Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
VG í snúinni stöðu vegna heilbrigðismála Ekkert hefur bent til annars en að sitjandi ríkisstjórn haldi áfram störfum sínum á næsta kjörtímabili. Formenn flokkanna þriggja hafa fundað reglulega frá kosningum og má búast við að stjórnarmyndunarviðræðurnar haldi áfram næstu vikurnar en eins og prófessor í stjórnmálafræði bendir á liggur þeim alls ekkert á að semja stjórnarsáttmálann og geta tekið sér allan þann tíma sem þeim hentar. 20.10.2021 09:00
Svínsnýra grætt á fótlegg sjúklings starfar eðlilega og framleiðir þvag Skurðlæknum í New York hefur tekist að græða nýra úr erfðabreyttu svíni á mann. Fylgst var með sjúklingnum í 54 klukkustundir og virtist nýrað starfa eðlilega og framleiddi meðal annars þvag og úrgangsefnið kreatínín. 20.10.2021 08:57
Fyrsti íbúi eyjanna til að greinast með Covid-19 Maður greindist með Covid-19 á sjúkrahúsinu í Longyearbyen á Svalbarða í gær og er um að ræða fyrsta smitaða íbúa eyjanna frá upphafi faraldursins. 20.10.2021 08:47
Leggur til að „Reykingar drepa“ verði prentað á hverja einustu sígarettu Þingmenn í báðum deildum breska þingsins hafa lagt fram tillögur um að sígarettuframleiðendur verði skikkaðir til að prenta „Reykingar drepa“ eða „Reykingar valda krabbameini“ á hverja einustu sígarettu. 20.10.2021 07:32
Norðlægar áttir og yfirleitt léttskýjað sunnan- og vestantil Spáð er norðlægum áttum, tíu til átján metrar á sekúndu í dag, en það lægir á vestanverðu landinu með morgninum. Yfirleitt verður léttskýjað sunnan- og vestantil, en dálítil él norðaustanlands. Hiti verður um eða rétt yfir frostmarki. 20.10.2021 07:09
Skortur á magnesíum mun líklegast hafa mikil áhrif á framleiðslu bíla Þegar þú sest upp í bílinn þinn að morgni til þá hugsar þú sennilega ekki um öll hráefnin sem notuð eru við framleiðslu bílsins. Þá sérstaklega málminn sem notuð er í undirvagn og byggingu bílsins. Mikill magnesíum skortur mun hugsanlega þvinga allar bílaverksmiðjur til að hætta framleiðslu fyrir lok árs, samkvæmt sérfræðingum. 20.10.2021 07:01
Þverpólitísk sátt um ávítur á hendur Bannon Nefnd þingmanna úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings sem rannsakar uppþotið og árásina á þinghúsið í Washington í janúar hefur úrskurðað samhljóða að Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmaður Dondalds Trump fyrrverandi forseta, hafi gerst sekur um að sýna þinginu óvirðingu. 20.10.2021 06:47
40 nemendur í einangrun eða sóttkví vegna smita í Háteigsskóla Um 40 nemendur í Háteigsskóla og nokkrir kennarar eru ýmist í einangrun eða sóttkví en smit hafa greinst meðal óbólusettra nemenda í fjórða, fimmta og sjötta bekk skólans. 20.10.2021 06:40
Veittust að konu fyrir utan heimili hennar Lögregla handtók tvo unga menn í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um ránstilraun í Kópavogi. Mennirnir höfðu veist að konu við heimili hennar, ógnuðu henni með eggvopni og heimtuðu af henni síma og peninga. 20.10.2021 06:17
Þessar afléttingar tóku gildi á miðnætti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti skömmu fyrir hádegi í gær að ráðist yrði í þrekaskiptar afléttingar á innanlandstakmörkunum vegna Covid-19 með að markmiði að öllum takmörkunum verði aflétt 19. nóvember. Fyrstu afléttingarnar tóku gildi á miðnætti. 20.10.2021 00:01
Mygla í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ Mygla hefur fundist í Myllubakkaskóla í Keflavík. Nokkrir starfsmenn og nemendur eru sagðir hafa fundið fyrir verulegum einkennum. Lagfæringar hafa ekki skilað árangri. 19.10.2021 23:48
Vilja að Bolsonaro verði ákærður fyrir morð Brasilískir öldungadeildarþingmenn segja að ákæra ætti Jair Bolsonaro, forseta landsins, vegna fjölda dauðsfalla sökum Covid-19. Meðal annars ætti að ákæra hann fyrir morð fyrir að ákvarðanir sem leiddu til aukinnar útbreiðslu Covid í Brasilíu. 19.10.2021 23:24
Greindi frá því í beinni að hann væri með MS John King, einn af helstu fréttaþulum bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN, greindi frá því í dag í miðjum umræðuþætti hans á sjónvarpstöðinni að hann væri með taugasjúkdóminn MS. Hann segist vera þakklátur fyrir það að samstarfsfélagar hans séu bólusettir gegn Covid-19. 19.10.2021 23:19
Dróni kemur hundum sem eru fastir við eldgosið til bjargar Drónaeigandi á La Palma-eyju hefur fengið leyfi yfirvalda til þess að freista þess að bjarga þremur veikburða hundum sem eru fastir í grennd við Cumbre Vieja eldfjallið. 19.10.2021 22:36
Sýknaður af því að hafa beitt blekkingum til að öðlast veiðirétt í sunnlenskri á Karlmaður sem sakaður var um að hafa beitt blekkingum til að koma því til leiðar að félag í hans eigu væri með gildandi leigusamning um veiðirétt í ótilgreindri sunnlenskri á hefur verið sýknaður af ákæru þess efnis. 19.10.2021 21:27
Þurfa að sanna raunverulegar útsölur sem mega ekki vara lengur en sex vikur Reglur um útsölur eru á þann veg að sýna þarf fram á að um raunverulegan afslátt sé að ræða. Þá má útsala ekki vara lengur en í sex vikur. Þetta sagði Þórunn Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 19.10.2021 21:13
Grófur dyraatsfaraldur skekur heilu hverfin Íbúum í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi er hætt að litast á blikuna vegna nýstárlegs dyraatsfaraldurs, sem gerir oft vart við sig seint á kvöldin. Þetta er sérstaklega gróft dyraat, sem virðist innblásið af TikTok. 19.10.2021 21:00
Kynntu sér aðstæður á talningarstað í Borgarnesi Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis segir nefndina enn vera að afla gagna og reiknar með að hún fundi stíft þessa vikuna. 19.10.2021 20:30
Nýtt íbúðahverfi rís milli Suðurlandsbrautar og Ármúla Íslenskar fasteignir ehf. hafa keypt orkureitinn svo kallaða af Reitum fyrir rúma 3,8 milljarða króna. Mikil uppbygging íbúða og þjónustustarfsemi er framundan á reitnum allt í kring um gamla Rafmagnsveituhúsið þar sem skimun eftir kórónuveirunni hefur farið fram undanfarin misseri. 19.10.2021 20:01
Íbúar í Fellunum lögðu verktaka í tugmilljóna deilu Verktakafyrirtækið Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf. hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Torfufelli 23-35 í Breiðholti 34 milljónir króna í nærri áratuga langri deilu um framkvæmdir á fjölbýlishúsinu. 19.10.2021 19:32
Laufléttir gervihnettir á stærð við þvottavél skoða Reykjanesgosið Fjórtán gervihnettir á stærð við þvottavél auðvelduðu íslenskum vísindamönnum að meta umfang og hegðun eldgossins á Reykjanesi betur en fyrri eldgos. Tæknin getur einnig nýst vð mat á áhrifum loftslagsbreytiinganna. 19.10.2021 19:21
Leita í húsum sem tengjast rússneskum ólígarka Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) leituðu í dag í húsum í Washington DC og New York sem sögð eru tengjast rússneska auðjöfrinum Oleg Deripaska. Atlagan tengist rannsókn FBI en yfirvöld Bandaríkjanna hafa beitt Deripaska refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum 2016. 19.10.2021 19:12
„Það sem öll njósnakerfi heimsins ganga út á“ Formaður Viðreisnar vill fund með ráðherrum til að ganga úr skugga að þjóðaröryggi Íslendinga sé ekki ógnað með sölu á Mílu, dótturfélagi Símans, til fransks fyrirtækis. Tryggja verði að viðkvæmar upplýsingar rati ekki í rangar hendur. 19.10.2021 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tvö þúsund fá að koma saman, grímuskyldu verður aflétt og opnunartími skemmtistaða lengist um klukkutíma á miðnætti í kvöld. Slakað verður á reglunum í tveimur skrefum, fyrst núna á miðnætti og svo með allsherjar afléttingu innanlands eftir fjórar vikur. 19.10.2021 18:00
Sigmundur vill að ríkisstjórnin grípi inn í Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, vill að ríkisstjórnin grípi inn í fyrirhugaða sölu Símans á Mílu. 19.10.2021 17:39
Reyna að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um björgunaraðgerðir Líbanska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga 27. mars næstkomandi, sem gefur ríkisstjórn Najib Mikati forsætisráðherra aðeins nokkra mánuði til að koma á samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um fjárhagsaðstoð vegna kreppunnar sem skekur nú landið. 19.10.2021 15:53
Vilja gróðurbrýr sem víðast Vistlok eða gróðurbrýr svokallaðar eru meðal tillagna sem kynntar hafa verið fyrir íbúum í Háaleitis- og Bústaðahverfis. Tillögurnar eru hluti af fyrirhuguðum róttækum breytingum á hverfinu en skiptar skoðanir eru uppi um sumar tillagnanna. 19.10.2021 14:42
Framkvæmdum við nýja leikskólann með lerkiklæðningu og torf á þaki ljúki næsta haust Framkvæmdir við nýjan leikskóla við Kleppsveg 150-152, sem áður hýsti meðal annars arkitektastofu og kynlífstækjabúðina Adam & Evu, eru hafnar og er gert ráð fyrir að framkvæmdum við leikskólann ljúki fyrir næsta haust. 19.10.2021 14:37
Sprengjusérfræðingar frá fimmtán löndum æfa á Keflavíkurflugvelli Hátt í þrjú hundruð sérfræðingar munu koma að Northern Challenge, árlegri alþjóðlegri æfingu sprengjusérfræðinga, sem hefst á Keflavíkurflugvelli í dag og stendur fram í næstu viku. 19.10.2021 14:04
Trump sparkar í látinn mann Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fer ófögrum orðum um Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér sólarhring eftir andlát Powell. Sakar hann Powell um fjölda mistaka og að hafa ekki verið raunverulegur repúblikani. 19.10.2021 14:02
Stefnt að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne á næstu árum Ísland undirbýr nú að auka samstarf við UNFPA með það að markmiði að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne. 19.10.2021 13:43
Krefjast milljarða í lausnargjald fyrir bandarísku trúboðana Glæpagengi sem rændi sautján bandarískum trúboðum á Haítí um helgina krefst milljónar dollara í lausnargjald fyrir hvern og einn þeirra, samtals jafnvirði tæplega 2,2 milljarða íslenskra króna. 19.10.2021 13:37
Ótrúleg fjölgun hnúðlaxa er hulin ráðgáta Finnskur rannsóknarprófessor segir enga leið að spá fyrir um afleiðingar hinnar gríðarlegu aukningar í stofni hnúðlaxa í Norður Atlantshafinu. Hún gæti orðið drastísk ef vöxtur stofnsins heldur áfram á sömu braut og hann hefur verið á en hann virðist hafa tífaldast milli ára. 19.10.2021 13:34
Fanney Birna hætt í Silfrinu eftir allt saman Fanney Birna Jónsdóttir er hætt sem stjórnandi í umræðuþættinum Silfrinu á RÚV, sem hún hefur stjórnað ásamt Agli Helgasyni um nokkurt skeið. Þetta staðfestir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV í samtali við fréttastofu. 19.10.2021 13:22
Salan á Mílu ásættanleg að uppfylltum ákveðnum skilyrðum Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir það ásættanlegt að Míla sé seld til erlendra aðila að því gefnu að gengið sé frá ákveðnum úrlausnarefnum sem stjórnvöld telja upp á borði. Viðræður ráðherra og fulltrúa söluaðilans, Símans, eru nýhafnar og er forsætisráðherra með löggjöf í undirbúningi sem ætlað er taka á innviðasölu til erlendra aðila. 19.10.2021 13:01
Hundruð enn í fangelsi eftir mótmælin á Kúbu í sumar Kommúnistastjórnin á Kúbu heldur enn hátt í fimm hundruð manns í fangelsi af þeim rúmlega þúsund sem voru handteknir á mótmælum gegn stjórnvöldum í sumar. Mannréttindasamtök segja að fangarnir sæti ýmis konar harðræði. 19.10.2021 12:09
„Covid er ekki búið” Kórónuveirufaraldrinum er ekki lokið þrátt fyrir að verið sé að ráðast í umfangsmiklar afléttingar, að sögn sóttvarnalæknis. Hann tekur fram að ekki sé hægt að líta á faraldurinn eins og hefðbundna flensu og segir metfjölda smitaðra í gær áhyggjuefni. 19.10.2021 12:00
Forsetinn segir seint verða sátt um sjávarútveginn Forseti Íslands telur að umræður í samfélaginu sýni að seint náist sátt um ríkjandi kerfi í íslenskum sjávarútvegi. Hann boðar útgáfu sagnfræðirits á næsta ári um sögu Landhelgismálsins frá 1961-1972 og segir að sagan sýni okkur að heimskuleg og skammsýn rányrkjustefna skili engu. 19.10.2021 11:56
Skólp aðeins grófhreinsað við Ánanaust næstu þrjár vikur Hreinsistöð skólps við Ánanaust verður tekin úr rekstri á morgun og verður óstarfhæf í um þrjár vikur. Skólpið verður á þeim tíma grófhreinsað áður en því verður veitt í sjó. Kólígerlamagn verður því talsvert yfir viðmiðunarmörkum þennan tíma. 19.10.2021 11:48
Skrif Páls Vilhjálmssonar til skoðunar hjá skólanum Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ segir að þegar hafi á annan tug erinda borist skólanum vegna skrifa Páls Vilhjálmssonar. 19.10.2021 11:48
Undirbúningskjörbréfanefnd á vettvang talningar í Borgarnesi Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis fundar í dag á hótel Borgarnesi þar sem talning fór fram í Norðvesturkjördæmi í nýafstaðnum alþingiskosningum. Formaður nefndarinnar segir mikilvægt að nefndin vandi til verka þótt æskilegt væri að uppkosning færi fram sem fyrst ef niðurstaðan yrði að endurtaka þyrfti kosningarnar í kjördæminu. 19.10.2021 11:44
„Langt síðan við hættum að horfa sérstaklega á smittölur“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur ekki áhyggjur af því að verið sé að ráðast í afléttingar á samkomutakmörkunum innanlands á sama tíma og smituðum virðist vera að fjölga í samfélaginu. Áttatíu manns greindust með veiruna í gær, sem er mesti fjöldi í tæpa tvo mánuði. 19.10.2021 11:43
Heilbrigðisráðherra hafi valið skynsömustu leiðina Heilbrigðisráðherra valdi skynsömustu leiðina að afléttingum að mati forsætisráðherra. Hann telur þetta ekki síðasta skiptið sem tilkynning um sóttvarnaráðstafanir verði kynntar, enda faraldurinn enn ekki búinn. 19.10.2021 11:39
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum heyrum við af ákvörðun heilbrigðisráðherra um afléttingar innanlands en Tvö þúsund mega koma saman, grímuskyldu verður aflétt og opnunartími skemmtistaða lengist um klukkustund frá og með miðnætti í kvöld. Þá er stefnt að fullri afléttingu eftir fjórar vikur. 19.10.2021 11:35
Fundu sverð krossfara á hafsbotni við Ísrael Áhugakafari fann sverð sem er talið hafa tilheyrt riddara sem tók þátt í einni krossfaranna fyrir um 900 árum undan ströndum norðanverðs Ísraels um helgina. Sverðið er sagt í nær fullkomnu ástandi þrátt fyrir að það hafið verið hjúpað sjávarlífverum. 19.10.2021 11:19