Fleiri
Bilun í símkerfi NFS Bilun er í símkerfi NFS í augnablikinu en unnið er að viðgerð. 28.12.2005 10:29 Heróín ekki algengt hérlendis Samkvæmt upplýsingum frá bæði SÁÁ og fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík heyrir enn til undantekninga að fíklar hér á landi noti heróín og ekki virðist vera mikið um að efnið gangi kaupum og sölum á fíkniefnamarkaði. 28.12.2005 10:12 Varað við mikilli hálku á Lágheiði Vegagerðin varar við mikilli hálku á Lágheiði en á Norðurlandi er víða nokkur hálka eða snjóþekja. Á Vesturlandi eru sumsstaðar hálkublettir, einkum á Snæfellsnesi en þar er éljagangur. Á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði er hálka og éljagangur. Víðast hvar eru vegir auðir á Vestfjörðum en þó er snjóþekja, hálka og hálkublettir á heiðum. 28.12.2005 08:59 Fuglalíf við Reykjavíkurtjörn í hættu Andar- og kríustofnu við Reykjavíkurtjörn hefur hrakað mikið og hefur afkoma unga ekki verið verri frá því að mælingar hófust. Í skýrlsunni Fuglalíf tjarnarinnar eftir Ólaf K. Nilsen og Jóhann Óla Hilmarsson kemur fram að um mánaðarmótin júlí-ágúst hafi einungis 18 stokkandarungar verið á lífi og aðeins hafi fundist 15 kríuhreiður en engir ungar komust á legg. 28.12.2005 08:00 Atlanta segir upp 35 erlendum flugmönnum Atlanta hefur sagt 35 flugmönnum upp vegna samdráttar og breytinga á flugflotanum. Samkvæmt fréttavef Morgunblaðsins eru flugmennirnir flestir erlendir og ráðnir í gegnum áhafnaleigur, en fastráðnir og innlendir flugmenn missa ekki vinnuna. Áformað er að fjölga flugmönnum á ný á næsta ári. 28.12.2005 07:50 Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist milli ára Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist á milli ára en ef litið er til fyrstu ellefu mánaða ársins nema nettókaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum 105 milljörðum króna. Þetta er umtalsverð aukning miðað við sama tímabil síðasta árs, en þá námu nettókaup á erlendum verðbréfum 65,4 milljörðum krónan. Samkvæmt Vegvísi greiningardeildar Landsbankans má rekja stóraukinn áhuga innlendra aðila á erlendum verðbréfum að hluta til til styrkingar krónunnar á árinu. 28.12.2005 07:48 Björgólfur maður ársins í íslensku viðskiptalífi Björgólfur Thor Björgólfsson er maður ársins samkvæmt dómnefnd Markaðarins, viðskiptablaði Fréttablaðsins. Björgólfur þykir hafa verið fremstur meðal íslenskra viðskiptamanna í ár. Aðrir íslenskir viðskiptamenn sem komust á blað á eftir Björgólfi voru Pálmi Haraldsson, bræðurnir í Bakkavör og Jón Ásgeir Jóhannsson. 28.12.2005 07:38 Eldur í íbúð á Grenimel Slökkviliðið var kallað út vegna elds í íbúð á Grenimel í Reykjavík upp úr klukkan fimm í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldri hjón sem voru sofandi í íbúðinni voru flutt á slysadeild vegna. 28.12.2005 07:08 Harður árekstur á Akureyri Kona var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt norðan við Akureyri um klukkan átta í gærkvöld. Í öðrum bílnum var kona ásamt tveimur börnum og var hún flutt á Fjórðungssjúkrahúsið og er hún hugsanlega beinbrotin. Börnin sakaði ekki. Í hinum bílnum var aðeins ökumaður og kvartaði hann undan eymslum undan bílbeltinu. 28.12.2005 06:47 Stuðningur við landbúnað gæti minnkað mikið Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, segir fyrirséð að samþykktir á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar kalli á breytingar á landbúnaðarkerfinu. Hann segir skýrast með vorinu hverjar þær kunni að verða, en býst við helmingsniðurskurði í innanlandsstuðningi við landbúnað. Úrlausn erfiðra álitamála var frestað til aprílloka á fundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Hong Kong. Guðmundur leiðir viðræður fyrir hönd landbúnaðarráðuneytisins. 28.12.2005 06:15 Sjá næstu 50 fréttir
Logarnir stóðu út um glugga Einn var fluttur á slysadeild með reykeitrun eftir að eldur kom upp í kjallaraíbúð við Bergþórugötu í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt. Þegar slökkvilið kom á staðinn stóðu logar út um glugga íbúðarinnar en íbúi hafði þá komið sér út á götu. 29.12.2005 07:30
Víðast hálka fyrir vestan Hálka eða hálkublettir eru víðast hvar á Vesturlandi og Vestfjörðum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þæfingsfærð er í nágrenni Patreksfjarðar en þar er unnið að því að hreinsa vegi. Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar verða mokaðar fyrir hádegi. 29.12.2005 07:18
Tekinn með mikið magn marijúana Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn eftir að 120 grömm af marijúana fundust við leit lögreglunnar í Reykjanesbæ í bifreið hans á ellefta tímanum í gærkvöldi. 29.12.2005 07:15
Flestar konur með erlent ríkisfang á Vestfjörðum Hlutfall kvenna af erlendum uppruna er hvergi hærra en á Vestfjörðum en þar eru 6,6 prósent kvenna með erlent ríkisfang. Þetta kemur fram í frétt Bæjarins besta á Ísafirði. Þá er hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Vestfjörðum það næst hæsta á landinu eða 6,2 prósent en hæst er hlutfallið á Austurlandi þar sem 24,6% íbúa er með erlent ríkisfang. 29.12.2005 06:27
Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 64% á árinu Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur hækkað um rúm 64% á árinu og hækkaði í gær um 0,33%. Hlutabréf í þremur fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands hafa meira en tvöfaldað sig á árinu. 28.12.2005 23:12
Tveir árekstrar á Hafnarfjarðarvegi Tveir árekstrar hafa orðið á Hafnarfjarðarvegi í kvöld. Hvorugur þeirra hefur þó verið harður og engin meiðsl á fólki. Þá lentu tveir bílar í árekstri á Ísafirði en þar var ekkert um meiðsli. 28.12.2005 22:45
Niðurstaðan kemur ekki á óvart Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir niðurstöðu Kjaradóms ekki koma sér á óvart. Það hefði verið hæpið fyrir dóminn að fara inn í málið með nýjan efnislegan úrskurð eftir beiðni forsætisráðherra um að hann færi aftur yfir málið. 28.12.2005 22:02
Augnslys og brunasár algengustu flugeldaslysin Um hver áramót verður að jafnaði um tugur slysa þar sem óvarlega er farið með flugelda. Slysin eru misalvarleg en slys á augum og brunasár eru algengust. 28.12.2005 22:00
Til í að endurskoða forsendurnar Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir flokk sinn reiðubúinn að taka þátt í nefndarstörfum þar sem farið er yfir lög um kjaradóm. 28.12.2005 21:04
Langeðlilegast að Alþingi taki nú á málinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að niðurstaða Kjaradóms komi sér ekki á óvart. Kjaradómi sé mikill vandi á höndum eftir skilaboðin sem hann fékk frá forsætisráðherra. Ingibjörg telur langeðlilegast að Alþingi taki á málinu. Skoða verði þær forsendur sem kjaradómi er uppálagt að fara eftir. 28.12.2005 20:45
Flökkusagan um kettlinga í þvottavélum sönn Flökkusagan um kettlinga sem lenda í þvottavélum með skelfilegum afleiðingum er ekki bara sönn, heldur gerist þetta bara nokkuð oft. Dýralæknir segir nauðsynlegt að kattaeigendur hugi vel að því að Keli litli eða Snúlla séu víðsfjarri þegar þvottavélin er sett í gang. 28.12.2005 20:45
Setur ríkisstjórnina í talsverðan vanda "Þetta kemur mér talsvert í opna skjöldu," segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, um þá niðurstöðu Kjaradóms að úrskurður hans um laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna frá 19. desember skuli standa óbreyttur. "Þetta setur ríkisstjórnina í talsverðan vanda." 28.12.2005 20:39
Úrskurður Kjaradóms stendur Úrskurður Kjaradóms um launahækkanir þingmanna, ráðherra og embættismanna frá 19. desember stendur óbreyttur. Þetta er niðurstaðan af fundi Kjaradóms síðla dags en Kjaradómur var kallaður saman að beiðni forsætisráðherra sem vildi að dómurinn færi aftur yfir forsendur úrskurðar síns. 28.12.2005 19:58
Risaborar að Kárahnjúkum allir farnir að snúast Risaborarnir þrír í Kárahnjúkavirkjun eru nú allir farnir snúast og boruðu þeir samtals sjötíu metra í gær. Haldi þeir þessum afköstum mun takast að klára þá fimmtán kílómetra sem eftir eru á tilsettum tíma fyrir næsta haust. 28.12.2005 19:30
Ólga innan VG í Kópavogi eftir forval Ólga er innan Vinstri grænna í Kópavogi eftir forval flokksmanna í nóvember síðastliðnum. Þorleifur Friðriksson, sem laut í lægra haldi í baráttunni um efsta sætið, sakar keppinaut sinn um að smala langt út fyrir bæjarmörkin. Slíkt er hins vegar heimilt samkvæmt lögum flokksins, en stuðningsmenn hans hóta engu að síður úrsögn og hafa rætt við Samfylkingarmenn í bænum um að ganga til liðs við þá. 28.12.2005 19:15
Mannréttindadómstóll vísar máli Kjartans frá Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, vegna dóms Hæstaréttar Íslands. Kjartan skaut málinu til mannréttindadómstólsins eftir að Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og þáverandi framkvæmdastjóri Norðurljósa, var sýknaður í meiðyrðamáli. 28.12.2005 19:00
Kjaradómur hefur komist að niðurstöðu Kjaradómur hefur komist að niðurstöðu varðandi beiðni forsætisráðherra um að dómurinn endurskoði úrskurð sinn varðandi laun kjörinna fulltrúa landsins. Þetta tilkynnti Garðar Garðarsson, formaður dómsins, í fréttum NFS fyrir stundu. Niðurstaðan verður nú kynnt forsætisráðherra áður en fjölmiðlar fá að vita hana. 28.12.2005 18:33
Borgarstjóri fundar með FL á föstudag Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, fundar með forystumönnum Félags leikskólakennara á föstudaginn kemur. Þar verur fjallað um stöðuna sem upp er komin í launamálum leikskólakennara í kjölfar nýgerðra kjarasamninga borgarinnar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. 28.12.2005 17:56
Halda ráðstefnu um menningu í fangelsum Fangelsismálayfirvöld á Norðurlöndum hafa fengið um 900.000 krónur í styrk frá Norræna menningarsjóðnum til að halda fangelsismenntaráðstefnu þar sem fjallað verður um menningu í fangelsum. Ráðstefnan verður haldin í maí á næsta ári á Selfossi. 28.12.2005 17:45
Vatnsleki í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hádegið í dag vegna vatnsleka í kjallaraíbúð í Hafnarfirði. Stíflað niðurfall í nágrenni íbúðarinnar olli því að vatn safnaðist fyrir og lak inn í íbúðina. Vel gekk að hreinsa upp vatnið og er tjón af völdum þess ekki talið mikið. 28.12.2005 17:30
Fundur Kjaradóms að hefjast Kjaradómur hyggst koma aftur saman nú um klukkan hálfsex að ræða beiðni forsætisráðherra um endurskoðun úrskurðar um launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa. 28.12.2005 17:15
3,2 milljónir til baráttunnar gegn mansali Utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja 3,2 milljónum króna til baráttunnar gegn mansali á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2005 voru fjórar milljónir króna til ráðstöfunar til stuðnings verkefnum á sviði mannréttindamála og hafði 800 þúsund krónum áður verið ráðstafað til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. 28.12.2005 17:15
Aflamark úthafsrækju verði 10 þúsund tonn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur í samræmi við tillögu Hafrannsóknastofnunar, ákveðið að heildaraflamark úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2005-2006 verði 10 þúsund tonn, en það er sama og lagt var til til bráðabirgða í upphafi sumars. 28.12.2005 16:50
Éljagangur á Suðvesturlandi Éljagangur er á Suðvesturlandi, um Snæfellsnes og Vestfirði. Víða er hálka á vegum á þessu svæði eftir því sem Vegagerðin greinir frá. Á Holtavörðuheiði er hálka, skafrenningur og nokkuð hvasst. Á Vestfjörðum er ófært um Dynjandisheiði og Hrafseyrarheiði. Skafrenningur er víða á vegum á Vestfjörðum, einkum á heiðum. 28.12.2005 16:45
Um 184 þúsund í Húsdýragarðinn á árinu Aðsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn var ofan við meðaltalið í ár eftir því sem Einar Karlsson, markaðsstjóri garðsins, segir. Alls sóttu um 184 þúsund manns garðinn en rysjótt veðurfar í júní og ágúst setti strik í reikninginn. 28.12.2005 16:30
Jón Atli tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna Leiklistarsamband Íslands hefur tilnefnt Jón Atla Jónasson leikskáld til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 2006, fyrir leikverkið BRIM sem Vesturport sýndi. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi á Litla sviði Þjóðleikhússins á fimmta tímanum. 28.12.2005 16:25
Fjögur tilboð í úttekt á Reykjavíkurflugvelli Fjögur tilboð bárust í rekstrar- og skipulagslega úttekt á Reykjavíkurflugvelli að sögn Helga Hallgrímssonar, formanns samráðsnefndar um úttekt á Reykjavíkurflugvelli. Nefndin vinnur að því að samningar náist á milli Reykjavíkurborgar og samgönguráðuneytisins um skipulag Vatnsmýrarinnar. 28.12.2005 16:00
UVG í Reykjavík lýsir yfir stuðningi við samninga Stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi og ánægju með þá kjarasamninga sem Reykjavíkurborg gerði nýverið við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Eflingu, þar sem lægstu laun voru hækkuð. 28.12.2005 15:45
Dró aflvana bát til Siglufjarðar Björgunarbáturinn Sigurvin frá Siglufirði var kallaður út laust fyrir klukkan níu í morgun vegna aflvana báts á firðinum. Þar var á ferðinni dragnóta- og netabáturinn Guðrún Jakobsdóttir EA 144 sem gerður er út frá Dalvík en var á leið til dragnótaveiða á Skagafirði. 28.12.2005 15:19
Breytingar á reglugerð skila sveitarfélögum 600 milljónum Breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerð um fasteignaskatt skila sveitarfélögunum 600 milljónum króna á ári í auknum tekjum frá ríkinu þegar þær koma að fullu til framkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Með breytingunu hefur undanþágum frá greiðslu fasteignaskatts fækkað verulega og þær nýju fasteignir sem nú verða skattskyldar eru flestar í eigu ríkissjóðs. Umræddar eignir verða í sérstökum gjaldflokki er nefnist b-flokkur. 28.12.2005 14:53
Meðalaldur íbúa í Broddaneshreppi á Stöndum tæp 52 ár Meðalaldur íbúa Broddaneshrepps á Stöndum er hugsanlega sá langhæsti á landinu í einum hreppi samkvæmt útreikningum fréttavefjarins Strandir.is. Meðalaldur íbúanna er tæp 52 ár í lok árs, ef miðað er við þá einstaklinga sem eiga lögheimili í hreppnum samvkæmt tölum Hagstofu Íslands frá 1. desember síðastliðnum. 28.12.2005 13:08
Skýrsla um reynslu flóttamanna kynnt á morgun Á Íslandi hefur verið tekið við ríflega 450 flóttamönnum síðan árið 1956 en þá kom fyrsti hópurinn frá Ungverjalandi eftir að Sovétmenn réðust inn í landið. 28.12.2005 12:40
Lítið um skil á jólabókum Bókasala var jöfn og góð fyrir jólin að sögn bóksala. Lítið hefur verið um skil á bókum enn sem komið er en flestar bókaverslanir taka við bókum fram yfir áramót. 28.12.2005 12:07
Halda prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninga Sjálfstæðisflokkurinn á Fljótsdalshéraði hefur ákveðið að halda prófkjör þann 4. og 5. febrúar vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Alls hafa borist framboð frá níu einstaklingum. 28.12.2005 11:19
Landspítalinn stendur sig ágætlega Stjórnendum Landspítala-háskólasjúkrahúss hefur gengið allvel að halda niðri kostnaði við rekstur spítalans undanfarin ár. Spítalinn stendur ágætlega í samanburði við breska spítala þegar litið er til afkasta og gæða. 28.12.2005 10:43
Heróín ekki algengt hérlendis Samkvæmt upplýsingum frá bæði SÁÁ og fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík heyrir enn til undantekninga að fíklar hér á landi noti heróín og ekki virðist vera mikið um að efnið gangi kaupum og sölum á fíkniefnamarkaði. 28.12.2005 10:12
Varað við mikilli hálku á Lágheiði Vegagerðin varar við mikilli hálku á Lágheiði en á Norðurlandi er víða nokkur hálka eða snjóþekja. Á Vesturlandi eru sumsstaðar hálkublettir, einkum á Snæfellsnesi en þar er éljagangur. Á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði er hálka og éljagangur. Víðast hvar eru vegir auðir á Vestfjörðum en þó er snjóþekja, hálka og hálkublettir á heiðum. 28.12.2005 08:59
Fuglalíf við Reykjavíkurtjörn í hættu Andar- og kríustofnu við Reykjavíkurtjörn hefur hrakað mikið og hefur afkoma unga ekki verið verri frá því að mælingar hófust. Í skýrlsunni Fuglalíf tjarnarinnar eftir Ólaf K. Nilsen og Jóhann Óla Hilmarsson kemur fram að um mánaðarmótin júlí-ágúst hafi einungis 18 stokkandarungar verið á lífi og aðeins hafi fundist 15 kríuhreiður en engir ungar komust á legg. 28.12.2005 08:00
Atlanta segir upp 35 erlendum flugmönnum Atlanta hefur sagt 35 flugmönnum upp vegna samdráttar og breytinga á flugflotanum. Samkvæmt fréttavef Morgunblaðsins eru flugmennirnir flestir erlendir og ráðnir í gegnum áhafnaleigur, en fastráðnir og innlendir flugmenn missa ekki vinnuna. Áformað er að fjölga flugmönnum á ný á næsta ári. 28.12.2005 07:50
Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist milli ára Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist á milli ára en ef litið er til fyrstu ellefu mánaða ársins nema nettókaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum 105 milljörðum króna. Þetta er umtalsverð aukning miðað við sama tímabil síðasta árs, en þá námu nettókaup á erlendum verðbréfum 65,4 milljörðum krónan. Samkvæmt Vegvísi greiningardeildar Landsbankans má rekja stóraukinn áhuga innlendra aðila á erlendum verðbréfum að hluta til til styrkingar krónunnar á árinu. 28.12.2005 07:48
Björgólfur maður ársins í íslensku viðskiptalífi Björgólfur Thor Björgólfsson er maður ársins samkvæmt dómnefnd Markaðarins, viðskiptablaði Fréttablaðsins. Björgólfur þykir hafa verið fremstur meðal íslenskra viðskiptamanna í ár. Aðrir íslenskir viðskiptamenn sem komust á blað á eftir Björgólfi voru Pálmi Haraldsson, bræðurnir í Bakkavör og Jón Ásgeir Jóhannsson. 28.12.2005 07:38
Eldur í íbúð á Grenimel Slökkviliðið var kallað út vegna elds í íbúð á Grenimel í Reykjavík upp úr klukkan fimm í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldri hjón sem voru sofandi í íbúðinni voru flutt á slysadeild vegna. 28.12.2005 07:08
Harður árekstur á Akureyri Kona var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt norðan við Akureyri um klukkan átta í gærkvöld. Í öðrum bílnum var kona ásamt tveimur börnum og var hún flutt á Fjórðungssjúkrahúsið og er hún hugsanlega beinbrotin. Börnin sakaði ekki. Í hinum bílnum var aðeins ökumaður og kvartaði hann undan eymslum undan bílbeltinu. 28.12.2005 06:47
Stuðningur við landbúnað gæti minnkað mikið Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, segir fyrirséð að samþykktir á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar kalli á breytingar á landbúnaðarkerfinu. Hann segir skýrast með vorinu hverjar þær kunni að verða, en býst við helmingsniðurskurði í innanlandsstuðningi við landbúnað. Úrlausn erfiðra álitamála var frestað til aprílloka á fundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Hong Kong. Guðmundur leiðir viðræður fyrir hönd landbúnaðarráðuneytisins. 28.12.2005 06:15