Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný tækni frá 3X á Ísafirði tífaldar verðmæti fiskafurða Hátæknifyrirtækið 3X á Ísafirði hefur þróað aðferðir til að tífalda verðmæti afurða með því að auka nýtingu hráefnis. Ný tækni frá fyrirtækinu gerir jafnframt mögulegt að mæta samdrætti í afla með því að þýða heilfrystan fisk og vinna afurðir úr honum. Tilraunir sem 3X hefur gert með fiskiðju Vísis hf. á Þingeyri hafa gengið framar vonum. 18.7.2007 18:30
Björgunarsveit hjálpar manni úr sjálfheldu Björgunarsveitin Víkverji var kölluð út síðdegis í dag til að sækja mann sem var í sjálfheldu í klettum í Þakgili í Höfðabrekkuafrétt. Hafði maðurinn klifrað upp til að aðstoða börn sín niður úr þessum sömu klettum en þegar hann ætlaði sjálfur niður hrundi aðeins undan fótum hans svo hann taldi vissara að kalla á aðstoð. 18.7.2007 18:14
Vesturlandsvegur lokaður eftir að pallbíll valt Vesturlandsvegur við Leirvogsá er lokaður eftir að pallbíll með hestakerru valt á veginum. Að sögn lögreglu slasaðist enginn alvarlega. 18.7.2007 18:11
Lítil truflun á starfsemi Norðuráls vegna mótmæla Engin röskun varð á starfsemi álvers Norðuráls á Grundartanga vegna mótmæla samtakanna Saving Iceland. Mótmælendur lokuðu annarri aðkeyrslunni að álverinu með því að hlekkja sig við veginn. Starfsmannastjóri álversins segir ólíklegt að lögð verði fram kæra vegna mótmælanna. Talsmaður Saving Iceland boðar frekari aðgerðir af hálfu samtakanna. 18.7.2007 17:56
Í eldhúsið með ykkur Eina leiðin til þess að jafna launamun kynjanna er að karlmenn taki meiri þátt í heimilisstörfunum. Þetta segir atvinnumálastjóri Evrópusambandsins í ákalli til allra karlmanna í aðildarríkjunum. Launamunur kynjanna er þar um 15 prósent. 18.7.2007 16:52
Áhöfn Sifjar vill fara að fljúga aftur sem fyrst Áhöfn Landhelgisgæsluþyrlunnar Sifjar vonast til að geta farið aftur að fljúga sem fyrst. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í flugskýli Landhelgisgæslu Íslands við Reykjavíkurflugvöll kl. 16 í dag og var að ljúka. 18.7.2007 16:49
Mótmæli við Grundartanga Mótmælendur samtakana Saving Iceland mótmæla nú við álver Norðuráls á Grundartanga. Nokkrir mótmælendur hafa lokað annarri aðkeyrslunni að álverinu með því að hlekkja sig við veginn, en samkvæmt lögreglunni á Akranesi truflar það ekki aðkomu því önnur leið er að svæðinu. Þá hefur einn mótmælandinn klifrað upp í krana. 18.7.2007 16:39
Hamas samtökin í tengslum við al-Kæda Utanríkisráðherra Frakklands segir að Hamas samtökin hafi þegar tengsl við al-Kæda og þau tengsl séu ekki til komin vegna þrýstings vestrænna ríkisstjórna á Hamas. Utanríkisráðherra Ítalíu sagði fyrr í vikunni að vesturlönd hefðu rekið Hamas í fangið á al-Kæda. 18.7.2007 16:25
Ósæmileg meðferð kirkjumuna Tveir 17 ára piltar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu á dögunum en þeir voru með hvítan trékross í eftirdragi. Á krossinum var áletrað nafn látins einstaklings. Aðspurðir sögðust piltarnir hafa fundið krossinn fyrir tilviljun á víðavangi og ætluðu að gera úr honum listaverk. 18.7.2007 16:12
Mennirnir sem leitað var að á Grænlandi eru á lífi Danski flotinn á Grænlandi bíður nú eftir betri veðurskilyrðum til að bjarga tveimur mönnum sem fóru á flugi yfir Grænlandsjökul. Ekki er staðfest hvort flugvél mannanna hafi brotlent eða nauðlent. Kurt Andreasen, upplýsingafulltrúi dönsku flugmálastjórnarinnar, staðfestir að mennirnir séu á lífi. Þeir flugu í franskri vél af gerðinni ULM-Ultralight. 18.7.2007 15:57
Öldungadeildin felldi heimflutning frá Írak Tillaga um að kalla bandaríska hermenn heim frá Írak fyrir apríllok á næsta ári, náði ekki fram að ganga í öldungadeild bandaríska þingsins í dag. Meirihluti þingmanna greiddi að vísu atkvæði með tillögunni en það var ekki nóg. Í öldungadeildinni eru 100 þingsæti og það þurfti 60 atkvæði til að fá tillöguna samþykkta. 18.7.2007 15:38
Saksóknari efnahagsbrota kærir frávísun til Hæstaréttar Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra mun kæra úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra í morgun til Hæstaréttar. Héraðsdómur vísaði máli gegn fólki á Akureyri sem nýtti sér kerfisvillu í netbanka Glitnis frá, á þeim grundvelli að kæruvald saksóknara efnahagsbrota styddist ekki við lög. 18.7.2007 15:33
Von í Darfur: Risastórt neðanjarðar stöðuvatn Bandarískir jarðfræðingar hafa fundið risastórt neðanjarðar stöðuvatn í Darfur héraði í Súdan. Þessi fundur gæti orðið mikilvægt skref til friðar í héraðinu, þar sem vatnsskortur og hungursneyð er stór þáttur í átökunum. Þegar hefur náðst samkomulag um að grafa eittþúsund brunna á þessu svæði. 18.7.2007 14:49
Kínverjar ráðast á himininn Kínverjar leggja ofuráherslu á að allt fari sem best fram þegar Ólympíuleikarnir verða haldnir þar á næsta ári. Þeir hafa meðal annars áhyggjur af veðrinu því tölur sýna að það eru helmingslíkur á því að það rigni á setningardegi leikanna áttunda ágúst. 18.7.2007 14:03
Héraðsdómur segir ákæruvald saksóknara efnahagsbrota lögleysu Héraðsdómur Norðurlands vísaði í morgun frá máli sem saksóknari efnahagsbrota höfðaði gegn fólki á Akureyri sem nýtt hafði sér kerfisvillu í netbanka Glitnis til að þannig hagnast um tugmillljónir króna á gjaldeyrisviðskiptum. Dómarinn sagði í úrskurði sínum að ákæruvald saksóknara efnahagsbrota styddist ekki við lög. Freyr Ófeigsson dómsstjóri segir í úrskurði sínum, að saksóknara efnahagsbrota verði ekki falin sjálfstæð meðferð ákæruvalds með reglugerð að óbreyttum lögum. Hann hafi ekki haft heimild til að gefa út ákæru í máli þessu í eigin nafni og því sé ekki hjá því komist að vísa málinu sjálfkrafa frá dómi. 18.7.2007 13:47
Kanntu að reikna eins og 8 ára barn ? Ný könnun í Bretlandi virðist sýna að stærðfræðikunnáttu fólks fari hrakandi. Stærðfræðispurning sem lögð var fyrir átta ára börn var einnig lögð fyrir 2000 fullorðna. Spurningin var: Hvað er einn áttundi af 32. Nokkrir svarmöguleikar voru gefnir. 18.7.2007 13:39
Greipávöxtur getur valdið brjóstakrabbameini Með því að borða einn greipávöxt á dag aukast líkurnar á brjóstakrabbameini um næstum þriðjung samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin var í Bandaríkjunum við háskólann í Suður-Kaliforníu og Hawaii. Rannsóknin náði til 50 þúsund kvenna á breytingaraldrinum og sýnir að aðeins einn fjórði af greipávextinum jók líkurnar um allt að 30 prósent. 18.7.2007 13:32
Bæjarstjórn Akureyrar ályktar vegna skerðingar á aflaheimildum á þorski Bæjarstjórn Akureyrar ályktaði vegna skerðingar á aflaheimildum á bæjarstjórnarfundi í gær. Bæjarstjórnin lýsir þar yfir þungum áhyggjum af afleiðingum sem skerðingin mun hafa á atvinnulíf í Eyjafirði og á Norðurlandi öllu. Einnig óskar bæjarstjórnin tafarlaust eftir viðræðum við ríkisstjórnina um atvinnumál Eyjafjarðarsvæðisins. 18.7.2007 13:29
Iðnaðarráðherra leggst á sveif með afa og ömmu Afi og amma Suður-amerískrar stúlku á Ísafirði standa í ströngu í viðskiptum sínum við yfirvöld innflytjendamála. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra hefur nú lagst á sveif með hjónunum. Á heimasíðu Bæjarins besta er sagt frá afa og ömmu hinnar Suður-amerísku Alejöndru sem þurfa að sækja um dvalarleyfi fyrir hana hér á landi á sex mánaða fresti. 18.7.2007 13:24
Óþolinmæði og tillitsleysi ökumanna Ökumenn sýndu óþolinmæði og tillitsleysi í gær við gatnamót Vesturlandsvegar og Þingvallavegar samkvæmt lögreglu, en þar var unnið við malbikun. Á umræddum gatnamótum er nú 30 km hámarkshraði, en engu að síður keyrðu ökumenn ógætilega um svæðið. Skapaðist því mikil hætta fyrir vegfarendur, ekki síst fyrir þá vinnumenn sem voru að vinna við malbikun. 18.7.2007 12:57
Fullt af leyndarmálum í Washington Meira en tuttugu milljón opinber skjöl voru stimpluð leyndarmál í bandarísku stjórnsýslunni á síðasta ári. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur skoðað vinnubrögðin og segir menn alltof gjarna á að veifa trúnaðarstimplinum. 18.7.2007 12:53
Anheuser-Busch eignast 20% í Icelandic Glacial Bandaríski risinn á drykkjarvörumarkaði, Anheuser-Busch hefur eignast 20% í vatnsfyrirtæki Jóns Ólafssonar og sonar hans Kristjáns. Þeir reka átöppunarverksmiðju á lindarvatni í Þorlákshöfn og er vatnið markaðssett undir vörumerkinu Icelandic Glacial. 18.7.2007 12:52
Formaður Prestafélagsins vill breyta reglum um embættisskipanir presta Ólafur Jóhannsson, formaður Prestafélags Íslands, segir að félagið hafi gert athugasemdir við þá ákvörðun Þjóðkirkjunnar að auglýsa stöðu sóknarprests í prestakalli Kálfastrandarsóknar og Ástjarnarsóknar. 18.7.2007 12:21
Umferðarkönnun á Öxnadalsheiði Vegagerðin mun standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði fimmtudaginn 19. júlí og laugardaginn 21. júlí næstkomandi. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00-23:00 báða dagana. 18.7.2007 12:17
Brot 39 ökumanna voru mynduð á hraðamyndavél lögreglunnar Brot 39 ökumanna voru mynduð á hraðamyndavél lögreglunnar sem var við eftirlit á Álftanesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í suðurátt, þ.e. að Garðavegi. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 189 ökutæki þessa akstursleið og því óku 21% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. 18.7.2007 11:46
Sr. Carlos íhugar að sækja rétt sinn fyrir héraðsdómi Sr. Carlos Ferrer íhugar dómsmál gegn Þjóðkirkjunni eftir að sr. Bára Friðriksdóttir var ráðin í embætti sóknarprests í prestakalli Kálfatjarnarsóknar og Ástjarnarsóknar. Halldór Bachman, lögfræðingur Carlosar, telur að rangt hafi verið staðið að ákvörðuninni um að auglýsa starfið innan prestakallsins. 18.7.2007 11:28
LSH fær nýjar talstöðvar að gjöf Lionsklúbburinn Þór hefur fært slysa- og bráðasviði LSH að gjöf fimm nýjar Tetra talstöðvar. Talstöðvarnar leysa af hólmi eldri tæki sem ætluð voru fyrir greiningarsveit LSH. 18.7.2007 11:19
Krakkar úr Kópavogi heimsmeistarar í skák Skáksveit Salaskóla sigraði í flokki 14 ára og yngri á heimsmeistaramóti í skák sem lauk í Tékklandi í morgun. Þegar lokaumferð á mótinu hafði verið tefld voru Íslendingarnir með 1,5 vinning í forskot á næstu sveit. 18.7.2007 11:16
Grænland var eins og Suður-Svíþjóð Fyrir um hálfri milljón ára ríkti milt veðurfar á Grænlandi og gróður var þar svipaður og í suðurhluta Kanada eða í Smálöndunum í Svíþjóð. Þar voru grænir skógar og býsnin öll af skordýrum og öðru lífi. Þetta kemur fram í grein í vísindaritinu Science sem hefur vakið mikla athygli í allri umræðunni um loftslagsbreytingar. 18.7.2007 11:05
Dæmdur fyrir vörslu barnakláms Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi mann fyrir vörslu barnakláms á mánudaginn. Ákvörðun um refsingu mannsins var frestað og fellur hún niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms haldi maðurinn almennt skilorð. Manninum er gert að greiða rúmlega 82.000 krónur í sakarkostnað. 18.7.2007 10:51
Sekt fyrir að klæðast einkennisskyrtu lögreglu opinberlega Karlmaður á Akureyri var í gær dæmdur til að greiða 20.000 króna sekt í ríkissjóð fyrir að vera í lögreglubúningi. Maðurinn var í einkennisskyrtu lögreglu á veitingastaðnum Kaffi Akureyri aðfaranótt sunnudagsins 29. apríl í vor. Héraðsdómur Norðurlands eystra taldi að hann hafi með því brotið gegn valdstjórninni. 18.7.2007 09:57
Boris Berezovsky segir að Rússar hafi reynt að myrða sig Rússneski auðjöfurinn Boris Berezovsky segir að breska lögreglan hafi komið í veg fyrir morðtilræði gegn sér í síðasta mánuði. Hann segir að lögreglan hafi varað hann við því að rússneskur leigumorðingi hafi ætlað að drepa hann á Hilton hótelinu á London Park Lane. 18.7.2007 09:10
Byssumaður í 10/11 Karlmaður í annarlegu ástandi kom inn í 10-11 verslunina við Austurstræti á sjöunda tímanum í morgun og miðaði startbyssu á viðskiptavini og starfsfólk, án þess að krefjast neins. 18.7.2007 09:05
Norður Kóreumenn loka kjarnorkuverum Norður Kórea hefur lokað öllum kjarnorkuverum í Yongbyon, samkvæmt upplýsingum Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar. Þetta er fyrsta skref þeirra til að uppfylla skilyrði samkomulags sem gert var í febrúar síðastliðnum en samkvæmt því fær Norður Kórea umtalsvert orkumagn gefins gegn því að þeir hverfi frá kjarnorkuáætlun sinni. 18.7.2007 08:59
Dani týndur í Tasmaníu Mikil leit er hafin af 21 árs dönskum manni, Kasper Sörensen, sem hefur verið týndur í Tasmaníu undanfarnar tvær vikur. Hann var þar við klifur en bakpoki hans og klifurgræjur fundust á tindi fjalls á eyjunni þann 10 júlí. Enginn hafði heyrt frá honum í viku fyrir þann tíma. 18.7.2007 08:57
Flugvél með 170 manns alelda eftir að hafa keyrt á bensínstöð Flugvél með 170 manns innanborðs hlekktist á í flugtaki frá flugvellinum í Sao Paulo í Brasilíu í kvöld með þeim afleiðingum að hún keyrði beint á bensínstöð. Vélin varð strax alelda en ekki er vitað hvort einhver hafi látið lífið eða hversu margir slösuðust. Björgunaraðgerðir standa nú yfir. 17.7.2007 23:32
Tólf láta lífið í sjálfsmorðsárás í Pakistan Að minnsta kosti 12 létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í Islamabad í Pakistan í dag. Talið er árásinni hafi verið beint gegn stuðningsmönnum, Iftikhar Chaudhry fyrrum dómsmálaráðherra landins. 17.7.2007 23:04
Dómstólaráð Líbíu mildar dóm yfir heilbrigðisstarfsfólki Dómstólaráð Líbíu ákvað í dag að milda dóm yfir fimm hjúkrunarkonum frá Búlgaríu og einum lækni frá Palestínu úr dauðdómi í ævilangt fangelsi. Fólkið var dæmt til dauða í síðustu viku fyrir að hafa smitað 438 börn viljandi af HIV veirunni. Talið er að ákvörðun dómstólaráðs Líbíu eigi eftir að liðka fyrir því að fólkið verði látið laust. 17.7.2007 22:42
Tóku 60 erlenda ferðamenn fyrir hraðakstur Meiri en helmingur þeirra sem lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði í síðustu viku fyrir hraðakstur voru erlendir ferðamenn. Í umdæmi lögreglunnar á Selfossi eru að meðaltali fimm til sex erlendir ferðamenn stöðvaðir vegna hraðaksturs á hverjum degi. Flestir kjósa að greiða sektina á staðnum. 17.7.2007 21:58
Mikið um sinubruna á höfuðborgarsvæðinu Óvenjumikið hefur verið um sinubruna á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sólarhring. Gróður er víða þurr og eldur fljótur að breiðast út. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vill koma þeim tilmælum til fólks að það fari varlega með eld í náttúrunni. 17.7.2007 20:44
Þjálfa hermenn til að greina áfallastreitu Bandaríski herinn hefur ákveðið að þjálfa alla hermenn til að greina áfallastreitu hjá sjálfum sér svo þeir geti leitað sér aðstoðar. Talið er að um 30 prósent bandarískra hermanna í Írak hafi upplifað áfallastreitu á einhverjum tímapunkti. Herinn hefur þó takmarkaða getu til að hjálpa þessum hermönnum eins og sakir standa. 17.7.2007 20:20
Trefjaplast í stað þorsks? Norskur útgerðarmaður með áratugareynslu segir Íslendinga ekki þurfa að örvænta vegna niðurskurðar á kvóta. Hann segir að Íslendingar ættu heldur að nota tækifærið til þess að reyna að ná fram aukinni hagkvæmni í útgerð og fiskveiðum. 17.7.2007 20:18
Lá í tuttugu mínútur á réttum kili áður en henni hvolfdi TF Sif var dregin til lands í nótt og flutt í flugskýli við Reykjavíkurflugvöll til rannsóknar. Vonast er til að upplýsingar úr flugrita hennar varpi ljósi á atburðinn. Sjónarvottar segja að þyrlan hafi verið í um tuttugu mínútur á réttum kili í sjónum áður en henni hvolfdi. 17.7.2007 19:44
Lúkas ófundinn Hundurinn Lúkas er enn ekki fundinn en víðtæk leit verður gerð að hundinum á morgun á þeim slóðum þar sem sást til hans ofan við Akureyri í gær. 17.7.2007 19:42
Friðarfundur væntanlega haldinn í Bandaríkjunum Fyrirhugaður friðarfundur ríkja fyrir botni Miðjarðarhafs verður væntanlega haldinn í Bandaríkjunum síðar á þessu ári. Þetta kom fram í máli talsmanns bandaríska innanríkisráðuneytisins á blaðamannafundi í dag. Enn liggur þó ekki fyrir hvaða ríkjum verður boðið á friðarfundinn. 17.7.2007 19:38