Fleiri fréttir Airwaves meets Distortion 1.6.2006 15:47 Ein milljón til neyðaraðstoðar á Jövu Hjálparstofnun kirkjunnar hefur sent eina milljón króna til neyðaraðstoðar á Jövu. Nú er ljóst að rúmlega sex þúsund og tvö hundruð manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir indónesísku eyjuna Jövu á laugardaginn. 1.6.2006 15:43 Vilja fresta uppbyggingu hátæknisjúkrahús Samtök atvinnulífsins vilja að uppbyggingu hátæknisjúkrahús Landspítala-háskólasjúkrahús verði frestað. Þau vilja að þess í stað einbeiti heilbrigðisyfirvöld sér að því að bæta þjónustu á sviðum eins og í öldrunarmálum. 1.6.2006 15:12 Death Threat Investigated? 1.6.2006 14:50 Einn látinn og sjö saknað eftir skipaárekstur á Eyjahafi Vöruflutningaskip frá Tyrklandi og grískt olíuflutningaskip rákust saman á Eyjahafi, skammt frá grísku eyjunni Hydra, upp úr hádegi í dag með þeim afleiðingum að vöruflutningaskipið sökk. Þrettán voru í áhöfn þess; eitt lík fannst fljótlega eftir að skipið sökk, sjö mönnum hefur þegar verið bjargað en fimm úr áhöfninni er enn leitað. 1.6.2006 14:37 14 slösuðust í gassprengingu 14 slösuðust þegar gassprenging varð í kjallara 5 hæða húss í íbúðahverfi Istanbúl í Tyrklandi í morgun. 1.6.2006 14:15 Forsætisráðherra Íraks ætlar að höggva á hnútinn Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, ætlar að útnefna menn í embætti innanríkis- og varnarmálaráðherra landsins þegar þing kemur saman til fundar á sunnudaginn. Illa hefur gengið að skipa í embættin í þjóðstjórn landsins þar sem sjíar, súnníar og kúrdar hafa deilt um ráðherrastólana. 1.6.2006 14:00 10, 50 og 100 krónu seðlar innkallaðir Seðlabanki Íslands er nú að innkalla 10, 50 og 100 krónu seðla en um tvær og hálf milljón slíkra seðla er enn í umferð eða sem nemur um 119 milljónum króna. Þrátt fyrir að fyrir flestum séu 10, 50 og 100 krónu seðlar eitthvað sem heyrir sögunni til eru seðlarnir enn lögeyrir. 1.6.2006 13:47 6200 fórust í jarðskjálftanum á Jövu Nú er ljóst að rúmlega 6200 manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir indónesísku eyjuna Jövu á laugardaginn. Sameinuðu þjóðirnar segja neyðargögn hafa borist á flesta þá staði þar sem aðstoðar er þörf. 1.6.2006 13:45 A battle of loud noises 1.6.2006 13:31
Sjá næstu 50 fréttir
Ein milljón til neyðaraðstoðar á Jövu Hjálparstofnun kirkjunnar hefur sent eina milljón króna til neyðaraðstoðar á Jövu. Nú er ljóst að rúmlega sex þúsund og tvö hundruð manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir indónesísku eyjuna Jövu á laugardaginn. 1.6.2006 15:43
Vilja fresta uppbyggingu hátæknisjúkrahús Samtök atvinnulífsins vilja að uppbyggingu hátæknisjúkrahús Landspítala-háskólasjúkrahús verði frestað. Þau vilja að þess í stað einbeiti heilbrigðisyfirvöld sér að því að bæta þjónustu á sviðum eins og í öldrunarmálum. 1.6.2006 15:12
Einn látinn og sjö saknað eftir skipaárekstur á Eyjahafi Vöruflutningaskip frá Tyrklandi og grískt olíuflutningaskip rákust saman á Eyjahafi, skammt frá grísku eyjunni Hydra, upp úr hádegi í dag með þeim afleiðingum að vöruflutningaskipið sökk. Þrettán voru í áhöfn þess; eitt lík fannst fljótlega eftir að skipið sökk, sjö mönnum hefur þegar verið bjargað en fimm úr áhöfninni er enn leitað. 1.6.2006 14:37
14 slösuðust í gassprengingu 14 slösuðust þegar gassprenging varð í kjallara 5 hæða húss í íbúðahverfi Istanbúl í Tyrklandi í morgun. 1.6.2006 14:15
Forsætisráðherra Íraks ætlar að höggva á hnútinn Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, ætlar að útnefna menn í embætti innanríkis- og varnarmálaráðherra landsins þegar þing kemur saman til fundar á sunnudaginn. Illa hefur gengið að skipa í embættin í þjóðstjórn landsins þar sem sjíar, súnníar og kúrdar hafa deilt um ráðherrastólana. 1.6.2006 14:00
10, 50 og 100 krónu seðlar innkallaðir Seðlabanki Íslands er nú að innkalla 10, 50 og 100 krónu seðla en um tvær og hálf milljón slíkra seðla er enn í umferð eða sem nemur um 119 milljónum króna. Þrátt fyrir að fyrir flestum séu 10, 50 og 100 krónu seðlar eitthvað sem heyrir sögunni til eru seðlarnir enn lögeyrir. 1.6.2006 13:47
6200 fórust í jarðskjálftanum á Jövu Nú er ljóst að rúmlega 6200 manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir indónesísku eyjuna Jövu á laugardaginn. Sameinuðu þjóðirnar segja neyðargögn hafa borist á flesta þá staði þar sem aðstoðar er þörf. 1.6.2006 13:45
Meirihluti í Fjallabyggð Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn í Fjallabyggð, nýju sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, ákváðu í gærkvöldi að mynda meirihluta í bæjarstjórn. Fleiri meirihlutar eru í burðarliðnum þessa stundina. 1.6.2006 13:30
Rammasamkomulag undirritað Fulltrúar Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja undirrituðu í morgun rammasamkomulag um útvegun Orkuveitunnar og Hitaveitunnar á raforku til álvers í Helguvík á Reykjanesi. 1.6.2006 13:15
Hætt kominn vegna eitrunar Ungur Íslendingur var hætt kominn og félagi hans veiktist alvarlega vegna eitrunar á hóteli í Búlgaríu í síðustu viku og eru þeir rétt að ná sér. Mennirnir dvöldu ásamt þriðja íslendingnum á sama hótelherbergi og kvörtuðu undan ágangi skordýra. Að því búnu hélu þeir út en einn þerra sneri fljótt til baka og lagði sig. Þegar hinir komu aftur var hann orðinn veikur og þegar annar þeirra hafði líka lagt sig um stund, vaknaði hann upp með sömu einkenni og hinn. Þeir urðu báðir svo máttfarnir að sjúkraflutningamenn þurftu að sækja þá upp á herbergi og voru þeir fluttir á sjúkrahús, þar sem þeir fengu strax bætienfi og næringu í æð, og aðra aðhlynningu. Eftir rúman sólarhring þar, fengu þeir að snúa aftur á hótelið og fengu nýtt herbergi, vegna gruns um að hættulegt skordýraeitur í fyrra herberginu hafi valdið veikindum þeirra. Sindri Alexandersson, sá sem veiktist minna, sagði í viðtali við NFS í morgun að þeir félagar væru orðnir rólfærir og aðeins farnir að geta nært sig, en ætluðu þrátt fyrir allt ekki að flýta heimförinni, enda landið fallegt, og svo muni ferðatrygging greiðslukortanna greiða sjúkrakostnaðinn. 1.6.2006 13:00
Forsætisráðherra vill bíða skýrslu um símhleranir Forsætisráðherra vill ekkert aðhafast vegna símhlerana hér á landi á kalda stríðsárunum, fyrr en skýrslu hefur verið skilað um málið. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í morgun. Formenn stjórnarandstöðunnar vilja að Alþingi komi að málinu frá upphafi. 1.6.2006 12:45
Mikael Torfason nýr ritstjóri tímaritsins Séð og heyrt Mikael Torfason, fyrrverandi ritstjóri DV, hefur verið ráðinn sem ritstjóri Séð og heyrt tímabundið en Elín Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fróða, staðfesti þetta í samtali við NFS. Mikael hefur undanfarið starfað á vegum Dagsbrúnar við undirbúning að fríblaði sem gefa á út í Danmörku. 1.6.2006 12:42
Íranar hætta ekki auðgun úrans Stjórnvöld í Íran tilkynntu í morgun að þau væru tilbúin til viðræðna við Bandaríkjamenn um kjarnorkumál en þau myndu samt ekki hætta auðgun úrans líkt og stjórnvöld í Washington gera kröfu um. 1.6.2006 12:30
Málaferli í uppsiglingu Margvísleg málaferli virðast vera í uppsiglingu eftir úrskurð Óbyggðanefndar um hvaða landsvæði á Suðvesturlandi skulu teljast þjóðlendur í ríkiseign. Þetta er að gerast þrátt fyrir að Óbyggðanefnd hafi hafnað hátt í helmingi krafna ríkisins til þjóðlendna. 1.6.2006 12:15
Rokkað í Reykjavík aflýst Tónlistarhátíðinni Rokkað í Reykjavík, sem átti að halda eftir mánuð, hefur verið aflýst vegna dræmrar sölu á aðgöngumiðum. 1.6.2006 10:45
Bíll valt út af þrengslavegi Ökumaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar bíll hans valt út af þrengslavegi í nótt. Vegfarandi, sem kom þar að, tók ökumanninn upp í og hringdi eftir sjúkrabíl. 1.6.2006 10:30
Hermenn skutu ólétta konu til bana Bandarískir hermenn skutu ólétta konu til bana í Bagdad í gær. Konan var á leið á fæðingardeildina þegar atvikið varð. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvers vegna þeir skutu konuna en fréttaskýrendur í Írak segja að almennir borgarar sem banað hefur verið af bandarískum hermönnum síðan innrás Bandaríkjamanna hófst fyrir þremur árum séu mörg hundruð. 1.6.2006 10:15
Deilt um ákvarðanavald í Austur-Tímor Forseta og forsætisráðherra Austur-Tímor greinir á um hvor fer með ákvarðanavald í ríkisstjórn landsins nú um stundir. (LUM) Forsetinn, Xanana Gusmao, tilkynnti í fyrradag að forsætisráðherrann, Mari Alkatiri, hefði afhent sér völdin eftir að tilraunir til að koma á friði í landinu hefðu mistekist. Alkatiri lýsti því hins vegar yfir í gær að hann færi að hluta til enn með völd í Austur-Tímor. 1.6.2006 10:00
Rammasamkomulag undirritað Fulltrúar Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja ætla í dag að undirrita rammasamkomulag um útvegun Orkuveitunnar og Hitaveitunnar á raforku til álvers í Helguvík á Reykjanesi. 1.6.2006 09:45
Sérkennileg staða varðandi virkjunarsvæði á Hellisheiði Óbyggðanefnd hafnaði hátt í helmingi krafna ríkisins til þjóðlendna á Suðvesturlandi, þótt ýmsir hagsmunaaðilar uni illa niðurstöðum nefndarinnar. Einkum er komin upp sérkennileg staða varðandi virkjunarsvæði Orkuveitu Reykjavíkur á Hellsiheiði. 1.6.2006 09:30
Íranar ætla ekki að hætta auðgun úrans Íranar tilkynntu í morgun að þeir myndu ekki hætta auðgun úrans, þrátt fyrir sáttaumleitan Bandaríkjamanna í gær. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að stjórnvöld í Washington væru tilbúin til viðræðna við Írana um stefnu þeirra í kjarnorkumálum. Það skilyrði er þó sett að Íranar hætti þegar auðgun úrans. 1.6.2006 09:26
Enn óeirðir í París Nokkur hundruð lögreglumenn stóðu vaktina í úthverfum Parísar í nótt. Þrátt fyrir rólegri nótt en síðustu tvær kveiktu mótmælendur í allmörgum bifreiðum og öskutunnum og voru þrír handteknir. 1.6.2006 09:15
D- og B-listi mynda meirihluta í Fjallabyggð Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í Fjallabyggð, nýju sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, ákváðu í gærkvöld að mynda meirihluta í bæjarstjórn. 1.6.2006 09:00
Sprenging í efnaverksmiðju á Englandi Mikil sprenging varð í efnaverksmiðju á Englandi seint í gærkvöld. Greiðlega gekk þó að slökkva eldinn og segja sérfræðingar enga hættu steðja að en verksmiðjan er í um 400 kílómetra fjarlægð frá Lundúnum. 1.6.2006 08:45
Norður-Kóreumenn bjóða Bandaríkjamönnum til viðræðna Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa boðið helsta samningamanni Bandaríkjastjórnar í kjarnorkudeilu landanna til viðræðna í höfuðborginni, Pyongyang. Þar með hafa norðurkóresk stjórnvöld látið í ljós vilja til að hefja á ný viðræður sem ríkin tvö, auk Rússlands, Kína, Suður-Kóreu og Japans, taka þátt í. 1.6.2006 07:42
Bandaríkjastjórn breyti aðferðum sínum Stjórnvöld í Íran segja að Bandaríkjastjórn verði að breyta aðferðum sínum, ef hún vilji að samskipti milli ráðamanna í Teheran, höfuðborg Írans, og Washington breytist í framtíðinnni. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að stjórnvöld í Washington væru tilbúin til viðræðna við Írana um stefnu þeirra í kjarnorkumálum. 1.6.2006 07:15