Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skaut sextán skólabörn Kínverskur karlmaður skaut og særði sextán ung skólabörn í Anhui héraði í austanverðu Kína. Sjö barnanna liggja alvarlega særð á sjúkrahúsi en ekkert þeirra er í lífshættu. Maðurinn flýði úr skólanum eftir árásina og um 200 lögreglumenn leita nú að honum. 13.10.2005 00:01
Blaðamönnum sleppt á Gasa Blaðamönnunum tveimur, Bandaríkjamanni og Breta, sem palestínskir byssumenn rændu á Gasa í gærdag, var sleppt í gærkvöld. Palestínsk yfirvöld segja Fatah samtökin hafa staðið fyrir ránunum en yfirmenn öryggismála í Palestínu fengu þá lausa. 13.10.2005 00:01
Aldrei meiri skötuselsafli Rúmlega 3200 tonn veiddust af skötusel í lögsögu Færeyja í fyrra og hefur aflinn aldrei verið meiri. Þetta er um það bil helmingi meira en veiði Íslendinga árið undan. 13.10.2005 00:01
Tuttugu féllu í árás í Rússlandi Tuttugu lágu í valnum eftir árás á borgina Nalchik í Kabardino-Balkaria héraði Rússlands, skammt Tsjetsjeníu þar sem borgarastríð hefur geisað meira og minna án láts síðasta áratuginn. 13.10.2005 00:01
Pinter fær bókmenntaverðlaunin Breska leikritaskáldið Harold Pinter hlaut í morgun Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Sænska akademían tilkynnti í morgun að breska leikritaskáldið hefði hlotið bókmenntaverðlaun nóbels þetta árið. 13.10.2005 00:01
Fuglaflensa í Tyrklandi Fuglaflensan mannskæða er nú komin að landamærum Evrópu. Talsmenn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tilkynntu í morgun að rannsóknir úr sýnum, sem tekin voru úr fuglum í Tyrklandi, hefðu leitt í ljós afbrigði veirunnar sem væri hættulegt mönnum. 13.10.2005 00:01
Tala látinna komin í 25 þúsund Hjálparstarf á skjálftasvæðunum í Pakistan gengur erfiðlega, þar sem aðstoð og hjálpargögn berast seint. Stjórnvöld í Pakistan greindu frá því í morgun að minnst tuttugu og fimm þúsund manns hefðu farist í hamförunum. 13.10.2005 00:01
Muntefering varakanslari Franz Muntefering, formaður þýska Jafnaðarmannaflokksins, verður næsti varakanslari Þýskalands, að því er Reuter-fréttastofan greindi frá í morgun. Hann mun gegna embættinu undir forystu Angelu Merkel, leiðtoga Kristilegra demókrata, sem sest í stól kanslara og tekur við af Gerhard Schröder. 13.10.2005 00:01
Skæruliðar felldir í Tsjetsjeníu Fimmtíu skæruliðar hafa verið felldir og tólf óbreyttir borgarar látið lífið í hörðum átökum hers og skæruliða í borginni Naltjik, nærri Tsjetsjeníu. Skæruliðar réðust inn í barnaskóla í borginni, en starfsfólki skólans tókst að bjarga börnunum í tæka tíð. Skæruliðarnir hafa einnig ráðist inn í lögreglustöð og opinberar byggingar. 13.10.2005 00:01
Blindum vísað burt Lágfargjaldaflugfélagið Ryanair sætir nú mikilli gagnrýni frá samtökum fatlaðra eftir að níu blindum og sjóndöprum einstaklingum var vísað frá borði. 13.10.2005 00:01
Stappaði stálinu í menn sína George W. Bush Bandaríkjaforseti ávarpaði bandaríska hermenn í Tikrit í Írak í gær í gegnum myndsíma frá Hvíta húsinu en búist er við að þeir muni hafa í nógu að snúast vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á morgun. 13.10.2005 00:01
Fuglaflensan komin til Evrópu Staðfest hefur verið að alifuglar sem drápust í Tyrklandi í síðustu viku voru smitaðir af fuglaflensu af hinum hættulega H5N1-stofni. Eftir því sem veiran finnst víðar aukast líkurnar á að hún stökkbreytist og smitist á milli manna. 13.10.2005 00:01
Chavez rekur burt trúboða Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefur lýst því yfir að starfsmönnum bandarískum trúboðasamtakanna New Tribes verði vísað úr landi. 13.10.2005 00:01
Kanaan framdi sjálfsmorð Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar sögðu frá því í gær að rannsókn Muhammad al-Louji ríkissaksóknara á dauða Ghazi Kanaan innaríkisráðherra hefði leitt í ljós að Kanaan hefði stungið byssu upp í munn sér og hleypt. Hann kenndi hann einelti líbanskra fjölmiðla í garð Kanaan um. 13.10.2005 00:01
Tíminn að renna út Kuldi, vosbúð og hungur sverfa nú að bágstöddum á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan. Allstór eftirskjálfti reið yfir svæðið í gær en olli þó ekki teljandi skemmdum. 13.10.2005 00:01
Tímósjenkó vinsælust Júlía Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, hefur yfirgnæfandi forskot í nýrri skoðanakönnun um vinsældir frambjóðenda til þingkosninga. 13.10.2005 00:01
Andlitsgrímur uppseldar Flensulyfið Tamiflu er uppselt í apótekum í Belgrad í Serbíu. Þar óttatst menn að fuglaflensufaraldur kunni að breiðast út eftir að upp komst að veiran hafði fundist í Rúmeníu sem og í Tyrklandi. 13.10.2005 00:01
Fuglaflensan á mörkum Evrópu Fuglaflensan mannskæða er nú komin að mörkum Evrópu. Rannsóknir á sýnum sem tekin voru úr fuglum í Tyrklandi hafa leitt í ljós afbrigði veirunnar sem er hættulegt mönnum. Tyrknesk yfirvöld segjast hafa náð að hefta útbreiðslu veirunnar. 13.10.2005 00:01
Pinter fékk Nóbelsverðlaun Breska leikritaskáldið Harold Pinter hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels þetta árið. Valið kom heldur á óvart og Pinter sjálfum varð víst orða vant við fréttirnar, en það ku ekki gerast oft. 13.10.2005 00:01
Hættulegt tannkrem Norskir og sænskir sérfræðingar hafa varað fólk við að nota tannkrem með efninu tríklósan, þar sem það getur verið skaðlegt. Efnið er í tannkremstegundum sem eru merktar Total og er bakteríudrepandi. Börnum og þunguðum konum er sérstaklega ráðlagt að nota annars konar tannkrem. 13.10.2005 00:01
Tusk eykur forskotið á Kaczynski Frjálshyggjumaðurinn Donald Tusk hefur aukið forskot sitt á keppinautinn um pólska forsetaembættið, íhaldsmanninn Lech Kaczynski, upp í tólf prósentustig, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í gær. Úrslitaumferð forsetakosninganna, þar sem valið stendur á milli þeirra tveggja, fer fram 23. þessa mánaðar. 13.10.2005 00:01
Steinmeier í þýsku utanríkismálin Frank Walter Steinmeier, starfsmannastjóri Gerhards Schröder fráfarandi kanslara, verður næsti utanríkisráðherra Þýskalands. Þetta kom í ljós er forusta þýska jafnaðarmannaflokksins SPD staðfesti hverjir úr þeirra röðum tækju sæti í væntanlegri samsteypustjórn með kristilegum demókrötum. 13.10.2005 00:01
Tugir falla í árás uppreisnarmanna Téténskir uppreisnarmenn lýstu ábyrgð á árásinni, en með henni færðist vettvangur stríðs íslamska uppreisnarmanna á Kákasussvæðinu gegn Rússum enn frekar út, en það hefur nú staðið í á annan áratug. 13.10.2005 00:01
Ráðherralisti í Noregi Ráðherralisti nýrrar ríkisstjórnar í Noregi verður kynntur á ríkisráðsfundi í norsku konungshöllinni í Osló á mánudag. Viðræðum forystumanna rauðgræna bandalagsins svonefnda, sem hlaut meirihluta þingsæta í þingkosningunum 12. septemer síðastliðinn, lauk í ráðstefnumiðstöðinni Soria Moria í gær. 13.10.2005 00:01
Hagnaður Apple fjórfaldast Hagnaður Apple fjórfaldaðist á síðasta ársfjórðungi í samanburði við sama tímabil í fyrra en hagnaður fyrirtækisins nam 26 milljörðum íslenskra króna. Ástæða góðs gengis er án efa góð sala á iPodinum svokallaða en fyrirtækið seldi 6,5 milljónir tækja af þessu tagi á tímabilinu. Tekjur Apple voru samt sem áður minni en sérfræðingar á Wall Street höfðu búist við og gengi hlutabréfa félagsins lækkaði um 10% eftir að hagnaðartölur birtust. > 12.10.2005 00:01
Græðgi ógnar fótboltanum Forseti alþjóðaknattspyrnusambandsins segir græðgina í fótboltanum vera farna að ógna leiknum sjálfum. Launagreiðslur leikmanna séu orðnar óeðlilega háar og fótboltann orðinn aukaatriði. Eigendur knattspyrnufélaganna hugsi aðeins um peninga og líti ekki á fótbotann sem íþrótt heldur viðskipti og það eingöngu.> 12.10.2005 00:01
Skortur á vinnuafli í New Orleans Skortur er á vinnuafli á veitingastöðum í New Orleans og eru skilti í glugga á nánast hverjum einasta veitingastað í borginni þar sem stendur á hjálp óskast. Stjórnendur veitingastaðanna hafa neyðst til að bera matinn fram á plastdiskum og drykkina sömuleiðis í plastglösum þar sem enginn er á staðnum til að þvo upp. > 12.10.2005 00:01
Schröder tvístígandi Gerard Schröder, kanslari Þýskalands, gaf það í skyn á fundi sem haldinn var í gær að hann myndi kannski ekki verða með í ríkisstjórn sem leidd verður áfram af Angelu Merkel formanni Kristilegra. Schröder hefur samþykkt að láta embættið af hendi til Merkel. > 12.10.2005 00:01
Sjö og hálft tonn haldlögð Kólumbíski sjóherinn lagði í gær hald á sjö og hálft tonn af kókaíni sem talið er hafa verið í eigu uppreisnarmanna í landinu. Talið er að andvirði efnisins sé um 188 milljónir dollara, eða um 11,5 milljarðar íslenskra króna. Yfirvöld í Kólumbíu hafa lagt hald á um 90 tonn af kókaíni það sem af er ári en hvergi í heiminum er framleitt jafn mikið magn af kókaíni og í Kólumbíu.> 12.10.2005 00:01
Sprengt við sendiráð BNA í Kabúl Tveir særðust þegar sprengja sprakk við bandaríska sendiráðið í Kabúl, höfuðborg Afghanistan í morgun. Enginn hópur hefur lýst verknaðinum á hendur. Árásum hefur fjölgað mikið í borginni að undanförnu en yfir 1400 manns hafa fallið vegna þeirra á síðustu sex mánuðum.> 12.10.2005 00:01
Annar jarðskjálfti í Pakistan Jarðskjálfti sem ældist fimm á Richter reið yfir suðvesturhluta Pakistan í gær, fjórum dögum eftir jarðskjálftann á laugardag. > 12.10.2005 00:01
Fimm hjálparstarfsmenn skotnir Talibanar skutu fimm afganska hjálparstarfsmenn til bana í suðurhluta Kandaharhéraðs í morgun. Hjálparstarfsmennirnir, tveir læknar, tvær hjúkrunarkonur og ökumaður þeirra, voru á leið frá þorpi þar sem þeir höfðu sinnt hjálparstarfi þegar ráðist var á þá.> 12.10.2005 00:01
Stjórnaskrá Íraks tekin fyrir Írakska þingið kemur saman í Bagdad í dag til að gera breytingar á stjórnarskrá landsins, eftir að einn helsti stjórnmálaflokkur landsins, flokkur Súnní-Araba ákvað að hvetja stuðningsmenn sína til að samþykkja stjórnarskrána. > 12.10.2005 00:01
Engin fuglaflensa í Rúmeníu Engin merki um fuglaflensu hafa fundist í Rúmeníu samkvæmt sérfræðingum á vegum Evrópusambandsins. Er því ekki talin ástæða til að banna útflutning á fuglakjöti þaðan. > 12.10.2005 00:01
Brutust inn í fangelsi Um fjögur hundruð aðstandendur þeirra sem létust í hryðjuverkaárásunum í Bali árið 2002 brutust í morgun inn í fangelsi til að krefjast aftöku þriggja manna sem fundnir voru sekir um hryðjuverkin. Mennirnir hafa verið dæmdir til dauða en fólkið er ósátt við að mennirnir hafi ekki þegar verið teknir af lífi.> 12.10.2005 00:01
Þrjátíu létust í sprengjuárás Í það minnsta 30 manns létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás við nýliðaskráningu hersins í borginni Tal Afar í norðurhluta Íraks, 35 að særðust í árásinni. Þetta er önnur sjálfsmorðssprengjuárásin í borginni á tveim dögum þrátt fyrir fullyrðingar íraskra og bandaríska yfirvalda í síðasta mánuði um að þau hefðu upprætt sveitir vígamanna í borginni. > 12.10.2005 00:01
Hjálparstarf reynist erfitt Hjálparsveitum hefur reynst erfitt að koma matvælum og öðrum hjálpargögnum til bágstaddra á hamfarasvæðum í Pakistan eftir jarðskjálftan sem reið þar yfir á laugardag. > 12.10.2005 00:01
Ætla að sniðganga þingkosningar Morgan Tsvangirai, leiðtogi helsta stjórnarandstöðuflokks Simbabve hefur boðað að flokkur hans muni sniðganga þingkosningar þar í landi sem halda á í næsta mánuði. > 12.10.2005 00:01
Prófsteinn á lýðræði og frið Þjóðaratkvæðagreiðslan um drög að stjórnarskrá Íraks á laugardaginn getur ráðið úrslitum um hvort hægt verði að koma á friði og réttlæti í þessu stríðshrjáða landi. Þjóðfélagsleg sundrung gefur hins vegar ekki tilefni til mikillar bjartsýni.> 12.10.2005 00:01
Sagður hafa stytt sér aldur Ghazi Kanaan, innanríkisráðherra Sýrlands og yfirmaður leyniþjónustu landsins í Líbanon, fannst látinn á skrifstofu sinni í gær, að sögn sýrlenskra stjórnvalda. Tvær vikur eru þangað til skýrsla rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, liggur fyrir og því leikur grunur á að valdamenn í Damaskus hafi látið ráða hann af dögum til að forða sjálfum sér frá alþjóðlegum refsiaðgerðum. > 12.10.2005 00:01
Þrjátíu biðu bana í Tal Afar Þrjátíu verðandi hermenn biðu bana í sjálfsmorðsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í gær. Sátt virðist vera að skapast á milli stjórnmálamanna um stjórnarskrárdrög landsins.> 12.10.2005 00:01
Sakaður um mútuþægni Innanríkisráðherra Sýrlands framdi sjálfsmorð í dag. Innanríkisráðherrann, Ghazi Kanaan var yfirmaður leyniþjónustu Sýrlands í Líbanon í tuttugu ár. > 12.10.2005 00:01
Kínverjar á sporbraut Geimflaug með tvo kínverska geimfara innanborðs var skotið á loft frá herstöð í Norðvestur-Kína í fyrrinótt. Þetta er í annað sinn í sögunni sem geimferðaáætlun Kínverja skilar mönnuðu fari út í geim. Fyrsta slíka geimskotið átti sér stað fyrir tveimur árum. > 12.10.2005 00:01
Impregilo byggir Sikileyjarbrú Ítölsk stjórnvöld gengu frá samningi við verktakafyrirtækið Impregilo í dag um byggingu brúar frá Sikiley til meginlands Ítalíu. Þetta er fyrsta eiginlega landtenging Sikileyjar við meginlandið en brúin verður lengsta hengibrú í heimi. > 12.10.2005 00:01
Efnahagsumbætur lykilatriði Viðræður um myndun samsteypustjórnar tveggja stærstu flokka Þýskalands munu fara út um þúfur takist ekki að samkomulag um víðtækar efnahagsumbætur. Þetta sagði samherji Angelu Merkel, leiðtoga kristilegra demókrata og væntanlegs kanslara, í gær. Gerhard Schröder, fráfarandi kanslari, staðfesti að hann yrði ekki í nýju ríkisstjórninni. > 12.10.2005 00:01