Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Faxaflóahafnir sf. í samstarf við næst stærstu höfn Kína Faxaflóahafnir sf. og höfnin í Qingdo í Kína undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf og samvinnu. Viljayfirlýsingu þessari verður fylgt eftir með gerð formlegs samstarfssamnings sem verður undirritaður síðar. Höfnin í Qingdao er sú önnur stærsta í Kína og sú tíunda stærsta í heiminum. Að auki eru hún stærsta höfn Kína í frystum og kældum afurðum. 19.7.2007 16:14
Lýsa yfir áhyggjum vegna samdráttar í þorskkvóta Fyrirtæki og heimili á Vestfjörðum verða fyrir miklum tekjuskerðingum vegna samdráttar í þorskkvóta og því mikilvægt að stjórnvöld grípi strax til mótvægisaðgerða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga. Stjórnin lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu mála. 19.7.2007 16:02
Fullur og á stolnum bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt nítján ára pilt fyrir ölvunarakstur í Garðabæ. Bíllinn sem pilturinn var á reyndist við nánari skoðun vera stolinn. 19.7.2007 15:38
117 tonna spennar eru þyngstu hlutir sem hafa farið eftir vegakerfinu 117 tonna spennar hafa verið fluttir eftir þjóðvegum frá Reyðarfirði í stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal í sumar. Spennarnir eru þyngstu hlutir sem farið hafa eftir vegakerfinu. Þar að auki er flutningabúnaður 74 tonn og heildarþungi því 191 tonn. Mikil vinna var lögð í að reikna út burðargetu brúa á leiðinni. 19.7.2007 15:33
Eldur kviknaði í potti Eldur kviknaði í potti í heimahúsi í Hafnarfirði í gær þegar húsmóðirin var að laga mat. Einn heimilismanna sýndi snarræði og náði að slökkva eldinn með handslökkvitæki og koma þannig í veg fyrir stórtjón. Töluverður reykur mætti lögreglu og slökkviliði þegar komið var á vettvang en heimilisfólkið, tveir karlar og kona, komst út af sjálfsdáðum. 19.7.2007 15:22
Geiri í Goldfinger braut ekki lög um nektardans Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri í Goldfinger, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í dag af ákæru um að hafa staðið fyrir nektardanssýningu í lokuðu rými. Dansmey sem einnig var ákærð í málinu var líka sýknuð. Að mati dómsins þótti ekki sýnt að dansinn hafi farið fram í lokuðu rými líkt og bannað er samkvæmt lögreglusamþykkt. 19.7.2007 15:22
Ég trampaði á hálsi hennar til að ná sálinni út Breskur kviðdómur heyrði í dag lýsingu á skelfilegum endalokum tvítugrar kúrdiskrar stúlku. Fjölskylda hennar og vinir myrtu hana fyrir að kasta rýrð á heiður fjölskyldunnar. Hún hafði orðið ástfangin af röngum manni. Henni var nauðgað og misþyrmt áður en hún var kyrkt. 19.7.2007 14:43
Lyftari valt af flutningabíl á Bústaðavegi Lyftari valt af flutningabíl á Bústaðavegi við Valsheimilið laust fyrir klukkan eitt í dag. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu. 19.7.2007 14:07
Sopranos fékk flestar Emmy tilnefningar Sjónvarpsþættirnir um Sopranos fjölskylduna hafa fengið langflestar tilnefningar til Emmy verðlaunanna. Þættirnir fá 15 tilnefningar meðal annars sem bestu dramaþættirnir. Helstu keppinautar Sopranos eru Grey´s Anatomy, Boston Legal, House og Heroes. 19.7.2007 14:06
Dæmdur sekur fyrir vörslu fíkniefna Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur til að greiða 40 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa í fórum sínum ólöglegt fíkniefni. Maðurinn var með 0,94 grömm af amfetamíni þegar lögreglan hafði afskipti af honum í Hafnarstræti á Akureyri í síðastliðnum aprílmánuði. Með brotinu rauf maðurinn skilorð fyrri dóma. 19.7.2007 13:35
Dæmdur fyrir brot á fíkniefnalögum Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag sakfelldur fyrir að hafa í sinni vörslu ólögleg fíkniefni. Um var að ræða 23,15 grömm af hassi og 0,93 grömm af marihúana. Með brotinu rauf maðurinn skilorð reynslulausnar frá því í janúar á þessu ári. 19.7.2007 13:26
Blár páfagaukur laus á Lynghálsi Blár páfagaukur sást í bílageymslu Glitnis á Lynghálsi 4. Í sama húsi og Europris. Ef einhver er að leita að gauksa má hafa samband við Pál Snorra 892-5746. 19.7.2007 13:07
Vegfarendur beðnir að sýna aðgát á Kræklingahlíð Vegna hættu á blæðingum í slitlagi á Kræklingahlíð norðan Akureyrar eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát meðan þetta ástand varir og fylgja fyrirmælum um lækkun á umferðarhraða. Vegna framkvæmda verður Vatnsfjarðarvegur númer 633 lokaður frá klukkan 07:00 miðvikudaginn 18. júlí til hádegis laugardaginn 21. júlí. Opið verður út í Reykjanes úr Mjóafirði. 19.7.2007 13:02
Vinstri grænir vilja fresta samningum við stóriðjufyrirtæki Hvorki á að gera samninga við stóriðjufyrirtæki né úthluta rannsóknarleyfum til orkufyrirtækja á meðan unnið er að náttúruverndaráætlun fyrir árin 2008 til 2012. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingflokki Vinstri grænna. Flokkurinn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna stefnu ríkisstjórnarinnar að heimila áframhaldandi undirbúning álverksmiðja í Helguvík, Straumsvík og á Húsavík. 19.7.2007 12:33
Bretar segja brottrekstur erindreka óréttlætanlegan Rússar hafa ákveðið að reka fjóra breska erindreka úr landi og hefna þar með fyrir ákvörðun Breta sem ráku nýverið fjóra enrindreka Rússa frá Bretlandi. David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, sagði ákvörðun Rússa óréttlætanlega. 19.7.2007 12:31
Kallað verði eftir dómskvöddum matsmönnum til að meta niðurstöður ASÍ Forstjóri Haga segir Alþýðusamband Íslands stunda atvinnuróg gegn verslunum Haga og segir að kallaðir verði til dómskvaddir matsmenn til að meta fréttaflutning ASÍ af verðlagi í verslunum. Hann segir ekkert að marka verðkannanir ASÍ og vinnubrögð þess ólíðandi. 19.7.2007 12:30
Ingibjörg Sólrún hitti Abbas í morgun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hitti Abbas forseta Palestínu á fundi á Vesturbakkanum í morgun. Abbas tilkynnti í gær að hann hygðist boða til þing- og forsetakosninga innan skamms. 19.7.2007 12:09
Feðgar fundu víkingafjársjóð Gríðarstór víkingafjársjóður fannst í janúar á þessu ári í Jórvíkurskíri í Englandi. Þeir sem fundu hann voru tveir feðgar að leika sér með málmleitartæki. Þeir héldu sjóðnum saman og afhentu hann Breska þjóðminjasafninu til rannsókna og varðveislu. Talið er að sjóðurinn sé frá tíundu öld. 19.7.2007 11:28
Borgarstjóri andvígur einkavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur Takmörkuð samkeppni á orkumarkaði mælir gegn einkavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur að mati Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóra. Þetta kom fram í máli borgarstjóra í þættinum Morgunhaninn á útvarpi Sögu. 19.7.2007 10:59
Sao Paulo vélin var á fjórföldum lendingarhraða Myndbandsupptökur af flugslysinu í Sao Paulo í Brasilíu í gær sýna að Airbus flugvélin var á allt að fjórföldum venjulegum lendingarhraða þegar hún snerti flugbrautina. Yfir 200 manns fórust þegar vélin fór til vinstri út af flugbrautinni, við enda hennar, og lenti á bensínstöð. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndband af flugvélinni lenda. 19.7.2007 10:29
Atvinnuleysi 3,2 prósent á 2. ársfjórðungi þessa árs Atvinnuleysi var 3,2 prósent á 2. ársfjórðungi þessa árs samkvæmt samantekt Hagstofunnar á atvinnuþáttöku og atvinnuleysi. Að meðaltali voru því tæplega sex þúsund manns án vinnu og í atvinnuleit á tímabilinu. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára eða 10,2 prósent. Fleiri karlar voru atvinnulausir en konur. 19.7.2007 10:26
Chirac yfirheyrður vegna spillingarmála Jacques Chirac, fyrrum forseti Frakklands, var yfirheyrður af dómara í morgun vegna spillingarmála. Um þó nokkur mál sem tengjast upplognum störfum er að ræða. Talið er að atvikin hafi átt sér stað í borgarstjóratíð Chirac's en hann var borgarstjóri Parísar á níunda áratug síðustu aldar. 19.7.2007 10:25
Rússar svara fyrir sig á hádegi Rússneska utanríkisráðuneytið ætlar sér að gefa frá sér yfirlýsingu varðandi samband Bretlands og Rússlands á hádegi í dag. Undanfarna mánuði hefur samband ríkjanna tveggja versnað verulega. Mál fyrrum njósnarans Alexander Litvinenko, sem myrtur var með geislavirka efninu pólóníum 210 í Lundúnum, er ein helsta ástæða þess. 19.7.2007 10:08
Aukið eftirlit skýrir fjölgun hraðakstursbrota Aukið eftirlit lögreglu og fjölgun bíla á landinu skýrir að mestu leyti mikla fjölgun hraðakstursbrota á undanförnum árum að mati Kristínar B. Þorsteinsdóttur, fræðslufulltrúa hjá Umferðarstofu. Hún segir það einnig áhyggjuefni að ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna hafi aukist eins og raun ber vitni. Hraðakstursbrotum í júnímánuði hefur fjölgað um helming á síðustu tveimur árum. 19.7.2007 10:01
25 fórust þegar bygging hrundi í Mumbai Að minnsta kosti 25 manns fórust þegar gömul bygging hrundi í Mumbai, fjármálamiðstöð Indlands. Talið er að tugir séu enn fastir í rústum byggingarinnar. Björgunarmenn eru nú að fara í gegnum þær í leit að þeim sem lifðu af. 19.7.2007 09:57
Innanríkisráðherra Breta reykti kannabis á yngri árum Jacqui Smith, innanríkisráðherra Breta, hefur viðurkennt að hafa reykt kannabis þegar hún var við nám í Oxford háskóla á níunda áratugnum. Játning hennar kemur fram daginn eftir að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti að hún myndi vera yfir nefnd sem á að endurskoða stefnu landsins í fíkniefnamálum. 19.7.2007 09:28
Icelandair hefur flug til Toronto næsta vor Icelandair hefur ákveðið að hefja beint áætlunarflug milli Íslands og Toronto í Kanada strax næsta vor. Ákvörðun um þetta var tekin í framhaldi af þeim samningi sem stjórnvöld undirrituðu í Ottawa í síðustu viku. 19.7.2007 09:18
Mikil skelfing þegar gufuleiðsla sprakk í New York Nú er talið að einn hafi látist og 26 slasast þegar gufuleiðsla sprakk á háannatíma við Grand Central lestarstöðina í New York í gær. 19.7.2007 08:05
Sprengin veldur ótta í New York Mikill ótti greip um sig meðal íbúa New York borgar þegar rafmagnsspennir sprakk í loft upp á Manhattaneyju í kvöld. Í fyrstu var óttast að um hryðjuverkaárás væri að ræða en seinna kom í ljós að spennirinn sprakk eftir að gufuleiðsla í námunda við hann rofnaði. 18.7.2007 23:42
Tuttugu teknir fyrir hraðakstur á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði í dag 20 ökumenn fyrir hraðakstur en þar af voru átján teknir innanbæjar. Einn var tekinn á 106 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 50. 18.7.2007 23:08
Útafakstur við Bifröst Bifreið fór útaf Vesturlandsvegi við Bifröst um áttaleytið í kvöld. Ökumaður var einn í bílnum en hann sakaði ekki. 18.7.2007 23:07
Dalvegur við Digranesveg og Dalsmára lokaður vegna slysahættu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði í kvöld fyrir umferð ökutækja á Dalvegi milli Digranesvegar og Dalsmára vegna slysahættu. Framkvæmdir standa yfir við götuna og hafði verktaki ekki gengið nægjanlega vel frá svæðinu að sögn lögreglu. 18.7.2007 23:04
Hegningarlagabrotum fækkar milli ára Rúmlega hundrað færri hegningarlagabrot voru skráð hjá lögreglunni í síðastliðnum júnímánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Nokkuð hefur dregið úr þjófnuðum og innbrotum en á sama tíma fjölgar hraðakstursbrotum og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir júnímánuð. 18.7.2007 22:12
Íslensk erfðagreining finnur fyrsta erfðabreytileika fótaóeirðar Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa í samstarfi við Emory háskólann í Atlanta í Bandaríkjunum fundið fyrsta erfðabreytileikann sem tengist fótaóeirð. Fótaóeirð er algengur sjúkdómur og talið að 5 til 10 af hverjum hundrað einstaklingum á Vesturlöndum þjáist af honum. Uppgötvunin mun hjálpa til við að greina sjúkdómin og bæta meðferð gegn honum. 18.7.2007 21:50
Búið að slökkva sinueld við Skautahöllina Búið er að slökkva sinueld við Skautahöllina í Laugardal en um 40 til 50 fermetra gróðursvæði varð eldinum að bráð. Mikið hefur verið um útköll hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í kvöld vegna sinuelda. 18.7.2007 21:40
Bretar senda orrustuþotur gegn rússneskum sprengjuflugvélum Breski flugherinn þurfti í gær að beita orrustuþotum til að koma í veg fyrir að tvær rússneskar sprengjuflugvélar myndu fljúga inn í breska lofthelgi. Er þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem breski flugherinn þarf að grípa til aðgerða af þessu tagi gegn rússneskum herflugvélum. 18.7.2007 21:13
Sinubruni við Skautahöllina í Laugardal Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu til að slökkva sinuelda við Skautahöllina í Laugardal. Mikið hefur verið um sinuelda á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu vegna mikilla þurrka. 18.7.2007 20:57
Hvetja Rússa til að framselja Lugovoi Evrópusambandið hvetur Rússa til að framselja Andrei Lugovoi, meintan morðingja Alexander Litvinenko, til Bretalands. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem ríkisstjórn Portúgals sendi frá sér í dag en Portúgalar eru nú með forsæti í Evrópusambandinu. 18.7.2007 20:02
Afkoma lundans slök í Eyjum Afkoma lundans hefur verið slök í Vestmannaeyjum undanfarin ár og finnst ekki tveggja ára fugl í eyjunum. Menn eru sammála um að ástand lundastofnsins sé alvarlegt en verið er að rannsaka hvers vegna stofninum hefur hrakað. 18.7.2007 19:43
Rúmlega 750 manns á biðlista eftir augasteinaaðgerð Rúmlega 750 manns bíða eftir að komast í augasteinaaðgerð á Landspítalanum. Eftirspurn eftir slíkum aðgerðum hefur margfaldast síðustu ár vegna hækkandi aldurs Íslendinga, segir settur yfirlæknir á augndeild spítalans. 18.7.2007 19:40
Glitnismálinu vísað frá dómi Glitnismálinu svokallaða var vísað frá dómi í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag, þar sem dómari úrskurðaði að saksóknari efnahagsbrota gæti ekki gefið út ákærur. 18.7.2007 19:39
Sífellt fleiri nýta sér hundahótel Færst hefur í vöxt að dýraeigendur nýti sér þjónustu sérstakra dýrahótela yfir sumartímann. Hótelstýra á hundahóteli segir marga dýraeigendur hrædda við að skilja dýrin sín eftir á hóteli í fyrsta skiptið, þótt dýrin sjálf séu yfirleitt nokkuð sátt. 18.7.2007 19:33
Skrumskæling að halda fram að húðkrabbamein sé ekki hættulegt Framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands segir það skrumskælingu þegar því sé haldið fram að ekki sé hættulegt að fá húðkrabbamein, eins og haldið var fram í einu dagblaðanna í dag. Tæp tuttugu prósent karla sem fá sortuæxli látast af sjúkdómnum. 18.7.2007 19:29
Ekki sannfærður um að Lúkas sé á lífi Ekki eru allir sannfærðir um að hundurinn Lúkas sé enn á lífi þrátt fyrir sögusagnir þess efnis. Hilmar Trausti Harðarson, einn þeirra sem leitað hefur að Lúkasi undanfarna daga, segist efast um að það hafi verið Lúkas sem sást til ofan við Akureyri á mánudaginn. Hann segist ekki hafa hótað meintum banamanni Lúkasar barsmíðum. 18.7.2007 19:27
Vonast til að geta flogið sem fyrst Verið var að taka sigmann þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-Sif upp í þyrluna þegar hún missti afl og nauðlenti í sjónum. Annar flotbelgjanna sem áttu að halda henni á floti gaf sig sem varð til þess að þyrlunni hvolfdi. Áhöfnin telur sig ekki hafa verið í hættu og vonast til að geta flogið sem fyrst aftur. 18.7.2007 19:14