Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bátar í eigu Kambs seldir frá Flateyri Samkomulag er um að tveir bátar í eigu Kambs á Flateyri verði seldir til nærliggjandi plássa á Vestfjörðum. Þeir taka ríflega helming kvótans sem Kambur hafði til umráða. Bæjarstjórn Ísafjarðar ætlar að gera úttekt á því hvort hægt sé að stofna félag sem gæti keypt aflaheimildir í þeim tilgangi að halda fiskvinnslu á staðnum. 26.5.2007 18:58
Fermingarbörn mögulegir hryðjuverkamenn Kona sem hugðist gefa fermingarbarni fimmþúsund króna inneign á lokaðri bankabók var krafin svara um þjóðerni, hjúskaparstöðu og uppruna fimmþúsundkrónanna í Sparisjóðnum. 26.5.2007 18:45
Eldur í timburhúsi á Sólheimum Stórt timburhús á Sólheimum í Grímsnesi logar nú glatt og leggur svartan reyk yfir nágrennið. Slökkvilið vinnur að því að ná tökum á eldinum og eru slökkvibílar frá Selfossi, Laugarvatni og Reykholti á staðnum. Ekki er talið að neinn hafi verið inni í húsinu. Það er að hruni komið en slökkvilið reynir einnig að slökkva sinuelda sem kviknað hafa í norðanvindinum. 26.5.2007 18:40
Síðasta reykingahelgi Íslands Síðasta reykingahelgin er runnin upp á veitinga- og skemmtistöðum landsins. Hópur veitingamanna í miðborg Reykjavíkur fór nýverið til Stokkhólms til að kynna sér lausnir þarlendra veitingamanna á reykingabanninu. 26.5.2007 18:30
Ísraelar vissu að sex daga stríðið var ólöglegt Háttsettur lögfræðingur sem varaði ríkisstjórn Ísraels við því að það væri ólöglegt að byggja gyðingabyggð á hernumdum svæðum Palestínumanna eftir sex daga stríðið árið 1967, hefur nú í fyrsta sinn komið fram og sagt að hann trúi að hann hafi haft rétt fyrir sér. Theodor Meron var lagalegur ráðgjafi utanríkisráðherra ísraels á þessum tíma. Hann er í dag einn virtasti dómari á alþjóðavísu. 26.5.2007 16:58
Mikil hætta vegna kappakstur í Garðabæ Mikil hætta skapaðst á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ nú á þriðja tímanum þegar tveir ökumenn voru að spyrna skammt frá Olís. Hámarkshraði þar eru 80 km á klukkustund, en mennirnir voru báðir á 170 km hraða þegar þeir voru mældir. Um var að ræða karlmann um tvítugt, og annan á þrítugsaldri. Þeir voru stöðvaðir til móts við Stórás í Garðabæ og fluttir á svæðisstöðina í Hafnarfirði þar sem þeir voru sviptir ökuleyfi. 26.5.2007 14:53
Kínverjar ögra stefnu um eitt barn Það færist í vöxt í Kína að almenningur komist hjá stefnu stjórnvalda um eitt barn á fjölskyldu með frjósemislyfjum. Stefna stjórnvalda er sú að kona geti aðeins fætt einu sinni. Fjölburafæðingum hefur hins vegar fjölgað mjög síðustu ár, sérstaklega þar sem aðgengi að frjósemislyfjum er auðvelt. 26.5.2007 14:25
Hvölum sprautað á haf út Líffræðingar hjá bandarísku strandgæslunni brugðu í gær á nýstárlegt ráð til að koma tveimur hnúfubökum sem villst höfðu upp í Sacramento-fljót í Kaliforníu aftur út haf. Þeir sprautuðu einfaldlega vatni á hvalina með kröftugum vatnsdælum og við þær aðfarir hröktust þeir frá bátnum og niður með ánni. 26.5.2007 13:30
Opið í Hlíðarfjalli um helgina Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri er opið um helgina. Veður er hið besta, en hiti rétt við frostmark. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar forstöðumanns eru um 100 manns í brekkunum í dag. Hann þakkar kuldakasti síðustu daga og vikna fyrir að hægt sé að hafa opið þessa helgi. 26.5.2007 13:20
Írska stjórnin líklega fallin Allt bendir til að Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, haldi embætti sínu eftir þingkosningarnar sem fram fóru í landinu í gær. Slæmu fréttirnar fyrir Ahern eru hins vegar þær að samstarfsflokkurinn í ríkisstjórninni þurrkaðist nánast út og stjórnin því að líkindum fallin. 26.5.2007 12:45
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins Einn af vorboðunum sigldi inn Reykjavíkurhöfn í morgun. Það var fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, MS Fram, sem liggur við Miðbakkann í dag. 26.5.2007 12:37
Öðrum ráðherra rænt Að minnsta kosti fimm manns hafa fallið í loftárásum Ísraelshers á Gaza-ströndina það sem af er degi. Þá var einum af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar rænt á Vesturbakkanum í morgun. 26.5.2007 12:30
Kona sem greindist með berkla á batavegi Portúgölsk kona, starfsmaður á Kárahnjúkum sem greindist nýlega með berkla og var send á Landspítala Háskólasjúkrahús til nánari rannsókna er á batavegi að sögn vakthafandi læknis á smitsjúkdómadeild. 26.5.2007 12:22
Hvetur til að hvítasunna verði þjóðahátíð Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hvetur presta til að gera messu hvítasunnunnar að þjóðahátíð kirkjunnar. Þar verði útlendingum og aðkomufólki boðið að lesa texta Postulasögunnar á sínu eigin tungumáli. 26.5.2007 12:19
Herlið sagt á leið til Kænugarðs Sáttafundur Viktors Jústjenskó, forseta Úkraínu og Viktors Janukovits forsætisráðherra Úkraínu í nótt skilaði engum árangri en áframhaldandi fundir hafa verið boðaðir í dag. Í morgun bárust fregnir af því að sá armur hersveitanna sem væri hliðhollur Jústsjenkó væri á leið til höfuðborgarinnar en á tólfta tímanum fullyrti AFP-fréttastofan að liðsflutningarnir hefðu stöðvast. 26.5.2007 12:11
Fjórir létust í árásum Ísraela á Gasa Fjórir létu lífið og tíu særðust þegar ísraelskar herþotur héldu áfram loftárásum á Gasa í morgun. Ísraelar segja árásirnar svar við ítrekuðum flugskeytaárásum yfir landamærin. Ísraelskar hersveitir réðust einnig inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. 26.5.2007 11:09
Ásókn í lóðir á Urriðaholti Tilboð bárust í allar þær fjörutíu og sjö lóðir sem opnað var fyrir í Urriðaholti í Garðabæ í gær. Tilboðum var tekið í rúmlega helming lóðanna. Í boði voru lóðir undir fjölbýli, raðhús, parhús og sérbýli. Þar á meðal voru sex óvenju stórar einbýlishúsalóðir sem standa næst Urriðavatni og er heimilt að reisa allt að 900 fermetra hús á þeim. 26.5.2007 11:03
Hjólað 10,5 hringi í kringum hnöttinn Rösklega sexþúsund og fimm hundruð manns tóku þátt í fyrirtækjaleiknum Hjólað í vinnuna og voru farnir vel yfir 400 þúsund kílómetra - sem eru um 10,4 hringir í kringum jörðina. Tæplega tveir þriðju hjóluðu og þriðjungur gekk. Sigurvegararnar fengu sigurlaunin afhent í húsdýragarðinum í gær. Öll fyrri met voru slegin að þessu sinni. 26.5.2007 10:59
Jóhanna Vala er Ungfrú Ísland 2007 Jóhanna Vala Jónsdóttir var kosin Ungfrú Ísland 2007 á Broadway í beinni útsendingu á Skjá einum í gærkvöldi. Jóhanna er tvítug og býr í Reykjavík. Í öðru sæti hafnaði Katrín Dögg Sigurðardóttir, 21 árs frá Seltjarnarnesi. Ungfrú Reykjavík Fanney Lára Guðmundsdóttir varð í þriðja sæti. Hún er tvítug og býr í Kópavogi. 26.5.2007 10:47
Skriðuföll í Kína kosta 21 lífið Að minnsta kosti 21 hefur látið lífið í miklum skriðuföllum í vestanverðu Kína undanfarinn sólarhring. Miklar rigningar hafa geisað á þessum slóðum og því hefur los komist á jarðveg og heilu fjallshlíðarnar farið af stað. Þannig létust tólf manns þegar aurskriða færði þorp í kaf í Sichuan-héraði. Þrjú þúsund húsum skolaði á brott í skriðunni. 26.5.2007 10:35
Kleppur 100 ára Í tilefni af aldarafmæli Kleppsspítala um helgina verður haldin viðamikil dagskrá á spítalanum í dag. Hún hefst klukkan ellefu með hugvekju séra Sigfinns Þorleifssonar. Að því loknu afhendir Reykjavíkurborg Kleppi listaverkið Pilt og stúlku eftir Ásmund Sveinsson. 26.5.2007 10:30
Enn ósamið í kjaradeilu SAS Ekki er útlit fyrir að verkfall flugliða hjá Svíþjóðararmi SAS-flugfélagsins leysist um hádegisbilið eins og vonast hafði verið til og því er útlit fyrir að flug þess liggi áfram niðri að minnsta kosti fram á mánudag. 26.5.2007 10:30
Bandaríkjamenn á móti tillögum gegn gróðurhúsaáhrifum Bandaríkjamenn eru sagðir leggjast algerlega gegn tillögum sem Þjóðverjar ætla að leggja fyrir fund átta helstu iðnríkja heims um aðgerðir í loftslagsmálum. Á skjali, sem leggja á fyrir fundinn í júní, en Grænfriðungar hafa komist yfir og lekið til fjölmiðla, er að finna ályktunardrög þar sem kveðið er á um að iðnríkin setji sér tímaramma til að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 26.5.2007 10:18
Ráðherra tekinn höndum Ísraelskar hersveitir réðust inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum í morgun og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem Ísraelar handtaka palestínskan ráðherra því í fyrradag var menntamálaráðherrann tekinn höndum ásamt tugum háttsettra liðsmanna Hamas. 26.5.2007 10:01
Um 200 manns á leið á Hvannadalshnjúk Árleg Hvítasunnuganga Ferðafélags Íslands á Hvannadalshnjúk stendur nú yfir. Um 200 manns eru á leið upp á þennan hæsta tind landsins í blíðskaparveðri. Ferðafélagar lögðu af stað klukkan fimm í morgun. Þeir áætla að verða níu tíma á leiðinni upp á topp og fimm tíma niður. Að sögn Vilhelms Gunnarssonar ljósmyndara er veður sérlega gott, blankandi logn, sól og hiti. 26.5.2007 09:57
Sætaskipan á ríkisstjórnarfundum ekki tilviljunum háð Á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar í dag sátu þau Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlið við hlið. Þetta mun hafa vakið þó nokkra athygli enda ekki langt síðan þau tvö börðust hart um völdin í Reykjavíkurborg. Þarna mun tilviljun ein þó ekki hafa ráðið. 25.5.2007 23:51
Kona í haldi fyrir stórfelld fjársvik Lögreglan í Reykjavík handtók í kvöld konu sem grunuð er um stórfelld fjársvik. Konan mun hafa tekið út af krítarkorti í óleyfi hátt í tvær milljónir króna. 25.5.2007 23:32
Óeirðaseggir dæmdir í Danmörku Fimm ungmenni voru í dag dæmd í fangelsi í Danmörku fyrir aðild sína að óeirðunum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þegar ungdómshúsið var rifið. Um er að ræða einn Dana, þrjá Bandaríkjamenn og Kanadamann. 25.5.2007 23:23
Tilboð í lóðir á Urriðaholti opnuð í dag Tilboð í lóðir í fyrsta áfanga uppbyggingar Urriðaholts í Garðabæ voru opnuð í dag. Alls stóðu til boða 47 lóðaeiningar fyrir 100 íbúðir og bárust tilboð í þær allar. Tilboðum var tekið í rúmlega helming lóðanna. Tilboð bárust í fimm óvenju stórar einbýlishúsalóðir en aðeins einu þeirra var tekið. 25.5.2007 23:06
Dæmd fyrir morðið á eðalbornum eiginmanni sínum Ekkja jarlsins af Shaftesbury var í dag dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að myrða hann. Líkið af jarlinum fannst í gljúfri í Ölpunum árið 2005. Eiginkonan, Jamila M’Barek var fundin sek um að leggja á ráðin um morðið en hún fékk bróður sinn til að drýgja ódæðið. 25.5.2007 22:59
Héðinn Steingrímsson stórmeistari í skák Héðinn Steingrímsson skákmaður er orðinn stórmeistari í skák. Héðinn teflir nú á Capo d’Orso mótinu og á hann eina skák eftir en á morgun mætir hann skoska stórmeistaranum Jonathan Rowson. Árangur héðins hingað til í mótinu, en hann er efstur með sjö vinninga, þýðir að skákin á morgun skiptir ekki höfuðmáli því stórmeistaranafnbótin er í höfn. 25.5.2007 21:54
Star Wars frumsýnd fyrir 30 árum 25. maí er merkisdagur í augum margra því á þessum degi fyrir sléttum 30 árum var kvikmyndin Star Wars eftir George Lucas frumsýnd. Myndin sló í gegn og hefur haft gríðarleg áhrif á kvikmyndasöguna. Menn deila svo um hvort þau áhrif hafi verið til góðs eða ills. 25.5.2007 21:28
Álverið í Helguvík: Fyrsta skóflustunga fyrir lok þessa árs Logan Kruger, forstjóri Century Aluminium álfyrirtækisins er bjartsýnn á framtíð álvers í Helguvík og segir að það verði eitt það umhverfisvænasta í heiminum. Páll Ketilsson,ritstjóri Víkurfrétta, hitti Logan að máli og lagði fyrir hann nokkrar spurningar um væntanlegt álver í Helguvík. 25.5.2007 21:00
Kristrún aðstoðar Ingibjörgu Kristrún Heimisdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra. Kristrún, sem er varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, er lögfræðingur að mennt og 35 ára gömul. 25.5.2007 20:32
Dýrkeypt verkfall hjá SAS Talið er að vinnustöðvun vegna verkfalls átta hundruð starfsmanna SAS-flugfélagsins í Svíþjóð kosti félagið jafnvirði hátt í hundrað og níutíu milljóna íslenskra króna hvern dag sem ekki er flogið. 25.5.2007 20:03
Rigning á Spáni Mörg hundruð manns hafa þurft að hverfa frá heimilum sínum á Mið-Spáni þar sem mikið hefur ringt í vikunni. Vegir hafa farið í sundur í flóðum á svæðinu og vatn flætt yfir lestarteina. 400 íbúar í bænum Alcazar de San Juan urðu að flýja en vatnshæð sumstaðar þar hefur náð einum og hálfum metra að sögn yfirvalda. 25.5.2007 19:45
Vatnsmeðferðir stundaðar í lækningaskyni fyrstu árin á Kleppi Fyrstu meðferðir fyrir geðfatlaða á Kleppi fyrir hundrað árum voru svokallaðar vatnsmeðferðir sem fólust í að setja sjúklingana í heit og köld böð í lækningaskyni. Þá voru sumir þeirra látnir lifa einungis á vatni í nokkrar vikur. Bylting varð í meðhöndlun geðfatlaðra þegar geðlyfin komu um miðja seinustu öld. 25.5.2007 19:38
Strandsiglingar hefjast Norðlendingar hafa ákveðið að hefja strandsiglingar hringinn í kringum landið. Siglt verður héðan til Danmerkur og Eystrasaltsríkjanna. Til þess hefur verið keypt rúmlega þrjú þúsund tonna fjölnota flutningaskip sem siglt verður hingað frá Lettlandi eftir helgi. 25.5.2007 19:30
Forsætisráðherra í þriðja kjörtímabil í röð Allt útlit er fyrir að Berti Ahern verði forsætisráðherra Íralands þriðja kjörtímabilið í röð. Útgönguspár og fyrstu tölur benda til þess að fylking undir forystu Fianna Fáil, flokks Aherns, hafi fengið tæp 45% atkvæða en bandalag mið og vinstri flokka tæp 37%. Kosið var í gær. Ekki er búist við lokatölum fyrr en í byrjun næstu viku. 25.5.2007 19:15
Samverustundir foreldra og ungmenna besta vímuefnaforvörnin Vímuefnaneysla ungmenna í Reykjavík hefur dregist saman síðasta áratug og er nú minni en í mörgum borgum Evrópu, sem sækjast nú eftir því að kynnast íslenskum forvarnaraðferðum. Samverustundir ungmenna og foreldra, eftirlit með samkvæmum og skipulagt tómstundastarf eru lykillinn að velgengni Íslendinga í forvarnarmálum. 25.5.2007 19:13
Framboð á leiguhúsnæði eykst með tilkomu Keilis Í hálffimmfréttum Kaupþings er greint frá því að útlit sé fyrir að framboð á húsnæði til leigu muni aukast að einhverju marki á suðvesturhorninu með tilkomu Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. „Alls er um 2.200 íbúðir að ræða sem jafngildir tæplega heils árs framboði á íbúðum á Reykjavíkursvæðinu,“ segir Kaupþing. 25.5.2007 19:05
Valgerður í varaformanns- embættið Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, sækist eftir embætti varaformanns Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi í næsta mánuði. Hvorki Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, eða Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, sækjast eftir embættinu. Valgerður segir Framsóknarflokkinn verða málefnalegan í stjórnarandstöðu sinni. 25.5.2007 19:00
Ríkisstjórn ræðir málefni Flateyrar Sjávarútvegsráðherra viðurkennir að vandi Flateyrar sé endurspeglun á hlið kvótakerfisins sem mönnum hafi verið ljós. Þess vegna hafi verið gripið til mótaðgerða innan kerfisins. Ríkisstjórnin ræddi vanda Flateyrar en þar sé ljóst að mótaðgerðirnar hafa ekki dugað til. Yfirlýst lokun útgerðar og vinnslu á staðnum er plássinu gífurlegt áfall. 25.5.2007 18:58
Óhugnanlegt myndband fer um netið Myndband sem vakið hefur óhug fólks gengur nú manna á milli á netinu. Óljóst er hvort myndbandið er leikið eða ekki en það sýnir karlmann nauðga konu. Myndbönd af þessu tagi hvetja menn ekki til ofbeldisverka segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur. 25.5.2007 18:57
Ríkisstjórn ræðir aðgerðir í þágu barna og eldri borgara Ríkisstjórnin ákvað í morgun að leggja fyrir þing aðgeðraráætlun í málefnum barna í næstu viku, í samræmi við stefnuskrá nýrrar stjórnar. Einnig voru rædd í stjórninni aðgerðir í málefnum aldraðra og breytingar á stórnarráðinu vegna tilflutnings verkefna. 25.5.2007 18:50
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent