Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri sveitarfélög þurfa að veita flóttafólki skjól Sveitarfélög þurfa að skjóta skjólshúsi yfir flóttafólk í auknum mæli til þess að ekki þurfi að starfrækja lengi sérstaka fjöldahjálpastöð fyrir það, að sögn fulltrúa Rauða krossins á Íslandi. Unnið er að opnun fyrstu stöðvar þessarar tegundar hér á landi. 4.10.2022 22:32
Húsráðendur könnuðust ekkert við bíllyklana Íbúar í Garðabæ hringdu á lögreglu fyrr í kvöld vegna bíllykla sem látnir höfðu verið inn um bréfalúgu á húsi þeirra. 4.10.2022 22:28
MeToo bylgja framhaldsskólanema: Tímabært að rödd þeirra fái að heyrast Talskona Stígamóta telur að MeToo-bylgja framhaldsskólanema sé að hefjast. 70 prósent þeirra sem leiti til samtakanna hafi verið beitt kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur. Mikilvægt sé að skólastjórnendur í framhaldsskólum hlusti á nemendur og tilbúnir með viðbragðsáætlanir. 4.10.2022 22:06
Óttast að enginn hlusti á menntaskólanema sem verði fyrir ofbeldi Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa mótmælt því í dag og í gær að nemendur við skólann, sem eru þolendur kynferðisofbeldis, þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Fyrrverandi nemandi segir lítið hafa breyst frá því að hann var í þessari sömu stöðu fyrir áratug. 4.10.2022 20:30
Fangelsismálastjóri segir Barnakot á Hrauninu viðbjóðslegt Fangelsismálastjóri segir húsnæði til að taka á móti börnum á Litla-Hrauni vera viðbjóðslegt. Velgjörðamanni blöskraði svo að hann ákvað að styrkja fangelsið. Hann segir brýnt að bæta aðstöðu barna sem eiga foreldra í fangelsum. 4.10.2022 20:01
Fjöldi umdeildra mála á málaskrá ríkisstjórnar í vetur Ríkisstjórnin fyrir hugar að leggja 178 mál fyrir Alþingi í vetur. Mörg málanna eru umdeild eins og frumvörp dómsmálaráðherra um útlendinga, fækkun sýslumannsembætta og um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu. 4.10.2022 19:20
Einn sakborninganna hlaut dóm fyrir líkamsárás fyrir tveimur árum Karlmaðurinn sem er í gæsluvarðhaldi og með stöðu sakbornings vegna manndráps á Ólafsfirði í gær var dæmdur í eins árs fangelsi, meðal annars fyrir tvær líkamsárásir, árið 2020. Sá látni hlaut fangelsisdóm fyrir stunguárás fyrir hátt í tuttugu árum. 4.10.2022 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn hefur verið opnuð í fyrsta skipti á Íslandi. Aldrei hafa fleiri flóttamenn komið til landsins en í ár og hefur straumur þeirra aukist mjög síðustu vikur. Við verðum í beinni útsendingu frá fjöldahjálparstöðinni í Borgartúni og ræðum við Rauða krossinn í kvöldfréttum. 4.10.2022 18:01
Taka þurfi á upplýsingaóreiðu um hinsegin fólk: „Við verðum að fá allt samfélagið með okkur“ Starfshópur forsætisráðherra gegn hatursorðræðu kemur til með að skila niðurstöðum sínum fyrir lok árs en framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir upplýsingaóreiðu þeirra helsta óvin um þessar mundir. Stjórnvöld geti gert meira til að bregðast við og samfélagið allt þurfi að taka þátt. 4.10.2022 17:19
Stormasamt samband litað af neyslu fíkniefna Kona á fertugsaldri er meðal þriggja sem sæta gæsluvarðhaldi grunuð um aðild að manndrápi á Ólafsfirði aðfaranótt mánudags. Hinn látni, karlmaður á fimmtugsaldri, er eiginmaður konunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu þau átt í stormasömu sambandi. 4.10.2022 14:53
Opna fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn í fyrsta sinn á Íslandi Rauði krossinn á Íslandi vinnur nú að því að opna fjöldahjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en þetta er í fyrsta sinn sem slík fjöldahjálparstöð er opnuð hér á landi. Sviðstjóri alþjóðasviðs hjá Rauða krossinum ítrekar að aðeins sé um tímabundið úrræði að ræða og kallar eftir frekari aðkomu sveitarfélaganna. 4.10.2022 14:51
Sparkaði í líkama og sló ítrekað í andlit starfsmanns Krónunnar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 45 daga fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa veist með ofbeldi að starfsmanni verslunar Krónunnar í Rofabæ í Reykjavík í janúar 2021. Maðurinn sparkaði í líkama starfsmannsins og sló hann ítrekað með krepptum hnefa í andlit. 4.10.2022 14:34
Full ástæða til að halda áfram að kortleggja hatursorðræðu á Íslandi Fulltrúar frá á þriðja tug hagsmunasamtaka hafa sótt fundi starfshóps forsætisráðherra gegn hatursorðræðu en formaður hópsins segir ljóst að ákveðnir hópar komi verr út en aðrir. Þó erfitt sé að meta hvort hatursorðræða fari beinlínis vaxandi hér á landi sé full ástæða til að halda vinnunni áfram. 4.10.2022 14:01
Skólastjórnendur MH segja fagaðila hafa verið kallaða til Skólastjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar fjölmiðla um mótmæli nemenda vegna kynferðisofbeldis. Nemendurnir mótmæltu því í gær að þurfa að mæta gerendum á göngum skólans. 4.10.2022 14:00
Alvarlegt bílslys á Suðurlandsbraut Alvarlegt bílslys varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar ofan við Laugardalinn í Reykjavík um klukkan hálf eitt í dag. Tveir voru inni í fólksbíl sem virðist hafa verið ekið upp á kant, á gönguljós og oltið með þeim afleiðingum að bíllinn er mikið skemmdur. 4.10.2022 12:40
Grettir Sterki mættur til Stykkishólms Dráttarbáturinn Grettir Sterki er kominn til Stykkishólms. Báturinn er í leigu hjá Vegagerðinni, Sæferðum og Stykkishólmsbæ en Sæferðir sjá um að manna bátinn. 4.10.2022 12:23
Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. 4.10.2022 12:00
Bjuggust við að finna mun meiri loðnu Veiðiráðgjöf á loðnu minnkar verulega og haustmælingar voru undir væntingum að sögn sérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. 4.10.2022 11:52
Fjöldi fólks hefur sótt sér áfallahjálp á Ólafsfirði Fjöldi fólks hefur nýtt sér áfallahjálp Kirkjunnar og Rauða krossins á Ólafsfirði vegna manndráps sem var framið þar í fyrrinótt. Rauði krossinn mun áfram hafa viðveru í bænum og veita bæjarbúum stuðning vegna hroðaverksins. 4.10.2022 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Manndráp á Ólafsfirði, lækkuð veiðiráðgjöf loðnu, málefni hinsegin fólks og stríðið í Úkraínu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 4.10.2022 11:34
Kópavogur greiðir mest en þar með er ekki öll sagan sögð Kópavogsbær greiðir 56 þúsund krónur í frístundastyrk til barna í sveitarfélaginu. Styrkurinn er sá hæsti sem veittur er hér á landi. Frístundastyrkur segir þó ekki alla söguna enda bæði misjafnt hve dýrt er fyrir börn að stunda tómstundir í sveitarfélögum. 4.10.2022 10:47
Þórgnýr nýr upplýsingafulltrúi ÖBÍ Þórgnýr Einar Albertsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ). Þórgnýr hefur þegar hafið störf. 4.10.2022 10:04
Kanna sameiningu NTÍ og Bjargráðasjóðs Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur farið þess á leit við stjórn Bjargráðasjóðs að hún kanni möguleikann á því að sameinast Náttúruhamfaratryggingum Íslands, NTÍ. 4.10.2022 09:09
„Falskt öryggi“ fyrir íbúa á Hofsósi og í Varmahlíð Mjög erfiðlega hefur gengið að manna útstöð Brunavarna Skagafjarðar á Hofsósi og er stöðin nær óstarfhæf og gefur falskt öryggi fyrir íbúa á svæðinu. 4.10.2022 08:42
Fæðingardeildinni á Neskaupstað lokað fram á laugardag Loka þurfti fæðingardeildinni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað í gærkvöldi þar sem enginn svæfingarlæknir er til staðar. Verður deildin lokuð fram til laugardags. 4.10.2022 07:37
Tugmilljóna tjón á ótryggðri kornrækt Áætlað tjón á kornuppskeru í Eyjafirði vegna einnar helgar hvassviðris í september er áætlað á bilinu 25 til 30 milljónir króna. Þá er áætlað að frostskemmdir, sem urðu sums staðar í ágúst, hafi eyðilagt uppskeru fyrir 10 til 12 milljónir. 4.10.2022 07:24
Sprengdu hryðjuverkasprengju í bíl í æfingaskyni Um fjögur hundruð manns taka þátt í æfingu gegn hryðjuverkum sem fer nú fram á vegum íslensku Landhelgisgæslunnar. Yfirlautinant í breska sjóhernum segir um mikilvæga og rótgróna sprengjuleitaræfingu að ræða og að nú sé einblínt á nýjar ógnir í hernaðarmálum. 4.10.2022 07:17
67 prósent hjúkrunarfræðinga íhugað alvarlega að hætta 66,8 prósent hjúkrunafræðinga, eða tveir af hverjum þremur, hefur íhugað af alvöru að hætta störfum á síðustu tveimur árum. Þetta eru niðurstöður viðamikillar könnunar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 4.10.2022 07:15
Foreldrar í Laugardal fagna ákvörðun skóla- og frístundaráðs Byggt verður við alla þrjá grunnskólana í Laugardal til að mæta fjölgun nemenda í hverfinu ef nýsamþykkt tillaga skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur nær fram að ganga. Þetta ákvað ráðið á fundi í dag. Foreldrar í hverfinu anda léttar eftir margra mánaða baráttu. 3.10.2022 23:30
Kölluðu rússneska sendiherrann á teppið vegna innlimunarinnar Utanríkisráðuneytið kallaði rússneska sendiherrann á Íslandi til fundar til að lýsa fordæmingu sinni á tilraun rússneskra stjórnvalda til þess að innlima fjögur úkraínsk héruð í dag. Íslensk stjórnvöld ætla ekki að viðurkenna héruðin sem hluta af Rússlandi. 3.10.2022 23:02
Ætlað skotvopn reyndist leikfangabyssa Í kvöld var tilkynnt um ætlað skotvopn í bifreið í Hafnarfirði. Við nánari skoðun lögreglu kom í ljós að um leikfangabyssu var að ræða. 3.10.2022 22:16
Þrennt í gæsluvarðhald vegna manndrápsins á Ólafsfirði Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði tvær konur og einn karlmann í vikulangt gæsluvarðhald vegna mannsláts á Ólafsfirði í kvöld. Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn til bana þar í nótt. 3.10.2022 22:15
Íbúðum í byggingu fjölgar alls staðar nema í Reykjavík Fleiri íbúðir eru samanlagt í byggingu í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkurborgar en í borginni sjálfri. Þar fækkar íbúðum í byggingu milli ára á meðan hún eykst um tæp 90 prósent hjá hinum sveitarfélögunum samanlagt. 3.10.2022 21:00
Íslandsmeistarinn í brauðtertugerð er Ísfirðingur Hún er ekki lengi að hrista brauðtertur fram úr erminni, hvort sem þær eru með rækjum, túnfiski, skinku, laxi eða einhverju allt öðru. Hér erum við að tala um Íslandsmeistarann í brauðtertugerð, sem býr á Ísafirði en skrapp örstutt til Reykjavíkur til að ná í titilinn. 3.10.2022 20:31
Yfirvöld þurfi að bregðast við svo þau verði ekki sanngirnisbótaskyld Talskonur Heimilis og skóla segja úrræðaleysi ríkja í málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi í skólum. Varaformaðurinn vill fá opinbera stefnumótun í málaflokknum. Ella sé hætta á að það þurfi að greiða þolendum ofbeldis sanngirnisbætur í framtíðinni. 3.10.2022 19:46
Átján mánuðir fyrir að flytja inn fjórtán þúsund töflur Karlmaður var á dögunum dæmdur til átján mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að flytja inn fjórtán þúsund töflur sem innihéldu virka efnið fúbrómazólam. 3.10.2022 19:42
Hafnar fullyrðingum ASÍ um óhagkvæmni rafbílastuðnings Formaður Rafbílasambands Íslands segir fullyrðingar sérfræðings ASÍ um að hvatar til kaupa á rafbílum séu óhagkvæmar rangar. Hann tekur þó undir ákall ASÍ um að strætó ætti að vera gjaldfrjáls. 3.10.2022 19:42
Segir fararstjóra starfa áfram þrátt fyrir ásakanir um kynbundið ofbeldi Félagskona í Ferðafélagi Íslands krefur stjórn félagsins svara á því hvers vegna maður, sem hún hefur vitneskju um að ítrekað hafi verið kvartað yfir vegna kynbundins ofbeldis, fái að starfa áfram sem fararstjóri á vegum félagsins. 3.10.2022 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn til bara á Ólafsfirði í nótt og lögregla hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir þremur vegna málsins. Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir samfélagið harmi slegið. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 3.10.2022 18:02
Krefjast gæsluvarðhalds yfir þremur af fjórum Lögreglan á Norðurlandi eystra ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir þremur af fjórum sem handteknir voru á Ólafsfirði í nótt. Karlmaður á fimmtugsaldri lést af stunguáverkum. Annar hlaut áverka á vettvangi og var fluttur á slysadeild. 3.10.2022 16:57
Þung umferð í Ártúnsbrekku eftir árekstur Töluverð umferð er á annantímanum nú síðdegis upp Ártúnsbrekkuna. Árekstur tveggja fólksbíla í neðri hluta brekkunnar hefur hægt enn frekar á umferð sem allajafna er nokkuð þung á þessum tíma dags. 3.10.2022 16:51
Nægt vatn ekki tryggt á Hvanneyri fyrir slökkvilið Borgarbyggðar Slökkivilið Borgarbyggðar framkvæmdi æfingar í Borgarnesi og á Hvanneyri þann 1. október síðastliðinn. Á meðan á æfingunni á Hvanneyri stóð á aðeins að hafa tekið nokkrar mínútur að tæma vatn úr dreifikerfi á svæðinu og varð vatnslaust í nærliggjandi byggð í kjölfarið. 3.10.2022 16:16
Færsla Bjarna Frímanns fjarlægð af Facebook Starfsmenn Facebook fjarlægðu færslu Bjarna Frímanns Bjarnasonar fiðluleikara og hljómsveitarstjóra af Facebook. Í færslunni, sem vakti mikla athygla og fór í mikla dreifingu, sakaði Bjarni Frímann fyrrverandi tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands um kynferðisbrot. Bjarni Frímann hefur kallað eftir skýringum frá Facebook. 3.10.2022 16:08
Á batavegi eftir fólskulega hnífstunguárás við Sprengisand Móðir pilts sem ráðist var á í undirgöngum við Sprengisand segist hafa í gegnum tíðina haft áhyggjur af því að sonur hennar noti ekki hjálm við hjólreiðarnar en grunaði ekki að hann gæti orðið fyrir hnífstunguárás á leið sinni á íþróttaæfingu. Pilturinn er ekki með bílpróf og er hjólið hans fararskjótur en eftir árásina er eðlilega óhugur í honum og foreldrunum. 3.10.2022 15:50
Kyrrðarstund í Ólafsfjarðarkirkju vegna manndrápsins Kyrrðarstund er fyrirhuguð í Ólafsfjarðarkirkju klukkan 20 í kvöld. Tilefnið er sorglegur atburður í bænum í nótt þar sem karlmaður lést af stungusárum. Fjögur voru handtekin af lögreglu í nótt og er þess beðið hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra. 3.10.2022 15:20