Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Héðinn stígur til hliðar sem formaður Geðhjálpar Héðinn Unnsteinsson hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður Geðhjálpar. Héðinn hefur komið að samtökunum í nærri 30 ár, þar af setið í stjórn í sjö ár og sinnt hlutverki formanns í þrjú. 3.2.2023 11:10
Atvinnuflugmenn segja ákvörðun Jóns óforsvaranlega Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir ákvörðun dómsmálaráðherra um að hætta rekstri flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sé óforsvaranleg og ólögleg. Félagið mun mögulega leita atbeina Félagsdóms gerist þess þörf. 3.2.2023 11:00
Greiða 67 þúsund á fermetra fyrir stækkun lóða við Sundlaugartún Eigendur Einimels 18, 24 og 26 greiða að meðaltali 67.897 krónur á fermetra til borgarinnar fyrir stækkun á lóðum þeirra við Sundlaugartún. Áætlað er að borgin fái samtals um sextán milljónir í sinn hlut í viðskiptunum. 3.2.2023 09:47
Ráðuneytið vísar frá kærunni sem Efling dró til baka Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur vísað frá stjórnsýslukæru Eflingar vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Efling skaut kærunni í gær til héraðsdóms vegna þess hve félagið taldi ráðuneytið lengi að afgreiða kæruna. 3.2.2023 09:44
Vilja kanna arðsemi jarðganga eða vegskála á Hellisheiði Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Árborg hafa lagt til að sveitarfélagið hafi forgöngu um að unnin verði skýrsla um mat á arðsemi, umferðaröryggi, tengingu svæða og byggðaþróun vegna jarðganga eða vegskála undir Hellisheiði. 3.2.2023 09:30
„Hleyptu mér út hérna, annars ber ég þig“ Strætóbílstjóra á leið frá Selfossi til Reykjavíkur var hótað barsmíðum af farþega sem vildi komast út á miðri Breiðholtsbraut. Framkvæmdastjóri Strætó segir það reglulega koma fyrir að farþegar angri bílstjóra með einum eða öðrum hætti. 3.2.2023 09:01
Skoða að setja upp sleðabraut niður Kambana Fyrirtækið Kambagil ehf. hefur óskað eftir því að hefja viðræður við Hveragerðisbæ um uppsetningu á sleðabraut (e. Alpine Coaster) niður Kambana. Bæjarráð tók vel í erindið og fól bæjarstjóra að vinna málið frekar. 3.2.2023 08:20
Segja nautgripi í neyð í Skagafirði þrátt fyrir heimsóknir MAST Dýraverndunarsamband Íslands (DÍS) hefur farið fram á tafarlausar aðgerðir af hálfu yfirvalda vegna ástands og aðbúnaðar dýra á bæ í Skagafirði. Matvælastofnun (MAST) hefur tvisvar farið í eftirlitsheimsókn á bæinn en ekki skráð nein frávik. 3.2.2023 07:00
Miðnæturopnunin „krefjandi“ og kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir Lenging opnunartíma Laugardalslaugar í Reykjavík á fimmtudögum hefur reynst kostnaðarsamari en áætlanir gerðu ráð fyrir í upphafi. Þá hefur yngra fólk helst nýtt sér miðnæturopnunina og hefur það oft reynst krefjandi fyrir starfsfólk laugarinnar að ráða við aðstæður. Ekki er fjármagn til að halda miðnæturopnuninni áfram. 3.2.2023 06:39
Örlagaríkur dagur runninn upp í sögulegri deilu Spennan er farin að magnast í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Beðið er eftir að atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun tvö hefjist, beðið er eftir málflutningi í máli Eflingar og ríkissáttasemjara fyrir héraðsdómi og sömuleiðis málflutnings í máli Eflingar og SA fyrir félagsdómi. Þá liggur fyrir dómstólum að úrskurða hvort umdeild miðlunartillaga sáttasemjara standist lög. 3.2.2023 06:22
Reyndi að hlaupa undan lögreglu eftir fíkniefnaakstur Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann hafði reynt að hlaupa undan lögreglu eftir að hafa verið stöðvaður. 3.2.2023 06:12
Skólahald fellt niður til miðvikudags vegna rakaskemmda Stjórn grunnskólans Flataskóla í Garðabæ hefur ákveðið að fella niður skólahald í skólanum til næsta miðvikudags. Ástæðan er rakaskemmdir. 2.2.2023 21:01
Sóttu gönguskíðamenn að Fjallabaki Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli sóttu tvo gönguskíðamenn að Fjallabaki í dag. Tjald þeirra hafði gefið sig vegna veðurs og voru þeir því orðnir blautir og kaldir. 2.2.2023 20:07
Þrekvirki á sjötugsafmælinu átján mánuðum eftir hjartaaðgerð Sjötugur hlaupari á Selfossi fagnaði í dag afmælisdeginum með því að hlaupa fimmtíu kílómetra, einu og hálfu ári eftir opna hjartaaðgerð og krabbameinsmeðferð. Hann er vonsvikinn að hafa ekki náð sjötíu kílómetra markmiðinu en færð, veður og krampar settu strik í reikninginn. Við hittum afmælisbarnið á hlaupum. 2.2.2023 20:01
Efling vill að skipaður verði nýr sáttasemjari Formaður Eflingar segir félagið ekki treysta ríkissáttasemjara til að leiða frekari viðræður við Samtök atvinnulífsins og vill að nýr einstaklingur verði fundinn í hans stað. Félagið gafst einnig upp á biðinni eftir úrskurði vinnumarkaðsráðherra á stjórnsýslukæru vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara og kærði tillöguna til Héraðsdóms í dag. 2.2.2023 19:30
Formaður fjárlaganefndar boðar til aukafundar vegna TF-SIF Þingmenn fordæma vinnubrögð dómsmálaráðherra við ákvörðun um sölu á flugvél Landhelgisgæslunnar og segja hana mikilvæga vegna þjóðaröryggis. Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd um málið á morgun. Ýmsir sem tengjast viðbrögðum við náttúruvá og annarri hættu undrast einnig að selja eigi þessa fullkomnustu leitar og björgunarflugvél landsins 2.2.2023 19:20
„Það verður fróðlegt að lesa þá skýrslu sem hlýtur að liggja fyrir“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, er undrandi á áformum dómsmálaráðherra um að selja flugvélina TF-SIF, sem hefur verið hluti af flota Landhelgisgæslunnar frá árinu 2009. Hann segist vona að ítarleg greining búi að baki ákvörðuninni. Almannavarnir hafi ekki komið að slíkri greiningu. 2.2.2023 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmenn fordæma vinnubrögð dómsmálaráðherra við ákvörðun um sölu á flugvél Landhelgisgæslunnar og segja hana mikilvæga vegna þjóðaröryggis. Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd um málið á morgun. Ýmsir sem tengjast viðbrögðum við náttúruvá og annarri hættu undrast einnig að selja eigi þessa fullkomnustu leitar og björgunarflugvél landsins. 2.2.2023 18:01
Hristir hausinn yfir ákvörðun Jóns því vélina megi alls ekki selja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á þeim tíma sem flugvélin TF-SIF varð hluti af flota Landhelgisgæslunnar, er hissa á tíðindum af fyrirhugaðri sölu vélarinnar. Hans skoðun er einföld. Vélina megi alls ekki selja. Þá setur hann spurningamerki við að Ísland vilji ekki stolt leggja sitt af mörkum við gæslustörf fyrir Miðjaðarhafi. 2.2.2023 16:37
Sér ekki möguleika á samningum nema Aðalsteinn stígi til hliðar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að skipa þurfi vararíkissáttasemjara ef kalla eigi Eflingu og Samtök Atvinnulífsins aftur að samningsborðinu. Efling hefur dregið stjórnsýslukæru sína vegna miðlunartillögu sáttasemjara til baka og þess í stað kært hana til héraðsdóms. 2.2.2023 15:50
Flugvélin kostnaðarsöm og notkunin „mjög lítil“ Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að flugvél Landhelgisgæslunnar sé kostnaðarsöm og lítið notuð. Fyrirhuguð sala á vélinni var til umfjöllunar í funheitri umræðu á Alþingi í dag. 2.2.2023 15:30
Birgir Ármannsson ver enn leyndina um Lindarhvol Þingmenn Samfylkingarinnar og Pírata gerðu harða hríð að Birgi Ármannssyni forseta Alþingis í gær og kölluðu eftir því að á þinginu að greinargerð Sigurðar Þórðarsonar setts ríkisendurskoðanda yrði birt. Birgir telur það ýmsum vandkvæðum bundið. 2.2.2023 14:01
Efling skýtur lögmæti miðlunartillögunnar til héraðsdóms Efling hefur ákveðið að skjóta kröfu sinni um ógildingu miðlunartillögu ríkissáttasemjara til Héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta gerir félagið vegna viðbragðsleysis Guðmundar Inga Guðbrandssonar vinnumarkaðsráðherra við stjórnsýslukæru Eflingar. 2.2.2023 13:42
Vinnudeilur ekki gagnlegar þegar spenna er í hagkerfinu Fjármálaráðherra segir vinnudeilur, líkt og er á milli Samtaka atvinnulífsins (SA) og Eflingar, séu ekki gagnlegar þegar mikil spenna er í hagkerfinu líkt og er um þessar mundir. Hann vill sjá vinnu lagða í að þroska vinnumarkaðsmódelið til að draga úr líkunum á að ágreiningur í kjaraviðræðum endi á svipuðum stað og SA og Efling eru komin á. 2.2.2023 13:24
Óttast að illa verði komið fyrir húsvernd með sameiningu Sviðsstjóri hjá Minjastofnun er hræddur um að illa verði komið fyrir húsvernd í landinu ef Minjastofnun verður undirsvið í mun stærri stofnun. Ekki hafi verið hlustað á sjónarmið starfsfólks Minjastofnunar í sameiningarferlinu. Minjavernd eigi miklu frekar heima í ráðuneyti menningarmála. 2.2.2023 13:08
Dómsmálaráðherra hefur ekki heimild til að selja TF-SIF Engin heimild er í fjárlögum þessa árs til sölu á TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar. Áform dómsmálaráðherra um sölu flugvélarinnar komu formanni fjárlaganefndar á óvart og telur hann nauðsynlegt að nefndin komi saman til að ræða þessi mál strax á morgun. Fjölmargir þingmenn lýstu hneykslan sinni á ákvörðun dómsmálaráðherra á Alþingi í morgun. 2.2.2023 12:25
Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. 2.2.2023 11:33
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fyrirhuguð sala á eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar var harðlega gagnrýnd á Alþingi í morgun. 2.2.2023 11:28
Anna skákar Guðrúnu í fyrsta sinn Nafnið Anna er orðið algengasta kvenmannsnafnið á Íslandi og steypir þar með nafninu Guðrún í fyrsta sinn af stóli sem algengasta kvennmannsnafn Íslands. 2.2.2023 10:57
Eitt helsta kennileiti Vesturbæjar stórskemmt Talsvert tjón varð á Hagavagninum, hamborgarastað við Vesturbæjarlaug í Reykjavík, þegar eldur kviknaði þar undir morgun 21. janúar. Eigandi staðarins segir að tekið gæti upp undir þrjá mánuði að koma staðnum í samt lag og opna hann á ný. 2.2.2023 10:01
Pólitískur rétttrúnaður og aðför að málfrelsinu mjög hættuleg þróun Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður hóf störf á Morgunblaðinu í dag og lýsir því þar með sé hún komin heim. Það er, eftir um átta ára ferðalag á önnur mið; hún starfaði á Fréttablaðinu 2014-2022. Nú stendur til að taka þátt í umræðunni og halda borgaralegum gildum á lofti. 2.2.2023 08:55
Bein útsending: Fjárfest í þágu þjóðar Landssamtök lífeyrissjóða og innviðaráðuneytið standa í dag fyrir ráðstefnu um innviðafjárfestingar með áherslu á samgönguinnviði. Ráðstefnan fer fram á Grand hóteli og hefst klukkan 8:30. Hún er sýnd í beinu streymi hér á Vísi. 2.2.2023 08:01
„Auðvitað horfum við fyrst í eigin barm“ Stjórnarformaður Votlendissjóðs segir afköst sjóðsins á síðasta ári óásættanleg. Stjórnendur líti í eigin barm nú þegar verulega hefur verið dregið úr rekstri sjóðsins og framtíð hans í uppnámi. Hún hefur þó enn tröllatrú á vísindunum að baki verkefninu. 2.2.2023 07:01
Munu mögulega þurfa að leita til erlendra lögregluembætta Ríkislögreglustjóri hefur sent kollegum sínum á Norðurlöndunum erindi þar sem þau eru látin vita af því að Íslendingar muni mögulega óska eftir aðstoð við löggæslu vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Reykjavík í vor. 2.2.2023 06:33
Þingfundi slitið klukkan tvö í nótt Þingfundi var slitið klukkan tvö í nótt en þá hafði framhald annarrar umræðu um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra staðið yfir í tíu klukkustundir. 2.2.2023 06:17
Fimm ára fangelsi fyrir gróf brot gegn tveimur konum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi. Um var að ræða brot gegn tveimur konum í aðskildum málum en bæði brotin áttu sér stað þann 1. ágúst 2022. 1.2.2023 23:35
„Píratar stýra ekki þinginu, þeir eru ekki í meirihluta“ Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum í tugi klukkustunda frá því þing kom saman eftir jólahlé í síðustu viku. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Pírata, sem hafa látið að sér kveða í umræðum um málið, ekki stýra þinginu. 1.2.2023 22:24
Veðurstofustjóri í skýjunum Tíu stofnanir sem heyra undir umhverfisráðuneytið verða að þremur í umfangsmikilli sameiningu sem umhverfisráðherra boðar. Löngu tímabært að fækka stofnunum segir forstjóri Veðurstofunnar. 1.2.2023 21:45
Segir líklegra að Félagsdómur telji verkfallsaðgerðir ólögmætar Sérfræðingur í vinnurétti telur líklegt að Félagsdómur muni komast að þeirri niðurstöðu að þær vinnustöðvanir sem boðaðar hafa verið af hálfu Eflingar séu ólögmætar. 1.2.2023 20:03
Borðaði ekkert í mánuð og rauf föstuna í fréttatímanum Íslenskur karlmaður sem fastaði allan janúarmánuð léttist um rúm tuttugu kíló á meðan föstunni stóð. Honum leið vel allan tímann, að eigin sögn, og langaði aldrei í hamborgara. Við hittum kappann í dag og fylgdumst með honum brjóta föstuna. 1.2.2023 19:31
Ekki innistæða fyrir gagnrýni á Seðlabankann Fjármálaráðherra segir ekki hægt að kenna gjaldahækkunum ríkissjóðs um áramótin um aukna verðbólgu eins og Neytendasamtökin og fleiri hafa gert. Allir þurfi að horfast í augu við raunveruleikann og standa með Seðlabankanum og öðrum sem gripið hafi til aðgerða til að ná verðbólgunni niður. 1.2.2023 19:22
Óskað eftir vitnum að umferðarslysi á Reykjanesbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærmorgun, þriðjudaginn 31. janúar. 1.2.2023 19:21
45 töskur urðu eftir á flugvellinum á Tenerife 45 töskur voru skildar á TFS flugvellinum á Tenerife þegar vél á vegum Niceair hélt til Akureyrar síðastliðinn miðvikudag. 1.2.2023 19:08
Leitin að Modestas stendur enn yfir Enn hefur ekkert spurst til Modestas Antanavicius, en síðast var vitað af ferðum hans þann 7.janúar síðastliðinn. 1.2.2023 18:46
Stjórnarandstaðan vill sjá á spilin: „Mér er gjörsamlega misboðið“ Önnur umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra stendur nú yfir á Alþingi en ákveðið var að lengja þingfundinn í dag. Þingmenn Pírata og Samfylkingarinnar vildu að hlé yrði gert á umræðunni þar sem meirihlutinn hefur boðað breytingar. Einn þingmaður Pírata sagði þau eiga skilið að sjá á spilin og annar sagði stjórnarliðum ekki treystandi. Fjármálaráðherra sagði minnihlutann snúa öllu á hvolf. 1.2.2023 18:35