Fleiri
Fyrsti snjórinn fallinn 2.11.2007 08:37 Nýjung í netþjónustu 2.11.2007 08:37 Innkalla fimm milljón frosnar pizzur Bandaríski matvælaframleiðandinn General Mills innkallaði í gær fimm milljón frosnar pizzur eftir að Ecolí baktería fannst í pepperoní áleggi. 2.11.2007 07:58 Yfir hundrað látið lífið vegna Noels Að minnsta kosti hundrað og átta hafa látið lífið í Karabíska hafinu vegna hitabeltisstormsins Noel. Styrkleiki hans hefur farið vaxandi og telst hann nú vera fyrsta stigs hitabeltisstormur. 2.11.2007 07:19 Flóð valda miklu tjóni í Mexíkó Mikið eignatjón hefur orðið í miklum flóðum sem nú geysa suðausturhluta Mexíkó. Í fylkinu Tabasco er talið að öll uppskera hafi eyðilagst en um sjötíu prósent af landi þar er nú undir vatni. 2.11.2007 07:15 Dregur úr stuðningi við Rasmussen Nokkuð hefur dregið úr stuðningi danskra kjósenda við ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, samkvæmt skoðunakönnunum sem birtar voru í gær. 2.11.2007 07:09 SAS vissi af bilun í hjólabúnaði Flugfélaginu SAS höfðu borist kvartanir frá flugmönnum vegna hjólabúnaðar Dash vélarinnar áður en henni hlekktist á í lendingu á Kastrup flugvelli um síðustu helgi. 2.11.2007 07:08 Sjá næstu 50 fréttir
Kaupás vill rannsókn á ásökunum um samráð Kaupás, sem meðal annars rekur Krónuna, mótmælir harðlega þeim ásökum um ólöglegt samráð og segir vegið að orðspori og óendanlega mikilvægu trúnaðartrausti verslunarinnar og viðskiptavina hennar. 2.11.2007 16:50
Umferðartafir vegna slyss við Grensásveg Fjórir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild Landspítalans eftir árekstur fólksbíls og sendibíls á mótum Grensásvegar og Mikluabrautar laust eftir klukkan þrjú í dag. 2.11.2007 16:36
Eins og að Osama Bin Laden sé að koma til landsins Gríðarlegur viðbúnaður er á Leifsstöð þessa stundina vegna komu félaga úr Hells Angels í Noregi hingað til lands. Vísir er á staðnum og hefur rætt við fólk sem er að koma úr flugstöðinni. Einn þeirra skaut á að um 70 lögreglumenn biði komu norsku Hells Angels mannanna. Annar hafði það á orði að ástandið í flugstöðinni væri líkt og Osama Bin Laden væri væntanlegur til landsins. 2.11.2007 16:33
Neitar því að fíkniefni og vopn hafi verið gerð upptæk Jón Trausti Lúthersson, félagi í vélhjólaklúbbnum Fáfni, neitar því að lögregla hafi lagt hald á fíkniefni og vopn við húsleit í húsakynnum Fáfnis í gærdag. 2.11.2007 16:19
Vísir sýnir beint frá komu Hells Angels til Íslands Eins og sagt var frá hér á Vísi fyrr í dag er hópur Hells Angels manna frá Noregi væntanlegur til Íslands í dag. Hópur Fáfnismanna er á Keflavíkurflugvelli til þess að taka á móti mönnunum. Gert er ráð fyrir að lögreglan verði með töluverðan viðbúnað á Leifsstöð vegna þessa. Vísir verður á staðnum og verður hægt að horfa á beina útsendingu frá Leifsstöð hér á vefnum rétt eftir klukkan 16:00 2.11.2007 15:51
Lögreglan með aðgerðir vegna komu Hell´s Angels Íslensk lögregluyfirvöld hafa undirbúið aðgerðir vegna komu norrænna félaga í vélhjólasamtökunum Hell's Angels til landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra. Þar segir að að Ríkislögreglustjóri fari með yfirumsjón aðgerðarinnar en lögreglarn á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu hefur umsjón með framkvæmd einstakra þátta aðgerðarinnar. 2.11.2007 15:48
Samþykkt á fundi OR að fallast á tillögu borgarráðs Samþykkt var einróma á fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í dag að fallast á tillögu borgarráðs að falla frá hinum umdeilda samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy sem samþykktur var á stjórnarfundi Orkuveitunnar þann 3. október. 2.11.2007 15:33
Lífeyrisfrumvarpið afgreitt til annarar umræðu á þingi Fyrstu umræðu um breytingar á lífeyrisgreiðslum æðstu embættismanna þjóðarinnar lauk á alþingi í dag og var málið afgreitt til annarar umræðu og allherjarnefndar. Markmiðið með flutningi frumvarpsins er að alþingismenn, ráðherrar og hæstaréttardómarar njóti sömu lífeyriskjara og ríkisstarfsmenn, en búi ekki við sérstök forréttindi. 2.11.2007 15:22
Fallni tamílaleiðtoginn hitti marga Íslendinga Tamílaleiðtoginn sem Bjarni Vestmann heilsaði á Sri Lanka á dögunum var einn af þeim Tamílum sem Norðmaðurinn Erik Solheim átti mest samskipti við þegar hann var að reyna að koma á friði í landinu. 2.11.2007 15:11
Sektaður fyrir að hafa ekið dópaður í tvígang Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann til að greiða 180 þúsund krónur í sekt og svipti hann ökurétti í fimm mánuði fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna í tvígang árinu. 2.11.2007 15:04
Salmonella finnst aftur í nagbeini Salmonella fannst í óinnpökkuðum svínseyrum og nagbeinum fyrir hunda úr nautgripum við eftirlit Landbúnaðarstofnunar á dögunum. Fram kemur í tilkynningu frá stofnunni að vörurnar hafi verið til sölu í gæludýraversluninni Tokyo í Hafnarfirði. 2.11.2007 14:43
Foreldrar 7100 barna hafa nýtt sér frístundakortið Foreldrar 7100 barna og unglinga í Reykjavík hafa nú sótt um frístundakortið og ráðstafað styrknum til félaga sem voru búin að skrá sig hjá borginni. Eru það um 60 prósent af þeim fjölda sem gert var ráð fyrir að myndi nýta sér frístundakortið í fyrsta áfanga. 2.11.2007 14:27
Hells Angels meðlimir væntanlegir til Íslands í dag Félagar úr mótohjólaklúbbnum Fáfni eru á leið til Keflavíkur að taka á móti félögum úr Hells Angels mótorhjólasamtökunum sem væntanlegir eru til landsins síðdegis í dag. 2.11.2007 14:19
Íslenskir barnaníðingar kynntir í Haag Tveir Íslendingar eru í alþjóðlegum hring barnaníðinga sem sagt verður frá á blaðamannafundi sem Interpol og Eurojust halda á mánudaginn. 2.11.2007 14:03
Nei ráðherra Ráðherra í breska innanríkisráðuneytinu var í dag sektaður um 100 sterlingspund, rúmar 12000 krónur fyrir að tala í farsíma undir stýri. 2.11.2007 13:17
RÚV og Árvakur máttu vinna saman í kannanamálum Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við það að Ríkisútvarpið og Árvakur hafi í sameiningu samið við Capacent Gallup um gerð og birtingu vikulegra skoðanakannana á fylgi stjórnmálaflokkanna í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. 2.11.2007 13:14
Harður árekstur á Suðurlandsvegi við Selfoss Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir harðan árekstur á Selfossi um ellefuleytið í morgun. 2.11.2007 13:03
Björgólfsfeðgar vilja Fáfnismenn úr sínum húsum Klúbbhús mótorhjólaklúbbsins Fáfnis, sem sérsveit lögreglu réðst inn í í gær, er í eigu eignarhaldsfélagsins Vatns og lands. Vatn og Land er í eigu Samson Properties sem aftur er í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. 2.11.2007 12:50
Svandísarmáli frestað um tvær vikur Málflutningi í máli Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa vinstri grænna, gegn Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið frestað um tvær vikur, að beiðni Ragnars Hall, lögmanns Svandísar. 2.11.2007 12:47
Taka beri á samráði reynist ásakanir réttar Formaður viðskiptanefndar segir ásakanir á hendur Krónunni og Bónuss, um mögulegt verðsamráð alvarlegar og taka beri á þeim reynist þær réttar. Samkeppniseftirlitið hvetur alla sem telja sig vita um ólögmætt verðsamráð í verslunum að tilkynna það til eftirlitsins. 2.11.2007 12:36
Áfall fyrir friðarumleitanir á Sri Lanka Fráfall Thamilselvan, leiðtoga stjórnmálaarms Tamil tígra á Sri Lanka, er áfall fyrir friðarumleitanir á svæðinu að sögn fyrrverandi talsmanns vopnahléseftirlitsins þar. Hann segir nánast öruggt að hefndaraðgerðir fylgi í kjölfarið. 2.11.2007 12:28
Reyndi að eignast hlut í einu verðmætasta háhitasvæði landsins Glitnir freistaði þess í vor að eignast stóran hlut í Þeistareykjum ehf., sem hefur nýtingarrétt á einu verðmætasta háhitasvæði landsins. Akureyringar opnuðu á viðræður um sölu en Húsvíkingar og Landsvirkjun snerust gegn áformunum. Málið er nú í biðstöðu. 2.11.2007 12:18
Fimmtán rjúpur veiddar í gær samkvæmt veiðidagbók UST Fimmtán rjúpur veiddust í gær samkvæmt fyrstu tölum úr rafrænni veiðidagbók sem veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar heldur utan um. 2.11.2007 12:14
Hendur vopnaframleiðenda á Hilton á litaðar blóði Samtök hernaðarandstæðinga gagnrýna harðlega fund stjórnenda vopnaframleiðslufyrirtækisins BAE Systems í Reykjavík. „Vopnaiðnaðurinn er án nokkurs vafa óviðfelldnasta atvinnugrein samtímans," segir í ályktun frá samtökunum. 2.11.2007 12:05
Ísraelar vilja frið áður en George Bush hættir Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels vonast til þess að ná friðarsamningum við Palestínumenn áður en George Bush forseti lætur af völdum. 2.11.2007 11:57
Minnihluti höfuborgarbúa á nagladekkjum í vetur Útlit er fyrir að innan við helmingur íbúa á höfuðborgarsvæðinu verði á nagladekkjum í vetur ef marka má könnun sem unnin var fyrir framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar í haust. 2.11.2007 11:53
Með reiðhjólalager í hjólageymslunni Lögreglan í Grafarvogi fann á dögunum allmikinn hjólalager í hjólageymslu fjölbýlishúss í hverfinu. Var það eftir ábendingu um að hjólum hefði fjölgað óvenju mikið í geymslunni á skömmum tíma. 2.11.2007 11:40
Ekki hægt að útiloka bótaskyldu borgarinnar Sigurður Líndal lagaprófessor segir að ekki sé hægt að útiloka bótaskyldu borgarinnar vegna þess að samruna REI og Geysir Green verði rift. „Ég hef að vísu ekki kynnt mér málið nánið en við fyrstu sín blasir þetta við,“ segir Sigurður Líndal í samtali við Vísi. 2.11.2007 11:31
Telur Orkuveituna ekki skaðabótaskylda vegna REI-máls Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, telur ekki að fyrirtækið hafi skapað sér skaðabótaskyldu vegna þeirrar ákvörðunar borgarráðs að hafna samruna Reykjavik Energy Invest, útrásararmi Orkuveitunnar, og Geysis Green Energy. Hún segir þó að þetta sé eitt af þeim málum sem stjórn Orkuveitunnar muni ræða þegar hún kemur saman til fundar í hádeginu í dag. 2.11.2007 11:24
Geir: Vaxtahækkun Seðlabankans ekki heppileg Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti ekki heppilega sérstaklega þegar horft sé til þeirra kjaraviðræðna sem fram undan eru. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í morgun. Þá sakaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra Seðlabankann um að horfa til fortíðar í stað framtíðar í ákvörðunum sínum um stýrivexti. 2.11.2007 11:13
Til hamingju með daginn elskan Ríkasti maður Indlands gaf í dag eiginkonu sinni fjögurra milljarða króna Airbus einkaþotu, í tilefni af því að hún varð 44 ára. 2.11.2007 11:11
Grunur um miltisbrandssmit í Garðabæ Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að byggingasvæði í Garðabæ um klukkan ellefu í morgun vegna gruns um miltisbrandssmit. 2.11.2007 11:09
Leiðtogi Tamil tígra lætur lífið í loftárás Leiðtogi stjórnmálaarms Tamil Tígra á Sri Lanka, S.P. Thamilselvan, lét lífið í loftárás stjórnarhersins í morgun.Thamilselvan fór fyrir Tamil tígrum í friðarviðræðum við stjórnvöld á Sri Lanka og er talið að árásin í morgun geri út um allar vonir um friðsamlega lausn á deilunni. 2.11.2007 11:04
Erfitt að sjá svertingja í myrkri Þáttastjórnandi hjá BBC lenti í súpunni í vikunni þegar hún var að tala um umferðaröryggi. 2.11.2007 10:21
Ólíklegt að Fáfnismálið skaði ímynd móturhjólamanna Formaður Sniglanna óttast ekki að umræðan um bifhjólasamtökin Hells Angels og Fáfnir eigi eftir að skaða ímynd móturhjólamenningarinnar hér á landi. 2.11.2007 10:15
Annir hjá björgunarsveitum á Suðurlandi vegna rjúpnaskyttna Undanfarar úr björgunarsveitum Ingunnar, Biskups og Tintron á Suðurlandi voru kallaðir út um hálfþrjúleytið í nótt til þess að leit að feðgum sem höfðu farið til rjúpnaveiða við Hlöðufell og ekki skilað sér heim á tilsettum tíma. 2.11.2007 10:05
Fullyrðingar um verðsamráð kallar á flýtimeðferð rannsóknar Neytendasamtökin telja fullyrðingar um verðsamráð á matvörumarkaði sem birst hafi í fjölmiðlum kalla á flýtimeðferð á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á matvörumarkaðnum sem nú standi. Í frétt á vef samtakanna er bent á að verðsamráð sé alvarlegasta brotið á samkeppnislögum. 2.11.2007 09:51
Grafalvarlegar ásakanir Ásakanir um að matvælaverslanir beiti blekkingum í verðkönnunum og hafi samráð sín á milli eru grafalvarlegar og kalla á rannsókn að mati viðskiptaráðherra. Hann segist ætla fylgjast grannt með þróun mála. 2.11.2007 09:15
Innkalla fimm milljón frosnar pizzur Bandaríski matvælaframleiðandinn General Mills innkallaði í gær fimm milljón frosnar pizzur eftir að Ecolí baktería fannst í pepperoní áleggi. 2.11.2007 07:58
Yfir hundrað látið lífið vegna Noels Að minnsta kosti hundrað og átta hafa látið lífið í Karabíska hafinu vegna hitabeltisstormsins Noel. Styrkleiki hans hefur farið vaxandi og telst hann nú vera fyrsta stigs hitabeltisstormur. 2.11.2007 07:19
Flóð valda miklu tjóni í Mexíkó Mikið eignatjón hefur orðið í miklum flóðum sem nú geysa suðausturhluta Mexíkó. Í fylkinu Tabasco er talið að öll uppskera hafi eyðilagst en um sjötíu prósent af landi þar er nú undir vatni. 2.11.2007 07:15
Dregur úr stuðningi við Rasmussen Nokkuð hefur dregið úr stuðningi danskra kjósenda við ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, samkvæmt skoðunakönnunum sem birtar voru í gær. 2.11.2007 07:09
SAS vissi af bilun í hjólabúnaði Flugfélaginu SAS höfðu borist kvartanir frá flugmönnum vegna hjólabúnaðar Dash vélarinnar áður en henni hlekktist á í lendingu á Kastrup flugvelli um síðustu helgi. 2.11.2007 07:08