Fleiri fréttir Bush í Þýskalandi George Bush, Bandaríkjaforseti, hóf í gærkvöldi opinbera heimsókn sína til Þýskalands. Bush kom til Rostock í Þýskalandi í gær en ætlar að stoppa stutt í Þýskalandi því hann heldur þaðan aftur á morgun. 13.7.2006 08:47 Leynilegur baráttufundur starfsmanna IGS Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust laust fyrir klukkan átta í gærkvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 13.7.2006 08:40 Magni áfram í Rockstar Magni Ásgeirsson söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, komst áfram í söngvarakeppninni Rockstar: Supernova , á CBS sjónvarpsstöðinni. 13.7.2006 08:35 Með kíló af kókaíni í skónum Íslenskt par um tvítugt var stöðvað af tollvörðum í Leifsstöð á fimmtudag með kíló af kókaíni falið í skóm sínum. Fólkið, sem er 23 og 24 ára, var að koma frá Frankfurt í Þýskalandi og hafði búið skófatnað sinn þannig að í hvern skó var hægt að koma 250 grömmum af kókaíni auðveldlega fyrir. 13.7.2006 08:00 Lyf hækka um tugi milljóna Lyfjakostnaður Landspítalans hækkar um sextíu til sjötíu milljónir, einungis vegna gengisbreytinga á þessu ári, ef reiknað er með að gengi helstu gjaldmiðla haldist óbreytt út árið. Þetta er mat Valgerðar Bjarnadóttur, sviðsstjóra innkaupa- og vörustjórnunarsviðs Landspítalans. 13.7.2006 07:45 Sakaður um kynferðislega áreitni Orðrómur um meinta kynferðislega áreitni forseta Ísraels, Moshe Katsav, tröllríður öllum fjölmiðlum í Ísrael og gæti tímasetningin varla verið verri fyrir Ísraela, sem sæta nú miklum alþjóðlegum ádeilum vegna innrása á Gaza-strönd og í Líbanon. 13.7.2006 07:30 Eðlilegt að kanna umhverfið „Okkur þykir Lífeyrissjóður verslunarmanna oft á tíðum hafa beitt sér með sérkennilegum hætti gegn þessum félögum,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group. Hann segir að Baugur og FL Group séu nú að kanna umhverfið og skoða þá möguleika sem séu fyrir hendi. 13.7.2006 07:30 Segir stúdentsprófið ekki ávísun á háskólavist Rektor Háskólans á Akureyri segir að gangi tillögur nefndar um eflingu starfsnáms eftir gæti farið svo að fólk með stúdentspróf eigi ekki lengur vísan aðgang að háskólanámi. Flestir eru þó sáttir við tillögurnar. 13.7.2006 07:30 Eldar í Kaliforníu Reykjarmökkur svífur nú yfir Yucca dal, í Kaliforníu, þar sem eldar geysa á stóru svæði. 13.7.2006 07:20 Þýsk kona komin í leitirnar Þýsk kona, sem var í hópi ferðamanna við Dettifoss í gærmorgun, varð viðskila við hópinn og villtist. 13.7.2006 07:19 Loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút Ísraelsher gerði loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút í Líbanon í morgun, og þurfti að loka flugvellinum vegna þessa. 13.7.2006 07:16 Ísraelsher ræðst inn í Suður-Líbanon Viðbrögð Ísraelshers við handtöku Líbana á tveimur ísraelskum hermönnum hafa vakið mikil mótmæli um allan heim. Forsætisráðherra Ísraels segir viðbrögð landa sinna verði "öguð en afar, afar sársaukafull". 13.7.2006 07:15 Laun hækka umtalsvert Mikil gleði var í Rúgbrauðsgerðinni í gærmorgun þegar skrifað var undir nýjan samning um kjör starfsmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra. Var feginleikinn svo mikill að slegið var upp í heljarinnar hópknús á meðan blekið þornaði. 13.7.2006 07:15 Of snemmt að fagna sigri Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá því í júní, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þessi hækkun er undir væntingum greiningaraðila, sem höfðu spáð 0,55 til 0,7 prósenta hækkun. 13.7.2006 07:15 Verðbætur á ellefta milljarð Talið er líklegt að hagnaður viðskiptabankanna þriggja af verðbótum hafi numið um 10,5 - 10,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Verðbólga mældist um 3,8 prósent á tímabilinu og hafði mikil áhrif á afkomu bankanna sem eiga yfir 350 milljarða í verðtryggðum eignum að frádregnum skuldum. 13.7.2006 07:15 Rifa kom á Norrænu Rifa kom á birðing ferjunnar Norrænu, þega hún var að láta úr höfn í Þórshöfn í Færeyjum í gærkvöldi, áleliðis til Íslands, en rakst utan í bryggjukant. 13.7.2006 07:14 Þjóðarhreinsun í uppsiglingu Við mótmælum framferði Ísraelshers sem bitnar á hinum almenna íbúa, körlum, konum og ekki síst börnunum, sem reyna alltént að vera úti við leik, að minnsta kosti á meðan sprengjunum rignir ekki, segir Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, sem heldur mótmælafund á Austurvelli klukkan 17.30 í dag. 13.7.2006 07:00 Enginn hefur lýst yfir ábyrgð Sérfræðingar leituðu í gær að vísbendingum í rústum lestarvagna sem sprungu í loft upp í átta sprengjum á háannatíma í Mumbai (Bombay) á Indlandi á þriðjudag. Svo virðist sem sprengjunum hafi verið komið fyrir á farangursgrindum í lestunum, en þær urðu yfir 200 manns að bana og særðu fleiri en 700. 13.7.2006 07:00 Á heimaslóðir kanslarans George W. Bush Bandaríkjaforseti kom í gær til Þýskalands í boði Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Bush verður í Þýskalandi þangað til á morgun, en þá heldur hann til Rússlands á leiðtogafund G8. Í Þýskalandi fer Bush á heimaslóðir Merkel við strönd Eystrasalts, þar sem áður var Austur-Þýskaland. 13.7.2006 07:00 Íbúarnir taki upp hanskann Borgarstjórn Reykjavíkur hefur efnt til átaks til hreinsunar borgarinnar og stendur það í sumar og næstu tvö sumur. Var átakið kynnt á fundi með íbúum í Breiðholti í gærkvöldi en fer formlega af stað með hreinsunardegi í Breiðholti laugardaginn 22. júlí. 13.7.2006 07:00 Sagðist nota etanól í bakstra við bakverk Efnafræðingur, sem vitnaði í máli tveggja Litháa sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sagði fyrir dómi að hann hefði aldrei séð amfetamín í fljótandi formi áður. Það var flutt inn í hvítvínsflöskum og líklega ekki í fyrsta sinn. 13.7.2006 07:00 Ráðgjafi Blairs handtekinn Helsti fjáröflunarmaður breska Verkamannaflokksins, Levy lávarður, var í gær handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á ásökunum um að Tony Blair forsætisráðherra hafi með óeðlilegum hætti séð til þess að auðkýfingar, sem styrktu flokkinn, fengju sæti í lávarðadeild þingsins. 13.7.2006 06:45 Einn þungt haldinn á gjörgæsludeild Tugir manna slösuðust í sjötta nautahlaupinu af átta á San Fermin-hátíðinni í Pamplona á Spáni í gær. Þó ráku vel hyrnd nautin engan í gegn og eingöngu einn maður slasaðist illa þegar nautin tröðkuðu á honum. Hann var lagður inn á sjúkrahús með nokkuð alvarlega bak- og höfuðáverka, en var þó ekki í lífshættu.Hlaupið stóð í tvær og hálfa mínútu. 13.7.2006 06:45 Fundu rústir klaustursins Lengi var vitað af stóru klaustri á Austurlandi en rústir þess fundust ekki fyrr en árið 2002. Uppgröftur stendur enn yfir og hefur helmingur rústanna nú verið afhjúpaður, eða um sex hundruð fermetrar. 13.7.2006 06:45 Kosning í stjórn talin ólíkleg Líklegast er að sjálfkjörið verði í stjórn Straums-Burðaráss á hluthafafundi 19. júlí. Framboðsfrestur rennur út klukkan tvö í dag. 13.7.2006 06:30 Tók á móti skútukörlum 13.7.2006 06:30 Segja bið eftir lækni of langa Í könnun sem gerð var meðal fanga á Litla-Hrauni kemur fram að meirihluti þeirra er óánægður með lækna- og tannlæknaþjónustu fangelsisins og allmargir með sálfræðiþjónustuna. Þetta kemur fram í Tímamótum, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. Þar kemur einnig fram að bið eftir viðtali hjá lækni á Litla-Hrauni getur verið nokkrir dagar. 13.7.2006 06:15 Ráðherrar votta samúð Forsætis- og utanríkisráðuneyti Íslands hafa sent indverskum stjórnvöldum samúðarkveðjur vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í fyrradag. 13.7.2006 06:15 Valgerður og Geir votta Indverjum samúð Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa sent starfsbræðrum sínum í Indlandi samúðarskeyti vegna sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbei á Indlandi. Valgerður ítrekaði ennfremur stuðning íslenskra stjórnvalda við baráttuna gegn alþjóðlegum hryðjuverkum. 12.7.2006 23:06 Fjárfestingar Íslendinga erlendis litlu minni en Dana Fjárfestingar Íslendinga erlendis var litlu minni en fjárfestingar nágranna okkar Dana í fyrra þrátt fyrir að hagkerfi þeirra sé um það bil fimmtán sinnum stærra. Alls námu fjárfestingar Íslendinga erlendis 439 milljörðum króna á síðasta ári og hafa þær aldrei verið meiri. Þetta um tvöföld upphæð fjárfestinga frá árinu áður og fimmtánföld upphæð ársins 2003. Auk þess má rifja upp á Ísland var í 16. sæti af aðlidarríkjum efnahags- og framfarastofunnarinnar, OECD þegar kom að beinum fjárfestingum. Sem dæmi um hve mikil þessi umsvif þessi voru má nefna að beinar fjárfestingar Íslendinga erlendis voru meiri en Norðmanna og Finna. Það segja Glitnismenn í raun ótrúlegt þegar litið er til þess að Ísland er lang fámennast þessara ríkja. Þessar miklu beinu fjárfestingar erlendis skýrast mest af sókn íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendum mörkuðum svo sem kaup Actavis á Amide og Alpharma, Kaupþings á Singer og Fridlander og Bakkavarar á Geest. Það er því von að margir spyrji sig að því hvaðan allir þessir peningar koma. Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur frá greiningardeild Glitnis segir skýringuna vera aukin erlend lán Íslendinga. Skuldasöfnunin komi svo fram í því að reynt hafi á lánshæfni íslenskra kaupahéðna og því hafi þessi þróun dregist saman. Í mars á þessu ári dró Den Danske Bank upp mjög dökka mynd af íslensku efnahagslífi. Þeirri gagnrýni vísuðu Glitsmenn þó mikið til á bug og lögðu ríka áherslu á að þó spáð væri samdrætti væri ekkert sem benti til kreppu. 12.7.2006 22:51 ESB reynir að lækka farsímagjöld Evrópusambandið hefur kynnt áætlun sem miðar að því að lækka reikigjöld fyrir notkun farsíma erlendis um allt að 70%. Tekjur farsímafyrirtækja af reikigjöldum eru oft um 10-15% af heildartekjum fyrirtækjanna. 12.7.2006 22:41 Fullur unglingur stal olíubíl Sautján ára drengur var sviptur ökuleyfi í átta mánuði og dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa stolið olíuflutningabifreið af bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu við Kópavogsbraut. Bifreiðin var tengd við aftanívagn sem innihélt um þrjátíu þúsund lítra af bensíni. Drengurinn var undir áhrifum áfengis. Dómarinn taldi rétt að fresta fullnustu refsingarinnar haldi drengurinn skilorð næstu tvö árin. 12.7.2006 22:34 Rekin fyrir að reykja í laumi Afgreiðslustúlka á veitingastað í Reykjavík var sagt upp störfum þegar upp komst um laumureykingar hennar og ítrekað hnupl með falinni myndavél inn á staðnum. Persónuvernd segir að um ólögmæta vöktun hafi verið um að ræða. 12.7.2006 22:29 Starfsmenn á baráttufundi Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust nú laust fyrir klukkan átta í kvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 12.7.2006 22:27 Microsoft sektað Evrópusambandið hefur sektað bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft um 280 milljónir evra, jafnvirði 26 milljarða íslenskra króna. 12.7.2006 21:00 Göngugarpur setur met Göngugarpurinn Jón Eggert Guðmundsson er nú í Barðastrandarsýslu í göngu sinni eftir strandvegum Íslands. Hann hefur þegar náð þeim áfanga að verða sá Íslendingur sem lengst hefur gengið á vegum umhverfis Ísland. 12.7.2006 20:57 Matarkostnaður gæti lækkað um 50 þúsund á ári Allt stefnir í að matvælanefnd forsætisráðuneytisins sem átti að leggja til leiðir til að lækka matarverð á Íslandi, ljúki störfum í þessari viku án þess að skila sameiginlegri niðurstöðu um innflutningstolla á matvælum. 12.7.2006 20:55 Síðasta geimgangan Tveir geimfarar úr áhöfn geimferjunnar Discovery brugðu sér í dag í síðustu geimgöngu yfirstandandi leiðangurs. 12.7.2006 20:00 Ópólitískur upplýsingafulltrúi Guðmundur Hörður Guðmundsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins. Guðmundur hefur starfað í fréttamennsku, bæði á Rúv og Fréttablaðinu auk þess sem hann hefur numið umhverfisfræði í Edinborgarháskóla. Guðmundur Hörður var fyrir nokkrum árum áberandi í starfi ungs Samfylkingarfólks og sat í nefndum fyrir flokkinn en segist nú hafa sagt skilið við pólitíkina. 12.7.2006 19:59 Enn ekki sátt um mexíkósku forsetakosningarnar Mexíkóski forsetaframbjóðandinn Lopez Obrador, sem beið lægri hlut fyrir Felipe Calderon með aðeins ríflega hálfs prósents mun 2. júlí síðastliðinn, segist nú hafa óhrekjanlegar sannanir á myndbandi fyrir kosningasvindli. Hann hefur nú lagt fram 900 blaðsíðna kæru þar sem ýmislegt ólöglegt athæfi í kosningabaráttunni og á kjördag er tíundað. 12.7.2006 19:20 Indverjar reiðir Pakistönum Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum í Mumbai á Indlandi í gær, sem kostuðu 183 mannslíf. Samskipti Indverja og Pakistana hafa kólnað vegna ódæðanna. 12.7.2006 19:15 Ófriðarskýin hlaðast upp Forsætisráðherra Ísraels segir að Líbanar hafi kastað stríðshanskanum í morgun þegar skæruliðar Hizbollah-samtakanna tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fordæmdi gíslatökuna harðlega í yfirlýsingu sinni í dag. 12.7.2006 18:45 Biðst afsökunar á framkomu sinni í úrslitaleiknum Franski knattspyrnumaðurinn Zinedine Zidane hefur beðist afsökunar á framferði sínu í úrslitaleiknum á HM um síðustu helgi þegar hann skallaði ítalska varnarmanninn Marco Materazzi og var sendur af velli í sínum síðasta leik. Hann segir Materazzi hafa látið mjög ljót orð falla um fjölskyldu sína. Nánar má lesa um málið á íþróttasíðu Vísis. 12.7.2006 18:31 Amfetamín í hvítvínsflöskum Það er jafn auðvelt að búa til hreint amfetamín úr amfetamínvökva og að baka köku. Þetta kom fram í vitnisburði sérfræðings í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, við aðalmeðferð í máli tveggja Litháa sem grunaðir eru um stórfellt fíkniefnasmygl til landsins. 12.7.2006 18:06 Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi opnaður á ný Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi hefur verið opnaður aftur eftir umferðaróhapp sem varð fyrr í dag og hindraði umferð. 12.7.2006 17:52 Sjá næstu 50 fréttir
Bush í Þýskalandi George Bush, Bandaríkjaforseti, hóf í gærkvöldi opinbera heimsókn sína til Þýskalands. Bush kom til Rostock í Þýskalandi í gær en ætlar að stoppa stutt í Þýskalandi því hann heldur þaðan aftur á morgun. 13.7.2006 08:47
Leynilegur baráttufundur starfsmanna IGS Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust laust fyrir klukkan átta í gærkvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 13.7.2006 08:40
Magni áfram í Rockstar Magni Ásgeirsson söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, komst áfram í söngvarakeppninni Rockstar: Supernova , á CBS sjónvarpsstöðinni. 13.7.2006 08:35
Með kíló af kókaíni í skónum Íslenskt par um tvítugt var stöðvað af tollvörðum í Leifsstöð á fimmtudag með kíló af kókaíni falið í skóm sínum. Fólkið, sem er 23 og 24 ára, var að koma frá Frankfurt í Þýskalandi og hafði búið skófatnað sinn þannig að í hvern skó var hægt að koma 250 grömmum af kókaíni auðveldlega fyrir. 13.7.2006 08:00
Lyf hækka um tugi milljóna Lyfjakostnaður Landspítalans hækkar um sextíu til sjötíu milljónir, einungis vegna gengisbreytinga á þessu ári, ef reiknað er með að gengi helstu gjaldmiðla haldist óbreytt út árið. Þetta er mat Valgerðar Bjarnadóttur, sviðsstjóra innkaupa- og vörustjórnunarsviðs Landspítalans. 13.7.2006 07:45
Sakaður um kynferðislega áreitni Orðrómur um meinta kynferðislega áreitni forseta Ísraels, Moshe Katsav, tröllríður öllum fjölmiðlum í Ísrael og gæti tímasetningin varla verið verri fyrir Ísraela, sem sæta nú miklum alþjóðlegum ádeilum vegna innrása á Gaza-strönd og í Líbanon. 13.7.2006 07:30
Eðlilegt að kanna umhverfið „Okkur þykir Lífeyrissjóður verslunarmanna oft á tíðum hafa beitt sér með sérkennilegum hætti gegn þessum félögum,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group. Hann segir að Baugur og FL Group séu nú að kanna umhverfið og skoða þá möguleika sem séu fyrir hendi. 13.7.2006 07:30
Segir stúdentsprófið ekki ávísun á háskólavist Rektor Háskólans á Akureyri segir að gangi tillögur nefndar um eflingu starfsnáms eftir gæti farið svo að fólk með stúdentspróf eigi ekki lengur vísan aðgang að háskólanámi. Flestir eru þó sáttir við tillögurnar. 13.7.2006 07:30
Eldar í Kaliforníu Reykjarmökkur svífur nú yfir Yucca dal, í Kaliforníu, þar sem eldar geysa á stóru svæði. 13.7.2006 07:20
Þýsk kona komin í leitirnar Þýsk kona, sem var í hópi ferðamanna við Dettifoss í gærmorgun, varð viðskila við hópinn og villtist. 13.7.2006 07:19
Loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút Ísraelsher gerði loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút í Líbanon í morgun, og þurfti að loka flugvellinum vegna þessa. 13.7.2006 07:16
Ísraelsher ræðst inn í Suður-Líbanon Viðbrögð Ísraelshers við handtöku Líbana á tveimur ísraelskum hermönnum hafa vakið mikil mótmæli um allan heim. Forsætisráðherra Ísraels segir viðbrögð landa sinna verði "öguð en afar, afar sársaukafull". 13.7.2006 07:15
Laun hækka umtalsvert Mikil gleði var í Rúgbrauðsgerðinni í gærmorgun þegar skrifað var undir nýjan samning um kjör starfsmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra. Var feginleikinn svo mikill að slegið var upp í heljarinnar hópknús á meðan blekið þornaði. 13.7.2006 07:15
Of snemmt að fagna sigri Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá því í júní, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þessi hækkun er undir væntingum greiningaraðila, sem höfðu spáð 0,55 til 0,7 prósenta hækkun. 13.7.2006 07:15
Verðbætur á ellefta milljarð Talið er líklegt að hagnaður viðskiptabankanna þriggja af verðbótum hafi numið um 10,5 - 10,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Verðbólga mældist um 3,8 prósent á tímabilinu og hafði mikil áhrif á afkomu bankanna sem eiga yfir 350 milljarða í verðtryggðum eignum að frádregnum skuldum. 13.7.2006 07:15
Rifa kom á Norrænu Rifa kom á birðing ferjunnar Norrænu, þega hún var að láta úr höfn í Þórshöfn í Færeyjum í gærkvöldi, áleliðis til Íslands, en rakst utan í bryggjukant. 13.7.2006 07:14
Þjóðarhreinsun í uppsiglingu Við mótmælum framferði Ísraelshers sem bitnar á hinum almenna íbúa, körlum, konum og ekki síst börnunum, sem reyna alltént að vera úti við leik, að minnsta kosti á meðan sprengjunum rignir ekki, segir Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, sem heldur mótmælafund á Austurvelli klukkan 17.30 í dag. 13.7.2006 07:00
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð Sérfræðingar leituðu í gær að vísbendingum í rústum lestarvagna sem sprungu í loft upp í átta sprengjum á háannatíma í Mumbai (Bombay) á Indlandi á þriðjudag. Svo virðist sem sprengjunum hafi verið komið fyrir á farangursgrindum í lestunum, en þær urðu yfir 200 manns að bana og særðu fleiri en 700. 13.7.2006 07:00
Á heimaslóðir kanslarans George W. Bush Bandaríkjaforseti kom í gær til Þýskalands í boði Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Bush verður í Þýskalandi þangað til á morgun, en þá heldur hann til Rússlands á leiðtogafund G8. Í Þýskalandi fer Bush á heimaslóðir Merkel við strönd Eystrasalts, þar sem áður var Austur-Þýskaland. 13.7.2006 07:00
Íbúarnir taki upp hanskann Borgarstjórn Reykjavíkur hefur efnt til átaks til hreinsunar borgarinnar og stendur það í sumar og næstu tvö sumur. Var átakið kynnt á fundi með íbúum í Breiðholti í gærkvöldi en fer formlega af stað með hreinsunardegi í Breiðholti laugardaginn 22. júlí. 13.7.2006 07:00
Sagðist nota etanól í bakstra við bakverk Efnafræðingur, sem vitnaði í máli tveggja Litháa sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sagði fyrir dómi að hann hefði aldrei séð amfetamín í fljótandi formi áður. Það var flutt inn í hvítvínsflöskum og líklega ekki í fyrsta sinn. 13.7.2006 07:00
Ráðgjafi Blairs handtekinn Helsti fjáröflunarmaður breska Verkamannaflokksins, Levy lávarður, var í gær handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á ásökunum um að Tony Blair forsætisráðherra hafi með óeðlilegum hætti séð til þess að auðkýfingar, sem styrktu flokkinn, fengju sæti í lávarðadeild þingsins. 13.7.2006 06:45
Einn þungt haldinn á gjörgæsludeild Tugir manna slösuðust í sjötta nautahlaupinu af átta á San Fermin-hátíðinni í Pamplona á Spáni í gær. Þó ráku vel hyrnd nautin engan í gegn og eingöngu einn maður slasaðist illa þegar nautin tröðkuðu á honum. Hann var lagður inn á sjúkrahús með nokkuð alvarlega bak- og höfuðáverka, en var þó ekki í lífshættu.Hlaupið stóð í tvær og hálfa mínútu. 13.7.2006 06:45
Fundu rústir klaustursins Lengi var vitað af stóru klaustri á Austurlandi en rústir þess fundust ekki fyrr en árið 2002. Uppgröftur stendur enn yfir og hefur helmingur rústanna nú verið afhjúpaður, eða um sex hundruð fermetrar. 13.7.2006 06:45
Kosning í stjórn talin ólíkleg Líklegast er að sjálfkjörið verði í stjórn Straums-Burðaráss á hluthafafundi 19. júlí. Framboðsfrestur rennur út klukkan tvö í dag. 13.7.2006 06:30
Segja bið eftir lækni of langa Í könnun sem gerð var meðal fanga á Litla-Hrauni kemur fram að meirihluti þeirra er óánægður með lækna- og tannlæknaþjónustu fangelsisins og allmargir með sálfræðiþjónustuna. Þetta kemur fram í Tímamótum, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. Þar kemur einnig fram að bið eftir viðtali hjá lækni á Litla-Hrauni getur verið nokkrir dagar. 13.7.2006 06:15
Ráðherrar votta samúð Forsætis- og utanríkisráðuneyti Íslands hafa sent indverskum stjórnvöldum samúðarkveðjur vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í fyrradag. 13.7.2006 06:15
Valgerður og Geir votta Indverjum samúð Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa sent starfsbræðrum sínum í Indlandi samúðarskeyti vegna sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbei á Indlandi. Valgerður ítrekaði ennfremur stuðning íslenskra stjórnvalda við baráttuna gegn alþjóðlegum hryðjuverkum. 12.7.2006 23:06
Fjárfestingar Íslendinga erlendis litlu minni en Dana Fjárfestingar Íslendinga erlendis var litlu minni en fjárfestingar nágranna okkar Dana í fyrra þrátt fyrir að hagkerfi þeirra sé um það bil fimmtán sinnum stærra. Alls námu fjárfestingar Íslendinga erlendis 439 milljörðum króna á síðasta ári og hafa þær aldrei verið meiri. Þetta um tvöföld upphæð fjárfestinga frá árinu áður og fimmtánföld upphæð ársins 2003. Auk þess má rifja upp á Ísland var í 16. sæti af aðlidarríkjum efnahags- og framfarastofunnarinnar, OECD þegar kom að beinum fjárfestingum. Sem dæmi um hve mikil þessi umsvif þessi voru má nefna að beinar fjárfestingar Íslendinga erlendis voru meiri en Norðmanna og Finna. Það segja Glitnismenn í raun ótrúlegt þegar litið er til þess að Ísland er lang fámennast þessara ríkja. Þessar miklu beinu fjárfestingar erlendis skýrast mest af sókn íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendum mörkuðum svo sem kaup Actavis á Amide og Alpharma, Kaupþings á Singer og Fridlander og Bakkavarar á Geest. Það er því von að margir spyrji sig að því hvaðan allir þessir peningar koma. Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur frá greiningardeild Glitnis segir skýringuna vera aukin erlend lán Íslendinga. Skuldasöfnunin komi svo fram í því að reynt hafi á lánshæfni íslenskra kaupahéðna og því hafi þessi þróun dregist saman. Í mars á þessu ári dró Den Danske Bank upp mjög dökka mynd af íslensku efnahagslífi. Þeirri gagnrýni vísuðu Glitsmenn þó mikið til á bug og lögðu ríka áherslu á að þó spáð væri samdrætti væri ekkert sem benti til kreppu. 12.7.2006 22:51
ESB reynir að lækka farsímagjöld Evrópusambandið hefur kynnt áætlun sem miðar að því að lækka reikigjöld fyrir notkun farsíma erlendis um allt að 70%. Tekjur farsímafyrirtækja af reikigjöldum eru oft um 10-15% af heildartekjum fyrirtækjanna. 12.7.2006 22:41
Fullur unglingur stal olíubíl Sautján ára drengur var sviptur ökuleyfi í átta mánuði og dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa stolið olíuflutningabifreið af bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu við Kópavogsbraut. Bifreiðin var tengd við aftanívagn sem innihélt um þrjátíu þúsund lítra af bensíni. Drengurinn var undir áhrifum áfengis. Dómarinn taldi rétt að fresta fullnustu refsingarinnar haldi drengurinn skilorð næstu tvö árin. 12.7.2006 22:34
Rekin fyrir að reykja í laumi Afgreiðslustúlka á veitingastað í Reykjavík var sagt upp störfum þegar upp komst um laumureykingar hennar og ítrekað hnupl með falinni myndavél inn á staðnum. Persónuvernd segir að um ólögmæta vöktun hafi verið um að ræða. 12.7.2006 22:29
Starfsmenn á baráttufundi Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust nú laust fyrir klukkan átta í kvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 12.7.2006 22:27
Microsoft sektað Evrópusambandið hefur sektað bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft um 280 milljónir evra, jafnvirði 26 milljarða íslenskra króna. 12.7.2006 21:00
Göngugarpur setur met Göngugarpurinn Jón Eggert Guðmundsson er nú í Barðastrandarsýslu í göngu sinni eftir strandvegum Íslands. Hann hefur þegar náð þeim áfanga að verða sá Íslendingur sem lengst hefur gengið á vegum umhverfis Ísland. 12.7.2006 20:57
Matarkostnaður gæti lækkað um 50 þúsund á ári Allt stefnir í að matvælanefnd forsætisráðuneytisins sem átti að leggja til leiðir til að lækka matarverð á Íslandi, ljúki störfum í þessari viku án þess að skila sameiginlegri niðurstöðu um innflutningstolla á matvælum. 12.7.2006 20:55
Síðasta geimgangan Tveir geimfarar úr áhöfn geimferjunnar Discovery brugðu sér í dag í síðustu geimgöngu yfirstandandi leiðangurs. 12.7.2006 20:00
Ópólitískur upplýsingafulltrúi Guðmundur Hörður Guðmundsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins. Guðmundur hefur starfað í fréttamennsku, bæði á Rúv og Fréttablaðinu auk þess sem hann hefur numið umhverfisfræði í Edinborgarháskóla. Guðmundur Hörður var fyrir nokkrum árum áberandi í starfi ungs Samfylkingarfólks og sat í nefndum fyrir flokkinn en segist nú hafa sagt skilið við pólitíkina. 12.7.2006 19:59
Enn ekki sátt um mexíkósku forsetakosningarnar Mexíkóski forsetaframbjóðandinn Lopez Obrador, sem beið lægri hlut fyrir Felipe Calderon með aðeins ríflega hálfs prósents mun 2. júlí síðastliðinn, segist nú hafa óhrekjanlegar sannanir á myndbandi fyrir kosningasvindli. Hann hefur nú lagt fram 900 blaðsíðna kæru þar sem ýmislegt ólöglegt athæfi í kosningabaráttunni og á kjördag er tíundað. 12.7.2006 19:20
Indverjar reiðir Pakistönum Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum í Mumbai á Indlandi í gær, sem kostuðu 183 mannslíf. Samskipti Indverja og Pakistana hafa kólnað vegna ódæðanna. 12.7.2006 19:15
Ófriðarskýin hlaðast upp Forsætisráðherra Ísraels segir að Líbanar hafi kastað stríðshanskanum í morgun þegar skæruliðar Hizbollah-samtakanna tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fordæmdi gíslatökuna harðlega í yfirlýsingu sinni í dag. 12.7.2006 18:45
Biðst afsökunar á framkomu sinni í úrslitaleiknum Franski knattspyrnumaðurinn Zinedine Zidane hefur beðist afsökunar á framferði sínu í úrslitaleiknum á HM um síðustu helgi þegar hann skallaði ítalska varnarmanninn Marco Materazzi og var sendur af velli í sínum síðasta leik. Hann segir Materazzi hafa látið mjög ljót orð falla um fjölskyldu sína. Nánar má lesa um málið á íþróttasíðu Vísis. 12.7.2006 18:31
Amfetamín í hvítvínsflöskum Það er jafn auðvelt að búa til hreint amfetamín úr amfetamínvökva og að baka köku. Þetta kom fram í vitnisburði sérfræðings í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, við aðalmeðferð í máli tveggja Litháa sem grunaðir eru um stórfellt fíkniefnasmygl til landsins. 12.7.2006 18:06
Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi opnaður á ný Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi hefur verið opnaður aftur eftir umferðaróhapp sem varð fyrr í dag og hindraði umferð. 12.7.2006 17:52