Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kerfið traðkar á fötluðu fólki segja foreldrar á Selfossi Foreldrar á Selfossi lýsa hneykslun sinni á kerfinu, sem traðki á fjölfatlaðri dóttur þeirra, sem varð nýlega 18 ára og því lögráða. Þá var lokað á allt á þau í sambandi við hennar mál og nú er staðan sú að þau þurfa að fá skriflegt umboð frá dóttur sinni um að þau séu hæf til að annast hennar mál. Dóttir þeirra getur ekki skrifað né tjáð sig. 4.7.2022 20:06
Kanna hvort ástæða sé til að herða vopnalöggjöfina „Það þyrmir yfir mann hreinlega, yfir svona fullkomlega tilgangslausu ódæðisverki,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skotárásina sem gerð var í Fields-verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn í gær. 4.7.2022 19:26
Gekk um vopnaður og tók í hurðarhúninn Íbúi á Flötunum í Garðabæ varð fyrir þeirri óþægilegu reynslu að vopnaður maður tók í útidyrahurðina á heimili hans á laugardagsmorgun. Myndband úr dyrabjöllu hússins sýnir manninn nálgast húsið með hníf í hendi, taka í hurðarhúninn og halda svo sína leið. 4.7.2022 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Maðurinn sem er grunaður um að hafa skotið þrjá til bana í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn í gær verður í varðhaldi á lokaðri geðdeild út mánuðinn. Myndbönd úr eftirlitsmyndavélum gætu skipt sköpum við rannsókn málsins. Kaupmannahöfn er í sárum, segir sendiherra Íslands í borginni. 4.7.2022 18:01
Hvað má segja og hvað ekki: Lögregla rannsakar skrif um trans fólk Lögmaður hefur áhyggjur af því að verið sé að færa mörk tjáningarfrelsis og hatursorðræðu of langt í átt að vinsælum pólitískt réttum viðhorfum. Skjólstæðingur hennar hefur verið kærður fyrir skrif um trans fólk sem Samtökin ’78 segja full af hatri og grafa undan tilvist þess. 4.7.2022 17:10
Erlendur ferðamaður lést í Almannagjá Erlendur ferðamaður um sjötugt hneig niður á gangi í Almannagjá á Þingvöllum á laugardag. Bráðaliðar hjá þjóðgarðinum komu fljótt á vettvang, að sögn þjóðgarðsvarðar, en lífgunartilraunir báru ekki árangur. Lögreglan segir málið vera í rannsókn en það sé enginn grunur um neitt saknæmt. 4.7.2022 17:06
Auglýsa eftir rekstraraðila fyrir nýja heilsugæslustöð Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir rekstraraðila til að reka nýja heilsugæslustöð í Reykjanesbæ. Heilsugæslan verður staðsett í rúmlega þúsund fermetra húsnæði að Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ. 4.7.2022 15:46
Engin spurning hvað samrýmist lögum landsins Formaður dómarafélagsins segir stéttina enn harða á því að krafa fjármálaráðuneytisins um endurgreiðslu ofgreiddra launa samræmist ekki lögum. Hann segir hæpið að um ofgreiðslu hafi í raun verið að ræða en jafnvel ef svo væri eiga gilda sömu reglur um dómara líkt og aðra þjóðfélagshópa. 4.7.2022 15:42
Borgarstjóri sendir samúðarkveðjur til Kaupmannahafnar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sendir Sophie Hæstorp Anderson, borgarstjóra í Kaupmannahöfn, innilegar samúðarkveðjur vegna skotárásarinnar sem átti sér stað í verslunarmiðstöðinni Field‘s í Kaupmannahöfn í gær. 4.7.2022 15:15
Sendi barnsmóður sinni ógnandi skilaboð Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn blygðunarsemi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, hótanir og brot í nánu sambandi með því að hafa sent henni móðgandi smáskilaboð. 4.7.2022 14:24
Fjórtán hvalir komnir á land í Hvalfirði og fjórir við skipshlið Fjórtán langreyðar hafa verið dregnar á land til vinnslu í hvalstöðinni í Hvalfirði á þeim tólf dögum sem liðnir er frá því hvalbátarnir tveir héldu til veiða. Auk þeirra eru fjórar langreyðar til viðbótar veiddar, komnar að skipshlið, og á leið til lands. 4.7.2022 11:48
Tveir Bretar reyndu að smygla kókaíni til landsins Tveir breskir ríkisborgarar voru dæmdir í hálfs árs fangelsi á föstudag fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega 270 grömmum af kókaíni til Íslands. 4.7.2022 11:41
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um skotárásina í dönsku verslunarmiðstöðinni Field's sem gerð var í gær þar sem þrír létu lífið og fjórir særðust. Við heyrum meðal annars í sendiherra Íslendinga í Kaupmannahöfn og Íslendingi sem starfar í verslunarmiðstöðinni. 4.7.2022 11:34
Óskað eftir áfallahjálp og aðstoð við að komast heim til Íslands Haft hefur verið samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna sex Íslendinga eftir árásina í Fields-verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn í gær. Yfirleitt hefur verið óskað eftir aðstoð við að komast heim til Íslands sem fyrst, að sögn Sveins H. Guðmarssonar, upplýsingafulltrúa í utanríkisráðuneytinu. 4.7.2022 11:17
Eins árs fangelsi fyrir smygl á lítra af amfetamínbasa Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt pólskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot eftir að hafa reynt að smygla tæpum lítra af vökva sem innihélt amfetamínbasa til Íslands með flugi frá Varsjá. Maðurinn hafði samþykkt að flytja efnið til landsins gegn greiðslu. 4.7.2022 11:04
Sigmundur grafi undan réttindabaráttu með slóttugum aðferðum Ugla Stefanía, kynjafræðingur, segir Sigmund Davíð, þingmann Miðflokksins, fara með „alls konar fleipur“ um lög um kynrænt sjálfræði og hann tali ítrekað niður til réttindabaráttu og aktívisma. Hún segir Sigmund beita aðferðum sem séu „lævísar og slóttugar, og til þess gerðar að grafa undan réttindabaráttu frekar en að vernda fólk.“ 4.7.2022 10:23
Töluvert af líkamsárásum yfir helgina og vopn notuð í einhverjum tilfellum Þrjár stórfelldar líkamsárásir áttu sér stað í höfuðborginni á aðfaranótt sunnudags. Mikið álag var hjá lögreglunni um helgina þar sem hátt í tvö hundruð mál voru skráð. 4.7.2022 09:57
Maður sagður hafa staðið á öskrinu í Grafarvogi Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um tilraun til ráns á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur þar sem maður var sagður hafa ógnað starfsfólki með hníf. Hann var handtekinn stuttu síðar og vistaður í fangageymslu. 4.7.2022 06:26
Allt bendi til að það verði erfiðara að klára þetta kjörtímabil en síðasta Fylgi Vinstri grænna heldur áfram að minnka og mælist flokkurinn nú með sögulega lágt fylgi. Prófessor í stjórnmálafræði segir Vinstri græn gjalda fyrir stjórnarsamband við Sjálfstæðisflokkinn. Langt er á milli flokkanna þegar kemur að ýmsum málefnum, annað en í Covid. 3.7.2022 20:57
Fjölmenn útimessa í Arnarbæli í Ölfusi Fjölmenni kom saman í útimessu í Arnarbæli í Ölfusi í dag í góðu veðri. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiddi söng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur. Prestur var sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Boðið var upp á messukaffi í lok guðsþjónustunnar. 3.7.2022 17:48
Mannréttindabrot framin á stofnunum landsins „nær daglega“ Sveinn Rúnar Hauksson og Héðinn Unnsteinsson segja að brotið sé á mannréttindum sjúklinga á geðdeildum landsins „nær daglega.“ Í pistli sem þeir skrifa benda þeir á að það séu ekki fullnægjandi heimildir í lögum fyrir þeim þvingandi aðgerðum sem sjúklingar á geðdeildum landsins séu beittir. 3.7.2022 15:52
Haförn sást í Mjóafirði Fjölskylda sá til hafarnar í Mjóafirði á leið þeirra til Þingeyrar. Ljósmyndarinn Helen María Björnsdóttir náði nokkrum frábærum myndum af fuglinum. 3.7.2022 15:00
Tókust á um baráttu trans fólks og öfgakennda umræðuna Helga Vala Helgadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson komu til Heimis Karlssonar í Sprengisand í morgun til að ræða um mannréttindabaráttu trans fólks, hlutverk Alþingis, örar breytingar á íslenskri tungu og umburðarlyndi í samfélagsumræðunni. 3.7.2022 13:41
Segjast ekki hafa brugðist illa við ákvörðun Þróttara Mótsstjórn N1-mótsins segist lítið hafa getað gert þegar Þróttarar neituðu að spila leik gegn FH í lokaleik þeirra í gær. Tilkynning um ákvörðunina hafi borist þeim seint og bitni helst á leikmönnunum. 3.7.2022 12:02
Hættur í Vogum eftir rúm tíu ár Ásgeir Eiríksson, fráfarandi bæjarstjóri Voga á Vatnsleysuströnd, hefur ákveðið að segja það gott eftir ellefu ár í starfinu. Sveitarfélagið auglýsir nú eftir nýjum bæjarstjóra til að leiða „áframhaldandi uppbyggingu í ört stækkandi sveitarfélagi.“ 3.7.2022 10:48
Sprengisandur: Efnahagsmál heimsins og kynvitund Heimir Karlsson sér um Sprengisand í dag í fjarveru Kristjáns Kristjánssonar. 3.7.2022 09:49
Nóg af lausum plássum í leikskólanum í Neskaupstað Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í Neskaupstað auglýsir eftir fleiri börnum í leikskóla staðarins því þar sé nóg af lausum plássum. Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði fyrir 120 börn. 3.7.2022 08:16
Þrjár stórfelldar líkamsárásir í nótt Alls voru 87 mál skráð í gærkvöldi og nótt hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Átta gistu í fangageymslu í nótt en tilkynnt var um tíu líkamsárásir, þar af þrjár stórfelldar. 3.7.2022 07:37
Hægt að ná hæstu tindum ef fólk vinnur saman í hópflæði Doktor í sálfræði segir að með því að kenna fólki nýja nálgun í samvinnu og hópvinnu sé hægt að ná fram mun betri afköstum og starfsánægju á vinnustöðum. Í flóknari verkefnum sé ákjósanlegast að hafa ekki fleiri en 4-6 í hópi. 3.7.2022 07:01
VG tapa enn fylgi og mælast með 7,2 prósent Vinstri græn mælast með 7,2 prósenta fylgi samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn fékk 12,6 prósenta fylgi í síðustu alþingiskosningum en fylgið hefur minnkað jafnt og þétt síðan þá. 2.7.2022 22:35
Mættu ekki til leiks á N1 mótinu: „Hlutir sem eiga ekkert skylt við fótbolta“ Eitt af liðum Þróttar á N1 mótinu á Akureyri mætti ekki til síðasta leiks liðsins gegn liði FH þar sem keppa átti um 5. sætið. Þróttarar segja ábyrgðaraðila hafa brugðist þegar leikir FH liðsins fóru úr böndunum en yfirmaður knattspyrnumála hjá FH er óánægður með hvernig leyst var úr málinu. 2.7.2022 21:43
Kallar eftir útskýringum: „Það er ekki boðlegt að hafa þetta í einhverju rugli“ Þingmaður Pírata segir nauðsynlegt að sátt ríki um laun æðstu embættismanna og vill nánari útskýringu á leiðréttingu þeirra eftir að í ljós kom að Fjársýslan hafi ofgreitt embættismönnum í þrjú ár. Þingmenn og fleiri hafi allan þann tíma þegið launin í góðri trú um að rétt væri með farið. Dómarar gætu endað með að fara með málið lengra, þó með tilheyrandi flækjum. 2.7.2022 20:09
LOGOS fékk alls 6,2 milljónir frá Bankasýslunni Lögmannsstofan LOGOS fékk samtals greitt 1.475.750 krónur fyrir vinnu við lögfræðiálit um hvort sölumeðferð á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka stæðist reglur um jafnræði. Lögmannsstofan hafði áður veitt Bankasýslunni ráðgjöf í aðdraganda sölunnar en var þá ekki sérstaklega beðin um að meta hvort salan stæðist reglur um jafnræði. 2.7.2022 18:37
Árni Gunnarsson látinn Árni Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður og blaðamaður, er látinn 82 ára að aldri. Árni lést aðfaranótt föstudags. 2.7.2022 17:34
„Mun fúslega greiða til baka það sem hefur verið ofgreitt“ Þingmenn virðast ekki taka undir gagnrýni dómara er varðar leiðréttingu og endurgreiðslu ofgreiddra launa sem tilkynnt var um í gær. Þingmaður Pírata fagnar því að laun þingmanna séu lækkuð en dregur þó í efa útreikninginn og mun krefjast frekari svara. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segist fúslega borga til baka ofgreidd laun og treystir því að rétt sé með farið. 2.7.2022 12:33
Fólk gleymi þreytunni í gleðinni Pollamót Samskipa fer fram á Akureyri um helgina en metþátttaka er á mótinu í ár. Einhverjir eru þreyttir eftir tónleika í gærkvöldi en að sögn knattspyrnustjóra mótsins eru menn fljótir að gleyma því í gleðinni. 2.7.2022 11:57
Aldraðir, öryrkjar og atvinnulausir eigi nú þjáningarsystkini í hópi æðstu ráðamanna Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, telur sterk rök fyrir því að æðstu embættismenn haldi þeirri ofgreiðslu sem ríkið hefur krafist að verði endurgreidd. Ríkið gæti tapað prófmáli um endurgreiðslukröfuna á hendur æðstu ráðamönnum ef til þess kæmi og það vanti dómafordæmi í málum sem þessum. 2.7.2022 10:19
Rósa með rúmlega 2,2 milljónir í laun á mánuði Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkti ráðningarsamning við Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins, á fundi bæjarráðs í gær. Hún fær rúmar 2,2 milljónir í laun á mánuði þegar yfirvinnutímar, ökutækjastyrkur og laun fyrir störf hennar sem bæjarfulltrúi bætast ofan á grunnlaun hennar. 2.7.2022 09:03
Hlýtt í veðri í dag Framan af degi verður rólegt veður þó það sé þungbúið nú í morgunsárið, síðan bætir í vind og skýjahulan lyftir sér yfir daginn. Þá verður hlýtt í veðri í dag á sunnan- og vestanverðu landinu, allt að 20 stig þar sem best lætur en búast má við síðdegisskúrum á stöku stað. 2.7.2022 08:16
Sjö handteknir fyrir að aka undir áhrifum og einn reyndi að flýja Lögreglan sinnti nokrum verkefnum á kvöldvaktinni í gær en þar fór mikið fyrir ökumönnum sem voru teknir fyrir akstur undir áhrifum. Þá áttu sér stað sjö umferðaróhöpp og þrír gistu fangaklefa. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. 2.7.2022 07:43
Arnór skipaður forstöðumaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Arnór Snæbjörnsson hefur verið skipaður forstöðumaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til næstu fimm ára af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni. 1.7.2022 22:50
Dómarar munu leita réttar síns: „Eins og þetta blasir við okkur núna er þetta alfarið eftir geðþótta“ Fjársýsla ríkisins ofgreiddi öllum æðstu embættismönnum ríkisins laun í þrjú ár og krefst nú endurgreiðslu. Formaður Dómarafélagsins segir þetta stangast á við lög. Fjármálaráðherra segir það hins vegar vera auman málflutning, rétt skuli vera rétt. 1.7.2022 21:30
Bruni í Grafarholti Eldur logaði við hitaveitutankana í Grafarholti fyrr í kvöld. Mikill reykur lagðist yfir hverfið og sást reykmökkurinn víðsvegar um borgina. Búið er að slökkva eldinn að mestu leiti. 1.7.2022 20:15
Fáskrúðsfirðingar eru í skýjunum með nýja Hoffellið Mikil ánægja er á Fáskrúðsfirði með nýjasta skipið í bæjarfélaginu, uppsjávarskipið Hoffell, sem Loðnuvinnslan var að kaupa en það var smíðað í Danmörku. Hoffellið er nú á makrílveiðum fram í september. 1.7.2022 20:06
Þrjár einstæðar mæður með sjö börn á einni viku Lögfræðingur segir forkastanlegt að stjórnvöld hyggist senda barnafjölskyldur aftur til Grikklands á næstu mánuðum, þvert á yfirlýsingar um annað. Á einni viku hafi hann fengið mál þriggja einstæðra mæðra á borð til sín, sem standi frammi fyrir ömurlegum örlögum í Grikklandi. 1.7.2022 20:00