsvörður í svissnesku borginni Zürich lést í dag eftir að hafa orðið fyrir árás fullvaxta tígrisdýrs. 5.7.2020 14:07
Fyrsta smitið greint í Færeyjum frá því í apríl Kórónuveiran er aftur komin á stjá í Færeyjum eftir langt hlé. Ferðalangur sem kom þangað í gær með flugi greindist með smit eftir að hafa farið í skimun á flugvellinum í Vágum. Gengið er út frá því að um gamalt smit sé að ræða 5.7.2020 11:59
Trump heldur því fram að 99 prósent kórónuveirusmita séu „algjörlega skaðlaus“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt því fram að 99 prósent kórónuveirusmita í Bandaríkjunum væru skaðlaus, í ávarpi þar sem hann fagnaði þjóðhátíðaradegi Bandaríkjanna í gær, 4. júlí. 5.7.2020 09:16
Kanye West segist ætla að bjóða sig fram til forseta Svo virðist sem að bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West hafi í hyggju að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tísti frá West. 5.7.2020 08:05
Rasískir undirtónar Trump skjóta repúblikönum skelk í bringu Frammámenn í Repúblikanaflokknum er sagðir óttast um afdrif flokksins í kosningum í haust vegna þess hversu hart Donald Trump forseti gengur nú fram í að ala á kynþáttaóróa í landinu. 4.7.2020 23:27
Rétttrúnaðarkirkjan mótmælir kröfu um að Ægisif verði moska Rússneska rétttrúnaðarkirkjan telur óásættanlegt ef Ægisif í Istanbúl verður breytt úr safni í mosku eins og hópur tyrkneskra þjóðernissinna og múslima gerir kröfu um. Fleiri trúar- og stjórnmálaleiðtogar hafa gagnrýnt mögulega breytinguna. 4.7.2020 21:28
Malaríu- og HIV-lyf drógu ekki úr dánartíðni Covid-sjúklinga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur stöðvað tilraunir með malaríu- og HIV-lyf eftir að þau reyndust ekki bæta lífslíkur Covid-19-sjúklinga á sjúkrahúsum. Nýtt met yfir fjölda nýrra kórónuveirusmita á heimsvísu var sett í dag. 4.7.2020 20:16
Faðir Johnson ver umdeilda Grikklandsför sína Stanley Johnson, faðir forsætisráðherra Bretlands, segist vera í viðskiptaferð í Grikklandi og að myndum sem hann birti af ferðalaginu hafi ekki verið ætlað að gera lítið úr tilmælum breskra stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins. 4.7.2020 18:08
Útgöngubanni komið á í hluta Katalóníu vegna uppgangs veirunnar Yfirvöld hafa hert aftur á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í hluta Katalóníu eftir að nýjum smitum fjölgaði á nýjan leik. Íbúum svæðisins er bannað að yfirgefa það en þurfa ekki að halda sig heima eins og í upphaflega útgöngubanninu. 4.7.2020 17:36